Morgunblaðið - 31.12.2006, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 37
Öryggi í orkumálum
O
g hvar passar Ísland inn í þessa
mynd? Ljóst er að orkuflutningar
munu færast í aukana á siglinga-
leiðum við Ísland. Öryggi í orku-
málum kemur því Íslandi meira
en lítið við. Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra fjallaði um þessi mál á ráð-
stefnu í Aþenu 7. desember: „Frá sjónarmiði Ís-
lands er orkuöryggi hin nýja vídd, sem gerir að
verkum að norðurhluti Norður-Atlantshafssvæð-
isins skiptir aftur máli innan NATO í pólitískum
og hernaðarlegum skilningi.“ Björn sagði að ör-
yggi í orkumálum ætti að verða fastur liður á
dagskrá NATO. Mikilvægt væri að bandalagsríki
beggja vegna Atlantshafsins ynnu saman að
orkuöryggi og það yrði hluti af þungamiðju í
stefnu bandalagsins í öryggismálum.
Björn vísaði til þess að það að NATO hefði
mikilvægu hlutverki að gegna í að tryggja öryggi
í orkumálum hefði verið staðfest með einróma
ályktun utanríkismálanefndar Bandaríkjaþings í
júní um að hefja ætti umræður innan bandalags-
ins um vaxandi mikilvægi orkuöryggis fyrir aðild-
arríki NATO: „Richard Lugar, öldungadeildar-
þingmaður og formaður nefndarinnar, sagði við
þetta tækifæri að aukin samkeppni um takmark-
aðar birgðir af olíu og gasi í heiminum gæti leitt
til ágreinings, sem aðildarríki NATO gætu flækst
inn í með beinum eða óbeinum hætti.“
Leita nýrra leiða
L
ugar hefur lagt mikla áherslu á að
leita nýrra leiða í orkumálum og á
heimasíðu sinni gerir hann ræki-
lega grein fyrir afstöðu sinni. Á
leiðtogafundi Atlantshafsbanda-
lagsins í Ríga í nóvember hélt
Lugar sérstaka fundi um þessi mál. Hann hefur
áhyggjur af því að Bandaríkin séu of háð inn-
flutningi á orkugjöfum og vill setja kraft í að
rannsaka og þróa nýja orkugjafa. Um þessar
mundir kunni þeir að vera dýrari en olía og gas,
en tækninni hafi fleygt fram og þegar framleiðsla
hefjist fyrir alvöru megi búast við að það breyt-
ist.
Íslendingar eru vel í sveit settir í orkumálum.
Nánast allt rafmagn í landinu er framleitt með
virkjun vatnsfalla eða jarðvarma. 70% orkunnar,
sem notuð er á Íslandi, eru framleidd innan
lands. 30% eru innflutt, aðallega olía. Þetta er
auðvitað óskastaða og ugglaust vildu mörg ríki,
sem eru öðrum háð um mestan hluta sinnar orku,
vera í sömu stöðu.
Þegar orkukreppan skall á í upphafi áttunda
áratugar 20. aldarinnar var kraftur settur í rann-
sóknir á öðrum orkugjöfum en olíu. Þegar krepp-
an var afstaðin dró hins vegar úr áhuganum og
nú er svo komið að í hinum vestræna heimi
leggja aðeins Japanar meira fé til slíkra rann-
sókna en þá var gert. Í flestum vestrænum ríkj-
um hefur framlagið staðið í stað eða minnkað
eins og gerst hefur í Bandaríkjunum. Þetta sýnir
ef til vill best hversu lítið hefur í raun verið hugs-
að fram í tímann. Þeir, sem hafa haft mesta hags-
muni af því að framlengja núverandi ástand, hafa
haft mikinn skriðþunga í umræðunni um slíkar
rannsóknir og það er kannski núna fyrst, sem
þeir eru að átta sig á því að ætli þeir að lifa af
þurfi þeir að tileinka sér nýja siði, hvort sem það
eru olíufyrirtæki eða bílaframleiðendur.
Hér á undan er vísað til þess að Svíar ætli sér
að verða óháðir öðrum um orku árið 2020 og
Brasilíumenn hafi alla burði til að verða sjálfum
sér nægir með framleiðslu etanóls og nýtingu ol-
íu- og gaslinda.
Barein norðursins
Á
Íslandi er nú unnið í verkefni, sem
snýst um að koma hér á „vetn-
issamfélagi“. Í bók eftir Jeremy
Rifkin, sem nefnist Vetnishag-
kerfið (The Hydrogen Economy)
og kom út 2002 segir að vegna
þessa verkefnis hafi Ísland nú fengið viðurnefnið
„Barein norðursins“. Rifkin er mikill talsmaður
vetnisvæðingar og heldur því fram að með henni
gætu markast þáttaskil þar sem valdahlutföll í
heiminum gætu raskast með þeim hætti að vald
flyttist frá þeim, sem hingað til hafa getað tuddað
á öðrum í krafti orkuauðlinda. Hann bendir á að
olíuframleiðsla ríkja utan OPEC, samtaka olíu-
framleiðsluríkja, hafi nánast náð hámarki og þau
forðabúr, sem eftir séu, sé að finna í Mið-Aust-
urlöndum. Vaxandi spenna milli íslams og Vest-
urlanda geti ógnað aðgangi vestrænna ríkja að
olíu. Vetni geti hins vegar orðið til þess að taka
púðrið úr þeim hættulega leik, sem nú eigi sér
stað milli herskárra múslíma og vestrænna þjóða.
Fyrirtækið Íslensk nýorka var stofnað utan
um vetnisvæðingarverkefnið hér á landi. Eins og
kemur fram á heimasíðu fyrirtækisins er það
vettvangur samvinnu orkufyrirtækja og rann-
sóknastofnana, sem nefnist Vistorka. Hún er í
eigu Nýsköpunarsjóðs, Hitaveitu Suðurnesja,
Orkuveitu Reykjavíkur, Landsvirkjunar, Iðn-
tæknistofnunar, Háskóla Íslands, Áburðarverk-
smiðjunnar í Gufunesi og Aflvaka. Samanlagt á
Vistorka 51% í Íslenskri nýorku. Á móti kemur
hlutur þriggja erlendra fyrirtækja, Daimler-
Chrysler, Norsk Hydro og Shell International,
sem hvert um sig eiga 16,3%. Markmiðið með
verkefninu er að breyta Íslandi í vetnissamfélag,
í fyrstu með því að vetnisvæða bíla- og skipaflota
Íslendinga, en síðan standa vonir til þess að héð-
an mætti flytja út vetni. Þetta verkefni er ekki
einsdæmi því að svipuð áform eru uppi á Hawaii,
þar sem ætlunin er að nota jarðvarma og sól-
arorku til þess að framleiða vetni, jafnvel með
það fyrir augum að flytja það út þegar fram í
sækir.
Vetnissamfélag 2050?
J
ón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri
Íslenskrar nýorku, hefur sagt að tak-
ist vel til með verkefnið gæti verið
svo komið árið 2050 að í samgöngum
og hjá fiskiskipaflotanum verði að
mestu notað vetni. Íslendingar geta
ekki flýtt þróun nýrrar tækni og ef til vill er það
rétt að þróunin verði ekki hraðari en svo að vetn-
isfarartæki muni ekki verða algeng fyrr en eftir
hálfa öld, eins og spáð er hjá Shell. Svo virðist
hins vegar sem krafturinn í rannsóknum á nýjum
orkugjöfum til notkunar í samgöngum sé nú að
aukast og þar leikur vetnið stórt hlutverk. Þróun-
in í þessum efnum gæti því orðið hraðari en nú er
spáð. Það myndi skipta miklu um öryggi Íslands
ef landið yrði með öllu óháð utanaðkomandi orku-
gjöfum og stæði fyrir utan „hið nýja kalda stríð“
sem áður er lýst. Landið yrði þá ekki háð sveifl-
um í verðlagi á olíu og gasi og eða baráttunni um
olíuna þegar framleiðslan hættir að anna eft-
irspurninni. Það kæmi sér einnig vel fyrir ís-
lenskt efnahagslíf ef Íslendingar yrðu í farar-
broddi í þróun nýrrar tækni, sem gæti komið til
með að leysa af hólmi olíuna, en fátt hefur jafn
mikil áhrif á hegðun þjóða í valdatafli heims-
stjórnmálanna. Því á að leggja aukinn kraft í að
fylgja eftir þeim nýjungum, sem fram koma, þétt
eftir.
» Landið yrði þá ekki háð sveiflum í verðlagi á olíu og gasiog eða baráttunni um olíuna þegar framleiðslan hættir
að anna eftirspurninni. Það kæmi sér einnig vel fyrir ís-
lenskt efnahagslíf ef Íslendingar yrðu í fararbroddi í þróun
nýrrar tækni, sem gæti komið til með að leysa af hólmi olí-
una, en fátt hefur jafn mikil áhrif á hegðun þjóða í valdatafli
heimsstjórnmálanna.
rbréf
Morgunblaðið/ÞÖK
Háhitasvæðið á Hellisheiði Gangi eftir áform um að gera Ísland að vetnissamfélagi og nota endurnýjanlegar orkulindir gæti það gert landið óháð í orkumálum og styrkt stöðuna í öryggismálum.