Morgunblaðið - 31.12.2006, Qupperneq 44
44 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Í MORGUNBLAÐINU hinn 18.
október sl. birtist grein eftir und-
irrituð sem fjallar um lestrarhæfni ís-
lenskra barna. Þar voru ræddar nið-
urstöður rannsókna sem sýna fram á
að lestrarkunnáttu 15 ára barna á Ís-
landi hefur hrakað verulega milli ára
og hallar þar frekar á drengi en stúlk-
ur. Umræddar niðurstöður eru
byggðar á umfangsmikilli rannsókn á
hæfni og getu 15 ára nemenda í ýms-
um námsgreinum í 32 löndum og birt-
ust í PISA 2000 og 2003. Stærðfræði
er meðal þeirra námsgreina sem
skoðuð var og sýna niðurstöður að
rúmfræðikunnáttu 15 ára barna á Ís-
landi hefur hrakað verulega milli
mælinga. Ísland er einnig eina landið
af þátttökulöndunum 32 þar sem
drengir eru slakari en stúlkur í
stærðfræði. Þessar niðurstöður vekja
ugg og ljóst er að þær þarf að taka al-
varlega og skoða hvað getur legið til
grundvallar.
Þegar bæði lestrar- og stærð-
fræðikunnáttu barna hrakar milli ára
vaknar sú spurning hvort tengsl séu
þar á milli. Börn standa misjafnlega
vel að vígi við upphaf skólagöngu
hvað varðar lestrargetu og stafa-
kennsl. Texti í stærðfræðibókum
yngri barna er talinn hugsanleg
ástæða fyrir því að árangur í lestri og
stærðfræði helst í hendur. Sumar
kennslubækur sem notaðar eru í
stærðfræði fyrir fyrsta bekk, inni-
halda orðadæmi sem byggjast á les-
skilningi nemenda. Börnin þurfa þá
að geta lesið og skilið orðadæmi sem
eru t.d. eins og eftirfarandi: „Strák-
arnir hans Jóns, Leifur og Ari, léku
sér úti á hlaði með bílana sína. Leifur
var með 4 bíla og Ari var með 3. Hvað
voru bílarnir margir?“ Barn sem
kann ekki að lesa mun eiga í erf-
iðleikum með að leysa slík orðadæmi.
Þá gæti það reynst lesblindum börn-
um sérstaklega erfitt. Kennarar og
foreldrar eru oft til staðar og aðstoða
við úrlausnir skólaverkefna. Þegar
börn hinsvegar þurfa að miklu leyti
að treysta á aðra er líklegt að það ýti
undir vanmáttarkennd gagnvart
námsefninu. Í ljósi þess er spurt:
Hver eru rökin fyrir svo miklum
texta í stærðfræðibókum á fyrstu
námsstigum?
Í færninámi er mikilvægt að byggt
sé á góðum grunni, til að ná fram
sjálfvirkni og öryggi á seinni stigum.
Það er á yngsta stigi grunnskólanáms
sem sá hornsteinn er
lagður í lestrar- og
stærðfræðigetu. Hætt
er við að þau börn sem
ekki geta fylgt hópn-
um eftir í upphafi nái
ekki þeirri sjálfvirkni
sem nauðsynleg er fyr-
ir framhaldið. Því er
mikilvægt að öll börn
fái eins mikla þjálfun
og möguleg er. Hver
og einn verður að fá
áskorun og kennslu við
sitt hæfi frá fyrsta
skóladegi. Þau verkefni sem börnin fá
í upphafi verða að renna styrkum
stoðum undir þann grunn sem er
nauðsynleg forsenda frekara náms.
Þegar börn mæta spennt í skólann
í upphafi skólagöngu er mikilvægt að
hlúa sem best að þörfum þeirra strax
og efla sjálfstraust gagnvart því stóra
verkefni sem framundan er. Slíkt er
hinsvegar ekki undir neinum einum
komið en þegar foreldrar, kennarar
og aðrir vinna saman að ákveðnu
markmiði er líklegt að góður árangur
náist. Mikilvægt er að fylgjast vel
með því að námsefnið sé í samræmi
við getu hvers barns og standi það
verr en skyldi, verður að bregðast
fljótt við. Annað getur haft þær af-
leiðingar að barn standi höllum fæti
allt fram á unglingsár, jafnvel lengur.
Að okkar mati eru forsendur góðr-
ar færni í stærðfræði því þær að
sleppa orðadæmum þar til góð lestr-
arfærni og lesskilningur er til staðar.
Einnig að næg þjálfun sé veitt sem
miðuð er við getu hvers einstaklings.
Orðadæmi fyrir ólæs börn!
Sigrún Heimisdóttir, Hermund-
ur Sigmundsson og Sjöfn
Evertsdóttir fjalla um lestrar-
og stærðfræðihæfni barna
»Mikilvægt er aðfylgjast vel með því
að námsefnið sé í sam-
ræmi við getu hvers
barns og standi það verr
en skyldi verður að
bregðast fljótt við.
Hermundur
Sigmundsson
Sigrún og Sjöfn eru nemendur á 3. ári
í sálfræði við Háskólann á Akureyri.
Hermundur er prófessor í sálfræði
við Háskólann á Akureyri.
Sjöfn
Evertsdóttir
ÞÆR voru skemmtilegar jóla-
kveðjurnar frá ritstjóra FÍB
blaðsins á sjálfan aðfangadag-
inn. Þar var undirritaður
sakaður um niðurrifs-
starfsemi og blekk-
ingar og að vera tvö-
faldur í roðinu
varðandi umræðuna
um hættu mót-
orhjólafólks af víravegr-
iðum. Stefán virðist líka
sjá einhverskonar
samsæri og blekking-
arleik út úr þessum
umræðum enda eru
það líka ráð manna
sem hafa engin rök í
baráttunni lengur.
Slíkt er ekki svara-
vert og ætla ég ekki
að leggja mig niður
við það. Það sem
stendur þó upp úr í
umræðunni er hvað
maðurinn hefur eig-
inlega við það að at-
huga að mót-
orhjólafólk skuli hafa
áhyggur af öryggi
sínu.
Það er hreint með
ólíkindum hvernig sumum tekst að
misskilja hlutina eins og þeim
hentar. Að segja að ég hafi verið
að draga í land með hættu mót-
orhjólafólks af víravegriðum í síð-
ustu grein minni er í besta falli
misskilningur af hálfu Stefáns og í
versta falli vísvitandi ósannindi.
Ekki logaði skilningsljósið alla-
vega á þeim bænum við lestur
greinar minnar, svo mikið er víst.
Það er rétt að ég segi ostaskera
vera rangnefni eins og Stefán ætti
sjálfur að vita, það tók ég líka sér-
staklega fram í fyrirspurn
minni á nýafstöðnu Um-
ferðarþingi, þingi sem
Stefán sat sjálfur. Þeir
sem lesið hafa þessar
ritdeilur okkar Stefáns
geta líka best séð sjálfir
að það er einungis
Stefán sem notar osta-
skerasamlíkinguna og
það í óhófi.
Meiri meiðsli við
víravegrið
Stefán kallar undir-
skriftarsöfnun Snigla
gegn víravegriðunum
atlögu að öryggismáli.
Þannig lætur hann í
veðri vaka að bif-
hjólafólki sé sama um
öryggi annarra en
þess sjálfs í umferð-
inni. Slíkt er auðvitað
fráleitt og eins og ég
hef nú bent á í tví-
gang er það alls ekki
ætlun bifhjólafólks að
ekkert komi í staðinn
fyrir víravegriðin. Svo það sé nú
sagt einu sinni enn í þeirri von að
Stefán skilji, að þá viljum við ein-
faldlega vegrið sem að skapa okk-
ur ekki augljósa hættu. Eins og
Stefán bendir réttilega á í grein
Engin niðurrifs-
starfsemi hjá mót-
orhjólafólki
Njáll Gunnlaugsson
skrifar lokasvar til ritstjóra
FÍB blaðsins í umræðunni
um víravegriðin
Njáll Gunnlaugsson
»… hætta áalvarlegum
meiðslum á
höfði og líkama
mótorhjóla-
mannsins marg-
faldast við
árekstur á víra-
vegrið.
!
"
!
!#!!
! $!%!
& ' ! (
)#%!
! $ $ !#
*!+#
,! - *.!#
'
+
ÞINGHOLTSSTRÆTI - MIKIÐ UPPGERT
Mjög fallegt og mikið standsett 270 fm einbýlishús á frábærum stað í Þingholtunum. Húsið skiptist þannig:
1. hæð: 3 stofur, eldhús, gestasnyrting og forstofa. Rishæð: Gangur, 5 herbergi og baðherbergi. Kjallari:
Hol, stórt sjónvarpsherbergi, þvottahús, forstofa og stór nýleg sólstofa. Hér er um að ræða frábært hús
sem mikið hefur verið gert fyrir síðustu árin. 6346
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
www.valholl.is
www.nybyggingar.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
Til sölu
við Smiðjuveg í Kópavogi
verslunar- og þjónustuhúsnæði, 134 fm jarðhæð.
Um er að ræða eitt rými ásamt starfsmannaaðstöðu og salerni. Góð lofthæð,
góðar innkeyrsludyr, (vörumóttaka) ásamt sérinngangi.
Húsnæðið er sýnilegt, góð aðkoma ásamt góðu athafnasvæði.
Einnig er til sölu samskonar bil við hliðina sem er ca 150 fm að stærð.
Óskað er eftir tilboðum í eignina
Sími 588 4477
Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson
í símum 822 8242 og 588 4477