Morgunblaðið - 31.12.2006, Page 54
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
S
einustu tónleikar ársins
verða haldnir í Hall-
grímskirkju kl. 17:00 í
dag, gamlársdag. Þar
kemur fram Tromp-
eteria-hópurinn ásamt Kristni Sig-
mundssyni og strengjaleikurum.
„Þessir gamlársdagstónleikar,
Hátíðarhljómar við áramót, voru
haldnir fyrst árið 1992 og hafa verið
hvern gamlársdag síðan þá,“ segir
Hörður Áskelsson orgelleikari og
meðlimur í Trompeteria-hópnum
ásamt trompetleikurunum Ásgeiri
H. Steingrímssyni og Eiríki Erni
Pálssyni. „Hugmyndina að tónleik-
unum fékk ég þegar ég bjó úti í
Þýskalandi en þar í landi er hefð fyr-
ir því að halda orgeltónleika á gaml-
ársdag. Það sem hvatti mig hins veg-
ar til að fara af stað með þá var sú
eftirspurn sem ég varð var við eftir
afþreyingu af þessu tagi á þessum
degi. En þegar ég var að búa mig
undir messu kl. 18 á gamlársdag í
Hallgrímskirkju kom oft mikið af
ferðamönnum í kirkjuna sem spurðu
hvort það væru ekki einhverjir tón-
leikar í gangi.“
Með svipuðu sniði
Alltaf er messað í kirkjunni kl. 18
á gamlársdag, ákveðið var að hafa
tónleikana rétt á undan messunni og
þannig tengja þessa tvo viðburði
saman. Aðsóknin á tónleikana hefur
verið mjög góð frá upphafi og aukist
frekar á milli ára. „Það er hópur af
Íslendingum sem hefur gert það að
venju á gamlársdag að mæta á þessa
tónleika áður en farið er til hátíð-
arhalda kvöldsins.“
Hörður segir tónleikana hafa ver-
ið með svipuðu sniði á milli ára. „Við
spilum meira að segja svolítið af
sömu verkunum, ég held t.d. að við
höfum öll árin spilað Adagio eftir
Albinoni, en svo höfum við líka alltaf
verið með einhverjar nýjungar.“
Nú í ár fær Trompeteria-hópurinn
til liðs við sig stórsöngvarann Krist-
in Sigmundsson.
„Það var nú svolítið skondið
hvernig við fengum Kristin með
okkur. Ég, hann, Ásgeir og Eiríkur
fórum saman í veiðitúr í sumar. Þar
heyrði hann diskinn sem við gáfum
út fyrir nokkrum árum og hreifst
svo af þessu samspili orgels og
trompets að við spurðum hvort hann
vildi ekki vera með okkur í ár og
hann sagði strax já.“
Kristinn mun flytja þrjár aríur frá
fyrri hluta 18. aldar sem eru skrif-
aðar fyrir trompet og bassasöng.
Tvær þeirra eru meðal þekktustu
bassaaría óratóríubókmenntanna,
þetta eru aríurnar Großer Herr, o
starker König úr Jólaóratóríu
Bachs, Wacht auf, ihr Adern und ihr
Glieder úr kantötu hans Unser
Mund sei voll Lachens og arían The
Trumpet shall Sound úr óratoríunni
Messías eftir Händel. Fimm
strengjaleikarar leika með í aríum
Kristins.
Að auki hljómar á tónleikunum í
flutningi Trompeteria-hópsins Ron-
deau eftir Jean Joseph Mouret,
Tokkata í D-dúr eftir Alessandro
Scarlatti og Adagio í g-moll eftir
Tomaso Albinoni.
Annar diskur á leiðinni
Hörður, Ásgeir og Eiríkur stofn-
uðu Trompeteria-hópinn árið 1993.
Á síðasta ári komu þeir fram á tón-
leikum í tónleikasal Fílharmóníunn-
ar í Pétursborg og á næsta ári verða
þeir gestir á orgeltónlistarhátíð í
Suður-Þýskalandi. Fyrir nokkrum
árum kom út geisladiskur, Tromp-
etería, með úrvali þeirra verka sem
þeir hafa flutt í áranna rás.
Spurður hvort von sé á meira efni
frá hópnum jánkar Hörður því. „Það
er orðin mjög áleitin krafa frá okkur
sjálfum og öðrum að gefa út annan
disk og hann er í bígerð hjá okkur á
næsta ári.“
Tónleikarnir eru hluti af afmælis-
dagskrá Listvinafélags Hallgríms-
kirkju sem er nú að halda upp á 25.
starfsár sitt. Einnig eru þetta loka-
tónleikar Jólatónlistahátíðar Hall-
grímskirkju sem hófst 3. desember
sl. Tónleikarnir hefjast kl. 17:00 í
dag og segir Hörður efnisskrána
frekar stutta. „Hún er ekki nema um
45 mínútur en í beinu framhaldi af
tónleikunum er messa í kirkjunni
þar sem þeir verða áfram, tromp-
etarnir og Kristinn, þannig að þeir
sem sitja áfram geta heyrt meira í
okkur og það er náttúrulega ókeypis
í guðsþjónustuna en 2000 krónur
kostar inn á tónleikana.“
Seinustu tónleikar ársins
Morgunblaðið/G.Rúnar
2006 Kristinn Sigmundsson, Trompeteria-hópurinn ásamt strengjakvartett koma fram í Hallgrímskirkju.
Kristinn Sigmundsson og Tromp-
eteria-hópurinn í Hallgrímskirkju
NJÖRÐUR P. Njarðvík hlaut menn-
ingarverðlaun Sænsk-íslenska
menningarsjóðsins fyrir árið 2006.
Verðlaunin eru veitt Nirði fyrir ára-
tuga eftirbreytnisverð störf hans til
að efla menningartengsl Svía og Ís-
lendinga. Hann hefur m.a. verið
mikilvirkur þýðandi sænskra og
Finnlands-sænskra ljóða. Má í því
sambandi minna á söfn ljóðaþýðinga
eftir skáld eins og Tomas Tranströ-
mer (Tré og himinn) og Verner
Aspenström (Vindar hefja sig til
flugs), sem og ljóðasöfn eftir Edith
Södergran, Bo Carpelan og Lars
Huldén, auk fjölda annarra sænskra
bóka.
Njörður var lektor í íslensku við
Gautaborgarháskóla 1966–71 og
gegndi þá jafnframt formennsku í
samtökum erlendra lektora í Svíþjóð
og sat í stjórn félags háskólakennara
þar. Samtímis sinnti hann kennslu-
skyldu við háskólann í Lundi. Hann
var formaður Sænsk-íslenska félags-
ins á Íslandi 1971–75. Árið 2000
hlaut hann verðlaun Sænsku aka-
demíunnar fyrir kynningu á sænskri
menningu erlendis.
Sænsk-íslenski samstarfssjóður-
inn var stofnaður 1995 í kjölfar gjaf-
ar sænsku ríkisstjórnarinnar til Ís-
lendinga á fimmtíu ára lýðveldisári.
Menningarsjóðurinn var stofnaður
skömmu síðar og hafa verið veitt
verðlaun úr honum sem næst annað
hvert ár síðan.
Sveinn Einarsson, varaformaður
Sænsk-íslenska menningarsjóðsins,
afhenti Nirði verðlaunin við hátíð-
lega athöfn í Sænska sendiráðinu á
föstudaginn.
Njörður P. Njarðvík
verðlaunaður
Morgunblaðið/G.Rúnar
Hátíðarstund Við verðlaunaafhendinguna: Madeleine Ströje - Wilkens sendiherra frá Svíþjóð, Njörður P. Njarð-
vík verðlaunahafi og Sveinn Einarsson varaformaður sænsk-íslenska sjóðsins.
staðurstund
María Kristjánsdóttir dæmir
leikritið Ófagra veröld sem var
frumsýnt í Borgarleikhúsinu
milli jóla og nýárs. » 55
dómur
Það kennir ýmissa grasa á lista
yfir traustustu „Íslandsvini“
ársins 2006. Má þar finna Gor-
batsjov og Kate Winslet. » 60
Íslandsvinir
Annáll um myndasöguárið
2006 frá Heimi Snorrasyni auk
lista yfir fimm bestu mynda-
sögubækur ársins. » 58
bækur
Heiða Jóhannsdóttir gagnrýnir
teiknimyndina Fráir fætur eða
Happy Feet sem nú er sýnd í
bíóhúsum landsins. » 68
kvikmyndir
Í Tónlist á sunnudegi fjallar Árni
Matthíasson um árslista og
segir Netið vera að ryðja úr vegi
markaðshindrunum. » 59
tónlist
|sunnudagur|31. 12. 2006| mbl.is