Morgunblaðið - 28.01.2007, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 35
Grammy-verðlaun. Það voru því
miklar væntingar bundnar við
næstu plötu, Feels Like Home,
sem kom út 2004. Hún segist oft
hafa fundið fyrir talsverðri pressu
þegar hún og Alexander fóru í
hljóðver að taka þá skífu upp. Þau
einsettu sér að fara aðra leið en á
Come Away With Me, drógu úr
djassinum og í hans stað kom
kántrítónlist.
„Við höfðum ekki mikinn tíma til
að taka Feels Like Home upp og
unnum hana því hratt þótt ekkert
hafi verið slegið af í vinnubrögðum
eða innlifun. Það var líka mikill
léttir þegar upptökum lauk og ég
gat dregið mig aðeins út úr hama-
ganginum,“ segir hún. Platan seld-
ist ekki eins vel og Come Away
With Me, kemur kannski ekki á
óvart, en var þó vel tekið og fékk
fína dóma.
Eftir þetta segir Jones að það
hafi orðið einskonar spennufall,
fargi hafi verið af sér létt og lífið
varð mun þægilegra. Þegar þau Al-
exander byrjuðu síðan upptökur á
þriðju plötunni, Not too Late, sem
kom út í síðustu viku, gátu þau
dundað sér við upptökur í heima-
hljóðveri hans, því þótt hún hafi
verið með ákveðinn skiladag í
huga, þá réð hún ferðinni að öllu
leyti.
„Not too Late varð til í allt öðru
andrúmslofti, miklu minni pressa
og mun meiri tími, og þeir sem
spenntir eru fyrir henni eru
spenntir fyrir tónlistinni, en ekki
því hversu söluvænleg hún er,“
segir hún en bætir þó við að hún
kunni reyndar vel við það að vinna
hratt; „ef maður þarf að liggja of
mikið yfir hlutunum þá tapar mað-
ur upprunalega innblæstrinum“,
segir hún og heldur svo áfram: „Ég
hef ekki gaman af að liggja yfir
hlutunum, eyða mörgum mánuðum
í að taka upp eitt lag. Þegar búið
er að finna réttu leiðina á maður
líka að vera fljótur að vinna því þá
kemst maður fyrr í næsta lag,“
segir hún og hlær við.
Frekar ráðrík
Norah Jones segist alla jafna
ráða ferðinni í samstarfi hennar við
Lee Alexander. „Ég er frekar ráð-
rík og ákveðin og hann aftur á móti
afskaplega rólyndur og í góðu jafn-
vægi þannig að ég ræð ferðinni alla
jafna. Svo þegar ég er ekki viss
hvaða leið eigi að fara er hann allt-
af með það á hreinu.“
Samstarfinu var annars þannig
háttað að þessu sinni að hún samdi
lögin, helming þeirra með aðstoð
Alexanders, og síðan önnuðust þau
útsetningar og stýrðu upptökum
saman. „Hann er frábær vinnu-
félagi og frábær lagasmiður og við
pössum ótrúlega vel saman í hljóð-
verinu. Ég er mjög gefin fyrir inn-
blástur augnabliksins, fæ hugmynd
og dríf hana inn á band með það
sama, en hann situr kannski
klukkutímum saman yfir lagi og
gljáfægir það.“
Þegar við áttum okkar spjall var
platan ekki komin út en Norah
Jones á kafi í skipulagningu á
næstu tónleikaferð sinni og öllu því
umstangi sem því fylgir. Hún segir
að það sé ekki mikið mál að semja
tónlist og taka hana upp, að gera
það sem henni finnist skemmtileg-
ast. „Nei, málið er allt það sem
fylgir til að kynna plötuna. Mér
finnst það ekki vinna að búa til tón-
list, en það er vinna að kynna hana
og selja.“
Til að fylgja Not too Late eftir
heldur Norah Jones í tónleikaferð
um heim allan, verður átta mánuði
á ferðinni að minnsta kosti. Hún
segir að sér finnist afskaplega
gaman að spila fyrir fólk, en að
sama skapi leiðinlegt að vera sífellt
á ferð og flugi. „Ég hlakka mjög til
að geta farið að spila fyrir fólk og
mig langar til að spila sem víðast,
helst á stöðum sem ég hef ekki
komið til áður, til að mynda Ís-
landi, ég myndi gjarnan vilja spila
þar.“
arnim@mbl.is
‒ Hagur allra!
Öryggi ogheilbrigði
á vinnustað
Námstefna á Hotel Nordica 31. janúar 2007
Námstefnustjóri: Sigmar Guðmundsson, dagskrárgerðarmaður
Rannsóknarþjónustan Sýni ehf.
Nánari uppl‡singar á www.vst.is / www.syni.is
10:10 Morgunhressing
12:05 Hádegisverður
8:40 Öryggi og starfsánægja - Mikilvægur þáttur framleiðslugæða
Valgerður Ásta Guðmundsdóttir, matvælafræðingur
9:10 Líkamlegt álag – Forvörn gegn verkjum
Magnús H. Ólafsson, sjúkraþjálfari
9:40 Samskipti á fjölmenningarlegum vinnustöðum
Gerður Gestsdóttir, mannfræðingur
10:40 Kvíði í samskiptum og starfi
Erla S. Grétarsdóttir, sálfræðingur
11:10 Hvernig gerum við gott vinnuumhverfi enn betra?
Dóra Hjálmarsdóttir, verkfræðingur
Guðrún E. Gunnarsdóttir, matvælafræðingur
11:40 Góður matur, góð hreyfing, gott hugarfar:
Léttvægt tuð, eða lykilþáttur?
Guðrún Adolfsdóttir, matvælafræðingur
12:50 Vinnusálfræði – Mannauðsstjórnun
Hlutverk stjórnenda: Stjórna stjórnendur?
Svali Björgvinsson, MA mannauðsstjórnun
13:30 Veikindafjarvistir og starfsmannavelta
í íslenskum fyrirtækjum 2002–2005
Hannes G. Sigurðsson, hagfræðingur
13:50 Reynslusögur
Burger King, Ævar Olsen
Landsnet, Lúðvík B. Ögmundsson
Ísfugl, Þorsteinn Þórhallsson
14:35 Fyrirspurnir og umræður
8:30 Setning
Skráning fyrir 29. janúar á netföngin rtg@vst.is og linda@syni.is