Morgunblaðið - 28.01.2007, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 28.01.2007, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 57 ✝ Einlægar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra bróður, tengdabróður og frænda, GUÐMUNDAR ARNALDAR GUÐNASONAR, Aðalgötu 22, Suðureyri, Súgandafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Fjórðungssjúkrahúss Ísafjarðar og síðast en ekki síst til heimahjúkrunar Ísafjarðarbæjar. Systkini, tengdasystkini og systkinabörn. ✝ Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, ÞORSTEINS V. KRISTJÁNSSONAR fyrrum bónda að Uppsölum, Svarfaðardal. Guð blessi ykkur öll. Freygarður Þorsteinsson, Elín S. Guðmundsdóttir, Kristján Þorsteinsson, Sæunn Guðmundsdóttir, Sigurður Einarsson, Birna Jóhannsdóttir og fjölskyldur. ✝ Elskulega fjölskylda og vinir. Kærar þakkir fyrir allan stuðninginn sem við höfum fengið við brottför TORFA FREYS ALEXANDERSSONAR af þessari jörð. Minning hans lifir í hjörtum okkar. Ekki gleyma gleðinni og kærleikanum. Guð blessi ykkur öll. Renata Edwardsdóttir, Karólína Vilborg Torfadóttir, Hafdís Lilja Torfadóttir, Alexander Valdimarsson, Hafdís Lilja Pétursdóttir, Ágúst Guðmundsson, Bjarki Þór Alexandersson, Elín Jónsdóttir, Óliver Bjarkason, Soffía Bæringsdóttir, Helgi Hafsteinsson, Hlynur Bæringsson, Unnur Edda Davíðsdóttir, Valdimar Ólafsson, Helga Árnadóttir, Vilborg Torfadóttir. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vinarþel við andlát elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRU KRISTÍNAR EIRÍKSDÓTTUR, Efstaleiti 12, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 14. janúar síðastliðinn. Sérstakar þakkir til lækna- og hjúkrunarliðs Land- spítalans, hjúkrunarþjónustunnar Karitasar og starfs- fólks líknardeildarinnar fyrir frábæra meðferð og umönnun. Tómas Árnason, Eiríkur Tómasson, Þórhildur Líndal, Árni Tómasson, Margrét Birna Skúladóttir, Tómas Þór Tómasson, Helga Jónasdóttir, Gunnar Guðni Tómasson, Sigríður Hulda Njálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri/Framkvæmdarstjóri S. 892 8947 / 565 6511 ✝ Alúðarþakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ALBERTS JÓNASSONAR, f. 1.11. 1915, d. 7.1. 2007, Nökkvavogi 44, Reykjavík. Eins viljum við færa starfsfólki deildar 13G, Land- spítala við Hringbraut, sérstakar þakkir fyrir góða umönnun á síðustu mánuðum ævi hans. Oddrún Albertsdóttir, Þorbergur Ormsson, Ásgerður Albertsdóttir, Hans Aðalsteinsson, Oddrún Hansdóttir, Ingjaldur Tómasson, Albert Hansson, Þórunn Yngvadóttir, Þórður Hansson, Kristín Hulda Þorbergsdóttir, Birgir Þór Birgisson, Berglind Þorbergsdóttir, Ríkarður Reynisson, Jónas Þorbergsson og langafabörn. ✝ Innilegar þakkir til þeirra er auðsýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls föður okkar, tengdaföður og afa, SVAVARS ÓLAFSSONAR klæðskera. Guðrún Svava Svavarsdóttir, Kristján Jóhann Svavarsson, Hlíf Svavarsdóttir, Edda Sigurðardóttir og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og jarðarför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalang- ömmu, SÆUNNAR ÞURÍÐAR GÍSLADÓTTUR, til heimilis á Hrafnistu í Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild E á Hrafnistu fyrir frábæra umönnun. Margrét Kjartansdóttir, Vigfús Sólberg Vigfússon, Gísli Kjartansson, Júlíana Aradóttir, Svava Kjartansdóttir, Ingibjörg Kjartansdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þegar árið var að kveðja kvaddi líka hann Þröstur litli bróðir minn. Við höfðum talað sam- an stuttu fyrir jólin, þá sagðist hann myndu hringja seinna. En þetta seinna varð aldrei. Hann talaði mik- ið um Júlíu, litla afabarnið sitt. Auð- heyrt var að það að vera afi var mik- ils virði fyrir hann. Þegar hann var lítill var hann alltaf mikið fyrir börn og þau hændust að honum. Hann var bara lítill strákur þegar ég flutt- ist burt og settist að í fjarlægu landi, svo stundum liðu ár sem við hitt- umst ekki. En þegar ég kom hingað með börnin mín til dvalar í nokkur ár kynntumst við á nýjan leik. Þá átti hann líka lítinn dreng sem lék sér oft með yngri dætrum mínum. Þegar ég læt hugann reika til ár- anna á Ísafirði þá vorum við syst- urnar oft að siða bræður okkar til sem var nú ekki vinsælt hjá þeim, en seinna gátum við brosað að öllu þessu. Þeir vildu líka hafa hönd í bagga með hvað við vorum að bralla, en það gekk ekki heldur. Honum lík- aði ekki að ég flytti til Ameríku og skildi alls ekki hvað ég væri að gera þar. Hann sjálfur hafði mikla æv- intýraþrá enda var hann búinn að ferðast víða um lönd. Hann var mik- ið í golfi og fótbolta þegar hann var ekki á sjónum. Seinna kynntist hann Taílandi, þá heillaðist hann af fegurð landsins og þar voru líka frábærir golfvellir sem hann nýtti sér mikið. Síðasta ár var honum erfitt, barátt- an hörð og að lokum töpuð. Ég og börnin mín, Irene, Tony, Brynja og Tanja, kveðjum nú kæran bróður og frænda, þökkum honum samfylgdina. Megi guð fylgja hon- um. Við munum sakna hans mikið. Friðrikka. Það er sárt að setjast niður og skrifa minningargrein um Þröst frænda minn, sem látinn er langt fyrir aldur fram. Sem lítil stelpa vildi ég helst af öllu vera á Ísafirði hjá ömmu og afa á Hlíðarveginum. Þar var gott að vera, mikill gestagangur og mikið að gerast. Á Hlíðarveginum bjuggu einnig amma Dísa og bræður mömmu, þar á meðal Þröstur. Þann- ig að það var allt látið eftir mér þeg- ar ég kom. Þröstur byrjaði iðulega á því að gefa mér lýsi og að koma ofan í mig fiski, sem aldrei hefur verið í uppáhaldi hjá mér. Fótbolti var í miklu uppáhaldi hjá honum, og ég man að það var allt heilagt þegar verið var að horfa á ensku knatt- spyrnuna inni í stofu á Hlíðarveg- inum. Þá mátti alls ekki trufla hann. Snemma á síðasta ári greindist Þröstur með krabbamein og var það ljóst að baráttan yrði erfið. Hann lét ekki mikið á því bera hve veikur hann var. Þegar við hittumst síðasta Þröstur Jónsson ✝ Þröstur Jónssonfæddist á Flat- eyri við Önund- arfjörð 24. apríl 1957. Hann lést eftir erfið veikindi á sjúkrahúsi í Bang- kok 29. desember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Grafarvogskirkju 18. janúar. sumar og í haust þeg- ar hann kom til lands- ins, var ég viss um að hann myndi sigra þennan sjúkdóm; ef einhver gæti það, þá væri það hann. Þröstur bjó á Vest- fjörðum lengst af og svo síðustu ár í Taí- landi. Því hittumst við allt of sjaldan, en hann kom stundum í bæinn og þá var gaman að sitja í eldhúsinu á Ási hjá ömmu og tala um lífið og tilveruna við hann, hlæja og grínast, hann hafði einstaklega gam- an af því að gera at í mér. Það var gaman að spjalla við hann um ferða- lög hans um Asíu og heyra um fyr- irtækið sem hann var með í Taílandi. Þröstur var mikil barnagæla og var stoltur af litlu afastelpunni, henni Júlíu. En lífið er ófyrirsjáan- legt og við vitum ekki hvenær kem- ur að okkur að kveðja. Tími Þrastar kom í lok síðasta árs er hann lést á sjúkrahúsi í Taílandi. Ég kveð þig nú, kæri frændi, með söknuði. Minning þín lifir áfram. Ingibjörg Þóra Sæmundsdóttir. Í Fréttablaði dagsins (17.1.), nán- ar tiltekið í andláts- og jarðarfar- artilkynningum, var lítil klausa með mynd. Ég staldraði við hana og lest- ur blaðsins endaði þar, við tóku vangaveltur, upprifjun, minninga- brot. Löngu gleymdir atburðir urðu skýrir, ég hvarf rúm þrjátíu ár aftur í tímann, jafnvel lengra. Þröstur Jónsson var jafnaldri minn og skólabróðir. Lágvaxinn, ljóshærður hnokki, iðandi af lífi og orku sem leitaði útrásar í hrekkja- brögðum og stríðni. Þetta var ein- kenni hans og persónugerð, kraft- urinn og orkan sem fylgdu honum alla tíð. Hann lauk í fyrstu aðeins skyldunámi, öðrum bekk Gaggó, og sneri sér að því að lifa lífinu, honum lá á. Síðar lauk hann námi til skip- stjórnarréttinda, og hlaut þau. Ævistarfið var svo unnið við sjáv- arsíðuna. Vel liðinn, hörkuduglegur. Sjómennska, fiskvinnsla, skipstjórn, útgerð. Og svo skemmtanalífið inn á milli. Það gekk á ýmsu hjá þessum skólabróður mínum, og þó ég hafi ekki fylgst neitt sérstaklega með honum eða hans ferli eftir að fram á fullorðinsár kom, þá vissi ég svona nokkurn veginn af honum og hvað hann var að bauka í það og það skiptið. Síðast vissi ég af honum sem skipstjóra á hraðfiskibáti frá Flat- eyri, hann mun einnig hafa átt hlut að útgerð þar á staðnum. Síðan las ég tilkynninguna í Fréttablaðinu í morgun, og síðar í dag var mér sagt að Þröstur hefði verið staddur í fjar- lægu landi þegar hann mætti skap- aranum. Smáatriði þekki ég ekki. Það sem sterkast og skýrast kom upp í hugann í morgun við lestur blaðsins, var mynd af litlum, ljós- hærðum peyja, nýkomnum með bíl- próf. Hann hafði fengið lánaðan pabbabíl og við hittumst á höfninni, þar sem rúntarar lögðu jafnan bílum sínum til að spjalla og skiptast á skoðunum, en aðallega þó til að spara bensín. Hann mátti til að bjóða mér smá- hring. Ég þekkti hann nægilega vel til að vera smeykur við væntalega ökuferð, en forvitnin og bíladellan ráku mig yfir í bílinn til hans. Hann ók út á Hnífsdalsveg, þáverandi kvartmílubraut okkar guttanna fyrir vestan. Utan við grindahliðið, sem markaði skil Ísafjarðarkaupstaðar og Eyrarhrepps hins forna, tók við langur, beinn vegarkafli. Hann beygði sig niður á bílgólfið og allt í einu komu skór fljúgandi upp í fang- ið á mér! „Ég þarf að hafa fílingu fyrir bensíngjöfinni, sko,“ var skýr- ingin. Á sokkaleistunum trampaði hann bensíngjöfina í botn. Pabbabíllinn, þrjúhundruðhestafla Pontiac GTO 442, öskraði áfram og ég hélt mér fast í sætið. Nálin á hraðamælinum þaut upp með ógnarhraða. Litli, ljós- hærði peyinn, sem varla var nógu hár í loftinu til að sjá yfir mæla- borðið, horfði nánast í gegnum stýr- ishjólið. Ég horfði aðeins á hraða- mælisnálina. Það var betra en að horfa út. Það stóðst á endum, að þegar beina vegarkaflanum lauk stóð mælirinn í 120 mílum, u.þ.b. 200 km hraða. Við náðum heilir heim. Hverjum það var að þakka læt ég liggja milli hluta. Kannski þeim sem kallaði hann til sín og tók á móti honum við lok síðustu ferðarinnar? Vertu sæll, skóla- og fermingar- bróðir. Gunnar. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.