Morgunblaðið - 28.01.2007, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 28.01.2007, Blaðsíða 76
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 28. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: auglysingar@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Lægir og léttir til með morgn- inum en vaxandi sunnanátt síðdegis með rigningu sunnan- og vestanlands. » 8 Heitast Kaldast 8°C 0°C VIÐVÖRUNARLJÓS kviknaði í mæla- borði Boeing 575-200-vöruflutningavélar Icelandair skammt austur af landinu í gærmorgun. Hún var að koma frá Jön- köping í Svíþjóð og á leið til Keflavíkur. Hættuástandi var lýst yfir kl. 8:44 þeg- ar viðvörunarljós gaf til kynna að eldur væri í farangursrými. Tveir flugmenn voru um borð og vélinni snúið til Egils- staða þar sem var mikill viðbúnaður lög- reglu, björgunarsveita og liðs Bruna- varna Héraðs og Borgarfjarðar. Einnig var neyðarútkall hjá Landhelgisgæslunni. Vélin lenti rúmlega níu á Egilsstöðum og fljótlega eftir lendingu kom í ljós að eld- ur var hvergi í henni. Óskar Bjartmarz yfirlögregluþjónn, sem stjórnaði aðgerð- um á vettvangi, afturkallaði viðbúnaðar- ástand kl. 9:40. Flugvirkjar frá Flug- stoðum fóru austur í gær til að rannsaka málið. Viðvörun um eld í flugvél Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Hættuástand Um tíma var álitið að eldur væri laus í flutningavél sem nauðlenti á Egilsstaðaflugvelli í gærmorgun. NÝ sæti og afþreyingarkerfi fyrir hvern flugfarþega verða brátt í öllum Boeing 757-þotum Icelandair. Með þessu segir Jón Karl Ólafsson, for- stjóri Icelandair og Icelandair Group, að flugfélagið ætli að vera í hæsta gæða- flokki hvað varðar þjónustu um borð og upplifun farþega. Það verði jafnframt áfram í fararbroddi í hagstæðum flugfar- gjöldum. Á baki flugsætanna verða skjáir með skemmtikerfi sem farþegar fyrir aftan geta nýtt sér eftir eigin höfði. Til dæmis segir Jón Karl að menn sjái fyrir sér að hver farþegi hafi aðgang að fjölda nýrra kvikmynda, sjónvarpsþátta og tölvuleikja, tónlist og bókum og öðru lesefni. Þá geti farþegar fylgst með fluginu sjálfu meðan á því standi. Hann segir tæknina að auki bjóða upp á að farþegar geti keypt tónlist og aðra stafræna vöru. Umtalsverðir tekjumöguleikar fyrir félagið liggi í slíkri sölu og muni tækin m.a. geta tekið greiðslukort. Nýju sætin munu svo veita farþegum aukin þægindi og svigrúm. | 6 Allir farþegar fá sinn eigin skjá ÓVENJUMIKIÐ hefur fundist hér af vog- meyjum undanfarið. Dragnótabáturinn Höfr- ungur BA fékk nýlega tvær vogmeyjar með stuttu millibili í Arnarfirði og Brimnes BA hafði veitt þar eina nokkru fyrr og náðist sú lif- andi um borð, en drapst skömmu síðar. Þá fann Ólafur Gíslason, bóndi í Neðri-Bæ í Sel- árdal, fjórar vogmeyjar reknar í fjöru undan Króki, ysta bæ í Selárdal, fyrir um viku og eina rak í Fossfirði á liðnu sumri. Ólafur Bernódusson, fréttaritari Morg- unblaðsins, var á nýársgöngu sinni í upphafi ársins þegar hann fann fimm vogmeyjar rekn- ar í fjöru á Finnsstaðanesi rétt norðan við Skagaströnd. Að sögn Ólafs voru fiskarnir í misgóðu ásigkomulagi en einn þeirra, sá sem er á myndinni, var alveg óskemmdur og því sennilega nýrekinn. Rétt eftir áramótin barst Náttúrustofu Norðausturlands tilkynning um reknar vog- meyjar í Héðinsvík á Tjörnesi, nálægt Húsa- vík. Þar reyndist 35 vogmeyjar hafa rekið á land. Voru flestar um einn metri á lengd. Fisk- arnir voru flestir illa farnir. Jónbjörn Pálsson, fiskifræðingur hjá Haf- rannsóknastofnun, man ekki til þess að eins margar vogmeyjar hafi fundist og nú. Hann sagði að vogmærin héldi sig einkum suður og suðvestur af landinu. Óvenjumikið virðist hafa borist af vogmey norður með landinu í haust og sumar. Skip sem var að kolmunnaveiðum á Dohrn-banka fékk t.d. talsvert af vogmeyjum. „Þetta er afskaplega lélegur sundfiskur og berst með straumum. Þegar hún kemur norður í kaldari sjó ráða straumarnir því lík- lega hvar hún lendir,“ sagði Jónbjörn. Vogmærin er silfurgljáandi að lit og með rauðan bakugga, stirtlu og sporð. Hún er þunnvaxin og getur orðið allt að þriggja metra löng, að því er segir á Vísindavef Há- skóla Íslands. Í Ferðabók Eggerts og Bjarna segir að vogmeyjar komi með flóðinu að landi í grunnum víkum og vogum, einkum þar sem botninn sé sendinn. Hún sé svo lit- fögur og mjúk að hún sé kennd við mey. Á vefnum bildudalur.is kemur fram að 100–200 vogmeyjar hafi rekið á land í Arn- arfirði á árunum 1892–1895. Óvenjumikið af vogmeyjum Vogmeyjar hafa fundist reknar og veiðst það sem af er árinu í Arnarfirði, á Skagaströnd og Tjörnesi. Fiskifræðingur Hafrannsóknastofnunar man ekki aðra eins vogmeyjagengd og nú Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Fiskur Vogmærin er fallegur fiskur en þykir ekki góð til átu, enda lítill matur í henni. SLÁTURFÉLAG Suðurlands hef- ur hafið innflutning á fóðurblönd- um í samvinnu við DLG, stærsta fyrirtæki á þessu sviði á Norður- löndum. Steinþór Skúlason, for- stjóri Sláturfélagsins, segir mark- miðið að bjóða bændum 10–20% lægra verð á kjarnfóðri en þeir eiga kost á í dag. Kannanir sem gerðar hafa verið á fóðurverði milli Íslands og Dan- merkur benda til þess að verðið sé um tvöfalt dýrara á Íslandi. Tals- menn bænda segja að þetta ráði mjög miklu um að þeir hafi getað boðið kjöt á sama verði og í Dan- mörku. Fóðurkostnaður er t.d. um helmingur af öllum kostnaði við framleiðslu á svínakjöti. Steinþór segir að með innflutn- ingi á fóðri vilji SS stuðla að lægri framleiðslukostnaði hjá bændum. Hann telur að skort hafi á sam- keppni á þessu sviði. Steinþór segir að til að byrja með muni félagið leggja áherslu á að bjóða fóðurblöndur fyrir kúa- bændur og í framhaldinu einnig fyrir kjúklingaframleiðendur, en SS er stór hluthafi í tveimur kjúk- lingafyrirtækjum, Reykjagarði og Ísfugli. Hann segir að búið sé að aðlaga innfluttu fóðurblöndurnar íslenskum aðstæðum. Landbúnaðarráðherra afnam sl. sumar fóðurtoll á hráefni til fóður- gerðar og lækkaði um helming toll á fullbúnar fóðurblöndur. Steinþór gagnrýnir að tollur á fullbúnar fóð- urblöndur skuli ekki hafa verið felldur algerlega niður. Verði toll- urinn ekki felldur niður verði inn- flutta fóðrið 10% dýrara en það þyrfti annars að vera. Verð á fóðri hefur hækkað að undanförnu. Fóðurblandan hækk- aði verð um áramót og Lífland hef- ur tilkynnt að fyrirtækið muni hækka verð um 4% 1. febrúar. Ætlar að bjóða 10–20% lægra verð á kjarnfóðri Í HNOTSKURN »Verð á fóðri hér á landier um tvöfalt dýrara en í Danmörku. Þetta skýrir að hluta til hátt verð á kjöti. »Heimsmarkaðsverð áfóðri hefur verið að hækka m.a. vegna þess að farið er að nota korn í elds- neytisframleiðslu (bio-disel). Í Ameríku hafa verið settar fram kröfur af yfirvöldum um að 8% af öllu eldsneyti þar í landi skuli vera bio- disel.  Neytendur | 28 Biðin eftir strætó þarf ekki að vera langdregin eða leiðinleg, eins og þetta unga fólk sýndi með áþreifanlegum hætti við biðstöðina við Vonarstræti í gær. Hlýnandi veður und- anfarna daga hefur án efa gert mörgum bið- ina léttbærari. Eins og áður hefur komið fram í Morg- unblaðinu fjölgaði farþegum Strætó á síðasta ári um 3–4%. Morgunblaðið/Ásdís Brugðið á leik við biðstöðina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.