Morgunblaðið - 28.01.2007, Blaðsíða 53
Við höfðum þekkt Jóhann lengi,
Rúnar frá fæðingu og Kalli frá átta
ára aldri. Vinátta sem hélst þrátt
fyrir að hver færi sína leið.
Snemma komu knattspyrnuhæfi-
leikar Jóa í ljós og margir muna eft-
ir honum hjá ÍK. Jói var einn af
bestu leikmönnum Íslands í sínum
aldursflokki og 16 ára gamall var
hann farinn að spila með meistara-
flokki ÍK á miðjunni og stóð sig frá-
bærlega. Við æfðum alla tíð með
Jóa í yngri flokkunum og brölluðum
margt. Segja má að toppurinn hafi
verið ferð okkar með Eddunni til
Newcastle í keppnisferð þar sem
við meðal annars hittum átrúnaðar-
goðið Kevin Keegan. Þegar Jói var
17 ára hætti hann að spila knatt-
spyrnu öllum að óvörum. Við rædd-
um þetta oft og hans ástæða var
einfaldlega sú að hann hætti að hafa
gaman af því að spila fótbolta og
þar með var því tímabili í lífi hans
lokið. Ákvörðun sem við virtum og
dáðumst við að staðfestu hans.
Við tók annað áhugamál hjá okk-
ur vinunum, tónlistin. Við vorum
mjög virkir hlustendur (og gutlar-
ar) og fylgdumst með tónlistar-
straumum af mikilli ákefð með
hjálp tímarita. Samt var það sam-
eiginleg ást okkar á The Smiths
sem var efst á blaði. Við ræddum
fram og aftur um hljómsveitina og
pældum í henni niður í smæstu
frumeindir. Textarnir voru krufðir
og aldrei vorum við ósáttir við neitt
sem þessi hljómsveit gerði, enda
allir gallharðir aðdáendur. Nokkr-
um sinnum fórum við saman á Hró-
arskelduhátíðina sem hafði mikil
áhrif á okkur og til dæmis tók Jói
ekki af sér armbandið í þrjú ár eftir
fyrstu ferðina 1987.
Jói vann mikið við garðyrkju á
yngri árum og ákvað að leggja hana
fyrir sig. Hann lauk námi frá Garð-
yrkjuskóla ríkisins með góðum
vitnisburði, og stofnaði sitt eigið
fyrirtæki sem hann vann við til
dauðadags. Jói var alla tíð list-
hneigður og hafði gaman af að mála.
Hann lét drauminn rætast og skellti
sér í Myndlista- og handíðaskólann
og kláraði myndlistabrautina. Þrátt
fyrir að starfa sem garðyrkjumaður
hélst áhuginn á myndlistinni og
málaði hann alla tíð mikið.
Jói var mjög barngóður og elsk-
aði börnin sín mikið. Hann var stolt-
ur faðir og sagði okkur oft sögur af
börnunum sínum er við hittumst.
Hann reyndist líka systursyni sín-
um Styrmi góður vinur og voru þeir
mjög nánir en þeir unnu saman í
mörg ár.
Árið 2004 giftist hann Ragnheiði
Gísladóttur og fór athöfninn fram í
Fljótshlíðinni undir berum himni.
Þetta var yndislegur sólríkur dagur
og þegar hjónin höfðu staðfest heit
sín fóru þau ásamt veislugestum og
gróðursettu tré. Þessi lundur er og
verður minnisvarði um þá fallegu
stund er Jói gekk að eiga konuna
sem hann elskaði svo heitt. Jói minn
við þökkum þér fyrir allar góðu
stundirnar. Minning um þig lifir
áfram og þín verður sárt saknað.
Elsku Ragga, Hlynur, Egill, Ask-
ur og Alfa. Elsku Pálmi og Alfa,
Krissa, Svenný og Styrmir.
Missir ykkar er mikill og biðjum
við algóðan guð að styrkja ykkur í
sorginni.
Karl og Rúnar.
Síðan mér bárust þær harma-
fréttir að Jói æskuvinur minn væri
látinn hafa myndir minninganna
hrannast upp í huga mér. Við vin-
irnir ólumst upp saman í Snælands-
hverfinu í Kópavogi, gengum í Snæ-
landsskóla og æfðum fótbolta með
ÍK. Já, þá lék lífið við okkur, íþrótt-
ir voru okkar ær og kýr enda var
Jói yfirburðamaður þegar kom að
íþróttum. Hann var mikill keppn-
ismaður og þoldi illa að tapa enda
passaði maður sig alltaf á því að
vera með honum í liði, ekki á móti.
Jói var mikill skáksnillingur, skóla-
meistari og keppti oftar en ekki við
eldri nemendur, hann vildi meiri
keppni en hann fékk frá okkur jafn-
öldrum sínum. En þrátt fyrir mikið
keppnisskap var hann hógvær og
blíður við náungann enda mátti
hann ekkert aumt sjá þá var hann
manna fyrstur til að taka upp
hanskann. Jói var hrókur alls fagn-
aðar þegar við félagarnir hittumst
og mikill gleðigjafi. Hann var ein-
staklega fær í að fá menn til að
skemmta sér hvort sem var í skól-
anum, á æfingum eða á leikvelli lífs-
ins. Jói var frábær fótboltamaður
og var mjög mikilvægur í sigursælu
liði ÍK, upp alla yngri flokkana var
hann fyrirliði liðsins og keyrði liðs-
menn sína áfram af dugnaði og
krafti. Hæfileikar Jóa skiluðu sér
snemma í meistaraflokk ÍK og var
hann farinn að bera mikilvægt hlut-
verk í meistaraflokki aðeins 16 ára
gamall. Jói var mjög líkamlega
sterkur og var það ekki síst móður
hans Ölfu að þakka, hún sá um að
það væri borðaður hollur og nær-
ingarríkur matur á heimilinu. Þeg-
ar Jói ákvað skyndilega að segja
skilið við fótboltann skildi hann eft-
ir sig stórt skarð í liðinu, menn
höfðu á orði að framtíðin hefði orðið
mjög björt fyrir hann og ekki hefði
nokkrum manni komið á óvart ef
hann hefði orðið atvinnumaður í
knattspyrnu. En Jói hafði aðra sýn
á lífið en að hlaupa um völlinn á eft-
ir einhverri tuðru, hann vildi skoða
meira og fá að upplifa aðra hluti í
lífinu. Jói var myndarlegur og átti
aldrei í nokkrum vandræðum með
að heilla kvenþjóðina, hann var
sjarmör og stúlkunum þótti ekki
leiðinlegt að hafa hann með sér. Jói
var duglegur til vinnu, hann hafði
mikinn áhuga á rækt og þá sérstak-
lega garðrækt enda útskrifaðist
hann sem meistari í garðyrkju.
Hann vann við garðyrkjustörf frá
unga aldri og setti svo á laggirnar
sitt eigið fyrirtæki, Garðyrkjuþjón-
ustuna Björk. Jói var einnig mjög
listrænn, hann hafði alltaf mikinn
áhuga á tónlist og var gítargutlari.
Hann ferðaðist erlendis til að fylgja
eftir tónlistaráhuga sínum og voru
þær ferðir mjög skemmtilegar. Jói
var einnig mjög fimur með pens-
ilinn og kláraði hann nám hér á Ís-
landi, einnig sótti hann myndlistar-
skóla og námskeið erlendis. Síðustu
ár hittumst við æ sjaldnar enda
báðir orðnir mikilvægir fjölskyldu-
menn með eigin rekstur, en samt
heyrðumst við alltaf reglulega og
vissum vel hvor af öðrum. Mín
æskuár mörkuðust mikið af vinskap
okkar og öllum samverustundunum
sem við áttum. Margt er í minning-
unni sem aldrei verður sagt og að-
eins við tveir geymum á góðum
stað.
Jói, það kemur ekkert í staðinn
fyrir það liðna, eins og þú sagðir svo
oft, það er búið og gert, nú horfum
við fram á veginn.
Elsku vinur ég kveð þig með
miklum söknuði. Fjölskyldu og að-
standendum votta ég mína dýpstu
samúð.
Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum
það yrði margt, ef telja skyldi það.
Í lífsins bók það lifir samt í minnum
er letrað skýrt á eitthvert hennar blað.
Ég fann í þínu heita stóra hjarta,
þá helstu tryggð og vináttunnar ljós.
Er gerir jafnvel dimma vetur bjarta
úr dufti lætur spretta lífsins rós.
(Margrét Jónsdóttir.)
Þinn æskuvinur
Kristinn Jakobsson.
Staldraðu við,
eitt augnablik
og líttu um öxl.
Taktu svo reynslu þína,
allt það neikvæða og sára
sem yfir þig hefur gengið
og allt hið ljúfa og jákvæða
sem þú hefur upplifað.
Settu það síðan í pott minninganna,
hrærðu vel í,
við rétt hitastig
og útkoman verður
gegnheilar, gullslegnar demants-perlur
sem ekkert fær afmáð eða eytt.
Perlur sem gera þig að veðraðri
og þroskaðri manneskju
sem kölluð er til þess hlutverks
að miðla í umhverfinu
og til komandi kynslóða.
Slípaðar, óafmáanlegar,
fallegar og dýrmætar
demants-perlur.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Elsku Ragnheiður og fjölskylda
Orð fá ekki lýst sorginni í hjarta
okkar.
Hugur okkar er hjá ykkur á þess-
um erfiðu tímum.
Minningin um Jóa, frábæran vin
lifir.
Steinunn, Þröstur,
Halldór og Kristín.
Okkur langar til að segja nokkur
orð um skólabróður okkar úr fjöl-
tæknideild MHÍ, hann Jóa.
Það fyrsta sem okkur dettur í
hug þegar við hugsum til Jóa er
hvað hann var fallegur og ljúfur og
með góða nærveru. Þrátt fyrir það
að við vissum að Jói ætti stundum
erfitt, þá lét hann ekki mikið uppi
og bar sig ávallt vel. Það var alltaf
stutt í brosið og blikið í augunum.
Jói var sérstaklega myndarlegur
og hæfileikaríkur maður og gerði
fallegt í kringum sig. Hann var hóg-
vær en þó algjör sjarmör og talaði
aldrei illa um neinn. Það var auðvelt
að þykja vænt um hann.
Jói var mikill fjölskyldumaður og
minning okkar um þessa fallegu
fjölskyldu er sterk þar sem við rák-
umst oft á þau á góðviðrisdögum í
miðbænum. Við erum þakklátar
fyrir það að Jói átti því láni að fagna
í lífinu að eignast fjögur yndisleg
börn og yndislega og sterka konu,
hana Röggu skólasystur okkar.
Elsku Ragga, megi allar góðar
vættir vera með þér og börnunum,
við hugsum til ykkar á þessum erf-
iðu tímum. Einnig viljum við votta
öðrum aðstandendum okkar dýpstu
samúð. Með hlýhug,
Marta, Margét, Jóna, María,
Helga Ó. og Helga Þ.
Það var leitun að öðrum eins ljúf-
lingi og Jóa. Ég kynntist honum í
gegnum Stebba, frænda minn, sem
var vinur Jóa. Við Jói vorum tafl-
félagar, hittumst og tefldum og
spjölluðum. Það var gott að vera ná-
lægt Jóa. Konan mín var á sama
tíma og Jói í Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands. Hún minnist vel
útskriftarverksins hans Jóa sem
var vídeóverk. Það var ótrúlega
súrrealískt, magnaðir litir og kjark-
ur hans sem endurspeglaði frábær-
an listamann. Það var einsog maður
væri staddur í annarri vídd,
kannski í framtíðinni, þar sem réðu
fagrir litir og óendanleiki. Það er
skrýtið að svona magnaður lista-
maður og taflfélagi sé fallinn frá.
Við vottum fjölskyldu Jóa, okkar
innilegu samúð.
Guð gefi ykkur styrk í þessum
skrýtna stormi.
Valgarður Bragason og
Hulda Vilhjálmsdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 53
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj.,
s. 691 0919
✝
Móðir mín og amma okkar,
SÓLVEIG JÓNSDÓTTIR,
áður til heimilis í
Lindasíðu 4,
lést á hjúkrunarheimilinu Seli á Akureyri föstudag-
inn 19. janúar.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudag-
inn 30. janúar kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á aðstandendafélag hjúkrunar-
heimilisins Sels.
Alda Aradóttir,
Birgir Óli Sveinsson, Rósa Hansen,
Sólveig Stefánsdóttir, Ægir Þorláksson,
Guðrún Ósk Stefánsdóttir, Jón R. Kristjánsson,
Elísabet Stefánsdóttir, Finnur Sveinbjörnsson,
Íris Ragna Stefánsdóttir, Konráð V. Konráðsson,
langömmubörn og langalangömmubörn.
✝
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JÓHANNA SVEINSDÓTTIR,
Hverfisgötu 99a,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 21. janúar.
Útförin verður gerð frá Fossvogskapellu þriðjudag-
inn 30. janúar kl. 15.00.
Dætur, tengdasynir og barnabörn.
✝
Í minningu ástkærrar eiginkonu og besta vinar,
ÓLAFAR HERMANNSDÓTTUR,
(Lóu)
sérkennara,
Barmahlíð 28.
Ólöf lést á Landspítala Fossvogi þriðjudaginn
16. janúar.
Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Ragnar Jóhann Guðjónsson,
Guðbjörg Ragnarsdóttir (Gugga), Holgeir Jónsson,
Ragnar Jóhann Holgeirsson,
Berglind Anna Holgeirsdóttir.
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
✝
Systir okkar, frænka, mágkona og svilkona,
ALFA ÞORBJÖRG HJÁLMARSDÓTTIR
lyfjafræðingur,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund að
morgni föstudagsins 26. janúar.
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 5. febrúar kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Erla H. Hjálmarsdóttir,
Hjálmar V. Hjálmarsson,
Sigríður Gísladóttir,
Áslaug Ásmundsdóttir,
Ingveldur Ásmundsdóttir,
Kristín Jónsdóttir.