Morgunblaðið - 28.01.2007, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 28.01.2007, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 47 BJALLAVAÐ 13 -17 NÝTT Í SÖLU Vorum að fá glæsilegar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir í einkasölu. Allar íbúðirnar eru fullbúnar og til afhendingar strax. Efsta hæðin er inndregin og með stórum svölum og glæsilegu útsýni til Bjáfjalla, Esjunnar, Rauðavatns og víðar. Í næsta nágrenni er ósnortin friðuð náttúra með fallegum gönguleiðum. Sýningaríbúð er parket- og flísalögð og með húsgögnum sjá nánar á heimasíðu Eignamiðlunar, eignamidlun.is Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali • • • • Byggingarmeistari: Guðleifur Sigurðsson JÓN Sigurðsson, formaður Fram- sóknarflokksins, tjáði sig um framtíð- arsýn Framsóknarflokksins í Mbl. 23. jan. s.l. Svo ritar hann: „Forsendur fyrir þessu eru í öflugu opnu hagkerfi og samkeppnishæfu viðskiptalífi.“ Jæja, kæri Jón, nú ertu kominn í þá aðstöðu að geta haft áhrif. Það er ekki nóg að hafa fallega framtíðarsýn og láta sig dreyma. Tími framkvæmda er runninn upp. Við blasir að það þarf að markaðavæða bankakerfið. Einka- væðingunni er lokið. Leggja þarf niður úrelt lög (svo- kölluð Ólafslög) sem sagt er að veiti banka og fjármálafyrirtækjum und- anþágu frá almennum lögum, þannig að stór hluti gjaldskrár þeirra (vísi- talan) er reiknuð út af opinberum að- ila (Hagstofa Íslands). Slík vinnu- brögð samræmast ekki markaðskerfinu og samkeppn- islögum. Í annan stað ætti viðskiptaráðu- neytið að stuðla að eðlilegri lagasetn- ingu um greiðslumiðlunarkerfi með debet og kredit. Slík lög yrðu að sjálf- sögðu að vera samrýmanleg við markaðskerfið, almenn lög og hag- fræðilögmál. Í þriðja lagi liggur fyrir að brjóta upp núverandi kerfi greiðslumiðlunar með debet og kredit. Núverandi kerfi er byggt upp á þann hátt að útilokað er að skapa eðlilegt og heiðarlegt samkeppnisumhverfi milli einstakra banka og fjármálafyrirtækja. SIGURÐUR LÁRUSSON, Klapparstíg 11, Njarðvík. Framtíð- arsýn og fram- kvæmdir Frá Sigurði Lárussyni: UMRÆÐAN um trú og meðferð- arúrræði undanfarnar vikur leiðir hugann að merkri ævisögu eftir mannfræðinginn Sigríði Dúnu Krist- mundsdóttur um konu sem margir töldu ofsatrúar en hún helgaði líf sitt alkóhólistum og utangarðsfólki seinni hluta ævi sinnar. Það var Ólafía Jóhannsdóttir sem fyrir alda- mótin 1900 var farin að boða nauð- syn þess að Íslendingar eignuðust eigin háskóla, heimavist fyrir hjúkr- unarkonur og menntastofnun í heil- brigðisvísindum en ekki skildu yf- irlæknar þess tíma þá nauðsyn. Næsta áhlaup í heilbrigðismálum kom frá St. Jósefssystrum sem tókst að stofna fyrsta nútímalega sjúkra- húsið á Íslandi. Þessar konur sem voru svo „ofsafengnar“ í trú sinni að þær neituðu sér um flest þau gæði sem nútímafólk telur sjálfsögð létu sig heldur ekki muna um að reka barnaskóla með háum gæðastaðli. Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi og stjórnandi SÁÁ á mikinn heiður skilinn fyrir störf sín að heil- brigðismálum fyrir fórnarlömb áfengissýki og fíkniefna og má kalla hann spámann þjóðarinnar á því sviði. Í málflutningi sínum hefur hann hins vegar misnotað trúar- hugtakið. Það er alvarlegt mál að hann sem yfirlýstur fulltrúi fagfólks í landinu skuli ítrekað viðhafa gíf- uryrði á borð við öfga- og ofsa- trúarhópa um lögleg og fjölmenn trúfélög á borð við Hvítasunnukirkj- una. Slíkur málflutningur grefur ekki aðeins undan trúverðugleika hans sem fagaðila sem sé fær um að annast fólk úr röðum a.m.k. hvíta- sunnumanna heldur getur hann hæglega fælt ýmsa sem á þurfa að halda frá því að leita til þeirra stofn- ana sem hann er í forsvari fyrir, auk þess sem orð hans geta stuðlað að tilhæfulausri tortryggni og andúð og jafnvel einelti í garð hlutaðeigandi. Það skiptir jafnframt máli hvaða merking er lögð í hugtakið æðri máttur, ekki síst þegar verið er að líkna sjúkum. Kjarninn í kristinni trú að þessu leyti felst í aldagömlum játningum og kirkjuþings- samþykktum sem ganga út á það að jafnframt því að frelsarinn Jesús Kristur var Messías var hann einnig sannur maður. Þarna er lykillinn að mannskilningi kristninnar og allrar kærleiksþjónustu í nafni hennar. Jesús benti á utangarðsmanninn sem allir ganga fram hjá og segir: „Ég er þar.“ Skipuleg kristin sam- tök og trúaðir ein- staklingar hafa gegn- um aldirnar sinnt líknarþjónustu og sál- gæslu á þessum grunni og úr hug- myndafræði þeirra hafa fagstéttir og sér- fræðingar smám sam- an þróað meðferð- arúrræði sín. Sú starfsemi sem hvíta- sunnumenn hafa rek- ið í Hlaðgerðarkoti í nokkra áratugi er til fyrirmyndar og þeir sem vilja dæma hana úr leik á þeim forsendum að þar ráði ofsatrú ríkj- um eru bæði komnir út fyrir mörk fagmennsku og velsæmis í opinberri umræðu. Að trúarhópar sinni líkn- arþjónustu og jafnvel meðferð er sjálfsögð mannréttindi að því til- skyldu að slíkt sé gert á faglegum forsendum í tengslum við yfirvöld. Það er vandmeðfarið að tala um trúmál, hvort sem er út frá for- merkjum guðstrúar eða guðleysis, við fólk sem á um sárt að binda vegna félagslegra aðstæðna, vímu- efna og sjúkdóma. Hjá því verður þó oft ekki komist vegna þess að trúin er að mati margra fræðimanna sam- ofin sjálfsmynd sérhvers ein- staklings og kemst enginn hjá því að glíma við ýtrustu spurningar manns- ins um þjáninguna, réttlætið og dauðann á lífsleiðinni, allra síst þeg- ar staðið er á tímamótum. Þess vegna er nauðsynlegt að fagaðilar hafi grundvallarþekkingu á helstu birtingarmyndum trúarinnar og geti auðsýnt viðeigandi nærgætni og dómgreind þegar hana ber á góma. Það er viðtekið sjónarmið í þjóð- félaginu að gæta þurfi að andlegum og trúarlegum þörfum fólks á sem flestum sviðum mannlífsins, m.a. innan stofnana sem fólk þarf að sækja til á viðkvæmustu stundum lífs þess. Taka má undir að ekki er öll trúarleg boðun af hinu góða, til eru trúarhugmyndir sem geta valdið fólki andlegu og líkamlegu heilsu- tjóni, svo sem vegna afneitunar á raunverulegri orsök sjúkdóma og höfnunar á úrræðum við þeim. En gagnrýni á slík trúarleg sjónarmið þarf að vera málefnaleg og laus við gífuryrði og einfeldningslegar al- hæfingar. Sömuleiðis væri ekki við hæfi að fagaðilar gengju út frá blá- köldu guðleysi í umönnun skjólstæð- inga sinna því að slíkt gæti slökkt síðasta vonarneista þess fólks sem er örvæntingafullt og viðkvæmt. Geðlæknirinn C.G. Jung, einn af hugmyndafræðingum AA- samtakanna, bendir á að persónu- legt lífsuppgjör sé nátengt spurn- ingum um tilgang lífsins og er það almætti sem hann talar um í þessu sambandi sömuleiðis nátengt and- legri vellíðan, heilbrigði og sátt við lífið. Á máli sálfræði hans er þetta almætti sem ýmsir kalla Guð nefnt æðra sjálf og því þurfa allir að mæta og máta sig við það á einn eða annan hátt eftir að þeir komast til vits og ára. Vísindin koma auðvitað til greina þegar talað er um æðri mátt en þau eru komin í valtan valdastól séu þau tignuð sem Guð því að þar er alltaf verið að koma með nýjar nið- urstöður. Grundvallarforsendur þeirra hafa gjörbreyst í tímans rás og ekkert segir að endanlegar nið- urstöður um heimsmynd þeirra liggi fyrir. Gamlar bækur geyma oft mestu sannindin, svo er með læknaeiðinn og hið tvöfalda kærleiksboðorð Krists. Trú og meðferð Bjarni Randver Sigurvinsson og Pétur Pétursson fjalla um trú og meðferð. » Vísindin koma auð-vitað til greina þeg- ar talað er um æðri mátt en þau eru komin í valt- an valdastól séu þau tignuð sem Guð því að þar er alltaf verið að koma með nýjar nið- urstöður. Bjarni Randver Sigurvinsson Bjarni Randver er doktorsnemi í trúarbragðafræði og Pétur er pró- fessor í praktískri guðfræði við Há- skóla Íslands. Pétur Pétursson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.