Morgunblaðið - 28.01.2007, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 28.01.2007, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 63 menning ÞÓTT Íslendingar hafi verið söng- elskir í gegnum aldirnar voru fyrstu raunverulegu, opinberu tónleikarnir í sögu þjóðarinnar ekki haldnir fyrr en árið 1876. Nokkrir blást- urshljóðfæraleikarar héldu þá tón- leika í Reykjavík undir stjórn Helga Helgasonar. Eftir tónleikana birtist umsögn í Þjóðólfi en þar mátti lesa að tónlistarmennirnir hefðu sungið inn í hljóðfærin sín. Greinarhöfund- inum fannst það skondið og taldi að svona píp gæti varla átt mikla fram- tíð fyrir sér. Annað hefur komið á daginn. Vöxtur íslensks tónlistarlífs hefur verið ævintýri líkastur. Hér er starf- rækt sinfóníuhljómsveit sem hefur tekið undraverðum framförum, hér eru tónlistarskólar og tónlistarfólk sem margt hvað er í fremstu röð. Tónleikahald eru í miklum blóma, og suma mánuði ársins eru haldnir um fjörutíu tónleikar. Nú dettur engum í hug að blásturshljóðfæraleikari syngi inn í hljóðfærið sitt. Ástæðan fyrir þessum öra vexti má að miklu leyti rekja til erlendra tónlistarmanna sem hingað fluttust á fyrri hluta 20. aldarinnar. Þessir einstaklingar höfðu gríðarleg áhrif á vöxt íslensk tónlistarlífs og það er ekki síst þeim að þakka að við eigum núna afbragðs sinfóníuhljómsveit, færustu einleikara og einsöngvara, og heimsfrægt tónlistarfólk á borð við Björk Guðmundsdóttur og Sigur Rós. Björk spratt ekki fram á sjón- arsviðið sisvona; einnig hún þurfti að sækja sér menntun á sviði tónlistar. Ef færir tónlistarmenn hefðu ekki sest hér að, og ef ótalmargir íslensk- ir tónlistarnemendur hefðu ekki sótt nám í bestu erlendu tónlist- arháskólum sem völ er á, væri ekki mikil tónlistarmenning á Íslandi. Einn af þessum erlendu tónlist- arsnillingum var Manuela Wiesler flautuleikari, en hún bjó hér á ár- unum 1973–1983. Manuela, sem lést fyrir skömmu, var svo fær á hljóð- færið sitt að hún varð fyrirmynd ótal íslenskra flautuleikara. Íslensk tón- skáld kepptust við að semja fyrir hana og sennilegt er að mörg verka þeirra hefðu aldrei orðið til ef Ma- nuela hefði ekki búið hér. Heyra mátti nokkrar þessara tón- smíða á minningartónleikum á Myrkum músíkdögum sem haldnir voru í Langholtskirkju á sunnudag- inn. Tónleikarnir hófust með því að Íslenski flautukórinn, sem að þessu sinni samanstóð af sextán flautuleik- urum, léku draumkennda hugleið- ingu Þuríðar Jónsdóttur um Næt- urtóna Atla Heimis Sveinssonar. Flutningurinn var einlægur og þrunginn tilfinningu; óneitanlega var það prýðileg byrjun á dag- skránni. Nokkur einleiksverk voru flutt á tónleikunum sem öll voru skemmti- leg áheyrnar. Hallfríður Ólafsdóttir spilaði Til Manuelu eftir Þorkel Sig- urbjörnsson ákaflega fallega; Mel- korka Ólafsdóttur lék Itys og La- ment eftir Áskel Másson af sannri tilfinningu; Áshildur Haraldsdóttir flutti Solitude eftir Magnús Blöndal Jóhannsson af glæsibrag og túlkun Kolbeins Bjarnasonar á Sonata Per Manuela eftir Leif Þórarinsson var stórbrotin. Gaman var líka af IV. Þætti úr Handanheimum Atla Heimis Sveins- sonar sem þau Guðrún Birgisdóttir og Martial Nardeau léku með sann- færandi tilþrifum og sömuleiðis voru þær voru fallegar Tónamínútur Atla Heimis Sveinssonar í meðförum Örnu Kristínar Einarsdóttur, Berg- lindar Stefánsdóttur, Dagnýjar Marinósdóttur, Hallfríðar Ólafs- dóttur, Magneu Árnadóttur og Pa- melu di Sensi. Tónleikarnir enduðu á Hugleið- ingu um Tónatóna Atla Heimis í út- færslu Þuríðar sem fyrr var nefnd, og var það innhverfur en hástemmd- ur endir á hugljúfum tónleikum. Án efa mun minning Manuelu lifa; víst er að áhrifa hennar á íslenskt tón- listarlíf á eftir að gæta um ókomna tíð. Leikið fyrir Manuelu Manuela Wiesler leikur á flautu. TÓNLIST Langholtskirkja Verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Áskel Másson, Magnús Blöndal Jóhannsson, Leif Þórarinsson og Þuríði Jónsdóttur í flutningi nokkurra ís- lenskra flautuleikara. Einnig kom Ís- lenski flautukórinn fram. Sunnudagur 21. janúar. Flaututónleikar Jónas Sen                                  !   "#  $  "# !% !&  '    !   ( $  &  )            ! "# $ % * !    +      ,- '    !    $ $ ! ,-                           !! !"  #"    !! !"     #  $%   & '( ) *      +      ",+-,  ,,          .   /  0   "1/  2 3    43 33       3   #  2  56.7 89/       8:   2 3    56. 7 89/   2  3    56.7  ; 7 <    )  5# !2 $    9=> ?@!                   ! "#! $      !% 4 A; 32&7  5 27 B"<?&> #3 '    !   *   -2 C    &'( (   ) '   *+  ,  -  5D! " #  9= E2 C    .' ! = . # !  ! #  9=      & % %  #.    !/001213                        HEIMILDARMYNDIN Zidane:a 21st Century Portrait var á dög- unum tilnefnd til frönsku Cesar- verðlaunanna sem besta heimild- armyndin. Sigurjón Sighvatsson framleiddi myndina sem fjallar um fótboltakappann Zinédine Zidane. „Auðvitað er gott að fá Cesar- tilnefningu, þetta er svona franski Óskarinn, stærstu verðlaunin þar í landi og mikils metin innan kvik- myndaheimsins,“ segir Sigurjón um tilnefninguna. „Þetta er sér- staklega ánægjulegt einkum þar sem myndin er alls ekki hefðbundin heimildarmynd en sjálfsagt hefur rautt spjald Zidane á HM beint sjónum mun meira að myndinni en ella,“ bætir hann við hógvær. Myndin kom út á DVD í Frakk- landi fyrir jólin og er búin að seljast í yfir 125 þúsund eintökum sem er einstakt fyrir heimildarmynd, að sögn Sigurjóns. Myndin hefur einnig gengið á milli kvikmyndahátíða og var sýn- ingum á henni að ljúka á Sundance- hátíðinni og þaðan fer hún á kvik- myndahátíðina í Rotterdam. „Fjöl- margar fleiri hátíðir munu taka myndina til sýninga á þessu ári en alls hefur hún verið sýnd á um fjörutíu hátíðum fram til þessa, m.a í Cannes, Edinborg, Toronto og Sundance sem teljast með fremstu hátíðum í heimi. Sérstök hátíðasýn- ing á myndinni fór líka fram á Ba- sil-listamessunni á fótbolta- leikvangi, að viðstöddum 5000 áhorfendum, á einu stærsta útisýn- ingartjaldi heims. Auk þess eru mörg söfn sem hafa farið fram á að sýna myndina fyrir meðlimi sína,“ segir Sigurjón. En þar með er ekki allt upptalið, því verið er að ganga frá samningum um almennar sýn- ingar í kvikmyndahúsum í Banda- ríkjunum. „Á næsta ári mun svo bókaútgáfan Thames og Hudson gefa út myndabók um gerð mynd- arinnar,“ segir Sigurjón að lokum. Cesar-verðlaunahátíðinni fer fram 24. febrúar næstkomandi. Zidane fær Cesar til- nefningu Skallinn Zidane skallaði kollega sinn á HM í sumar. ÞAÐ verður að segjast að þrátt fyrir dálæti mitt á glæpasögum eru hryll- ingssögur ekki mín deild og Stephen King ekki minn maður. (Lesendur mbl. sem hafa áhuga á hryllings- sögum og Stephen King ættu því kannski núna að hætta lestrinum.) Sá hins vegar„Misery“ í sjónvarpinu og hafði gaman af fléttunni og leiknum og gat jafnvel nokkra stund á eftir velt fyrir mér sambandi höfundar og lesandans. Það að þýða ekki titil verksins heldur nefna það upp á ensku bendir til að verið sé að minna á kvikmyndina og frægð hennar. En leikritið, þó það byggist á sömu grunnhugmynd og myndin, semsé þeirri að frægur höfundur róm- antískra skáldsagna lendir í bílslysi og er bjargað í hús af hjúkrunarkonu og miklum aðdáanda sínum, þróast þó nokkuð á annan og síðri hátt og verður sú saga af skiljanlegum ástæðum ekki rakin hér. Í atlögunni að leikverkinu er valið það sem ég vil kalla ensku stofudra- maleiðina eða kannski ég ætti kalla það frekar „West End“-leiðina. En enska stofudramað og öll þess smá- munasama útfærsla hefur reyndar í vetur verið að ganga aftur í íslensku leikhúsi og sætir það nokkurri furðu eftir þá þróun sem átt hefur sér þar stað undanfarna áratugi. Sé einnig hugsað til þess að Lundúnabúar gapa nú af hrifningu yfir íslenskum sýn- ingum eins og Woyzeck og Pétri Gauti þar sem farnar eru leiðir sem eru í órafjarlægð frá litla ófrumlega stofudramanu þá er ástæða til að furða sig enn meir. Ætla má samt þar sem nýja leik- húsið í Nasa er rekið í ábataskyni að að baki liggi hugsun um að þetta sé eitthvað sem fólk vilji. Fólk vilji sjá það sama í leikhúskassanum og það sér í kassanum heima í stofu. Sá ágæti leikari Jóhann Sigurðarson er ekki reyndur leikstjóri og lendir því bátnum eðlilega ekki alveg sem skyldi, þó vel sé mannað í hverju rúmi. Meginvandinn er sá að ekki tekst að byggja upp átök og spennu milli persónanna tveggja (Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Valdemar Fly- gering): Hjúkrunarkonan frá byrjun augljóslega snargeggjuð og kemur því fátt á óvart í framvindunni; sjúk- lingnum virðist líða harla vel í prís- undinni og verður því aldrei sannfær- andi andstæðingur. Verkið reyndar slíkt að erfitt er að hugsa sér að hægt sé að setja það upp þannig að skemmtun verði af nema að horfa á það úr fjarlægð og af húm- or. Það er því miður ekki gert á Nasa. Hryllingssaga? Morgunblaðið/ÞÖK Misery „Meginvandinn sá að ekki tekst að byggja upp átök og spennu milli persónanna tveggja,“ segir m.a í dómnum. LEIKLIST Studio 4 Eftir Stephen King í leikgerð Simon Moore og þýðingu Davíðs Þórs Jóns- sonar. Leikstjóri: Jóhann Sigurðarson. Leikmynd og búningar: Rebekka Rán Samper. Lýsing: Björn Bergsteinn Guð- mundsson og Sveinn Benediktsson. Tón- list: Lárus H. Grímsson. Leikarar: Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Valdemar Flygering. Nasa, föstudaginn 26. janúar, 2007. Misery María Kristjánsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.