Morgunblaðið - 28.01.2007, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 28.01.2007, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 65 menning www.sambio.is ATH! Bókin sem myndin er byggð á hefur verið endurútgefin Sýnd í stafrænum gæðum í Sambíóunum Kringlunni ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 3 50 33 0 1/ 07 Skráðu þig á www.ibliduogstridu.is Þú getur sýnt stuðning þinn í verki með því að fara á vefsíðuna ibliduogstridu.is og skrá þig í „Í blíðu og stríðu“, stuðningssamtök handboltalandsliðsins fyrir heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi. Á vefsíðunni mætast stuðningsmenn og landsliðsmenn, þar birtast nýjustu fréttir, sýnd eru valin myndbrot úr leikjum, allir blogga, spjalla, hvetja íslenska landsliðið og birta myndir frá keppninni og af íslenskum stuðnings- mönnum á leikjunum sem hafa staðið sig frábærlega. STYÐJUM STRÁKANA Í BLÍÐU OG STRÍÐU DANSSMIÐJA Íslenska dans- flokksins er hugsuð sem til- raunastöð fyrir danshöfunda sem eru að smíða sín fyrstu dansverk. Dansverkin sem þaðan koma eru ekki fullmótuð en engu að síður eru þau kynnt og sýnd áhorfendum. Höfundurinn Steve Lorenz gekk til liðs við ÍD árið 2002 og hefur dansað í sýningum flokksins allar götur síðan. Áður nam hann við dansakademíuna í Rotterdam. Lo- renz sýndi frumraun sína sem danshöfundur á miðvikudaginn var. Verk hans Images fjallar um hroka mannsins gagnvart öðru lífi á jörð- inni, yfirgang mannsins og eyði- leggingu. Að lokum fjarlæga sýn okkar á stríðsástandið víðsvegar um heim allan. Á nýja sviði Borgarleikhússins héngu ljós tjöld í hálfhring. Þau gerðu það að verkum að sviðið virt- ist stærra og fallegra en ella. Verk- ið hófst á því að fólk var spurt spurninga í vídeómynd sem varpað var uppsviðs; hvort það ætti sjón- varp, hvort það horfði á fréttir, hvað þá helst og að lokum hvort það teldi stríð á Íslandi mögulegt? Dansararnir gengu inn á sviðið og virtu fyrir sér ný og breytileg myndskot, aðallega frá stríðs- átökum. Dansinn hófst í hnipri á gólfinu og færðist út í smáar handa- og höfuðhreyfingar. Skipst var á setningum eða hugrenn- ingaglefsum um draum eða martröð síðustu nætur. Hugrenningarnar báru með sér kvíða um yfirvofandi óhugnað, eins og stríð. Danshreyf- ingarnar stækkuðu og hringlaga form mynduðust með líkamanum öllum eða höndunum einum saman. Rappað byssuleiksinnskot í anda tölvuleikja og stutt teiknimynd um veru mannsins á jörðinni rak enda- hnútinn á verkið. Ágætis uppbygging var í dans- gerðinni, hvernig byrjað var í hnipri á gólfinu og endað út um allt svið, þó skorti á samhæfni dans- aranna á þessu vinnslustigi. Tæt- ingslegur stíll hreyfinganna gerði þær á köflum viðvaningslegar. Nokkuð vantaði á skipulega upp- byggingu hugmynda til að verkið myndaði sannfærandi heild. List- ræni þátturinn var ekki nægilega sterkur en verkið er enn í mótun og ómögulegt að vita hvernig loka- útkoman verður. Búningarnir fóru dönsurunum vel, látlausar svartar buxur og hvítar skyrtur. Dans- verkið er ágætisfrumraun hjá höf- undi. Í því má breyta og bæta með áframhaldandi skoðun og vinnu. Það er óskandi að verkið verði sýnt fullmótað síðar. Tilraunastofa ÍD er frábært innlegg til þróunar dans- listar og á örugglega eftir að bera góðan ávöxt í náinni framtíð. Verk í vinnslu DANS Nýja svið Borgarleikhússins Danshöfundur: Steve Lorenz. Dansarar: Aðalheiður Halldórsdóttir, Cameron Cor- bett, Damian Michael Gmur, Emeilía Benedikta Gísladóttir, Hjördís Lilja Örn- ólfsdóttir. Mivikudagur 24. janúar 2007. Images – Danssmiðja Íslenska dans- flokksins Lilja Ívarsdóttir TÓNLISTIN á fyrstu plötu Ca- nora hljómar eins og blanda af Backstreet Boys og kexkökusk- rímslinu úr Sesame Street. Alltént ef marka ber lýsingu sveitarinnar sjálfar á myspace-setri sínu (mys- pace.com/canoraonline). Tónlistin hljómar auðvitað ekkert eins og þetta tvennt, en lýsingin gefur engu að síður nokkuð mikilvægt til kynna. Canora nálgast rokkið af hæfilegri léttúð og grallaraskap, nokkuð sem vinnur með henni. Canora er reist á rústum hljóm- sveitarinnar d.u.s.t., en sú sveit gaf út samnefnda plötu árið 2002. Ekki var nú undirrit- aður hrifinn af henni, ófrumleg blanda af ný- þungarokki og nýgruggi, og þessi plata hér því töluverð framför. Tónlistin á Kelvinator er þyngri – og ekki. Hér er verið að prófa þessa nýtilkomnu þungt/létt- blöndu sem hin bandaríska Kills- witch Engage hefur t.a.m. gert vinsæla. Skipt er örsnöggt úr níð- þungum köflum, þar sem menn rymja og öskra, yfir í einkar mel- ódíska þar sem raddanir og blíðu- hót ráða ríkjum. Aðrar sveitir sem í hugann koma í þessu samhengi eru t.d. hin kanadíska Into Et- ernity (sem heimsótti Ísland árið 2004) og hin íslenska Nevolution. Kelvinator ber þannig með sér talsverðan hrærigraut, þyngstu riffin minna talsvert á síðari tíma Sepultura, hér er tvígítarspil í anda Maiden (Gautaborgarhljóm- urinn) og grípandi viðlög þar sem er raddað að hætti hinnar sálugu Alice in Chains. Úrvinnsla öll er þó til muna mel- ódískari og aðgengilegri hjá Ca- nora en í þeim hljómsveit- ardæmum sem ég tók. Menn eru auðheyranlega ekki hræddir við að reyna hitt og þetta í lögunum, einslags styrkjandi kæruleysi, sem gerir mörgum lögunum gott. Sum lögin hefðu þó haft gott af meiri yfirlegu. Á heildina litið er það þó þessi léttleiki sem maður finnur fyrir sem hífir plötuna upp, hér er húmor sem er farið að vanta sár- lega í nútímaþungarokk. Canora- liðar þurfa vissulega að slípa hitt og þetta til en þetta er allt saman á réttri og góðri leið. Úr rykmekkinum TÓNLIST Geisladiskur Canora er skipuð þeim Alberti (söngur, gítar), Jakobi (gítar, söngur), Bæring (bassi) og Magnúsi (trommur). Lög og textar eftir Canora. Plötunni var upptök- ustýrt af Ronan Chris Murphy sem einnig sá um hljóðritun og hljóðblöndun. Dave Collins hljómjafnaði. Tuddi gefur út. Canora – Kelvinator  Arnar Eggert Thoroddsen Leikkonan Heather Graham fer með hlut-verk lesbíu í næstu mynd sinni, Gray Mat- ters. Hún leikur konuna Gray sem uppgötvar að hún er samkynhneigð eftir að hún verður ást- fangin af kærustu bróður síns. Stúlkan sem hún verður ástfangin af er leikin af Bridget Moynahan sem lék með Will Smith í myndinni I Robot. „Þetta er rómantísk gamanmynd þar sem ég kem út úr skápnum,“ segir hin 36 ára Graham um myndina. Hún og Moynahan eiga í eldheit- um ástarsenum í myndinni og fannst Graham ekki óþægilegt að leika í ástarsenu á móti konu. Graham lék klámstjörnu í myndinni Boogie Nights og vændiskonu í From Hell. Fólk folk@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.