Morgunblaðið - 28.01.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 43
ÞAÐ er fyrir löngu kominn tími til
að auka réttindi og áhrif ungs fólks í
samfélaginu. Einn þáttur í því er að
allir 16 ára og eldri fái að kjósa sér
fulltrúa í sveitarstjórnir
og á Alþingi, það er
aukið lýðræði. Með
þessu yrði ábyrgð ungs
fólks aukin og því gert
kleift að taka þátt í mót-
un samfélagsins eins og
það á réttmæta kröfu
til.
Árið 1984 var al-
mennur kosningaaldur
á Íslandi lækkaður úr
20 árum í 18 ár. Nú er
tími til að auka enn
þátttöku ungs fólks í
lýðræðinu og færa
kosningaaldur í 16 ár. 16 ára ein-
staklingur í íslensku samfélagi er orð-
inn virkur þátttakandi í þjóðfélaginu,
hefur lokið grunnskóla og ætti að
vera tilbúinn til að taka á sig þá
ábyrgð sem felst í því að kjósa sér
fulltrúa á Alþing og í sveitarstjórnir.
Það ætti einnig að vera sjálfsagður
réttur þessa unga fólks.
Frumkvæði í lýðræði
Í nágrannalöndum okkur er verið
að kanna þessi mál og það væri ósk-
andi að Íslendingar tækju frumkvæði
í því að auka lýðræði og þátttöku
ungs fólks í þjóðfélaginu. Kosninga-
réttur allra eldri en 16 ára er í athug-
un í Bretlandi og hefur Græniflokk-
urinn í Englandi og Wales sett þessa
kröfu í stefnuskrá sína og það sama
hafa Frjálslyndir demókratar í Bret-
landi og Þjóðarflokkurinn í Skotlandi
gert. Í Finnlandi hefur
Miðjuflokkurinn lagt til
að tilraun verði gerð á
einstökum svæðum í
næstu sveitarstjórn-
arkosningum, sem
verða 2008, þar sem 16
ára Finnar fengju að
kjósa. Í Svíþjóð hefur
Umhverfisflokkurinn
haft það á stefnuskrá
sinni að lækka kosn-
ingaaldur niður í 16 ár
til þess að freista þess
að auka þátttöku ung-
menna í pólitískri um-
ræðu. Í Noregi hefur Frjálslyndi
flokkurinn sett þetta mál í stefnuskrá
sína og það sama má segja um flokka
á hollenska þinginu, í Kanada, Ástr-
alíu og í Austurríki, svo nokkur lönd
séu nefnd.
Nú þegar hafa 16 ára ungmenni
kosningarétt í löndum eins og í Bras-
ilíu, Níkaragúa og á Kúbu. Í Króatíu,
Serbíu og Svartfjallalandi hafa ung-
menni á vinnumarkaði, sem eru orðin
16 ára, einnig kosningarétt.
Norski félagsfræðingurinn Stein
Ringen hefur fjallað um þátttöku
ungs fólks og barna í lýðræðinu (Citi-
zens, Families and Reform, Clarend-
on Press, Oxford 1997) og Torfi H.
Tulinius prófessor við Háskóla Ís-
lands hefur einnig fjallað um málið á
áhugaverðan hátt.
Rök með og á móti
Helstu rökin fyrir því að 16 ára ein-
staklingar hljóti kosningarétt eru þau
að það muni smám saman leiða til
breyttra áherslna í landsmálunum
þar sem kjörnir fulltrúar landsins
myndu leitast við að verja hagsmuni
stærri hluta þjóðarinnar. Kosninga-
réttur hefði þroskandi áhrif á ungt
fólk og það yrði að ábyrgum þátttak-
endum í samfélaginu.
Rök gegn því að ungt fólk fái kosn-
ingarétt eru til dæmis þau að börn og
unglingar búi ekki yfir vits-
munaþroska til að taka afstöðu í þjóð-
málum eða sveitarstjórnarmálum, að
þau láti tilfinningar ráða fremur en
dómgreindina og séu líklegri til að
verða fórnarlömb áróðursmeistara.
Öll þessi rök lýsa vantrausti á ungt
fólk og hafa reyndar einnig verið not-
uð á liðnum tímum til að koma í veg
fyrir að konur, eignalausir, undir-
okaðir kynþættir og jafnvel almenn-
ingur hljóti kosningarétt!
Krafa okkar í upphafi 21. ald-
arinnar hlýtur að vera sú að allir 16
ára og eldri fái kosningarétt.
Ungt fólk fái að kjósa
Hlynur Hallsson fjallar um
kosningarétt ungs fólks »Krafa okkar í upp-hafi 21. aldarinnar
hlýtur að vera sú að allir
16 ára og eldri fái kosn-
ingarétt.
Hlynur Hallsson
Höfundur er varaþingmaður Vinstri-
hreyfingarinnar græns framboðs.
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Sími 533 4800
284,2 fm einbýli á tveimur hæðum, þar af 32 fm bílskúr. Sér 2ja her-
bergja íbúð á jarðhæð. Glæsileg ca 100 fm verönd með skjólvegg og
heitum potti til suðurs. Á efri hæð er forstofa, tvö svefnherbergi, bað-
herbergi, stofur og eldhús. Á neðri hæð er sjónvarpshol, tvö svefn-
herbergi, baðherbergi, saunaklefa og þvottahús. 8048. V. 68,0.
Skógarhjalli - Með auka íbúð
254,4 fm glæsilegt raðhús/tengihús á tveimur hæðum með bílskúr á
góðum útssýnisstað í Kórahverfinu í Kópavogi. Húsið verður fullbú-
ið að utan, steinað í ljósum lit. Lóðin verður tyrfð og bílaplan hellu-
lagt götumegin. Að innan verður húsið afhent fullbúið án gólfefna,
flísar verða þó á aðalbaðherb. Húsið verður með gólfhita. Möguleiki
er á breytingum í innréttingavali ef kaupendur koma með þær tím-
anlega. V. 55-56,9 m.
Hamrakór – Raðhús
89,1 fm 3ja herbergja íbúð á annarri hæð í nýbyggingu við Klappar-
stíg í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin skiptist í anddyri/gang, eldhús,
stofu/borðstofu, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Íbúðin afhendist
fullbúin með eikarparketi. Laus við kaupsamning. 5576. V. 32,2 m.
Klapparstígur – Laus strax
126 fm mjög góð 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi í
nýlegu þriggja hæða fjölbýlishúsi. Glæsilegt útsýni. Íbúðin skiptist í
anddyri, rúmgóða stofu, eldhús með borðkrók, þvottahús, baðher-
bergi og þrjú svefnherbergi. Í kjallara er sér geymsla. Sér inngang-
ur. 7972. V. 28,9 m.
Kristnibraut – Laus strax
168,6 fm glæsilegt endaraðhús á fallegum útsýnisstað við Fjallalind
í Kópavogi. Húsið sem stendur innst í botnlanga skiptist í forstofu,
eldhús með borðkrók, hol, stofu, tvö baðherbergi, fjögur svefnher-
bergi, þvottahús og fataherbergi. Húsið er á þremur pöllum. Mikil
lofthæð er á efri hæð. Hiti í plani. Opið hús verður á morgun mánu-
dag milli 17.00 og 19.00. 8059. V 49,9 m.
Fjallalind – Glæsilegt
89 fm mjög góð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi fyrir 55 ára
og eldri. Húsið er glæsilegt og er byggt árið 1992. Íbúðin skiptist í
forstofu, stofu, tvö svefnherbergi, eldhús, lítil geymsla og baðher-
bergi. Í húsinu er húsvörður. Stutt er í skóla, þjónustu, miðbæinn og
heilbrigðisþjónustu.
Snorrabraut - 55 ára og eldri
– Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i ! –
EIGNIR ÓSKAST
FYRIR ÁKVEÐNA KAUPENDUR
Húsakaup auglýsir eftir ákveðnum eignum fyrir trausta
aðila. Góðar greiðslur og rúmur afhendingartími.
• 200-300 fm einbýlishús í Grafarvogi.
• Íbúð í húsi fyrir eldri borgara í Reykjavík.
• 2ja herbergja íbúð í nálægð við Háskóla Íslands.
• 100-150 fm íbúð/sérhæð í hverfi 101 eða 105.
• Einbýli, raðhús eða sérhæð í Vesturbæ eða á Seltjarnarnesi.
• Einbýli eða raðhús í hverfi 105, verð á bilinu 40-55 milljónir.
• Einbýli með aukaíbúð í Reykjavík eða Kópavogi, verð allt að 45 millj.
• Raðhús í Reykjavík, verð allt að 38 millj.
• Góð 3ja-4ra herbergja íbúð í hverfum 101, 105, 107 og 108.
• Góð 2ja-3ja herbergja íbúð í lyftuhúsi í Smárahverfi.
• 3ja herbergja íbúð í Hlíðarhverfinu, má þarfnast standsetningar.
• 350-500 fm geymslu-/lagerhúsnæði.
• 2500 fm verslunarhúsnæði í Reykjavík.
• 100 fm skrifstofuhúsnæði í hverfi 105.
• 350 fm vandað verslunarhúsnæði, miðsvæðiðs í Reykjavík.
• 2000-2500 fm lagerhúsnæði m. góðri lofthæð og útisvæði á
höfuðborgarsvæðinu.
• Fjársterkir aðilar óska eftir byggingarlóðum á höfuðborgarsvæðinu.
• Höfum einnig trausta kaupendur að öllum gerðum atvinnuhúsnæðis á
höfuðborgarsvæðinu.
Frekari upplýsingar veitir Albert Björn Lúðvígsson í síma 840-4048.
Halldór I Andrésson lögg. fasteignasali
Sagt var: Aðsókn var tólf prósent meiri en í fyrra.
Rétt væri: Aðsókn var tólf prósentum meiri en í fyrra.
Gætum tungunnar