Morgunblaðið - 28.01.2007, Page 36
sjónspegill
36 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
M
argt hefur verið á
döfinni undanfarið,
kastljósið beinst að
nýhöfnum fram-
kvæmdum við tón-
listarhúsið og um leið Lands-
bankasýningu í gömlu
höfuðstöðvum Morgunblaðsins við
Aðalstræti. Einnig átakanlegum
skorti á geymsluhúsnæði undir
margvísleg menningarvermæti,
málaferlum lögerfingja Kjarvals,
mannaskiptum við Listasafn Ís-
lands og eldglæringum yfir höf-
uðborginni við áraskiptin, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Ekki vonum fyrr að tónlistarhöll
rísi upp, en satt að segja fæ ég
jafnaðarlega óþægindatilfinningu í
magann þegar mér verður hugsað
til þeirra hliðarframkvæmda sem
þurfa að fylgja byggingu menning-
arhúsa hér á landi. Svona til að
réttlæta þær fyrir þjóðinni að lokn-
um áratuga umræðum hvar fáfræði
og úrtöluraddir riðu röftum í góðu
samræmi við einangrun sem fáir
vilja kannast við, en er í jafnvægi
við hlutdrægan og einsýnan mennt-
unargrunni í sjónlistum. Landinn
hefur vægast sagt skondna sér-
stöðu í hópi þjóða í þeim efnum, og
skýtur skökku við þá viðteknu ár-
áttu að taka sem flest hratt og
ómelt upp sem menn eru að aðhaf-
ast í útlandinu. Fá jafnt smátt sem
stórt klæðskerasaumað hingað upp
á skerið, leiðarstefið oftar en ekki
útjöfnun og lágkúra. Nefnilega mál,
að það sem athugulir komast ekki
hjá að taka eftir í hinum stærri
borgum ytra eru glæsibyggingar
sem hvarvetna hafa risið upp á
undangengnum árum og ekkert lát
er á. Ytra einna mest borið í söfn,
tónleikahallir og ráðhús, metnaður-
inn mikill og samkeppnin hörð, en
hér íþróttahallir og verslunarmið-
stöðvar helst í forgrunni …
Auðvitað hafa HenningLarsen og félagar skilaðfrábæru verki hvað tón-listarhúsið snertir, mað-
urinn stjörnuarkitekt og af ýmsum
löndum sínum álitinn engu síðri
Arne Jacobsen, ef ekki fremri. En
svo annað mál, að um þessar
mundir getur hver og einn fylgst
með því að Jean Nouvel úr Frans,
sem hlaut þriðju verðlaunin, er
hvarvetna lofaður og prísaður fyrir
frumleik sinn og snilli. Og eins og
ég hef áður vísað til skorti hvorki
frumleika né tilfinningu fyrir um-
hverfinu og landinu sjálfu í tillögu
Nouvels. Hér reyndist þröngt og
skammarlega búið að tillögu meist-
arans í kjallara Þjóðmenning-
arhússins, þó vonandi ekki um
ásetning að ræða. Enginn skyldi
fortaka að kannski misstum við af
tónlistarhúsi í takt við landið, sem
augu heimsins hefðu beinst að um
langa framtíð …
Nefndi Landsbankasýninguna
vegna þess að hún var ekki einasta
stórfróðleg og drjúg sjónræn lifun
sem kom rýninum í gott skap,
heldur var þar einnig til sýnis
skipulagsuppdráttur af Tónlistar-
húsinu og byggingum í kring og
kom þá í ljós að hinar ávölu línur í
framtíðarhúsi bankans munu líkast
til mýkja heildarmynd svæðisins til
muna. Hérlendir arkitektar virðast
nefnilega yfirmáta hikandi við að
víkja út af hörðum grunnmálum
módernismans, einkum við bygg-
ingu há- og stórhýsa. Eru ragir við
að hanna hús sem augun beinast
að, menn lifa nefnilega ekki á út-
sýninu einu saman né einhverri
rótgróinni stöðlun og miður hve
duglegir gerendur eru við að draga
fyrir útsýni annarra, fella stein-
Undarleg er
íslensk þjóð
Fjörleg kveðja til ökumanna Ávalur og hringlaga rauð/grænn skýjakljúfur Jeans Nouvels, Torre Agbar, í Barce-
lona, skiptir litum dag og nótt eins og kameljón. Öflugur arkitónískur leiðarvísir í miðri mikilli umferðaræð, sem
eins og sendir fjörlega og bragðvísa kveðju til ökumanna og er sýnilegur úr mikilli fjarlægð.
Bragi Ásgeirsson
! " #
„Eftir MCSA námið stýri ég
rekstri tölvukerfis í blönduðu
PC/MAC umhverfi hjá fyrirtæki
með ríflega 130 starfsmenn.
Áður vann ég á sama stað sem
sölumaður og prentráðgjafi.„
MCSA námið er spennandi kostur fyrir þá sem vilja starfa
sem sérfræðingar við umsjón Microsoft netkerfa.
Markmiðið með náminu er að nemendur geti að námi
loknu tekið þau fjögur alþjóðlegu próf sem þarf til að öðlast
MCSA gráðuna og eru þau öll innifalin í námskeiðsgjaldi.
Inntökuskilyrði
Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa góða þekkingu
og skilning á Windows umhverfinu, þekkja vel innviði PC
tölvunnar. Allt kennsluefni er á ensku.
Kennt er lau. frá 13-17 & sun. 8:30 - 16:00 aðra
hverja helgi. Hefst 10. febrúar og lýkur 3. júní.
Frábært nám með vinnu!
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS
Helgi Þór Guðmundsson - Prentmet
! " #
$%
& '
&
# % ( )
& $%
#
"
! " # $ % & ' & ( $ ) * ' " +
#,+- ./0 !1%& 222)30$140'"#31% %"
5 6 7 896
:
6 7 896
:
; 6 8
<76
(=
; 6 8
<76
(=
Foreldraskólinn hefur námskeið að nýju um svefn barna og ýmislegt
sem honum tengist.
Leiðbeinendur eru: Arna Skúladóttir sérfræðingur um svefn og svefn-
vandamál barna, Ingibjörg Leifsdóttir, hjúkrunarfræðingur og
Rakel Jónsdóttir, sérfræðingur í nýburahjúkrun.
Námskeið um 2 - 7 mánaða börn
30. janúar og 6. mars í Bústaðarkirkju
Námskeið um 7 - 18 mánaða börn
3. febrúar og 10. mars á Barnaspítala Hringsins
Eftir sem áður er hægt að sérpanta námskeið.
Skráning á námskeiðin fer fram á foreldraskoli@foreldraskoli.is