Morgunblaðið - 28.01.2007, Side 61

Morgunblaðið - 28.01.2007, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 61 menning Í tíu ár hefur NTV boðið upp á Skrifstofu- og tölvunám. Á þessum tíma hefur námskeiðið þróast mikið og breyst í takt við tímann og vinnumarkaðinn. Það er samdóma álit þeirra sem ljúka náminu að það sé krefjandi en umfram allt uppbyggilegt, styrkjandi og skemmtilegt. - Windows stýrikerfið - Word ritvinnsla - Excel töflureiknir - Power Point kynningarefni - Access gagnagrunnur - Internetið & Tölvupóstur Tölvunám - 96 stundir - Verslunarreikningur - Bókhald - Tölvubókhald Navision MBS® Viðskiptagreinar - 108 stundir - Tímastjórnun og markmiðasetning - Sölutækni og þjónusta - Framsögn og framkoma - Mannleg samskipti - Streitustjórnun - Atvinnuumsóknir Sjálfstyrking - 30 stundir - Auglýsingatækni - Markhópagreining - Gerð birtingaráætlana - Gagnvirk tenging forrita - Flutningur lokaverkefnis Lokaverkefni - 24 stundir Í tölvuhlutanum er lögð áhersla á þau forrit sem nemandi þarf að kunna á til að öðlast TÖK-skírteini sem er alþjóðleg viðurkenning á tölvukunnáttu hans. NTV er eini skólinn þar sem öll 7 TÖK prófin og alþjóðlegt prófskírteini er innifalið í náminu. Kenndur er sá hluti verslunarreiknings sem mest er notaður á skrifstofunni og tekin fyrir flest þau atriði sem þarf til að færa bókhald fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. NTV leggur mikið upp úr því að ná fram því besta úr hverjum og einum nemanda. Það er ekki nóg að búa yfir þekkingu og hæfileikum. Nemandinn þarf einnig að þekkja styrk sinn og veikleika, kunna að stýra tíma sínum, setja sér skýr markmið og kunna að selja öðrum hugmyndir sínar og skoðanir. „Skemmtilegasti og erfiðasti hluti námsins“ segja margir. Unnið er í 3-4 manna hópum að markaðssetningu á vöru eða þjónustu. Lokaverkefnisvinnan er skemmtileg, krefjandi og framsett á þann hátt að hún taki á flestum þáttum námskeiðsins. UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn - Hlíðasmára 9 - Kópavogi „Frábært og hnitmiðað!“ lýsir náminu best! Fyrir tíu árum og þremur börnum síðan fór ég af vinnumarkaði. Því fannst mér erfitt að fara að vinna aftur, ég var ekki tilbúin að takast á við nútíma skrifstofuumhverfi. Eftir Skrifstofu- og tölvunámið fékk ég strax góða skrifstofuvinnu þar sem ég er að nýta mér flest það sem kennt var í náminu. SKRIFSTOFU- & TÖLVUNÁM Bryndís Gísladóttir - Inpro ehf. Næstu námsskeið: Morgunnámskeið - 1 Alla virka daga frá kl. 8:30-12:30 Byrjar 5. feb. og lýkur 12. apr. Morgunnámskeið - 2 Mán, mið. og fös. frá kl. 8:30-12:30 Byrjar 5. feb. og lýkur 23. maí. Kvöldnámskeið Þri. og fim. 18-22 og lau. 8:30-12:30 Byrjar 6. feb. og lýkur 29. maí. Námið gefur 10 einingar til stúdentsprófs og skiptist í 4 flokka: UPPSELT! FYRSTA stofuspjall ársins í tengslum við verk mánaðarins á Gljúfrasteini fer fram í dag kl. 16. Þá mun tónskáldið Atli Heimir Sveins- son setjast við flygilinn í stofunni og fletta Kvæðakveri Halldórs Lax- ness, spila tóndæmi og ræða lögin og ljóðin. Honum til fulltingis verður Bergþór Pálsson söngvari. Atli Heimir hefur samið lög við nokkur ljóða Halldórs Laxness, þ. á m. ljóðið Maríukvæði sem ekki hafði birst áður. Þá samdi hann tónlist fyrir leikverkið Sjálfstætt fólk þegar það var sýnt í Þjóðleikhúsinu 1998– 1999. „Bergþór mun flytja sönglögin sem ég samdi við ljóð Halldórs fyrir leiksýninguna eftir Sjálfstæðu fólki, og á milli laga fletti ég Kvæða- kverinu og lít á það sem þar er að finna. Ég mun ræða um kvæðin og svo segi ég eitthvað um mínar minn- ingar um Halldór og okkar kynni, sem voru ekki mikil en góð, og hvaða áhrif hann hafði á mig og mína kyn- slóð,“ segir Atli Heimir og bætir við að Halldór hafi verið glettilega gott ljóðskáld. „Ljóðagerð kemur þónokkuð fyrir í skáldsögum hans, kannski meira en margir halda í fljótu bragði. Halldór var líka mjög mús- íkalskur maður og hafði yndi af tón- list. Hann spilaði aðeins á píanó og marglýsti því yfir hvað hann hafði gott af því að iðka dálítið tónlist. Kannski hefur það haft einhver áhrif í skáldsögunum en hann skrifaði heila bók um söngvara, sem kannski söng og söng ekki, og einn af sonum Bjarts í Sumarhúsum ætlar út í heim að syngja fyrir heiminn, svo þetta hefur blundað í honum,“ segir Atli Heimir og lofar léttri stemningu á Gljúfrasteini í dag. Stofuspjall Tónskáldið Atli Heimir Sveinsson mun sitja við flygilinn á Gljúfrasteini í dag og fletta Kvæðakveri Halldórs Laxness. Flettir Kvæðakverinu á milli laga á Gljúfrasteini

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.