Morgunblaðið - 02.02.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 32. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
MEÐ SÝNIÞÖRF
HLJÓMSVEITARRÚTA DR. SPOCK
ENDURSPEGLAR EIGENDURNA >> BÍLAR
ÞÚ MÁTT SKRIFA
SJÁLFSTÆTT FÓLK II
ÁGRÁUSVÆÐI
ÓVARIN HUGMYND >> 45
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
AUKIN samkeppni í sölu á bensíni
hér á landi hefur ekki leitt til þess að
óarðbærum bensínstöðvum sé lokað
líkt og gerðist í Danmörku fyrir
nokkrum árum. Olíufyrirtækin hafa
hins vegar breytt mörgum stöðvum í
mannlausar stöðvar. Nú eru um 65
bensínstöðvar á höfuðborgarsvæðinu
og um 200 á landinu öllu.
Eins konar bensínstríð hófst í
Danmörku árið 2003 þegar Q8 lækk-
aði verð í þeim tilgangi að ná meiri
markaðshlutdeild. Önnur olíufélög
fylgdu í kjölfarið. Þessi harða sam-
keppni leiddi til þess að olíufélögin
neyddust til að hagræða í rekstri,
m.a. með því að loka óarðbærum
bensínstöðvum. Vel á annað hundrað
stöðvum var lokað.
Fleiri ómannaðar stöðvar
Hér á landi hefur bensínstöðvum á
höfuðborgarsvæðinu ekki fækkað
þrátt fyrir að samkeppni hafi aukist,
m.a. með tilkomu Atlantsolíu inn á
markaðinn. Þvert á móti hefur þeim
fjölgað. Atlantsolía rekur núna átta
bensínstöðvar á höfuðborgarsvæðinu
og hin olíufélögin hafa opnað stöðvar
í nýjum hverfum. Verið er að und-
irbúa opnun bensínstöðva í Norð-
lingaholti, Vallahverfi og á næstunni
verður ný stöð opnuð á Akureyri.
Það er hins vegar óhjákvæmilegt að
það dragi úr hagkvæmni sumra eldri
bensínstöðva þegar bensínstöðvun-
um fjölgar. Olíufélögin hafa brugðist
við þessu með því að breyta nokkrum
þjónustustöðvum í ómannaðar sjálfs-
afgreiðslustöðvar. Þá hefur stöðvum
á landsbyggðinni fækkað.
Núna eru reknar 65 bensínstöðvar
á höfuðborgarsvæðinu, en það þýðir
að um 2.800 íbúar eru um hverja
bensínstöð.
Fer fram hjá sex bensínstöðvum
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri FÍB, segist vera þeirrar skoð-
unar að nauðsynlegt sé að tryggja
aðkomu nýrra aðila inn á markað
sem einkennst hafi af fákeppni enda
sé kveðið á um það í samkeppnislög-
um. Hann segist þó geta tekið undir
það sjónarmið að bensínstöðvar á Ís-
landi séu of margar. Hann tekur sem
dæmi að hann þurfi að aka um 6 km
leið frá heimili í vinnu, en á leiðinni
aki hann fram hjá sex bensínstöðv-
um.
Lokað Mörgum bensínstöðvum í
Danmörku hefur verið lokað.
Bensín-
stöðvunum
fjölgar enn
HÆSTIRÉTTUR mildaði í gær dóm yfir karl-
manni á fimmtugsaldri sem áður hafði verið dæmd-
ur í Héraðsdómi Reykjavíkur til tveggja ára fang-
elsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn börnum.
Niðurstaða Hæstaréttar var að maðurinn skyldi
sæta fangelsi í 18 mánuði. Maðurinn var einnig
dæmdur til að greiða fórnarlömbum sínum 2,4
milljónir króna í miskabætur.
Í dómi Hæstaréttar segir að að virtum þeim at-
riðum sem greini í héraðsdómi varðandi ákvörðun
refsingar og að teknu tilliti til dómaframkvæmdar
Hæstaréttar í málum sem varði með hliðstæðum
hætti brot gegn 1. mgr. og 2. mgr. 202. gr. og 4.
mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940
verði ákærða gert að sæta fangelsi í 18 mánuði.
En í 1. mgr. 202. gr. laganna segir: „Hver sem
hefur samræði eða önnur kynferðismök við barn,
yngra en 14 ára, skal sæta fangelsi allt að 12 árum,“
og í 2. mgr.: „Önnur kynferðisleg áreitni en sú sem
greinir í 1. mgr. varðar fangelsi allt að 4 árum.“
Almennt á að nýta refsirammann
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndar-
stofu, sagðist ekki tjá sig um niðurstöðu einstakra
dómsmála. Almennt talað finnist honum hins vegar
að þegar um sé að ræða ítrekuð kynferðisbrot gegn
mörgum börnum sé um mjög alvarlega háttsemi að
ræða og þá eigi að nýta refsiramma laganna til hins
fimm stúlkubörnum á árunum 1995–2005 auk þess
sem í tölvu hans fundust 210 barnaklámmyndir.
Maðurinn hafði ljósmyndað tvö fórnarlömb sín í
klámfengnum tilgangi. Af einni telpunni tók hann
ljósmyndir í afmæli barna sinna og skeytti saman
við aðra mynd af nöktum karlmanni. Einnig tók
hann myndir af telpu þegar hún var nakin úti í
garði heima hjá honum ásamt dóttur hans.
Börnin tengdust flest manninum, s.s. í gegnum
börn hans sjálfs, og taldi héraðsdómur að brotin
væru alvarleg trúnaðarbrot sem beindust að stúlk-
um sem honum var beint og óbeint treyst fyrir.
Eitt atvikið var þannig að telpa hafði farið með
manninum og börnum hans í útilegu þegar hann
braut gegn henni. Eins braut maðurinn gegn telpu
sem fengið hafði að gista á heimili hans.
Yngsta telpan var þriggja ára þegar ákærði
braut gegn henni.
Fyrir héraðsdómi kom fram að sjálfsmynd einn-
ar stúlkunnar væri mjög veik, um yngstu telpuna
sagði félagsráðgjafi að hún væri óvenjulega upp-
stökk, kvíðin og grátgjörn og ætti erfitt með að
slaka á. Um telpu sem ákærði ljósmyndaði sagði
ráðgjafinn að atburðurinn hefði haft neikvæð áhrif
á geðheilsu hennar. Ragnheiður Harðardóttir
vararíkissaksóknari flutti málið af hálfu ákæru-
valdsins en Sveinn Andri Sveinsson hrl. varði
manninn.
ýtrasta; einkum þegar það bætist einnig við að við-
komandi játi ekki brot sín og ekkert komi fram um
iðrun hins dæmda og viðurkenningu á ábyrgð
sinni.
Maðurinn var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn
Milduðu dóminn
Hæstiréttur dæmdi karl á fimmtugsaldri í 18 mánaða fangelsi fyrir kynferðis-
brot gegn fimm stúlkubörnum en í undirrétti hafði hann hlotið tveggja ára dóm
Í HNOTSKURN
» Brotin framdi maðurinn á tímabilinu1995–2005 gegn fimm telpum.
»Maðurinn hafði ljósmyndað tvö fórnar-lömb sín í klámfengnum tilgangi.
»Af einni telpunni tók hann ljósmyndir íafmæli barna sinna og skeytti saman við
aðra mynd af nöktum karlmanni.
»Maðurinn tók myndir af telpu þegarhún var nakin úti í garði heima hjá hon-
um ásamt dóttur hans.
»Maðurinn braut á telpu sem farið hafðimeð honum og börnum hans í útilegu.
»Maðurinn braut gegn telpu sem fengiðhafði að gista á heimili hans.
»Yngsta stúlkan sem hann braut gegnvar þriggja ára.
Hæstiréttur Gunnlaugur Claessen, Hrafn Bragason, Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Garðar Gíslason kváðu upp dóminn.
NÝLIÐINN janúar er sá kaldasti í
Reykjavík síðan 1995 að sögn
Trausta Jónssonar, veðurfræðings
á Veðurstofunni. Veðrið var um-
hleypingasamt eins og undanfarna
mánuði.
Hitinn í Reykjavík var -0,6 stig
sem er í tæpu meðallagi. Á Akur-
eyri var hitinn -1,5 sem er 0,7 yfir
meðallagi. Úrkoman á báðum stöð-
um var um 80% af meðalúrkomu.
Sólskinsstundir voru rúmlega 30 í
Reykjavík og er það í rúmu með-
allagi. Hitinn í Reykjavík var -2 stig
1995 og -0,2 stiga hiti 2005. Á Ak-
ureyri hefur ekki verið eins kalt og
nú síðan 2004.
Í dag er spáð rigningu víða á
landinu sem er ágætt að vita ef ætl-
unin er að treysta á hjólhestinn.Morgunblaðið/Golli
Kaldasti
janúarmán-
uður í tólf ár