Morgunblaðið - 02.02.2007, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
föstudagur 2. 2. 200
íþróttir mbl.íþróttir
Sænska liðið Malmö FF leitar að starfi fyrir Ásthildi Helgadóttur >> 8
EGGERT ER ÁNÆGÐUR
. . . MEÐ MICHAEL PLATINI SEM FORSETA UEFA OG AÐ MIÐVÖRÐURINN
MATTHEW UPSON SÉ KOMINN TIL WEST HAM >> 6 OG 8
„Áður en hægt er að velta þessu
fyrir sér í alvöru þá verðum við að
komast í forkeppnina, en því er
ekki að leyna að við höfum haft
það bak við eyrað að freista þess
að fá okkar riðil heim.
Keppni af þessu tagi með fjórum
þátttökuþjóðum er mátulega stórt
verkefni fyrir okkur. Bæði teljum
við okkur geta fjármagnað það,
auk þess sem áhugi fyrir stuttri og
snarpri keppni sem leikin yrði á
þremur til fjórum dögum gæti
vakið athygli almennings á Íslandi.
Þá myndi slíkt mótahald auk
möguleika okkar á að komast
áfram og á Ólympíuleikana í Pek-
ing,“ sagði Einar ennfremur.
Sex þjóðir á HM tryggja
sér sæti í forkeppninni
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær tryggja sex þjóðir
sér sæti í fyrrgreindri forkeppni
Ólympíuleikanna í gegnum heims-
meistaramótið í handknattleik sem
nú stendur yfir, þ.e. þær sem
hafna í sæti tvö til sjö. Heims-
meistararnir sem krýndir verða á
sunnudag fá sjálfkrafa keppnisrétt
á ÓL í Peking 2008 og þurfa ekki
að fara í forkeppni. Þá opnar Evr-
ópumótið í Noregi eftir ár mögu-
leikann fyrir þrjár Evrópuþjóðir
til að bætast í hópinn; Evrópu-
meistararnir fá farseðil beint á Ól-
ympíuleikana og þær tvær þjóðir
sem ná bestum árangri á EM fá
keppnisrétt í forkeppninni, að und-
anskildum þeim sex Evrópuríkjum
sem komast inn í forkeppnina með
því að hafna í öðru til sjöunda sæti
á HM sem lýkur á sunnudag.
Í forkeppninni sem stefnt er að
fari fram í lok maí 2008 leiða 12
þjóðir saman hesta sína í þremur
riðlum. Tvær efstu þjóðir hvers
riðils tryggja sér keppnisrétt á ÓL
2008 og bætast þar með í hóp
þeirra sex þjóða sem vinna sér inn
sæti með öðrum leiðum, þ.e. fjög-
urra álfumeistara, heimsmeistara
og gestgjafa leikanna, Kínverja.
Sérstök forkeppni fyrir Ólymp-
íuleikana verður nú haldin í fyrsta
sinn og leggst mjög misjafnlega í
menn í handknattleiksheiminum.
Mikil gagnrýni í Evrópu
Hefur hún einkum verið mikið
gagnrýnd af Handknattleikssam-
bandi Evrópu, EHF, sem telur al-
gjöran óþarfa vera að bæta einni
keppninni við. IHF segir að
mótinu sé komið á að beiðni Al-
þjóða ólympíunefndarinnar, IOC.
Talsmenn IOC hafa hins vegar lát-
ið hafa eftir sér að þeir hafi ekki
óskað eftir breytingum á þeim
reglum sem IHF hefur notað til
þess að velja lið inn á leikana fram
til þessa. Jacques Rogge, forseti
IOC, mun m.a. hafa sent EHF
bréf þess efnis að IOC hafi ekki
farið fram á neinar breytingar.
Hvað sem því líður virðist ekk-
ert koma í veg fyrir að keppnin
fari fram og þar með er ljóst að
árið 2008 verður mjög annasamt
hjá fremstu landsliðsmönnum
heims í handknattleik. Í janúar fer
fram EM í Noregi, í maí forkeppni
ÓL, í júní umspilsleikir fyrir HM
og í ágúst Ólympíuleikar hjá þeim
sem þangað komast.
Leikið er í flestum bestu deild-
um Evrópu fram í lok maí og þráð-
urinn tekinn upp að nýju í byrjun
september. Hætt er við að sum-
arfríið verði snubbótt hjá sumum
vegna þessa mikla álags sem
margir telja nú þegar komið fram
úr öllu hófi.
HSÍ hyggst sækja um
forkeppni ÓL í Peking
„ÞAÐ er alveg klárt að ef við kom-
umst í forkeppni Ólympíuleikanna
þá ætlum við að sækja um að okkar
riðill verði leikinn á Íslandi, það er
stefna okkar. Síðan verður að koma
í ljós hvort við hreppum hnossið,“
sagði Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri Handknattleiks-
sambands Íslands, spurður hvort
HSÍ myndi sækja um að halda einn
þriggja riðla í forkeppni Ólympíu-
leikanna vorið 2008, takist íslenska
landsliðinu að tryggja sér keppn-
isrétt í forkeppninni. Þar yrði um
fjögurra liða riðil að ræða.
Morgunblaðið/Günter Schröder
Messa Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Íslands, messar yfir sínum leik-
mönnum í leiknum gegn Rússum í gær, sem tapaðist 25:28.
Eftir Ívar Benediktsson í Hamborg
iben@mbl.is
föstudagur 2. 2. 2007
bílar mbl.is
Alhliða lausn í
bílafjármögnun
Suðurlandsbraut 8
108 Reykjavík
s: 540 1500
www.lysing.is
Suðurlandsbraut 22
Einkaleiga
Bílalán
Bílasamningur
Rekstrarleiga
Hvað hentar þér best?
bílar
kjárEinn hefur sýningar á vinsælustu mótorhjólakeppni heims, MotoGp » 8
HINIR FIMM FRÆKNU
HVAÐA FIMM BÍLAR HAFA MARKAÐ SÍN SPOR
Í KAPPAKSTURSSÖGUNA Á EINN EÐA ANNAN HÁTT? >> 2
Morgunblaðið/ÞÖK
Endurspeglar bíll að einhverju
leyti persónu eiganda síns?
Þeir Guðfinnur Karlsson og
Óttarr Proppé vilja meina að
svo sé en hljómsveit þeirra, Dr.
Spock, hefur á undanförnum
árum ekið um á íburðarmiklum
Hummer-jeppa. Hefur jeppinn
reynst þeim afar vel og vilja
þeir meina að oft og tíðum hafi
hann nánast verið lífsnauðsyn-
legur. Þeir segja jafnframt að
bíllinn rími einkar vel við
hljómsveit þeirra sem er óneit-
anlega íburðarmikil líkt og
jeppinn, tröllvaxin og glys-
gjörn með ríka sýniþörf. » 4.
Hið glysgjarna farartæki Dr. Spock
Y f i r l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 28
Veður 8 Viðhorf 30
Staksteinar 8 Bréf 32
Úr verinu 14 Minningar 33/40
Viðskipti 15 Myndasögur 48
Erlent 16/17 Dagbók 49/53
Höfuðborgin 20 Víkverji 52
Akureyri 20 Staður og stund
52/53
Suðurnes 21 Leikhús 46
Daglegt líf 22/27 Bíó 50/53
Menning 18/19 Ljósvakamiðlar 54
Umræðan 30/32
* * *
sveita Árnessýslu, segir að 774
teikningar hafi verið samþykktar í
fyrra og það sé met.
Erlent
Auðjöfurinn Silvio Berlusconi
hefur beðið eiginkonu sína Veron-
icu afsökunar á daðri sínu við ung-
ar konur á galakvöldverði fyrir
skömmu. Hafði Veronica áður far-
ið fram á opinbera afsökunar-
beiðni í bréfi sem vakti gríðarlega
athygli. » 16
Vladímír Pútín, forseti Rúss-
lands, neitaði í gær ásökunum um
að Rússar hefðu notað olíu- og
gasbirgðir sínar sem pólitískt
vopn eða tæki til að ráðskast með
ríki sem eru háð þeim í orku-
málum. Pútín sagði á árlegum
fundi með blaðamönnum í Kreml
að nýlegar verðhækkanir á olíu og
gasi sem Rússar selja til Hvíta-
Rússlands, Georgíu og fleiri fyrr-
verandi sovétlýðvelda væru ekki
af pólitískum rótum runnar. » 16
Hugo Chavez, forseti Vene-
súela, efndi til blaðamannafundar í
Caracas í gær í tilefni þess að
hann myndi á næstu átján mán-
uðum framkvæma þjóðnýtingu á
mörgum stærstu fyrirtækjum
landsins. » 16
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
GÍFURLEG vitundarvakning hefur orðið meðal
vélsleðamanna í kjölfar slyssins í Hlíðarfjalli 21.
janúar þegar vélsleðamaður lenti í snjóflóði og slas-
aðist alvarlega. Maðurinn liggur enn á sjúkrahúsi
en er á batavegi.
Slysið var mjög umtalað í kjölfarið, ekki síst
vegna eftirminnilegrar björgunar þegar félagar
mannsins fundu hann með hjálp snjóflóðaýlna þar
sem hann lá á tveggja metra dýpi á botni breðans.
Ljóst er að atvikið hreyfði rækilega við vélsleða-
samfélaginu því að undanfarið hefur á annað hundr-
að vélsleðamanna farið á námskeið sunnan- og
norðanlands. Á námskeiðunum var kennd notkun
snjóflóðaýla og björgun úr snjóflóði. Þannig komu
87 þátttakendur á námskeið í Bláfjöllum í síðustu
viku og hafði umsjón þar Leifur Örn Svavarsson,
snjóflóðasérfræðingur hjá Veðurstofunni, en hann
er að auki einn allra reyndasti fjallaklifrari landsins.
Hitt námskeiðið var haldið í Súlumýrum í Eyjafirði
og hafði yfirumsjón þar Auður Elva Kjartansdóttir
hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Komu um 80
manns á námskeiðið, bæði vélsleðamenn og liðs-
menn úr Björgunarsveitinni Súlum. Námskeiða-
haldið var á vegum Landssambands íslenskra vél-
sleðamanna LÍV og Landsbjargar.
„Mér fannst ótrúlega jákvætt að sjá þessa vit-
undarvakningu og það var ánægjulegt að sjá hversu
mikils vélsleðamenn meta réttan öryggisbúnað á
fjöllum,“ segir Auður. „Áhuginn var mikill meðal
þátttakenda og heimasíður vélsleðamanna í kjölfar-
ið endurspegla mikla ánægju með námskeiðin.“
Meðal þess sem kennt var á námskeiðunum var
notkun „heilagrar þrenningar“ sem er heiti yfir
þrjá ómissandi hluti hvers vélsleðamanns, þ.e.
snjóflóðaýlu, snjóflóðastöng og skóflu. „Þátttakend-
ur fengu að spreyta sig á að leita að „fórnarlambi“
með snjóflóðaýlum og stjórna snjóflóðabjörgun og
margt fleira,“ segir Auður.
Landsbjörg stendur reglulega fyrir snjóflóða-
björgunarnámskeiðum víðs vegar um landið í sam-
starfi við LÍV og skal vélsleðamönnum, sem hug
hafa á að sækja slík námskeið, bent á að hafa sam-
band við þessa aðila. Ennfremur er væntanlegur
fræðslubæklingur handa vélsleðamönnum.
Vélsleðamenn flykkjast á
námskeið í snjóflóðabjörgun
Ljósmynd/Ólafur Larsen Þórðarson
Áhugasamir Vélsleðamenn æfa með snjóflóða-
stöngum á kerfisbundinn hátt í Eyjafirði.
Eftir Ólaf Þ. Stephensen
olafur@mbl.is
EVRÓPUSAMBANDIÐ gerir nú
alvöru úr þeim hótunum sínum að
tefja ákvarðanatöku á Evrópska
efnahagssvæðinu. Á reglulegum
fundi sameiginlegu EES-nefndar-
innar í Brussel í dag verður engin ný
löggjöf tekin upp í samninginn um
Evrópska efnahagssvæðið.
Framkvæmdastjórn ESB vill
þannig beita EFTA-ríkin þrýstingi,
en enn hefur ekki náðst samkomulag
um að EFTA-ríkin greiði meira í
þróunarsjóði fyrir fátækari aðildar-
ríki ESB vegna inngöngu Búlgaríu
og Rúmeníu í sambandið um áramót.
Þar sem samkomulag hefur ekki
náðst eru nýju aðildarríkin enn ekki
formlega aðilar að EES.
Viðræðurnar um stækkun EES
hafa strandað á deilum um fjárfram-
lag Noregs. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hefur þó þokazt í
samkomulagsátt á síðustu dögum.
Að sögn Martins Eyjólfssonar,
sem í gær var skipaður skrifstofu-
stjóri Evrópuskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins, er uppákoman
óheppileg en ástæðulaust enn að
hafa áhyggjur. „Allir aðilar stefna að
því að ljúka viðræðum sem allra
fyrst og þá ætti allt að falla í ljúfa löð
á ný,“ segir Martin. Hann segir að
dragist þetta ástand á langinn geti
það valdið ákveðnum vandkvæðum
við framkvæmd EES-samningsins,
en ótímabært sé að búast við slíku.
ESB gerir alvöru úr hótun-
um gagnvart EFTA-ríkjum
Í HNOTSKURN
» Engar nýjar reglur verðasamþykktar á fundi sam-
eiginlegu EES-nefndarinnar í
dag.
» Nefndin tekur ákvarðanirum að bæta nýrri ESB-
löggjöf við EES-samninginn
og segja má að hún sé eins
konar löggjafi EES.
EIGANDI Hvítárholts í Hrunamannahreppi þurfti að fá
stærstu ýtu hreppsins til að ryðja veginn á landareign
sinni í gær. Klakaruðningar eru yfir ökrum og vegum
jarðarinnar eftir að Hvítá ruddi sig aðfaranótt mið-
vikudags.
„Mér brá í brún, þetta eru náttúruhamfarir. Ég var
ekki heima í gær [miðvikudag]. Ég þurfti að ná í mold í
námu í Hvítárholti og sá í morgun að það voru ein-
hverjir jakar á veginum og fór með lítið tæki af stað en
það dugði skammt,“ segir Georg Ottósson, garðyrkju-
bóndi á Flúðum, eigandi Hvítárholts. Hann tekur mold
þar fyrir svepparæktina og ræktar auk þess strandreyr
og ýmsar káltegundir á ökrunum.
Töluvert tjón varð á ökrum og vegum í Hvítárholti í
flóðunum í desember og telur Georg að þær hafi aukist
við jakaburðinn en tekur fram að hann geti ekki metið
það enn sem komið sé. „Ég er hræddastur við að jak-
arnir skemmi út frá sér,“ segir Georg.
Hvítá breytir sér
Myndast hefur klakastífla neðarlega í landi Hvít-
árholts aðfaranótt fimmtudags og áin þá flætt yfir
bakkana og skilið eftir jakana þegar hún fann sér nýjan
farveg. Þetta hefur ekki gerst á þessum stað í áratugi.
Meginhluti Hvítár rennur nú vestan við Tungueyju við
Bræðratungu.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Þurfti stóra ýtu til að komast um
VART varð við flensu hérlendis í
byrjun janúar en hún hefur ekki
komist á neitt flug enn, að sögn Har-
aldar Briem, sóttvarnalæknis hjá
Landlæknisembættinu.
Haraldur Briem segir að víða
heyrist talað um flensu en um aðrar
pestir geti verið að ræða. Ekki sé t.d.
um óvenjulega aukningu að ræða á
bráðamóttökum. Sömu sögu sé að
segja frá meginlandi Evrópu. Flens-
an sé almennt seint á ferðinni og sé
ekki talin sérstaklega skæð.
50.000 bólusettir ár hvert
Flensan var frekar væg í fyrra en
sérlega slæm í ársbyrjun 2005. Har-
aldur segir að árlega séu um 50 til 55
þúsund manns bólusett hér á landi
gegn inflúensu. Fólk hafi samt ekki
tekið eins vel við sér í haust og áður
en breyting hafi orðið á eftir að
fregnir bárust af flensu í byrjun jan-
úar og hafi þá gengið hraðar á birgð-
irnar.
Flensan
seint á ferð
Innlent
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra kynnti í gær samkomulag
við Alþýðusamband Íslands, Neyt-
endasamtökin og Neytendastofu
um eftirfylgni þessara aðila með
aðgerðunum á matvörumarkaði.
Jafnframt hvetja ráðuneytið og
samtökin almenning til að fylgjast
mjög vel með verðlagi á vörum og
þjónustu og að láta vita ef óeðli-
legar verðbreytingar eiga sér stað.
Hæstiréttur mildaði í gær dóm
yfir karlmanni á fimmtugsaldri
sem áður hafði verið dæmdur í
Héraðsdómi Reykjavíkur til
tveggja ára fangelsisvistar fyrir
kynferðisbrot gegn fimm stúlku-
börnum. Niðurstaða Hæstaréttar
var að maðurinn skyldi sæta fang-
elsi í 18 mánuði. Maðurinn var
einnig dæmdur til að greiða fórn-
arlömbum sínum 2,4 milljónir
króna í miskabætur.
Margar nýlega skipulagðar
sumarhúsalóðir fóru undir vatn í
flóðunum í Árnessýslu skömmu
fyrir jól og ljóst er að ekki verður
byggt á þeim öllum. Pétur Ingi
Haraldsson, skipulagsstjóri í upp-
sveitum Árnessýslu, segir að ein-
hverjar tilfærslur verði á lóðum
en ekkert liggi fyrir í því efni fyrr
en Orkustofnun hafi kortlagt út-
breiðslu flóðsins. Mikil ásókn hef-
ur verið í byggingalóðir í upp-
sveitum Árnessýslu. Hilmar
Einarsson, byggingafulltrúi upp-