Morgunblaðið - 02.02.2007, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
! "
#
FRÉTTAVEFUR Morgunblaðsins
mbl.is er níu ára í dag, 2. febrúar,
en vefurinn hefur um langt árabil
verið sá vinsælasti hérlendis og
voru flettingar í liðinni viku með
rúmlega 16,7 milljónir flettinga.
Næstur kemur visir.is með rúmlega
12,4 milljónir flettinga á sama tíma-
bili, samkvæmt upplýsingum Mod-
ernus ehf. sem annast kerfisbundn-
ar vefmælingar á Íslandi.
Það er þó hin gríðarlega sterka
staða mbl.is sem fréttavefjar sem
blasir við augum, en þar sést með
afdráttarlausum hætti að frétta-
þjónusta mbl.is er mun sterkari en
visir.is enda er uppistaða Vísis
bloggvefurinn blog central, bendir
Ingvar Hjálmarsson, vefstjóri
mbl.is, á.
Þannig voru í liðinni viku nærri
3,7 milljónir flettinga á forsíðum-
bl.is en rúmlega um 916 þúsund á
visir.is. Þegar skoðaðar eru tölur
um forsíðuheimsóknir á vefina tvo
sést að notendur voru 207 þúsund
hjá mbl.is en tæplega 102 þúsund
hjá visir.is.
„Þegar nánar er rýnt í vefmæl-
ingar má sjá fjölda stakra notenda í
viku 4, þ.e. innlit og flettingar. Við
fórum yfir tvær milljónir innlita í
viku 4 sem er það hæsta frá upp-
hafi,“ segir Ingvar. „Sama er með
flettingarnar sem hafa aldrei verið
fleiri frá upphafi.“
Að sögn Jens Sen, framkvæmda-
stjóra Modernus, er nýliðinn janúar
langstærsti mánuður mbl.is með
rúmlega 72 milljónir síðuflettinga.
„Hefði einhver spáð þessu þegar við
fórum af stað í febrúar 2001 er ég
hræddur um að við hefðum álitið
hann bilaðan,“ segir Jens. „Þá var
heildarnotkunin á öllum vefjum í
mælingu, um 24 vefir, innan við 50
milljónir flettinga.“
Ýmsar nýjungar hafa litið dagsins
ljós hjá mbl.is undanfarin misseri,
m.a. lifandi myndskeið sem hafa náð
miklum vinsældum að ógleymdum
bloggsíðum sem um 6 þúsund
bloggarar hafa vistað hjá mbl.is.
Mbl.is öflugasti
fréttavefurinn
!"
#
NORSKI jarðverkfræðingurinn
Sverre Barlindhaug hjá ráðgjafar-
fyrirtækinu Multiconsult, sem tók
saman skýrslu í fyrra um áætlaðan
kostnað við 18 km jarðgöng milli
Vestmannaeyja og Landeyjasands,
telur ekkert því til fyrirstöðu á jarð-
fræðilegum grundvelli að grafa göng-
in, sem gætu kostað á bilinu 20–30
milljarða króna. Hann mun eiga um-
ræðufund með Vegagerðinni í dag en
að hans mati þarf nú að beina augum
að jarðfræðilegri spurningu um
tengsl mismunandi bergtegunda sem
eru undir sjávarbotni, þ.e. basalts og
lausara móbergs úr eldfjallaösku.
Að hans mati lýtur eitt stærsta
álitamálið á þessum tímapunkti að
því hvernig eigi að útbúa göngin en
hann bendir á að samkvæmt Evrópu-
staðli verði göng að vera tvöföld
vegna öryggissjónarmiða. „En það
verður að hafa í huga að gangaum-
ferð í Evrópu er miklu meiri en hér
um ræðir,“ segir hann. Gildi tvö-
faldra jarðganga er fólgið í því að
komi t.d. eldur upp í göngunum
vegna umferðarslyss getur fólk flúið
inn í samliggjandi göng í gegnum eld-
traustar dyr sem eru settar upp með
ákveðnu millibili. „Áhættan á um-
ferðarslysum helgast af umferðar-
þunga á hverjum stað og það er ljóst
að áhættan yrði ekki mikil í göngum
milli lands og Eyja eðli málsins sam-
kvæmt. Það væri út í hött að gera tvö-
föld göng til 4 þúsund manna byggð-
arlags. Við verðum því að komast að
sameiginlegri niðurstöðu um hvernig
skuli ganga frá traustum göngum út
frá viðeigandi öryggissjónarmiðum.
Eitt ráð væri að útbúa ákveðinn
fjölda sérstakra skýla inni í göngun-
um sem fólk gæti flúið inn í og ein-
angrað sig frá reykhættu,“ segir
hann.
„Ég er sannfærður um að göng til
Eyja eru raunhæfur kostur þótt
verkefnið sé stórt. Það er langt í frá
óalgengt að jarðgöng séu grafin í mó-
berg og það yrði ekki vandi hér. Lík-
lega myndi línan fara í gegnum
nokkra kafla af móbergi en alls ekki
liggja í stöðugu móbergi.“
Móbergslögin hamla
ekki gangagerð til Eyja
Morgunblaðið/RAX
Gangagerð Göng til Eyja yrðu um
tveir fimmtu hlutar gangakerfisins.
FÉLAGSMENN í Framtíðarland-
inu komu saman í Kornhlöðunni í
Reykjavík til óformlegra sam-
ræðna um stefnumið félagsins,
einkum í sambandi við hugs-
anlegt framboð Framtíðarlands-
ins í komandi alþingiskosningum.
Engar ákvarðanir voru teknar á
þessum fundi en samkvæmt upp-
lýsingum forsvarsmanna samtak-
anna verður hins vegar haldinn
fjöldafundur næstkomandi
fimmtudag þar sem hugsanlega
verður tekin ákvörðun um fram-
haldið.
Morgunblaðið/Sverrir
Spjölluðu um hugsanlegt framboð
ÁSKRIFENDUM Morgunblaðsins
verður framvegis boðið upp á fríar
auglýsingar á smáauglýsingavef
mbl.is. Við skráningu auglýsinga
slær áskrifandinn inn kennitölu
sína. Sé hann ekki þegar skráður
sem notandi á smáauglýs-
ingavefnum er honum boðið upp á
nýskráningu. Núverandi notendum
sem einnig eru áskrifendur að
Morgunblaðinu nægir að slá inn
kennitölu sína og þegar skilgreint
lykilorð. Hver áskrifandi getur
skráð allt að tíu ókeypis auglýs-
ingar á mánuði.
Skráning á smáauglýsingavefn-
um gefur áskrifendum um leið
ókeypis aðgang að Morgunblaðinu í
pdf-útgáfu. Nota skal sömu kenni-
tölu og lykilorð og á smáauglýs-
ingavefnum.
Aðrir notendur en áskrifendur
greiða fyrir auglýsingabirtingu líkt
og verið hefur.
Fríar smáaug-
lýsingar fyrir
áskrifendur
Morgunblaðsins
ÞÓRARINN Eldjárn rithöfundur er
byrjaður að blogga á blog.is undir
yfirskriftinni Ómerkilegar at-
hugasemdir. Síðustu daga hafa m.a.
birst þar vísur af ýmsu tilefni, þar á
meðal limran Þorskvinnsla, og er
kveikjan að henni frétt í vefvarpi
mbl.is um vinnslu lyfja úr þorsk-
ensímum.
Limran er svona:
Jón Bragi er brautryðjandi
það er beinlínis magnaður fjandi.
Allra farsótta kúr
hann framleiðir úr
þorskum á þurru landi.
Slóðin á blogg Þórarins er theld-
.blog.is.
Þórarinn Eld-
járn bloggar
á blog.is
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær 36 ára karlmann í
fjögurra ára óskilorðsbundið fang-
elsi fyrir hrottafengna nauðgun og
líkamsárás gegn rúmlega fertugri
konu á síðasta ári. Maðurinn var
sakfelldur af ákæru fyrir grófa
nauðgun og fyrir að hafa valdið
konunni miklum áverkum vísvegar
um líkamann. Maðurinn er erlendur
og stundaði atvinnu hérlendis en
brotið var framið síðla síðasta árs á
dvalarstað hans.
Maðurinn var talinn hafa gengið
fram af fádæma hrottaskap gegn
konunni og refsing hans höfð án
skilorðs samkvæmt dómi héraðs-
dóms.
Ingveldur Einarsdóttir héraðs-
dómari dæmdi málið. Verjandi var
Guðmundur Ómar Hafsteinsson
hdl. og sækjandi Sigríður J. Frið-
jónsdóttir, saksóknari hjá ríkissak-
sóknara.
4 ár fyrir nauðgun
HÁTT í tvær milljónir Dana fylgd-
ust með seinni hálfleik Íslendinga
og Dana í átta liða úrslitum heims-
meistaramótsins í handbolta í
Hamborg í Þýskalandi á þriðju-
dag.
Fram kemur á vef dönsku sjón-
varpsstöðvarinnar TV 2 að um 1,3
milljónir áhorfenda í Danmörku
hafi fylgst með fyrri hálfleik lið-
anna. Spennan magnaðist hins
vegar í seinni hálfleik og sam-
kvæmt dönsku mælingunum voru
tæplega 1,9 milljónir áhorfenda við
skjáinn þegar Danir skoruðu sig-
urmark sitt í framlengdum leik lið-
anna.
Samúel Örn Erlingsson, yfir-
maður íþróttadeildar Ríkissjón-
varpsins, segir að niðurstaðna um
áhorfið á leikinn hér á landi sé að
vænta eftir um það bil eina viku.
Samúel er þó ekki í vafa um að
fjölmargir hafi fylgst með leiknum.
„Ég tel að þetta hafi verið einn
þeirra leikja sem mest hefur verið
horft á í Íslandssögunni, ég full-
yrði það,“ segir hann. Þessu til
stuðnings bendir hann m.a. á að
viðureignir Íslands og Danmerkur
séu ávallt vinsælar og einnig hafi
framlenging leiksins haft þau áhrif
að áhorfið hafi aukist.
Tvær milljónir Dana
horfðu á leikinn við Ísland