Morgunblaðið - 02.02.2007, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LANDVERND vill að í ríkara
mæli verði horft til lagningar
jarðstrengja við flutning á raf-
magni og segir það blasa við að
framkvæmd vegna háspennulína
frá Hellisheiði að Straumsvík,
sem lögð er til í matsáætlun
Landsnets, muni ein og sér hafa
afar neikvæð áhrif á landslag og
útivist. Annar kostur sé að setja
upp háspennulínur samhliða línum
sem fyrir séu en í tillögunni er
m.a. lögð til ný línuleið frá Bitru
að Kolviðarhóli sem Landvernd
segist ekki geta fallist á. Ótækt sé
að fjölga línuleiðum enn frekar
nema afar ríkir þjóðarhagsmunir
séu í húfi. Í öllu falli þurfi að
skoða framkvæmdina í samhengi
við aðrar áætlanir um álver og
virkjanir á Reykjanesi og í
Þjórsá. Þessi áform séu öll meira
eða minna tengd með beinum eða
óbeinum hætti. Þannig tengist há-
spennulínurnar virkjunum í
Þjórsá, virkjun á Ölkelduhálsi og
virkjun í Hverahlíð sem og
stækkun álversins í Straumsvík.
Þá liggi einnig fyrir að Landsnet
vinni nú að áformum um há-
spennulínur frá Trölladyngju-
svæðinu til Helguvíkur um Ósa-
botna í Sandgerði. Þau áform
muni kalla á eina til tvær línur við
hlið núverandi Suðurnesjalínu.
Varðar mörg sveitarfélög
Í umsögn Landverndar við til-
löguna, sem er nú til meðferðar
hjá Skipulagsstofnun, kemur fram
að til þess að heildstæð yfirsýn
yfir áformaðar framkvæmdir fá-
ist, sé nauðsynlegt að þegar í stað
verði hafist handa við umhverf-
ismat allra áætlana í heild sinni,
sbr. lög um umhverfismat áætl-
ana. Að þeirri vinnu þurfi að
koma öll þau sveitarfélög sem
málið varðar allt frá Þjórsá og út
á Garðskaga. Þar til slíkt mat
liggur fyrir sé ótímabært að
leggja mat á umhverifsáhrif ein-
stakra framkvæmda.
„Við viljum að þessi áform séu
skoðuð í heildstæðara samhengi,“
segir Bergur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Landverndar. „Það
hefur ekki farið fram umhverf-
ismat á þessum áætlunum en þær
varða fjölmörg sveitarfélög. Um-
hverfismat einstakra fram-
kvæmda getur aldrei gefið rétta
mynd á meðan ekki liggur fyrir
umhverfismat á þessari umfangs-
miklu áætlun um uppbyggingu
stóriðjunnar.“
„Sýndarvalkostir“
settir fram
Bergur bendir á að löggjafinn
geri ráð fyrir því að fram-
kvæmdaaðili leggi fram valkosti
við fyrirhugaðar framkvæmdir.
Valkostirnir sem lagðir séu fram
á Hellisheiðasvæðinu séu sumir
hverjir „sýndarvalkostir“, settir
fram í þeim eina tilgangi að upp-
fylla ákvæði laga um mat á um-
hverfisáhrifum. Leggja þurfi
raunverulega valkosti til grund-
vallar og meta þarf þá að fullu í
mati á umhverfisáhrifum. Í þeim
valkosti sem Landsnet leggur rík-
asta áherslu á sé farin stysta leið,
„menn draga bara strik með reglu-
stiku, yfir fjöll og hraun og setja
það upp sem valkost,“ segir Berg-
ur.
Í tillögu Landsnets að matsáætl-
un virðist að sögn Bergs koma
fram að umsamið orkuverð til
Alcan standi ekki undir því að
vandað sé til verka við gerð orku-
flutningakerfisins. Fram kemur að
aukinn kostnaður við orkuflutninga
lendi á rafmagnsnotendum í formi
hærra raforkuverðs og að það sé
ein helsta ástæða þess að ekki er
valið að leggja jarðstrengi. „Sé það
svo að orkuverð til álvera standi
ekki undir því að jarðstrengir séu
notaðir til orkuflutninga fær Land-
vernd ekki séð að áform um virkj-
anir, stóriðju og orkuflutninga séu
tímabær,“ segir Bergur.
Landvernd vill að í ríkara mæli verði horft til jarðstrengja við flutning á rafmagni um Hellisheiði
Ljósmynd/Landvernd
Valkostir Lega háspennulína á Hellisheiði. Blár litur sýnir núverandi loftlínur, rauður litur fyrirhugaðar línur og
grænn litur fyrirhugaða jarðstrengi. Landvernd vill að fyrirhuguð línulögn verði skoðuð heildstætt.
Framkvæmd-
ir verði metn-
ar sem heild
Ótækt er að fjölga línuleiðum um Hellisheiði frek-
ar nema afar ríkir þjóðarhagsmunir séu í húfi að
mati Landverndar sem vill að allar framkvæmdir,
virkjanir, raflínur og álver verði metnar í heild.
Í HNOTSKURN
» Fyrsti valkostur Land-verndar í umsögn til
Skipulagsstofnunar er að eng-
ar nýjar línuleiðir verði lagðar
ofanjarðar.
» Annar kostur Land-verndar er að að auki
verði miðað við jarðstrengi í
stað nýrra línuvirkja. Til
mótvægis við þéttingu
línubelta víðsvegar á svæðinu
allt til Straumsvíkur yrði
núverandi loftlína frá
Ölkelduhálsi að þjóðveginum
lögð í jörðu.
» Þeim línum sem fyrireru í fólkvanginum yrði
einnig komið í jörðu til mót-
vægis við þéttingu línubelta
víðsvegar á svæðinu. Jarð-
strengina ætti þá að leggja ut-
an fólkvanga til að koma í veg
fyrir rask.
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
sunna@mbl.is
RAGNHEIÐUR Ríkharðsdóttir,
bæjarstjóri Mosfellsbæjar, segir að
tengibraut sem bæjaryfirvöld hafa
ákveðið að leggja úr Helgafells-
hverfi hafi verið inni á skipulagi
bæjarins frá árinu 1983. Aðrir
kostir hafi verið athugaðir en „að
mati þeirra sem skoðuðu og hönn-
uða og sérfræðinga var þessi leið
talin mun betri“, segir Ragnheið-
ur.
Hún segir að bent hafi verið á
að hægt væri að leggja brautina
austar, við Álafosskvosina svo-
nefndu. „Það þýðir að það þarf að
brúa Varmána og fara í gegnum
svokallaðan Reykjalundarskóg sem
er ein af þessum perlum sem við
eigum líka hér í Mosfellsbænum.“
Þá hafi Varmársamtökin, sem eru
andsnúin því að tengibrautin liggi
úr Helgafellshverfi, bent á þann
möguleika að leggja brautina í
gegnum Áslandið, mitt á Vest-
urlandsveginum. Þessi hugmynd
hafi verið könnuð en bæði hafi
kostnaður reynst mikill, enda hefði
þurft að rífa hús, og þar hafi held-
ur aldrei verið gert ráð fyrir
tengibraut. „Þeir íbúar sem þar
búa hefðu hugsanlega orðið fyrir
mun meiri búsifjum heldur en þeir
sem búa á hinum staðnum sem
ætti að vera ljóst að þessi braut
hefur alltaf átt að koma þarna.“
Sú leið sem valin var hefði minni
áhrif á lífríki og vatnsbúskap í
Varmá en aðrar leiðir.
Mótmælum Varmársamtakanna
hefði verið vísað í lögformlegt
ferli sem lokið hefði með úrskurði
umhverfisráðherra í desember. Þá
staðfesti ráðherra úrskurð Skipu-
lagsstofnunar um að tengibrautin
skyldi ekki háð mati á umhverfis-
áhrifum.
Heppilegasta
leiðin valin
JÓHANNES
Gijsen, biskup
kaþólsku kirkj-
unnar, lætur af
stjórn Reykjavík-
urbiskupsdæmis
á þessu ári, að því
er kemur fram í
föstuboðskap
hans í Kaþólska
kirkjublaðinu.
Jóhannes Gij-
sen verður 75 ára í október næst-
komandi og skrifar að þegar þeim
aldri sé náð verði biskupar innan
kaþólsku kirkjunnar að segja af sér.
Það merki að þeir verði þó áfram
biskupar en láti af stjórn biskups-
dæma sinna og biðji páfa að skipa
yngri mann í sinn stað. Gijsen biskup
kveðst þegar hafa ritað lausnar-
beiðni sína og gerir hann ráð fyrir
því að nýr biskup taki við í lok ársins.
Séra Jürgen Jamin, sóknarprest-
ur í Kristskirkju í Landakoti, sagði
að sendiherra páfans í Stokkhólmi
sæi um að velja eftirmann Reykja-
víkurbiskups. Séra Jürgen sagði að
sendiherrann væri væntanlegur
hingað til lands á næstunni í eins-
konar könnunarferð. Þá mundi hann
m.a. ræða við kaþólsku prestana,
leita álits þeirra og hvers þeir væntu
af nýjum biskupi. Eins gæti hann
verið með ákveðið biskupsefni í huga
og leitað álits á því. Að lokum mundi
páfi útnefna nýjan biskup.
„Við vitum ekki nú hvort nýi bisk-
upinn kemur að utan, hvort hann er
Íslendingur eða ekki, eða hvort hann
verður úr hópi prestanna sem starfa
hér á landi,“ sagði séra Jürgen.
Biskupa-
skipti í
Landakoti
Gijsen biskup lætur
af störfum á árinu
Jóhannes Gijsen,
biskup kaþólskra.
GLÖGGIR hlustendur Ríkis-
útvarpsins sperrtu eyrun í gær-
morgun er nýtt fréttastef Frétta-
stofu útvarpsins var leikið í fyrsta
sinn. Stefið var samið af Agli Jó-
hannssyni, tónlistarmanni og tækni-
manni á RÚV. Viðar Hákon Gísla-
son, meðlimur hljómsveitarinnar
Trabant, útsetti stefið ásamt Agli.
„Þetta hefur verið lengi í und-
irbúningi því það hefur tekið nokk-
urn tíma að finna rétta taktinn,“ seg-
ir Óðinn Jónsson fréttastjóri
spurður um tilefni nýja stefsins.
Gamla fréttastefið, sem hefur gefið
tóninn fyrir kvöldfréttirnar í hart-
nær aldarfjórðung, var samið af Atla
Heimi Sveinssyni og flutt af Sinfón-
íuhljómsveit Íslands.
„Við viljum þróast með tímanum
og segja má að tími hafi verið kom-
inn á gömlu stefin,“ segir Óðinn.
„Mér hefur fundist það galli að við
höfum ekki haft sama auðkenni á öll-
um fréttatímum okkar. Ég vildi fá
sameiginlegan svip á þetta, nútíma-
legan og þokkafullan.“
Nýja fréttastefið mun því hljóma
við upphaf allra fréttatíma útvarps-
ins héðan í frá.
Einhverjir íhaldssamir hlust-
endur telja vafalaust óþarft að
skipta um stef sem löng hefð er fyr-
ir. Óðinn segir hins vegar: „Það er
mjög vandað til verksins og þetta er
engin skyndiákvörðun. Ég held að
það sé nauðsynlegt fyrir okkur eins
og aðra miðla að setja upp nýtt and-
lit af og til.“
Óðinn segir viðbrögðin hafa verið
„merkilega góð miðað við íhaldssemi
Íslendinga.“ Hann tekur fram að
gamla stefið hafi reynst mjög vel.
„Við erum stolt af okkar sögu og
hefðum og höfum ekki verið fljót til
breytinga. En við viljum jafnframt
vera nútímaleg og lifandi fréttastofa
sem er tilbúin að þróast og breytast.
Þetta nýja stef er hluti af því. Við er-
um tilbúin að slá nýjan tón.“
Útvarpið
slær nýjan tón
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef-
ur dæmt kvenmann á þrítugsaldri í
tveggja mánaða fangelsi fyrir brot á
fíkniefnalöggjöfinni, umferðarlögum
og lögum um fullnustu refsinga.
Konan játaði brot sín fyrir dómi en
henni var gefið að sök að hafa haft í
vörslu sinni og reynt að smygla inn
til fanga á Litla-Hrauni tíu grömm-
um af hassi sem hún hafði falið í leg-
göngum sínum. Konan framvísaði
hassinu til lögreglu eftir að leitað
hafði verið á henni en fíkniefnahund-
ur var notaður við leitina.
Síðdegis sama dag var akstur kon-
unnar svo stöðvaður og í ljós kom að
í blóði hennar mátti finna amfeta-
mín, rítalín og kannabisefni. Í bif-
reiðinni fundust einnig 0,76 grömm
af amfetamíni.
Með fíkniefni falin inn-
vortis á Litla-Hrauni