Morgunblaðið - 02.02.2007, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Algjört verðhrun
Frábær tilboð
á eldri fatnaði
Vaskurinn af
Lækkum verð sem nemur virðisaukaskatti
á öllum vörum í versluninni
föstudag og laugardag.
Glæsilegt úrval af innigöllum fyrir konur
á öllum aldri, töskur, slæður, skart og ilmvötn
ásamt snyrtivörumerkjunum.
Sími 568 5170
Gréta Boða kynnir nýju vorlitina í Chanel
Verið velkomin!
ÚTSALA
ÚTSALA
Síðustu
dagar
Enn meiri
afsláttur
Laugavegi 7 • 101 Reykjavík • Sími 551 3033.
Útsölulok
í dag
og langan laugardag
50% afsláttur
Sparibuxur í tveimur síddum
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Verðhrun
* Toppar 1.500
* Pils 2.000
* Peysur 2.000
* Úlpur 2.000
* Gallabuxur 2.000
* Kápur 4.990
* Leðurjakkar 4.990
og margt fleira
Póstsendum
Ótrúlegt úrval
á frábæru verði
EKKI er raunhæft að banna nagla-
dekk hér á landi, miðað við þær
margbreytilegu aðstæður sem við
er að glíma í vetrarakstri. Þetta er
mat starfshóps á vegum umhverf-
isráðherra. Hins vegar telur hóp-
urinn vænlegt að dregið verði úr
notkun negldra dekkja til þess að
draga úr svifryksmengun og eru
viðræður þegar hafnar við fjár-
málaráðuneytið um að breytingar
gjalda á negldum dekkjum og
ónegldum.
Rannsókn Iðntæknistofnunar
sýnir að samsetning svifryks yfir
vetrartímann er eftirfarandi: mal-
bik 55%, jarðvegur 25%, sót 7%,
salt (á götum) 11% og bremsuborð-
ar um 2%.
Starfshópurinn leggur til að ekki
verði unnið gegn svifryksmengun
með boðum, bönnum eða ströngum
viðurlögum heldur með fræðslu og
eftir efnahagslegum og skipulags-
legum leiðum, eins og það er orðað.
Meðal tillagna er að sveitarfélög
á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri
meti hvort þörf sé á þvotti gatna og
notkun rykbindiefna. Einnig er lagt
til að í samráði við lögreglu verði
komið á meiri stjórn og hömlum á
umferð helstu stofnæða.
Þá er lagt til að Umhverfisstofn-
un verði falið að fylgja eftir rann-
sókn Iðntæknistofnunar á uppruna
svifryks og að greina verði frekar
upptök, efnissamsetningu og
kornastærð á mismunandi stöðum á
höfuðborgarsvæðinu á mismunandi
árstíma. Í því sambandi er lagt til
að mælistöðvum verði fjölgað.
Þá hvetur umhverfisráðherra til
þess að virðisaukaskattur sem
sveitarfélög greiða ríkissjóði vegna
reksturs strætisvagna verði felldur
niður. Viðræður eru einnig hafnar
við samgönguráðuneytið um að sett
verði reglugerð sem geri ráð fyrir
sótsíum í öll stærri farartæki og
vinnuvélar með dísilvélum.
Ráðherra skipaði starfshópinn til
að fara yfir stöðu mála og gera til-
lögur um aðgerðir til að draga úr
rykmengun vegna aukinnar um-
ferðar á höfuðborgarsvæðinu, í
kjölfar þess að upplýsingur um
mjög aukna svifryksmengun komu
fram árið 2000.
Niðurstöður skýrslunnar voru
kynntar á blaðamannafundi á Ak-
ureyri í gær. Þar lýsti umhverfis-
ráðherra sérstakri ánægju með þá
ákvörðun bæjarstjórnar Akureyrar
að fella niður fargjöld í strætis-
vagna um áramót. Starfshópurinn
bendir einmitt á að ná megi árangri
í því að draga úr svifryki með því að
efla almenningssamgöngur og að
líta beri til árangurs Akureyringa
sem fyrirmyndar á því sviði. Far-
þegum með strætisvögnunum hefur
fjölgað um 60% frá áramótum, mið-
að við sama tíma í fyrra.
Gjöldum breytt á dekkjum og
almenningssamgöngur efldar
Telja ekki raun-
hæft að banna
nagladekk en vilja
draga úr notkun
þeirra með fræðslu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Svifryk Skýrsla umhverfisráðherra kynnt. Frá vinstri: Kristín Sigfúsdótt-
ir, sem kynnti niðurstöður úr svifryksmælingum á Akureyri, Hermann Jón
Tómasson, formaður framkvæmdaráðs Akureyrar, Jónína Bjartmars um-
hverfisráðherra og Ingimar Sigurðsson, skrifstofustjóri í umhverfisráðu-
neytinu og formaður starfshópsins sem vann skýrsluna.
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi leiðrétting frá upplags-
eftirliti Viðskiptaráðs Íslands:
Þau mistök áttu sér stað þegar til-
kynning Upplagseftirlitsins var
send út í gær, miðvikudaginn 31.
janúar, að sagt var að í júlí–
desember 2005 hefði meðaltalssala
Morgunblaðsins verið 52.321 eintak.
Hið rétta er að þau voru 50.312.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
LEIÐRÉTT
Leiðrétt
upplagseftirlit