Morgunblaðið - 02.02.2007, Síða 10

Morgunblaðið - 02.02.2007, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ ALÞINGI ● Guðlaugur Þór Þórðarson lagði í gær fram frumvarp um að heimila sölu á léttvíni og bjór í búðum. Þetta er í fjórða sinn sem frumvarpið er flutt en flutningsmenn koma bæði úr Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu. Guðlaugur hikaði ekki við að tína til allt sem frumvarpinu er til góðs og í rökræðum við Þuríði Backman sagði hann umhverfisverndarsinna hljóta að fagna því að vín væri selt í búðum því þá þyrfti fólk ekki að keyra eins langt til að kaupa sér áfengi. Gott fyrir umhverfið ● Guðjóni Hjör- leifssyni þótti heldur mikið fara fyrir Frjálslyndum í utandagskrár- umræðum um sjávarútvegsmál í gær og sagði flokkinn vera að beina athyglinni frá eigin vanda- málum. „Ég beini því til þeirra í vinsemd að taka nú upp kvótakerfi í sínum flokki,“ sagði Guðjón og bætti við að hann væri að tala um kvennakvóta. „Eftir það munuð þið sennilega sjá meiri frið í ykkar flokki, nákvæmlega eins og er að gerast í sjávarútveginum þar sem friður og sátt er aldrei meiri en nú.“ Kvennakvótakerfið Guðjón Hjörleifsson ● Þingmenn eru enn margir hverjir slegnir yfir málefnum Byrgisins og að samtökin hafi haldið áfram að fá fjár- framlög þrátt fyrir svarta skýrslu um fjármálaóstjórn. Pétur H. Blöndal hef- ur unnið að tillögum um hvernig bæta megi verklag til að koma í veg fyrir að slíkt geti gerst aftur. Fjárlaganefnd bíður hins vegar eftir áliti Ríkisend- urskoðanda á málinu en hann kom á fund nefndarinnar í morgun. Koma í veg fyrir að slíkt gerist aftur FULL ÁSTÆÐA er til að herða frekar eftirlit með því að sjómenn taki ekki þátt í kvótakaupum. Þetta kom fram í máli Einars K. Guðfinns- sonar sjávarútvegsráðherra á Al- þingi í gær en kvótakaup sjómanna eru þegar bönnuð með lögum. Sig- urjón Þórðarson, þingmaður Frjáls- lyndra, kallaði eftir svörum um slæm kjör kvótalausra útgerð- armanna og sagði þá þurfa greiða um 70% verðmæta aflans í leigu fyr- ir kvóta. „Kvótakerfið er mesta óréttlætismál Íslandssögunnar. Það hefur valdið þjóðinni stórtjóni, byggðaröskun og gríðarlegri sóun verðmæta,“ sagði Sigurjón og gagn- rýndi sjávarútvegsráðherra fyrir að hafa áður gefið út innantóm loforð um að kerfinu yrði breytt. Sagði hann skuldir sjávarútvegsins hafa þrefaldast á sl. 10 árum. „Og ekki hafa tekjurnar aukist,“ sagði Sig- urjón. Einar K. Guðfinnsson sagði nauð- synlegt að hafa einhverjar takmark- anir á veiðum en að jafnframt þyrftu menn að geta framselt aflaheimildir. „Ef að við værum ekki með ein- hverjar heimildir til framsals á afla- heimildum hvort sem er á aflamarki eða aflahlutdeildum þá myndi það auðvitað þrengja möguleika manna til hagræðingar til að draga úr til- kostnaði,“ sagði Einar og ítrekaði að nú þegar sé nefnd að skoða með hvaða hætti er hægt að tryggja að við uppgjör aflahlutar sé ekki tekið tillit til kaupa á aflaheimildum. Kaup sjómanna á aflaheimildum geti verið skýring á því hversu hátt leiguverð er á kvóta nú um mundir. Morgunblaðið/ÞÖK Rætt um fiskinn Sjávarútvegsmál voru mikið rædd á Alþingi í gær og ráðherra flutti t.a.m. tvö frumvörp. Hert eftirlit með kvótakaupum Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is „ÞAÐ STENDUR ekki til að ganga með nokkrum hætti á rétt Sunnlendinga í þeim efnum sem varða vegamál,“ sagði Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra á Alþingi í gær. Björgvin G. Sigurðsson gerði nýja samgönguáætlun að umtalsefni í upp- hafi þingfundar og vitnaði í fréttir þess efnis að samkvæmt nýrri samgönguáætlun standi til að fara hina svokölluðu 2+1 leið við tvöföldun Suður- landsvegar en fjórðu akreininni verði bætt við síð- ar. „Verði farin hin svokallaða 2+1 leið, eins og fréttir herma að lagt sé til í samgönguáætlun, þó að með loðnu orðalagi og einhvers konar blekk- ingum eigi að tala um tvöföldun þar sem eigi að bæta fjórðu akrein við 2+1 framkvæmdina löngu seinna, er málið í uppnámi,“ sagði Björgvin. Sturla Böðvarsson sagði að þingmenn ættu að bíða með þessa umræðu þar til samgönguáætl- unin yrði lögð fyrir þingið en þingsályktunartil- laga er nú til meðferðar í þingflokkum meirihlut- ans. „Ég mun leggja áherslu á það eins og ég hef gert að sá vegur verði byggður upp hratt og vel og eins öruggur og nokkur kostur er. Ég veit alveg hvað til míns friðar heyrir í þeim efnum,“ sagði Sturla en í samtali við Morgunblaðið sagði hann jafnframt að samgönguráð vildi fara 2+1 leiðina en að hans tillaga væri eftir sem áður 2+2. Samgönguáætlunin er nú til meðferðar í þing- flokkum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og verður í framhaldinu lögð fram sem þingsályktun- artillaga. Stjórnarandstöðuþingmönum þykir áætlunin hafa verið heldur lengi í vinnslu. „Það er kominn febrúar, það á að klára þing fyrir miðjan mars og samt bólar ekki enn á áætluninni á borð- um þingmanna. Þetta er auðvitað engin frammi- staða,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, þingmað- ur Vinstri grænna. Valdimar Leó Friðriksson, þingmaður Frjáls- lyndra, sagði þetta mál sanna enn og aftur ægi- vald ráðherra. „Hér gengu menn um sveitir í próf- kjöri, t.d. framsóknarmanna fyrir stuttu með hæstvirtan landbúnaðarráðherra Guðna Ágústs- son í broddi fylkingar, þar sem þeir lofuðu Suður- landsvegi 2+2. Hvers vegna skyldi það vera að samgönguáætlunin hafi ekki komið fram fyrir það prófkjör? Er það algjör tilviljun?“ Ekki gengið á rétt Sunnlendinga Björgvin spyr hvort Suðurlandsbraut sé 2+1 eða 2+2 í nýrri samgönguáætlun ÞETTA HELST … ● Þingfundur hefst á mánudag klukkan 15 með óundirbúnum fyr- irspurnum. Dagskrá þingsins Ríkisstjórnin hef- ur dregið lappirn- ar í fangelsismál- um og fjármunir hafa ekki verið til staðar til að fylgja eftir góðri vinnu Fangelsismála- stofnunar. Þetta er mat Kolbrúnar Halldórsdóttur, þingmanns VG, en hún vakti athygli á hópuppsögnum fangavarða á Alþingi í gær. „Þarna er stétt sem við leggjum gríðarlega ábyrgð á, fólk sem glímir við undir- mönnun, býr við mikla áhættu í starfi og gríðarlegt áreiti, bæði líkamlegt og andlegt. Þessu fólki finnst ekki nægilegur stuðningur við sín mikil- vægu störf þegar það gerist sem gerst hefur að það hefur dregist svo mikið sem raun ber vitni aftur úr við- miðunarstéttum sínum sem eru lög- reglumenn og tollverðir,“ sagði Kol- brún. Dómsmálaráðherra var ekki á þingfundinum og Arnbjörg Sveins- dóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hvatti Kolbrúnu til að taka málið upp utan dagskrár að ráðherra viðstödd- um. „Þá gæti eðlileg umræða farið fram um málefnið. Ég dreg ekkert úr því að auðvitað er þetta alvarlegt ástand ef svona mun fara,“ sagði Arn- björg en bætti við að umræður um kjarasamninga ættu ekki heima á Al- þingi. „Kjarasamningar eru í höndum stéttarfélaga og viðsemjenda þeirra og eiga heima á þeim vettvangi. Ég held að við bætum ekkert úr með því að ræða þá hér,“ sagði Arnbjörg. Stjórnvöld hafa dregið lappirnar Kolbrún Halldórsdóttir EINS EINFALT OG AÐ LÍTA TIL HLIÐAR Fáðu nánari upplýsingar um EIGÐU AFGANGINN hjá ráðgjöfum í næsta útibúi, í Þjónustuveri í síma 440 4000 eða á www.glitnir.is. Skráðu þig í EIG?U AFGANGIN N á www.glitnir.is 3.030 KR. 3.500 KR. 470 KR . EIGÐU AFGANGINN er ný jung sem gerir þér kleift a ð leggja fyrir í hvert skipti sem þú borgar með debetkorti Glitnis. Þú velur að hækk a upphæðina sem þú kau pir fyrir upp í næstu 100, 50 0 eða 1.000 kr. og mismu nurinn leggst sjálfkrafa in n á sparireikning að þínu vali . Það hefur aldrei verið ei ns einfalt að safna pening um! E I G ? U A F G A N G I N N SPARAÐU MEÐ DEBETKO RTINU H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 7 7 4 1 ● Þótt þingmenn séu flestir mjög vanir ræðumenn kemur það fyrir að spaugilegar setningar læðast inn í málflutning þeirra. Þannig vakti einn þingmaður athygli á því að nú væri „gjörbreytt landslag í siglingum við landið“. Annar sagði ríkisstjórnina hafa dregið lappirnar með buxurnar á hælunum og sá þriðji sagði Fram- sóknarflokkinn „hafa gengið á bak við orð sín og lagt öll sín kosningalof- orð á hilluna“. Með buxurnar á hælunum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.