Morgunblaðið - 02.02.2007, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● Úrvalsvísitala kauphallar OMX á
Íslandi hækkaði um 0,68% í við-
skiptum gærdagsins og var skráð
7.091,4 stig. Velta á hlutabréfa-
markaði var 12.340 milljónir króna
og fjöldi viðskipta 546.
Hlutabréf Atlandic Petroleum
hækkuðu mest í gær eða um 1,42%.
Bréf Teymis hækkuðu um 1,33% og
bréf Atorku um 1,23%. Bréf Eim-
skips lækkuðu mest eða um 1,23%
og bréf Össurar um 0,9%.
Enn hækka hlutabréf
● Eimskipa-
félagið er að
skoða rekstur
Pósthússins hf.
en engin ákvörð-
un liggur fyrir um
kaup á félaginu,
að því er Heiðrún
Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri
starfsmannaþró-
unar og sam-
skipta Eimskipafélagsins, segir í
samtali við Morgunblaðið.
„Það er ekki neitt frágengið eða
yfirtekið. Hins vegar hefur einn
starfsmaður Eimskipafélagsins verið
að skoða rekstur og dreifikerfi Póst-
hússins.
Eimskipafélagið hefur ekki rekið
sambærilegt dreifikerfi eins og kerfi
Póstshúsins en við erum að athuga
hvort einhver tækifæri leynist í þess-
um rekstri fyrir okkur,“ segir Heiðrún.
Eimskip skoðar starf-
semi Pósthússins hf.
Heiðrún
Jónsdóttir
● STJÓRN bandaríska seðlabank-
ans ákvað í fyrradag að halda stýri-
vöxtum bankans óbreyttum, 5,25%,
eins og þeir hafa verið frá því í júní
á síðasta ári. Þetta er í samræmi
við spár sérfræðinga á fjár-
málamarkaði.
Bankastjórnin sagði í tilefni af
ákvörðun sinni að nokkur hætta
væri á því að verðbólga ykist í
Bandaríkjunum. Í frétt á fréttavef
bandaríska blaðsins New York Tim-
es segir að þessi varnaðarorð
bankastjórnarinnar gefi til kynna að
við því sé að búast að stýrivextirnir
verði óbreyttir að minnsta kosti um
„fyrirsjáanlega framtíð“.
Óbreyttir stýrivextir
vestanhafs
ATVINNULEYSI í Færeyjum fór
minnkandi allt síðasta ár. Uppgang-
ur í atvinnulífinu leiddi til þess að at-
vinnuleysi fór úr 3,6% í janúar í 2,1%
í desember. Þá voru að meðaltali 765
manns atvinnulausir. Þetta er
minnsta atvinnuleysi í þrjú ár en
minnst var atvinnuleysið árið 2002.
Atvinnuleysi var allt árið minna
hjá körlum en konum en hjá báðum
kynjum minnkaði atvinnuleysið allt
árið og munurinn milli kynjanna
minnkaði einnig.
Atvinnuleysi fólks undir 55 ára
aldri minnkaði mikið og var vel undir
2% í árslok. Atvinnuleysi eldra fólks
minnkaði ekki eins mikið og var mun
meira en hjá yngra fólkinu.
Mest atvinnuleysi
á Norðureyjum
Væru ákveðin landsvæði á eyjun-
um 18 tekin fyrir brá reyndar svo við
að atvinnuleysi á Norðureyjunum
jókst á tímabilinu marz til ágúst. Það
dró svo úr því um haustið og í desem-
ber var atvinnuleysi þar minna en í
ársbyrjun.
Það er athyglisvert að árstíða-
bundnar sveiflur í atvinnuleysi koma
mismunandi út hjá kynjunum. Flest
árin hefur atvinnuleysi kvenna verið
meira en karla. Þegar atvinnuleysi
eykst bitnar það fyrr á körlum en
konum eins og var frá árinu 2002. Þá
hélt atvinnuleysi kvenna áfram að
minnka, í eitt og hálft ár, en jókst á
sama tímabili hjá körlum. Þegar lifn-
aði yfir atvinnulífinu á ný dró strax
úr því hjá körlum en það leið nærri
eitt ár áður en atvinnuleysi kvenna
minnkaði á ný.
Atvinnuleysi í Færeyjum
minnkaði á síðasta ári
Atvinnuleysi 2,1% og hefur ekki verið minna í þrjú ár
arnar muni því ekki hafa önnur áhrif
en jákvæð þegar og ef Sterling skilar
hagnaði. Styttri útgáfa á greininni var
birt á vef blaðsins og var í gær ein
mest lesna viðskiptafréttin á vef Bør-
sen.
Í greininni kemur fram að skuldir
Sterling hafi numið um 14,4 milljörð-
um íslenskra króna í lok ársins 2005
en þar af voru tæpir fimm milljarðar
vegna fyrirframgreiddra tekna sem
er algengur skuldapóstur hjá flug-
félögum. En öðrum skuldum hefur
verið létt af félaginu.
Sterling orðið nær
algerlega skuldlaust
Áform Dana um skattbreytingar gætu haft víðtæk áhrif
Óvænt Skattbreytingar dönsku ríkisstjórnarinnar koma ekki illa við
Sterling þar sem flugfélagið er nú „óvænt skuldlaust“.
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
ÞAÐ ER útbreidd skoðun í dönsku
viðskiptalífi að fjárfestingar Íslend-
inga þar hafi einkum verið í formi
skuldsettra yfirtakna og að félög á
þeirra vegum séu hlaðin skuldum. Nú
liggur fyrir að verði tillögur dönsku
ríkisstjórnirnar um lækkun tekju-
skatts á fyrirtæki samþykktar í nú-
verandi mynd, þar sem jafnframt
verður þrengt að ýmsum frádráttar-
möguleikum, myndi það koma hart
niður á skuldsettum félögum, m.a.
fasteignafélögum eins og t.d. Keops
sem yfirleitt vinna með lágt eiginfjár-
hlutfall. Rétt er þó að taka fram að
skattalækkunaráformunum hefur
auðvitað verið fagnað af dönsku at-
vinnulífi enda munu þarlend fyrir-
tæki upp til hópa njóta góðs af lækk-
unum.
Skuldaði 14,5 milljarða
En að því sögðu kemur það kannski
ekki á óvart að danskir blaðamenn
velti sérstaklega fyrir sér áhrifunum
af skattabreytingunum á fyrirtæki í
eigu Íslendinga enda ekki örgrannt
um að þau séu talin meintir stórskuld-
arar uns annað hefur verið sannað.
Nú er þó ljóst að þetta á að minnsta
kosti alls ekki við um lággjaldafélagið
Sterling sem er svo gott sem skuld-
laust að því er kemur fram í grein
Børsen undir fyrirsögninni „Sterling
óvænt skuldlaust“. Skattabreyting-
Í HNOTSKURN
»Dönsk stjórnvöld erumeð tillögu um tekju-
skattslækkanir sem gætu
komið skuldsettum félögum
illa.
»Haft er eftir Pálma Har-aldssyni í Børsen að
Sterling hafi létt á skuldum,
selt flugvélar og fasteignir
og miklar breytingar orðið á
efnahagnum.
FÉLAGIÐ Icetec, sem er í eigu Inga Guðjóns-
sonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Lyfju, hef-
ur keypt 61% hlut Lyfju í Litís ehf. Það félag rek-
ur keðju apóteka í Litháen, undir merkjum
Farma. Eftir kaupin á Ingi 95% eignarhlut í Litís
en Lyfja heldur eftir 5% hlut. Í tilkynningu vegna
þessara viðskipta segir að félögin stefni að því að
eiga með sér samstarf um mögulegan innflutning
á lyfjum og fleira til hagræðingar fyrir báða aðila.
Litís rekur 47 apótek í Litháen sem flest eru
staðsett í Vilníus og Kaunas, tveimur stærstu
borgum landsins. Segir í tilkynningunni að und-
irbúningur sé hafinn að því hjá Litís að hefja apó-
tekastarfsemi í öðru landi Austur-Evrópu.. Það
land er þó ekki tilgreint.
Ingi Guðjónsson er annar stofnenda Lyfju og
var framkvæmdastjóri félagsins þar til í maí á síð-
astliðnu ári. Hann er jafnframt einn af stofnend-
um Litís og stjórnarformaður þess félags frá árinu
2004.
Frekari uppbygging í Austur-Evrópu
Haft er eftir Inga í tilkynningunni að með þess-
um kaupum hyggist hann einbeita sér að frekari
uppbyggingu apóteka í Austur-Evrópu. Hann telji
mikil tækifæri fólgin í því að taka enn meiri þátt í
þeirri uppsveiflu sem nú eigi sér stað á þessu
markaðssvæði.
Sigurbjörn Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Lyfju, segir í tilkynningunni að Lyfja muni ein-
beita sér að rekstri verslana sinna hér á landi sem
reknar séu undir merkjum Lyfju, Apóteksins og
Heilsuhússins, auk heildverslunarinnar Heilsu
ehf.
Kaupir meirihluta í Litís
Félag í eigu Inga Guðjónssonar kaupir hlut í keðju apóteka í Litháen af Lyfju
Selur Lyfja selur 61% hlut í félaginu Litís.
NORRÆNA
kauphöllin OMX
hefur birt árs-
uppgjör sitt og
var hagnaður af
rekstri félagsins
tæpir 8,9 millj-
arðar íslenskra
króna á síðasta
ári. Hagnaður fé-
lagsins árið 2005
nam 5,3 millj-
örðum íslenskra króna og er því
aukningin milli ára tæp 70%.
Magnus Böcker, stjórn-
arformaður og framkvæmdastjóri
OMX, segir árið 2006 sögulegt að
því leyti að tekjur félagsins hafi
aldrei áður verið meiri, eða 35.638
milljónir íslenskra króna og jukust
um 13% á milli ára.
OMX festi kaup á Kauphöll Ís-
lands á síðasta ári og voru bréf fé-
lagsins skráð á Aðallista Kauphall-
arinnar 1. desember sl.. Engin
viðskipti hafa þó verið með bréf fé-
lagsins frá skráningu þess, að því
er kemur fram í Vegvísi Lands-
bankans.
Hagnaður á hlut jókst um 64% á
milli ára og arðsemi eigin fjár nam
20%. Hagnaður á fjórða ársfjórð-
ungi var um 2,9 milljarðar ís-
lenskra króna og var yfir vænt-
ingum sem voru um 2,8 milljarða
króna. Meðalvelta á sólarhring í
OMX-kauphöllunum var um 380
milljarðar íslenskra króna, sem er
aukning upp á 37% frá árinu 2005.
Heildareignir OMX námu um 127
milljörðum króna undir lok ársins
2006 og jukust um tæp 15% á árinu.
OMX hagn-
ast um tæpa
níu milljarða
Magnus Böcker
$%#& "# # % ' (&' ) "
!"
#
$ ## %
"&
' #
() # * +, -
. /+' #
& -' #, -
0
0 "
1 2$3 4"54'
6
)7
" +
8 - (-+
8 -
9:
5
;0<$
=>
=>+++ 3 %3
? %3
14 * +13 -
!
($ -
( 35
"
# $
!"
#
#"
#
$
#"
!
%#
$
"$
""
&%
(- 2
3#
- +
='3@#- +A
. 1
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
?3# @#B
=(C
+ "5%-
3#
2
2
2
2
2
2
2
1@3
3# 3
9 - D
1E
F
F
"=1)
G<
F
F
HH ;0<1 ##
F
F
;0<.
%
9##
F
F
8H)< GIJ
F
F