Morgunblaðið - 02.02.2007, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í , Skólavörðustíg 16
Borgartúni 24 - Hæðarsmára 6
Fjarðarkaupum
Lífsinslind í Hagkaupum
Heilsuhúsið Selfossi
Kelp
Fyrir húð, hár og neglur
VÉLSLEÐAMAÐURINN sem lenti
í snjóflóðinu í Hlíðarfjalli fyrir tæp-
lega tveimur vikum er kominn til
meðvitundar.
Manninum, sem er á fimmtugs-
aldri, var haldið sofandi í önd-
unarvél þangað til í gær en honum
líður nú mun betur en áður, að sögn
lækningaforstjóra FSA, og eru
horfur taldar góðar á því að honum
muni heilsast vel. Maðurinn er
reyndar ennþá í öndunarvél.
Eins og fram kom á sínum tíma
lenti maðurinn í snjóflóði og grófst
tvo metra niður. Félagar mannsins
náðu honum mjög fljótt úr flóðinu
og tókst að blása í hann lífi.
Maðurinn vakn-
aður en er enn
í öndunarvél
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
KOMIÐ verður á fót vélhjólasafni til
minningar um Akureyringinn Heið-
ar Jóhannsson, einn kunnasta vél-
hjólamann landsins í gegnum tíðina.
Það er ósk vina Heiðars, sem ætla að
gera hugmyndina að veruleika, að
safnið verði á Akureyri og eru þreif-
ingar þegar hafnar um að það verði á
safnalóðinni við Krókeyri.
Gamall draumur
„Þetta er gamall draumur Heið-
ars. Hann vildi ólmur koma upp
svona safni og var farinn að leita að
húsnæði áður en hann dó,“ sagði
bróðir hans, Jón Dan Jóhannsson, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Heiðar safnaði vélhjólum og átti hátt
í 30, af ýmsum stærðum og gerðum,
þegar hann lést af slysförum í fyrra-
sumar. Jón Dan segir um 20 hjól-
anna í sýningarhæfu ástandi eins og
er og „sum þeirra eru miklir dýr-
gripir,“ segir hann.
Fimm manna nefnd vina Heiðars
hefur unnið að undirbúningi þess að
koma safninu á fót. Stefnt er að því
að stofna sjálfseignarfélag um rekst-
urinn og hefur fjölskylda Heiðars
hefur þegar ákveðið að öll hjól sem
hann átti verði gefin safninu.
Vonast er til þess að þar verði alls
50–70 vélhjól þegar safnið verður
opnað, en fjöldi fólks víða um land
hefur gefið vilyrði fyrir því að lána
hjól til safnsins tímabundið þannig
að reikna má með því að sýningin
verði mismunandi frá einum tíma til
annars.
Hluti af vélhjólasafni Heiðars
heitins var sýndur í glugga Símans í
göngugötunni 17. júní í hittiðfyrra
kom að þar stóð glæsilegt hjól, Ariel
Red Hunter, árgerð 1945 og hann
ákvað að gera eigandanum tilboð í
hjólið. „Ég hætti ekki fyrr en ég var
búinn að eignast það,“ sagði Heiðar í
viðtalinu.
Ljóst er að vélhjólasafnið er mik-
ils virði. Heiðar treysti sér, í áð-
urnefndu viðtali, ekki til þess að
meta það – sagði það hafa kostað sig
mikið en hann sæi ekki eftir einni
einustu krónu.
Heiðar lést sem fyrr segir af slys-
förum í fyrrasumar, 52 ára.
og vöktu gripirnir mikla athygli veg-
farenda þann dag.
Dýrmætt safn
Heiðar sagði í viðtali við ofanrit-
aðan í sunnudagsblaði Morgun-
blaðinu árið 1998 að hann hefði sett
sér það markmið að eiga tíu hjól
þegar hann yrði fertugur en þegar
sá dagur rann upp átti hann „ekki
nema“ níu. Um kvöldið var hann á
gangi í Norðurgötunni og fannst
glampa á eitthvað þegar honum varð
litið inn um kjallaraglugga. Í ljós
Safn til minningar um Heiðar
Vélhjólasafni komið á fót í nafni Heiðars heitins Jóhannssonar á Akureyri
Á hjólinu Tíkin Rögg fékk gjarnan að vera með Heiðari á mótorhjólum hans. Hér bruna þau inn Eyjafjörð; myndin
var tekin vegna viðtals sem Morgunblaðið átti við Heiðar og birtist í sunnudagsblaðinu 13. desember 1998.
Í HNOTSKURN
» Vinir Heiðars Jóhanns-sonar frá Akureyri ætla að
koma á fót vélhjólasafni til
minningar um hann.
» Hugmyndir eru uppi umað safnið verði á safna-
svæðinu á Krókeyri.
» Heiðar safnaði vélhjólumog átti hátt í 30 hjól þegar
hann lést í fyrrasumar.
Morgunblaðið/Þorkell
AKUREYRI
ÁTTA reykvískir iðnaðarmenn hittust í
Viðey haustið 1866 þar sem haldið var upp-
boð á strandskipi. Þeir ræddu þar um sam-
eiginlegt áhugamál sitt sem var menntun
iðnaðarmanna og leiðir til að efla framfar-
ir í iðnaði hér á landi. Í framhaldi af því
var félagið formlega stofnað 3. febrúar ár-
ið 1867. Stofnfélagar voru þrjátíu og einn
og allir iðnaðarmenn í Reykjavík. Til-
gangur félagsins var að efla og styrkja
samheldni meðal iðnaðarmanna, stuðla að
framförum, efla menntun og styðja íslenskt
framtak í rekstri iðnfyrirtækja.
1893 Sveinspróf íslenskra iðnaðar-
manna flytjast hingað frá Danmörku.
Fyrsta löggjöf um iðnnám samþykkt á Al-
þingi.
1903 Fyrsta reglugerð um iðnnám stað-
fest í Stjórnartíðindum 28. desember.
1904 Iðnskólastarf hefst um haustið og
var það upphaf Iðnskólans í Reykjavík.
Kennt í Vinaminni í Grjótaþorpi.
1906 Iðnskólinn í Reykjavík hóf kennslu
í nýju húsi við Tjörnina. Skólinn var þar til
húsa allt til ársins 1955.
1924 Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík
beitti sér fyrir því að reisa Ingólfi Arn-
arsyni minnismerki á Arnarhóli sem gjöf
til íslensku þjóðarinnar.
1926 Baðstofa iðnaðarmanna og helsta
perla iðnaðarmannafélagsins var innréttuð
í Iðnskólanum.
1955 Iðnskólinn flytur í nýbyggingu á
Skólavörðuholti. Ríkissjóður og Reykjavík-
urbær taka við rekstri skólans. Lauk með
því aðkomu Iðnaðarmannafélagsins að
rekstri Iðnskólans í Reykjavík.
1967 Iðnaðarmannafélagið gefur Reyk-
víkingum borgarstjórakeðjuna í tilefni af
aldarafmæli sínu. Keðjan er úr silfri, smíð-
uð af listamanninum Leifi Kaldal gullsmiði.
2007 Nýsveinahátíð haldin í fyrsta sinn
og stefnt að því að hún verði árlegur við-
burður.
Brot úr sögu Iðn-
aðarmannafélags-
ins í Reykjavík
TENGLAR
..............................................
www.imfr.is
IÐNAÐARMANNAFÉLAG
Reykjavíkur efnir í fyrsta sinn
til Verðlaunahátíðar nýsveina
2007 á morgun, laugardaginn 3.
febrúar, kl. 16, í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Tilefni hátíðarinnar
er 140 ára afmæli félagsins, en
það var stofnað 3. febrúar 1867.
Forseti Íslands, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, er verndari hátíð-
arinnar á morgun. Þar mun Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra flytja há-
tíðarræðu og Jón Sigurðsson
iðnaðar- og viðskiptaráðherra og
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg-
arstjóri ávarpa hátíðargesti. Til
hátíðarinnar hefur verið boðið
formönnum sveina- og meist-
arafélaga, formönnum sveins-
prófsnefnda, skólameisturum
iðn- og starfsmenntaskóla, fé-
lögum úr Iðnaðarmannafélaginu
í Reykjavík, nýsveinum og að-
standendum þeirra. Tjarnarsalur
Ráðhússins verður skreyttur há-
tíðarfánum sveina- og meist-
arafélaga um land allt í tilefni
dagsins.
Þetta er í fyrsta sinn sem
verðlaunahátíð nýsveina er hald-
in hér á landi, en fyrirmyndin er
sótt til iðnaðarmannafélagsins í
Kaupmannahöfn. Þar munu
þrettán sveinsprófsnemar, sem
luku sveinsprófi á nýliðnu ári
með framúrskarandi góðum ár-
angri, fá heiðursviðurkenningar.
Háskólinn í Reykjavík mun veita
nýsveinum sem skara fram úr
verðlaun í formi námsstyrks sem
jafngildir einni önn í tækni- og
1955 að hið opinbera tók við.
Eins reisti félagið Iðnó við
Tjörnina.
Formaður Iðnaðarmanna-
félags Reykjavíkur er Ásgrímur
Jónasson, rafvirki og rafmagns-
iðnfræðingur.
ur er á meðal elstu starfandi fé-
laga landsins. Margt hefur á
dagana drifið í sögu þess. Meðal
þess sem félagið fékk áorkað var
að fá sveinsprófin heim til Ís-
lands og að reka Iðnskólann í
Reykjavík í hálfa öld, allt til
verkfræðideild skólans. Iðn-
mennt, félag iðn- og starfs-
menntaskóla, mun heiðra nem-
endur sem luku námi á
starfsnámsbraut á liðnu ári með
afburða árangri.
Iðnaðarmannafélag Reykjavík-
Nýsveinahátíð og 140 ára
afmæli iðnaðarmanna
Keðjan afhent Geir Hallgrímsson borgarstjóri tók við borgarstjórakeðjunni, sem Iðnaðarmannafélag
Reykjavíkur gaf Reykvíkingum í tilefni 100 ára afmælis félagsins 3. febrúar 1967. Það var Ingólfur Finn-
bogason, formaður iðnaðarmanna, sem afhenti borgarstjóra keðjuna.