Morgunblaðið - 02.02.2007, Síða 26
veitingastaðir
26 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
G
old er fyrsti „konsept“-veitinga-
staðurinn á Ítalíu og heiðurinn af
hugmyndavinnu staðarins eiga
þeir félagar Dolce&Gabbana en
Arch, Ferruccio Laviani og Gian-
maria Torno sáu um hönnunina.
Á Gold er kaffihús, bístró og veitingastaður,
alls um 1500m² og tekur 220 manns í sæti.
Staðurinn stendur við torgið Piazza del Ris-
orgimento (nálægt Porta Venezia og Corso
Buenos Aires, einni aðalverslunargötu Míl-
anóborgar) en verið er að gera við torgið. Þeim
framkvæmdum lýkur 2008 og þá mun bístró-
staðurinn teygja sig út á torgið yfir hlýjustu
mánuðina.
Af hverju Gold?
Tískukóngarnir völdu gull sem þema stað-
arins vegna þess að gyllti liturinn er líflegur og
geislandi, litur orku, munaðar og La Dolce vita
(hins ljúfa lífs), sem svo aftur tákna smekk fyr-
ir fegurð og nautn fyrir skilningarvitin. Stað-
urinn er á tveimur hæðum sem eru tengdar
saman með stigapalli úr látúni og ekta gulli og
virðist sem klipptur út úr amerískri dans- og
söngvamynd. Allt efni er munaðarfullt og
geislandi sem gæðir staðinn hlýleika. Grá-
bleikur arabescato orotico marmari á veggjum
(úr fjöllunum fyrir ofan Bergamó), eikar-
parket, látún, stirnandi stál, speglar, gler,
gyllt eða kremlitað leður og Muranoljósakrón-
urnar frá Barovier & Toso í feneyskum stíl,
sameinast um að skapa ævintýralega umgjörð
utan um það sem þó er mikilvægast mitt í öll-
um lúxusnum: maturinn.
Saltfiskurinn frá Íslandi!
Á Gold eru tveir veitingastaðir og því tveir
matseðlar í gangi auk þess sem alltaf er hægt
að fá rétt dagsins. Bistróið er bara opið í há-
deginu og þar er verðið mun hófstilltara (réttir
á milli 10 og 20 evrur), andrúmsloftið meira
„kasúal“ og þjónustufólkið einnig óformlegra í
klæðnaði þó glæsileikinn sé aldrei langt und-
an. Veitingastaðurinn á efri hæðinni er ein-
ungis opinn á kvöldin og þar er verðið talsvert
hærra. Á Gold er ítölsk matargerðarlist í há-
vegum höfð og allt hráefni er sérvalið fyrir
staðinn frá öllum héruðum Ítalíu, t.d. kemur
allt nautakjöt frá ákveðnu kyni í Benevento.
Einstaka erlent hráefni leynist í eldhúsinu, en
þar er engu að síður ekki slakað á kröfunum og
reynt að velja það allra besta. Saltfiskurinn
sem notaður er kemur t.d. frá Íslandi!
Heiðurinn af matnum á Gold á hinn heims-
kunni matreiðslumeistari, Giacomo Gallina.
Gallina hefur undanfarin 10 ár starfað vítt og
breitt um heiminn og ýtt úr vör nýjum ítölsk-
um veitingastöðum á vegum Bice (samtök
ítalskra veitingahúsa erlendis, www.bice.ws/
index.htm) nú veitingastaðnum á Four Sea-
sons lúxushótelinu í Tókýó. Aðrir staðir þar
sem hann hefur starfað eru t.a.m. San Pietro á
Manhattan, veitingastaðir Four Seasons hót-
elkeðjunnar í Mexíkó og New York og veit-
ingahús Grand Hotel-hótelanna í Flórens og í
Róm. Á Ítalíu hefur löngum verið lögð áhersla
á verndun fagheita í öllum stéttum. „chef“ (yf-
irmatreiðslumeistari) á betri veitingahúsum
fer ekki inn á verksvið „maestro pasticciere“
(kökugerðarmeistara), sem sér þá alfarið um
eftirréttina ásamt aðstoðarmönnum sínum.
Stefano Deiuri er yfirkökugerðarmeistari á
Gold og þeir Gallina hafa unnið saman um ára-
bil.
Himneskur matur
úr fyrsta flokks hráefni
Það er skemmst frá því að segja að matur
þeirra félaga á Gold er hreint dásamlegur og
sælkerar sem leggja leið sína til Mílanó ættu
ekki að láta Gold-upplifun fram hjá sér fara.
Dæmi um áhugaverða rétti á janúarmatseðl-
inum, en matseðillinn breytist mánaðarlega,
eru t.d. culatelloskinka og vetrarmelónukúlur
(vetrarmelóna er sjaldgæft og sérlega ljúf-
fengt melónuafbrigði frá Sikiley) marinerað í
marsalavíni, svörtum pipar og myntu og tarte
tatin-smáterta úr þistilhjörtum með hvít-
truffluís.
Einn af eftirréttum hússins Gold hefur al-
gerlega slegið í gegn, en um er að ræða mo-
usse sem er í laginu og á litinn eins og gull-
klumpur. Um er að ræða kókos-mousse með
hveitilausum súkkulaði-, kaffikexbitum sem
svo er húðuð með þunnu hlaupi sem 24 karata
ætigulli hefur verið blandað saman við. Í pist-
asíuhnetusósunni sem tilheyrir eru einnig gull-
flögur. Þessi eftirréttur er svo jafn ljúffengur
og hann er fallegur líkt og aðrir réttir stað-
arins.
Matargestir eiga einnig kost á að kaupa
mat, sætindi og vín og taka með sér heim í
munaðarfullum „gullpokum“ merktum staðn-
um. Starfsfólk Gold talar auk ítölskunnar
ensku og jafnvel fleiri tungumál en það er afar
sjaldgæft á ítölskum veitingastað.
Dekrað við skilningarvitin á Gold
Hið ljúfa líf Tískukóngarnir völdu gull sem þema staðarins vegna þess að gyllti liturinn er líf-
legur og geislandi, litur orku, munaðar og hins ljúfa lífs sem táknar góðan fegurðarsmekk.
Gull Tveir veitingastaðir eru á Gold og því tveir matseðlar í gangi, hér sést bistróstaðurinn.
Meistarinn Giacomo Gallina færir gjarnan
gestum staðarins réttina persónulega og út-
skýrir innhald þeirra og sögu.
Listaverk Stefano Deiuri heldur á sköp-
unarverki sínu, eftirréttinum Gold.
Nýr staður bættist í veitinga-
húsaflóru Mílanó-borgar 1. októ-
ber sl. en mikil eftirvænting ríkti
vegna opnunar staðarins. Um var
líka að ræða Gold, veitingastað
ítölsku tískukónganna Domenico
Dolce og Stefano Gabbana, betur
þekktir sem Dolce & Gabbana.
Hanna Friðriksdóttir fór á
staðinn og gægðist inn í eldhús
hjá yfirmatreiðslumeistaranum,
Giacomo Gallina.
Í stíl við nafnið Gullhúðað kókos-mousse
og pistasíusósa með gullflögum.
Dolce & Gabbana Gold
Via Carlo Poerio 2/A
20129 Mílanó
S: 02 75 777 71
www.golddolcegabbana.it
BRESKUR hljóðvís-
indamaður hefur fundið út
hvert versta hljóð í heimi er.
Niðurstaða könnunar sem
hann stóð fyrir sýnir að ekk-
ert er verra en hljóðið af því
þegar fólk kastar upp.
Trever Cox frá Háskól-
anum í Salford stóð fyrir
umfangsmiklu rannsókn-
arverkefni á Netinu þar sem
1,1 milljón manna gaf álit
sitt á því hvað væri versta
hljóð í heimi. Berlingske ti-
dende greinir frá því að ælu-
hljóðin hafi þótt mörgum
sinnum verri en t.d. grátur
ungbarna og skerandi ískur
í hljóðnemum.
Cox hefur löngum heillast
af því hvers vegna fólk hryll-
ir sig við ákveðnum hljóðum
og öðrum ekki. Hann hóf
rannsóknarverkefni sitt, Bad
vibes, fyrir um ári með það
að markmiði að finna út úr
Cox. Þátttakendurnir í
könnuninni áttu að raða 34
pirrandi hljóðum eftir því
hversu óþægileg þeim þóttu
þau, m.a. hljóðum í tann-
læknabor, hrotum, vind-
gangi, hósta og nöglum á
krítartöflu.
Þau hljóð sem komust á
topp-tíu-listann voru, talin
upp í röð neðan frá: ískrandi
hljóð í vatnspípum, rifrildi í
sápuóperu, prumpublaðra,
fölsk fiðla, ískur í vegasalti,
barn sem grætur, hvínandi
lestarhjól, hópur ungbarna
sem gráta, skerandi end-
urvarp frá hljóðnema og
loks manneskja sem kastar
upp.
því hvernig mat steinald-
arfólks á hljóðum og mis-
munandi menningarheimar
hafa mótað hljóðskynjun nú-
tímamannsins.
Fiðlur og vegasölt
Hann skýrir ástæðu þess
að æluhljóðin séu efst á lista
með því að uppköst voru
náttúruleg aðferð forfeðra
okkar til að lifa af þegar
þeir höfðu etið eitthvað sem
þeir þoldu ekki.
„Ástæðan fyrir því að við
hryllum okkur við gubbu-
hljóð er vegna þess að það
er grundvallaratriði í lífs-
baráttu okkar að sneiða hjá
ógeðslegum hlutum,“ segir
daglegt líf
Æluhljóðin allra verst
Reuters
Skerandi Ungbarnagrátur komst á lista yfir tíu verstu hljóðin.