Morgunblaðið - 02.02.2007, Qupperneq 27
tíska
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 27
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Við göngum bæði í nýjumfötum og notuðum ogkaupum þau ýmist á Ís-landi eða í útlöndum.
Okkur finnst frábært að geta
komið hingað og keypt kíló af föt-
um fyrir 3.500 krónur. Maður
reynir náttúrulega að velja léttar
flíkur til að fá sem flestar og svo
er líka gaman að vigta fötin,“
segja þær Nína Hjördís Þorkels-
dóttir og Hanna Kristín Birg-
isdóttir sem komu á fyrsta degi
kílóútsölunnar í verslunina Spútn-
ik í gær, en þá hófst hinn árlegi
kílómarkaður sem standa mun
næstu tuttugu daga. Í Spútnik eru
eingöngu seld notuð föt sem koma
frá útlöndum og í kílóinu hennar
Hönnu voru margar og fjöl-
breyttar flíkur: Peysa, leggings,
kjóll, blússa, húfa, hlýrabolur og
undirkjóll. Fötin sem Nína valdi
sér voru eitthvað þyngri, en kílóið
hennar innihélt einn sparikjól og
annan hversdags, hlýrabol, blússu
og pallíettutopp.
Fötin vekja sögur
Berglind Rögnvaldsdóttir versl-
unarstjóri segir viðskiptavini bíða
spennta eftir kílómarkaðinum.
„Undanfarið hefur fólk komið
hingað á hverjum degi og spurt
hvenær kílómarkaðurinn fari af
stað. Enda þekki ég það frá fyrri
árum að búðin á eftir að troðfyll-
ast og það skapast mikil stemning.
Ýmislegt er í bígerð og í búðinni á
Laugaveginum verður DJ í dag,
svo það verður mikið fjör. Og
sumir koma aftur og aftur, því það
koma nýjar vörur inn daglega.“
Berglind segir viðskiptavini
Spútnik vera alls konar fólk á öll-
um aldri. „Hér verslar tólf ára
fólk, fólk á níræðisaldri og allir
þar á milli. Krakkarnir úr skól-
unum sem eru hér í nágrenninu,
eins og Menntaskólanum í Hamra-
hlíð og Versló, þau koma hingað í
öllum hádegishléum að skoða og
versla, enda fást hér bæði skvísu-
föt og flippuð föt. Margar stelpur
kaupa líka fermingarkjólana hjá
okkur. Svo getur verið mjög
skemmtilegt þegar gamlar konur
koma hingað, af því þær verða
stundum hissa þegar þær komast
að því að fötin eru notuð. En svo
þegar þær fara að skoða betur þá
finnst þeim gaman að sjá flík sem
er kannski eins og einhver flík
sem þær áttu fyrir mörgum árum
og upp úr þessu fara þær að rifja
upp sögur og segja mér.“
Að kaupa föt í kílóavís
Morgunblaðið/Ásdís
Vigtun Þær Hanna Kristín Birgisdóttir og Nína Hjördís Þorkelsdóttir skella nokkrum flíkum á vigtina.
Morgunblaðið/Ásdís
Hversu þungt? Gamla vigtin þolir vel að mörgum fötum sé hrúgað á hana.
Maður reynir nátt-
úrulega að velja léttar
flíkur til að fá sem
flestar og svo er líka
gaman að vigta fötin.
IKEA hefur fengið fregnir af
tilfellum erlendis þar sem botn-
inn á PARODI vasa hefur
skyndilega brotnað þegar hon-
um hefur verið lyft. Sjö við-
skiptavinir erlendis hafa skorið
sig og fimm hafa þurft að leita
sér aðstoðar á slysadeild.
Rannsókn á vasanum hefur
leitt í ljós að það getur skapast
of mikil spenna innan í honum
ef glerið hefur t.d. orðið fyrir
höggi eða rispast, en það eykur
hættuna á að hann brotni.
Í fréttatilkynningu frá Ikea
kemur fram að vasinn er 70 cm
hár og 5 kg á þyngd. Þvermál
botnsins er 15 cm og þvermálið
efst er 23 cm. Hann er fram-
leiddur í svörtu (vörunúmer
20110234), hvítu (vörunúmer
50112199) og í glæru (vörunúm-
er 00079545). IKEA merkið og
vörunúmerið er prentað á
hvítan miða sem er undir vas-
anum. Upplýsingar eru einnig á
kassakvittuninni.
Vasinn hefur verið seldur í
öllum IKEA verslunum frá því í
apríl 2004. IKEA biður við-
skiptavini, sem hafa keypt
PARODI glervasa, að skila hon-
um í þjónustudeild IKEA og fá
endurgreiðslu.
Þegar vasanum er skilað eru
viðskiptavinir beðnir um að
taka ekki undir vasann þegar
honum er lyft og varast sömu-
leiðis að hafa hendurnar nálægt
botninum. Best er að pakka vas-
anum vel inn svo hann þoli
flutninginn.
Til að fá frekari upplýsingar
er hægt að hringja í síma 520-
2500 eða fara á heimasíðuna
www.IKEA.is.
Ikea inn-
kallar
glervasa
RÚMLEGA hundrað grunnskólar í
26 ríkjum Bandaríkjanna bjóða nú
nemendum sínum upp á svokallað
léttjóga en um þrjú hundruð leik-
fimikennarar hafa aflað sér rétt-
inda til að kenna léttjóga í tímum.
Upphafskonan, Tara Guber, hóf
að kenna jóga í grunnskóla í Aspen
í Colorado og var þá gagnrýnd fyr-
ir að kenna jóga þar sem jóga var
tengt hindúisma og ætti því ekki
heima í skóla þar sem kristið sið-
gæði væri í forgrunni.
Tara Guber ákvað þá að henda
út öllu sem tengja mætti hindúisma
og eftir stóð léttjóga sem er sér-
sniðið að börnum en áhersla engu
að síður lögð á öndun, íhugun og
slökun. Skólastjórar segja jógað
hafa góð áhrif á börnin, ekki síst
þau sem eiga við einbeitingar-
örðugleika að etja. Þá var gerð
könnun á hegðun barna í einum
skóla þar sem krakkanir stunda
jóga daglega og í ljós kom að iðk-
unin hafði í för með sér bætta
hegðun í tíma og betri náms-
árangur. Það eru þó ekki allir sátt-
ir við að börnin stundi jóga í skól-
um, þótt almennt hafi það vakið
góð viðbrögð foreldra. Sumir segja
eftir sem áður að jóga sé hluti af
trúarbrögðun hindúa og það eigi
ekki að klæða það í neinn annan
búning.
Léttjóga
kennt í
grunnskólum Hárný
Starfsfólk Hárnýjar:
(efri röð frá vinstri) Helena, Lovísa, Edda, Dísa, Telma, Selma
(neðri röð frá vinstri) Orri og Bjarni.
Sjón er sögu ríkari!
Í tilefni af opnun okkar
á endurbættri og
glæsilegri hársnyrtistofu
á Nýbýlavegi 28
bjóðum við
viðskiptavinum okkar
velkomna laugardaginn
3. febrúar kl. 17-19.