Morgunblaðið - 02.02.2007, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 31
NÍRÆÐ kona fannst látin í íbúð
sinni í fyrstu viku ársins. Það hefði
ekki verið í frásögur færandi nema að
konan hafði verið látin í
íbúð sinni í u.þ.b. mán-
aðartíma.
Ekki er langt síðan
álíka tilfelli komu fyrir
hér og ollu viðlíka fári í
fjölmiðlum og á blogg-
síðum. Eðlilega slær
svona fregn glansí-
myndina og almenn-
ingur vaknar upp við
vondan draum og spyr
hvers vegna gerist
þetta. Dó hún alein?
Leit enginn til með
henni.
Því miður er þetta oft hlutskipti ein-
yrkjans og þeirra sem einir eru fjarri
ættingjum. Það gerist nú oft að þegar
fólk eldist og vinunum fækkar, ein-
angrast einstaklingurinn. Við ættum
að hafa meiri sinnu fyrir nágrönnum
okkar og sér í lagi þar sem um gamalt
fólk er að ræða. Margir vilja vera einir
og þola illa afskiptasemi annarra.
Ástæðurnar fyrir einangruninni eru
margbrotnar og ekki auðvelt að koma
með einhlíta lausn eða ástæður.
Til eru ýmis ráð eins og neyð-
arhnappar, nágrannavakt og vin-
ahringir. Einnig má kanna eftirlit á
vegum borgarinnar og/eða Rauða
krossins.
Páll Gíslason, fyrrverandi læknir,
hefur vakið máls á svokölluðu flotmáli.
Það er svokallað flotmál sem sett er á
flotholtið í klósettkassanum. Flotmálið
síðan tengt við símann. Páll Gíslason
sagði mér frá þessu og sagði hafa
heyrt af flotmálinu í Svíþjóð. Ef ekki
hefur verið sturtað niður
í 12–18 tíma sendir flot-
málið frá sér boð í 112.
112 ynni úr þeim boðum
eftir ákveðnu skipulagi.
Búnaðurinn yrði seldur
gegn vægu gjaldi. Bún-
aðurinn sendi frá sér
merki með ákveðnu
millibili til að stimpla sig
inn og í lagi. Sannast að
segja er ég undrandi á
Securitas og öðrum fyr-
irtækjum í öryggisgeir-
anum, að hafa ekki kom-
ið sér upp svona búnaði
eða lausnum sem geta orðið til að
fækka þessum tilvikum. Slíkt gæti
hæglega verið í samvinnu við félags-
málayfirvöld. Og gleyma svo öllu þrasi
um hver eigi að borga. 50/50.
Ekki vilja allir neyðarhnapp. Telja
sig ekki hafa efni á hnappnum eða
telja sig svo spræka að hnappurinn sé
alger óþarfi. Eldra fólk sem býr eitt
þarf ekki annað en að detta illa, veikj-
ast skyndilega eða eitthvað annað
komi upp á þannig að einstaklingurinn
verði ósjálfbjarga. Margt eldra fólk
telur hnappa og hvers kyns af-
skiptasemi vera skerðingu á sjálfstæði
sínu og margir bregðast illa við. En
með sameiginlegu átaki fagfólks og
ættingja má finna góða lausn.
Svona óhugnaður á ekki að þurfa að
koma fyrir. Ég beini beiðni minni til
félagsmálayfirvalda borgarinnar,
kirkjunnar og nágranna að vera betur
vakandi. Lagfæra ástandið eins mikið
og hægt er.
Tökum sameiginlega á þessu máli
sem er argasta skömm fyrir þjóðfélag-
ið. Reykjavík er rétt eins og millj-
ónaborg. Fálætið orðið svo mikið að
ekki er gefin gaumur að því þótt ná-
granninn hafi ekki sést í nokkra daga.
Gætum bróður okkar
Þrymur Sveinsson fjallar um
öryggi einyrkja og eldra fólks »Reykjavík er rétteins og milljóna-
borg. Fálætið orðið svo
mikið að ekki er gefinn
gaumur að því þótt ná-
granninn hafi ekki sést í
nokkra daga.
Þrymur Sveinsson
Höfundur er öryggisfulltrúi.
UMHVERFISMÁL hafa mjög
verið í brennidepli á Íslandi, eink-
um umræða um nátt-
úruvernd sem mikil
nauðsyn var á. Minna
hefur þó farið fyrir
umræðu um loftslags-
mál en nú er svo kom-
ið að henni verður
ekki lengur slegið á
frest. Ekki verður
lengur unað við algjört
stefnuleysi stjórnvalda
sem neitað hafa að
horfast í augu við af-
leiðingar hlýnunar
loftslags af manna
völdum.
Í stað þess að taka
af festu og ábyrgð á
málum hafa stjórnvöld
svarað gagnrýni með
skensi í garð þeirra
sem setja vildu lofts-
lagsmálin á dagskrá.
Einkum hafa sjálf-
stæðismenn dregið í
efa niðurstöður óháðra
vísindamanna en tekið
þess í stað línu Banda-
ríkjaforseta og efa-
semdamanna á mála
hjá olíufyrirtækinu Exxon Mobile.
Þau viðhorf virðast enn ríkjandi á
meðal þingmanna og þingmanns-
efna Sjálfstæðisflokksins – jafnvel
þeirra sem kalla sig græna. Það er
til marks um hve óheppilegt það
getur verið að stinga jafnan höfð-
inu í sandinn að nú hefur Banda-
ríkjaforseti sett málið á dagskrá án
þess að Sjálfstæðisflokkurinn tæki
eftir því.
Samfylkingin hefur lengi talið að
marka verði stefnu Íslands um
samdrátt í losun gróðurhúsaloftteg-
unda og í Fagra Íslandi, tillögum
okkar í umhverfismálum, er sér-
stakur kafli tileinkaður loftslags-
málum. Við teljum að hér sé eitt
brýnasta hagræna og siðferðislega
úrlausnarefni mannkyns á okkar
dögum. Í jafn mikilvægu alþjóða-
máli getum við Íslendingar ekki
setið hjá, hvorki okkar sjálfra
vegna, né annarra. Við höfum mik-
ið fram að færa á alþjóðavettvangi
t.d. með auknum rannsóknum og
þátttöku í alþjóðlegu samstarfi og
með því að kynna öðrum þjóðum
íslenska þekkingu til að nýta um-
hverfisvænni orkugjafa.
Fyrst og síðast eigum við þó að
taka á okkar eigin losun gróð-
urhúsalofttegunda en til þess þarf
breytt hugarfar. Hagnýta þarf
markaðsöflin og nýta hagræna
hvata í anda mengunarbótaregl-
unnar sem gengur út á að sá sem
mengar borgi fyrir það fullu verði.
Samfylkingin telur að núverandi
álagningarkerfi á eldsneyti og bíla
sé löngu úrelt og vill end-
urskipuleggja álögur á eldsneyti
þannig að þær hvetji til notkunar
minna mengandi eldsneytis. Einnig
teljum við nauðsynlegt að endur-
skoða með hvaða hætti tollar eru
lagðir á bifreiðar með það fyrir
augum að lækka tolla á sparneyt-
nar bifreiðar og bifreiðar sem nota
minna mengandi eldsneyti.
Ísland er aðili að Kyoto samn-
ingnum, víðtækasta samstarfi ríkja
heims um samdrátt í losun gróð-
urhúsalofttegunda. Samt hafa
stjórnvöld enn ekki haft hugsun á
að setja nein lög eða reglur um
það hvernig takmörkuðum los-
unarheimildum þjóðarinnar er út-
deilt. Það mætti segja að þar ríki
lögmálið „fyrstur kemur fyrstur
fær“. Það er þó tæpast rétt því
enn hafa stjórnvöld ekki sett lög
sem koma í veg fyrir að stóriðjan
sprengi Kyoto rammann og geri
Íslendinga að ómerkingum á al-
þjóðavettvangi. Slíkur er sof-
andahátturinn.
Samfylkingin vill að strax verði
hafist handa við að gera metn-
aðarfulla áætlun fyrir Íslands hönd
um að minnka útstreymi gróð-
urhúsalofttegunda. Við þá áætlun
verði stuðst í alþjóðasamningum
um losunarheimildir eftir 2012,
þegar Kyoto bók-
uninni sleppir.
Samhliða þeirri
áætlun teljum við
nauðsynlegt að koma
á innlendum markaði
með losunarheimildir
fyrir stórfyrirtæki í
iðnaði að evrópskri
fyrirmynd en slíkar
aðferðir hafa skilað
miklum árangri í
heildarsamdrætti iðn-
aðarins, því við það
skapast hvati hjá
hverju fyrirtæki til að
draga sem mest úr
losun.
Olíunotkun í sjávar-
útvegi er einn stærsti
einstaki þátturinn í
losun gróðurhúsa-
lofttegunda á Íslandi.
Íslenskt fyrirtæki,
Marorka, hefur getið
sér gott orð fyrir
orkusparnaðarkerfi í
skipum en ljóst er að
auk umhverfisáhrifa
er hér um verulegt
efnahagslegt atriði að ræða fyrir
útgerðir landsins. Því vill Samfylk-
ingin skapa útgerðum hvatningu til
að draga úr olíunotkun.
Tvennt hefur verið einkennandi
fyrir málflutning ríkisstjórnarflokk-
anna í umræðu um loftslagsmál. Í
fyrsta lagi að hin breiða samstaða
vísindasamfélagsins um að hlýnun
jarðar sé af manna völdum sé
ósannaðar fullyrðingar og ýkjur en
í öðru lagi að það sé ávísun á efna-
hagslegt hrun að bregðast við þró-
uninni. Hvort tveggja neitar Sam-
fylkingin að skrifa upp á og við
minnum í því sambandi á skýrslu
sem dr. Nicolas Stern hagfræð-
ingur gerði fyrir bresk stjórnvöld
en þar sýndi hann fram á að þeim
mun lengur sem dregst að bregð-
ast við vandanum, þeim mun dýr-
ara verður það. Við teljum rangt
að takast á við aðsteðjandi vanda
með aðferðafræði strútsins og við
teljum, líkt og dr. Stern, rangt að
setja samasemmerki á milli minnk-
andi hagvaxtar og samdráttar í los-
un gróðurhúsalofttegunda. Sam-
fylkingin telur að í rannsóknum og
nýsköpun á þessu sviði felist ótal
möguleikar fyrir Ísland, svo sem
atvinnutækifæri, tækifæri til ný-
sköpunar og bættrar ímyndar
landsins.
Hlýnun loftslags jarðar er stað-
reynd. Fjölmargt má þó gera til að
draga úr neikvæðum áhrifum
hennar og á næstu áratugum er
mögulegt að snúa þróuninni við.
Hér er um afar brýnt hagrænt og
siðferðislegt verkefni að ræða sem
ekki er hægt að skorast undan.
Samfylkingin hlakkar til að takast
á við það mikilvæga verkefni.
Tökumst á við
loftslagsmálin
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
skrifar um loftslagsmál.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
» Fyrst og síð-ast eigum
við þó að taka á
okkar eigin los-
un gróðurhúsa-
lofttegunda en
til þess þarf
breytt hugarfar.
Höfundur er formaður
Samfylkingarinnar.
smáauglýsingar
mbl.is
10 daga ferð
– frábært tilboð!
Sértilboð fyrir áskrifendur Morgunblaðsins
Kúbuveisla 22. febrúar - 4. mars
frá aðeins kr. 79.990
Morgunblaðið, í samstarfi við Heimsferðir, býður áskrifendum sínum frábær tilboð í ferð til Kúbu 22. febrúar. Í boði er gist-
ing á vinsælum gististöðum á Varaderoströndinni eða í Havanaborg. Kúba er ævintýri sem lætur engan ósnortinn. Þú kynnist
stórkostlegri náttúrufegurð eyjunnar og þjóð sem er einstök í mörgu tilliti.
Fjölbreyttir gistivalkostir í boði á frábæru verði.
Þú velur hvort þú vilt dvelja í Varadero eða Havana í 10 nætur eða
Havana í 5 nætur og Varadero í 5 nætur.
Fjölbreyttir
valkostir í boði!
Þú sparar
10.000-40.000 kr.
á mann
Kúba
Fyrst kemur
- fyrst fær!
Þú mætir með miðann sem fylgdi Morgunblaðinu í gær til Heimsferða,
Skógarhlið 18, eða á einhverja af umboðsskrifstofum þeirra.
Einnig er unnt að bóka tilboðið á www.heimsferdir.is
10 daga Kúbuveisla
Morgunblaðsáskrifenda
Verðdæmi og valkostir:
Áskr. verð Alm. verð Þú sparar
Varadero 10 nætur - m/morgunverði
Hotel Villa Tortuga **+ 79.990 89.990 -10.000
Varadero 10 nætur - m/allt innifalið
Hotel Villa Tortuga **+ 94.990 112.890 -17.900
Gran Caribe Barlovento ***+ 99.990 120.490 -20.500
Havana 10 nætur - m/morgunverði
Hotel Occidental Miramar **** 89.990 103.490 -13.500
Havana 5 nætur m/morgunverði og Varadero 5 nætur m/allt innifalið
Occidental **** / Villa Tortuga **+ 89.990 109.990 -20.000
Occidental **** / Barlovento ***+ 94.990 116.490 -21.500
Occidental / Barcelo Solymar ****+ 104.990 144.990 -40.000
Allt verð er miðað við
gistingu í tvíbýli.
Innifalið í verði er flug, skattar, gisting (fæði skv. því sem valið er) og fararstjórn.
Sértilboð fyrir áskrifendur Morgunblaðsins!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
22
92
7