Morgunblaðið - 02.02.2007, Síða 36

Morgunblaðið - 02.02.2007, Síða 36
36 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Lilja Garð-arsdóttir fædd- ist á Bíldudal 30. ágúst 1944. Hún lést á líknardeild LSH í Kópavogi 25. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Una Thorberg Elíasdóttir, f. 17. apríl 1915, d. 26. maí 2006, og Garð- ar Jörundsson sjó- maður, f. 9. ágúst 1916. Systkini Lilju eru: Kolbrún Matt- híasdóttir bankastarfsmaður, f. 1942; Matthías, framkvæmda- stjóri í Noregi, f. 1947; Jörundur Steinar kennari, f. 1948; Áslaug Jóna launafulltrúi, f.1950; Gunn- ar Karl sjómaður, f. 1952; Drífa meðferðarfulltrúi, f. 1954; og Sverrir sjómaður, f. 1956. Eiginmaður Lilju var Árni Bergur Sigurbjörnsson, sókn- arprestur í Reykjavík, f. 24. jan- úar 1941, d. 17. sept. 2005. For- eldrar hans eru Magnea Þorkelsdóttir, f. 1. mars 1911, d. 10. apríl 2006, og Sigurbjörn Ein- arsson, biskup, f. 30. júní 1911. Börn Lilju og Árna eru: 1) Harpa, f. 26. jan. 1965, myndlistarmaður, BA í sagnfræði, maki dr. Björn Zoëga, f. 26. apríl 1964, sviðstjóri lækninga á skurðlækningasviði LSH. Börn þeirra eru: a) Árni Bergur, f. 30. sept. 1990; b) Jón Gunnar, f. 30. jan. 1996; c) Guð- rún Lilja, f. 27. mars 2001; d) Una Sigrún, f. 18. maí 2003; e) Sig- urbjörn, f. 7. júlí 2005. 2) Magn- ea, f. 22. des. 1969, flautuleikari, maki dr. Hákon Guðbjartsson, f. 30. mars 1966, framkvæmdastjóri hjá Íslenskri erfða- greiningu. Börn þeirra eru: a) Guð- bjartur, f. 22. nóv. 1994; b) Sig- urbergur, f. 12. ágúst 1999; c) Lilja, f. 23. sept. 2003; d) Árni Bergur, f. 27. júní 2006. 3) Garð- ar, f. 26. sept. 1975, þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslu Ís- lands, maki Heiða Katrín Arnbjörns- dóttir, f. 24. maí 1978, viðskiptafræðingur. Sonur Garðars með Margréti Garð- arsdóttur er Garðar Árni, f. 29. okt. 2000. Lilja ólst upp á Bíldudal. Hún lauk prófi frá Núpsskóla og frá Húsmæðraskólanum í Reykjavík. Þau Árni Bergur áttu fyrsta heimili sitt á Bíldudal en fluttust síðan til Reykjavíkur er hann hóf háskólanám. Þau bjuggu um átta ára skeið í Ólafsvík en Árni Berg- ur vígðist þangað sem sókn- arprestur. Frá árinu 1980 voru þau prestshjón í Áskirkju í Reykjavík og fram til haustsins 2005 er sr. Árni Bergur féll frá. Lilja vann á símstöðinni heima á Bíldudal, en síðan almenn skrif- stofustörf með heimilisstörfum sínum, m.a. á skrifstofu Ríkisspít- alanna í Reykjavík, á skrifstofu Hraðfrystihússins í Ólafsvík, og loks á skrifstofu Tollvörugeymsl- unnar, síðar Eimskip og starfaði þar til æviloka eða í rúman ald- arfjórðung. Útför Lilju verður gerð frá Ás- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Hvað á ég að segja spurulum augum sem ekki skilja þetta stóra að sumir veikjast og deyja og aðrir veikjast og lifa og allt er þetta í hendi guðs. Og nú er hún hjá Guði og afa seg- ir barnið og þau passa hvort annað, og á um leið svarið sem liggur í aug- um uppi, veitir hugsvölun, því þannig er það og það er gott, og þannig var það, alltaf. Þau voru alltaf saman. Líf þeirra var sam- fella, samofið. Lífið hans var lífið hennar. Hún lifði fyrir hann og okk- ur. Á liðnu sumri haustaði í einni andrá þegar við stóðum að nýju í sömu sporum og svo örskömmu áð- ur. Og jólin í nánd, þrungin vitn- eskju um að þau yrðu hennar hinstu. Það var markmið hennar á aðventu að eiga þau með okkur öll- um á heimili þeirra pabba. Dýr- mætt að hafa fengið það og að vera í kirkjunni okkar heima í stofu á að- fangadagskvöld. Hún hafði und- irbúið komu jólanna eins og sá sem býr yfir þeirri fullvissu að birtan var nærri, til lifandi vonar sem aldrei slokknar þrátt fyrir erfið- leika alla. Þannig gaf hún okkur styrk til þess halda áfram og fyllast djúpu þakklæti yfir þeirri gjöf. Þegar ég handleik lítinn engil með undur fínlega teiknað andlit í kjól með smágerðum blómum bún- um til úr litlum efnisbút úr sum- arkjól bernsku minnar og lítinn fugl úr gylltum gjafapappír, er svo einkennilega stutt síðan ég fylgdist með mömmu búa þetta jólaskraut til fimum fingrum í eldhúsinu á Lokastíg, Og enn, eins og sérhver jól upp frá því fyllist ég aðdáun yfir fegurð þess- ara litlu hluta. Það var ævintýri að horfa á hana teikna og teikna með henni Þannig kepptist ég við að líkja eftir og læra af mömmu og það skorti hvorki uppörvun eða efni til að vinna úr. Og þrátt fyrir bág fjárráð framan af sendi hún mig á sjötta ári á myndlistarnámskeið í Ásmundar- sal. Teikningarnar urðu margar við eldhúsborð bernsku minnar og æsku og ekki var fengist um að þær ættu það til að halda áfram út á eld- húsborðplötuna sem heyrðist svo skemmtilega í við hvert strik. Upp- skriftabókin hennar fylltist líka af teikningum, þær merktar og dag- settar, eins og þetta sífellda pár yki gildi kökuuppskriftanna. Þetta af- henti hún mér fyrir nokkru, og uppáhaldsteikninguna sína, sem ég gerði tveggja ára, tvö strik og höf- uð, Jesú á krossi. Blá sól á rauðum himni var römmuð inn og fylgdi okkur til Ólafsvíkur, átti alltaf sinn stað á æskuheimili mínu og hún trúði mér fyrir því að þetta væri al- veg sérstakt, þessi áreynslulausi viðsnúningur. Þannig var hún, upp- örvandi og óspör á hvatningu, því hún skildi best sjálf þá friðsælu inn- hverfu nautn sem fólst í því að sitja niðursokkin yfir pappírnum og sjá tilfinninguna vaxa fram. Barnabörnin nutu þess hve stutt var að skjótast yfir götuna til afa og ömmu og fá þessa takmarkalausu athygli og þau kepptust öll um að fá að gista í afabóli þegar amma var orðin ein. Þriggja ára dóttir okkar gerði sér margoft ferð til hennar með litla ferðatösku og tilkynnti hátíðlega að nú væri hún mætt og ætlaði sér að vera. Alltaf tekið fagnandi. Alltaf best að vera þar og erfiðast að fara þaðan aftur. Verkefnum okkar systkina smáum og stórum tók hún þátt i af alhug. Vildi að við fengjum notið okkar í öllu. Þetta lísti sér einna best í því hvað hún var vel að sér í ótrúlegustu hlutum, eins og bíla- málum Garðars hér áður fyrr. Oft gat maður hlustað á mömmu ræða flugmálin hans við hann og vini hans af fádæma þekkingu. Ófáar flíkurnar bjó hún til á okk- ur systkinin og saumaði á okkur systurnar langt fram á fullorðinsár okkar. Ekki af nauðsyn og spar- semi eins og áður, heldur af löngun til þess að skapa eitthvað alveg sér- stakt og öruvísi en hægt var að kaupa. Henni fórst allt vel úr hendi, frágangurinn fullkominn, hefði allt eins mátt snúa bakhliðinni fram. Allt alltaf sjálfsagt, hún naut þess að skapa, en umfram allt að gleðja okkur um leið. Heimili okkar og börnin hafa notið þess Síðustu peysurnar sem hún prjónaði á yngsta ömmubarnið sitt, eru okkur dýrmætur vitnisburður um ótrúleg- an viljastyrk og innri styrk, sem hún bjó alltaf yfir, viljann til verka allt að lokum, ástarjátning heil og hlý. Eins og það er erfitt að meðtaka, skilja, að hún sé farin, þá vitnar allt um það. Fallega hljóðnaða heimilið þeirra. Bækurnar hans, handavinn- an hennar. Heklaða teppið, sem hún vann að úr afgöngum af öllum litli peysunum kemur í okkar hlut að klára, eins og lífið sjálft án henn- ar. Við fetum leiðina í djúpum sökn- uði, en höldum verkinu áfram. Komum börnunum okkar til manns, fetum lífsins leið án hennar, án for- eldra okkar sem kvatt hafa á svo skömmum tíma. Allt sem átti eftir að gera, njóta bíður seinni tíma, handan tíma og rúms en þakklætið felum við Guði, fyrir þá náð að mega sakna, án þess væri lífið mis- fellulaust og tilgangur lífsins hul- inn. Þakklæti fyrir að hafa fengið að vera hjá henni allt til enda, að hafa átt hana svona sterka, úrræða- góða, umhyggjusama, elskaða móð- ur okkar. Blessuð sé minning hennar. Harpa Árnadóttir. Erfitt er að koma orðum að því hvernig það er að missa móður sína, allt allt of fljótt. Og svona stuttu eftir fráfall pabba þá get ég ekki neitað því að mér finnst ég vera svolítið svikinn. Enda var ég strák- urinn hennar mömmu, mömmu- strákur. Þegar ég var lítill þótti mér þessi titill frekar ómerkilegur, enda bar hann nokkuð oft á góma og fylgdi hann mér lengi og allt fram á fullorðinsár. Þegar ég stökk út í vinnu eða með vinum, kvað oft við: „Settu á þig trefilinn.“ Sömu- leiðis þegar frænkurnar mínar skömmuðust í mömmu og sögðu hana ofvernda strákinn. Og mikið var það gott að vera ofverndaður af mömmu. Minningar frá Bíldudal endur- óma í bergmáli milli fjallanna þar sem mamma kallar á strákinn sinn, skipar honum fyrir og biður hann að fara sér ekki að voða. Hún var víst oft hrædd um litla strákinn sinn, enda kannski ekki nema von, því oftar en hitt kom hann heim, hafði óhlýðnast og gert það sem hún bað hann að gera ekki og auð- vitað meitt sig og þá var gott að leita í faðminn hennar. Alltaf var faðmurinn opinn og stutt í huggun. Og þó svo strákur stækkaði, minnk- uðu áhyggjur mömmu ekki í sama hlutfalli, þess þá heldur jukust áhyggjurnar. Enda uppátektasam- ur. Ein mesta hræðsla hennar var að fljúga og þó svo að ég veldi þá braut þá studdi hún mann með ráðum og dáð og hvatti mann áfram. Setti hún sig inn í nánast allt sem maður tók sér fyrir hendur og sýndi því mikinn áhuga. Og þó að hún væri dauðhrædd, fylgdist hún með manni í gegnum námið, í fyrstu flugtengdu vinnurnar og var hún oft farþegi minn vestur í dalinn sinn. Og alltaf vildi hún vita af strák sínum, hvar sem hann var. Í flugná- minu bað hún mig að láta sig vita þegar ég fór í loftið og þegar ég lenti aftur og hélt ég þessum hætti áfram eins vel og ég gat, alveg fram á þennan dag, hvort sem það var í Reykjavík, Ísafirði, Grænlandi eða Kína. Hún vildi alltaf vita af litla stráknum sínum. Mamma er sú sem heldur í hönd- ina á manni þegar maður er lítill, en í hjartað á manni alla ævi. Og það er svo sannarlega satt og rétt, hún mun halda fast um hjarta mitt um ókomna tíð og ég mun halda áfram að gera hana stolta af mér, fara ekki út nema með trefil og passa mig. Guð blessi minningu hennar. Garðar Árnason. Lilja Garðarsdóttir kom í hópinn okkar Magneu á löngu liðnum vor- dögum. Við fundum það fljótt, að við máttum þakka þann viðauka við fjölskylduna. Fallegu stúlkunni hans Árna Bergs fylgdu hljóðlát en sterk áhrif frá björtu og hlýju hug- arþeli og manndómlegri gerð, sem barst ekki á en var heil og ósvikin. Þetta fengum við áréttað og stað- fest því betur sem samleiðin með henni varð lengri og kynnin nánari. Hún kom úr hlýjum og hollum for- eldrahúsum, þar sem hún hafði not- ið samneytis við glaðvær og sam- lynd systkin sín. Hún naut góðra gáfna sinna og aðlaðandi framkomu í skólanámi sínu og henni fór vel úr hendi hvert það starf, sem henni var trúað fyrir. Ung voru þau leidd saman, Árni Bergur og hún. Hann tókst á hendur kennslu á Bíldudal, gegndi síðar fleiri störfum þar og eignaðist ágæta hollvini. Og kynnt- ist Lilju. Það varð gæfa og ham- ingja þeirra beggja. Þau urðu sam- stillt í hjónabandi sínu og samstiga svo sem best má verða. Hún var skilningsríkur og uppörvandi lífs- förunautur, hafði mikið að gefa sem eiginkona, móðir og amma. Köllun þeirra hjóna beggja til þjónustu í kirkju Krists var henni heilög. Um það bjó hún að trúaráhrifum frá foreldrum sínum og kirkju sinni á Bíldudal, en hana rækti hún og unni frá bernsku. Og vissulega má ég meta, votta og þakka það, hvernig hún kom fram við og reyndist okk- ur Magneu sem tengdadóttir. Hún skipar með minnisstæðri prýði sæti sitt meðal annarra tengdabarna, sem báru okkur birtu og gleði. Lilja náði ekki háum aldri. Og síðustu árin hennar voru þrauta- söm. En hún hafði áður á lífsleið sinni auðgast vel af jákvæðri lífs- reynslu og lífsláni. Þar bar hæst hamingjuríka samfylgd þeirra Árna Bergs og þá gæfu þeirra, sem foreldrum er dýrmætust: Þau höfðu mikið barnalán. Börn þeirra og tengdabörn voru þeim óblandin hamingja og blessun og barnabörnin krýndu þá ham- ingju með bjartasta yfirbragði og fyrirheitum. Það var ævinlega gott að ræða við Lilju. Hún hafði næman hug og vel vakandi, var ágætlega skýr í hugsun og máli, hafði og glögga dómgreind, var ákveðin og afdrátt- arlaus, þegar hún lýsti sannfæringu sinni, og rökvís í málflutningi. Og hreinlyndi var henni eðlislægt og óbrigðult. Hún var fámál eða þögul um það, sem henni mislíkaði í fari og framkomu annarra. En hispurs- laus í máli við hvern sem var, ef hún taldi sig þurfa að tjá sig. Og þá nægðu henni fá orð í fullri mein- ingu. Öllum, sem stóðu Lilju nærri, er og verður það ógleymanlegt, hví- lík hetja hún reyndist í þeirri bar- áttu, sem hún varð að heyja síðustu árin. Hún stóð við hlið manns síns í tveggja ára sjúkdómsstríði hans. Og þegar því lauk var þess ekki langt að bíða, að hún væri sjálf kvödd til átaka við illvíga mein- semd, sem réðst af hörku á hana. En í öllu þessu þunga og sára and- streymi heyrðist hún aldrei kvarta, aldrei mæla æðruorð, alltaf sýndi hún sama hlýja viðmót, sama hljóð- láta, hógværa þolgæðið, alltaf var grunnt á brosinu hennar, hið kalda húm, sem sótti að, náði aldrei að komast að hjartarótum hennar. Við áttum enn margar góðar stundir saman, þegar leiðaskilin miklu voru greinilega að nálgast. Hún gaf mér meira þá en ég gat gefið henni. „Sjón hjartans“, var óskert hjá henni, augu trúarinnar heil. Því átti hún frið hið innra með sér. Og í gegnum alla skuggana, sem boðuðu komu hinstu nætur á jörð, sá hún þann dag, sem lýsir af eilífri sól. Við þá birtu horfði hún yfir farna leið, sá allar sínar góðu, sterku, ljúfu minningar í því ljósi og alla ástvin- ina, sem hún varð að skiljast við í bili hér. Og í sama ljóma sá hún þá tilveru, sem nú var að ljúkast upp fyrir henni, og þá ástararma, sem biðu hennar handan dyra dauðans. Fegurð og blessun blasir við í sporum Lilju hér á jörð. Fegurð og blessun stafar frá henni inn í líf þeirra, sem hún unni mest og eiga henni mest að þakka. Lofaður sé Guð, sem gefur allt og blessar allt. Sigurbjörn Einarsson. Fimmtudaginn síðastliðinn kom ég á líknardeildina í Kópavogi til þess að kveðja elskulega tengda- móður mína í hinsta sinn. Ég veitti fuglunum sem spígsporuðu á grunnum voginum í ætisleit athygli og því hve undurhratt sjórinn fjar- aði út. Líf og dauði eru jafn órjúf- anlegir þættir í ævi sérhvers manns og flóð og fjara á degi hverjum og þrátt fyrir að við vissum öll að Lilja glímdi við nær óvinnandi sjúkdóm kom það manni eftir sem áður á óvart hversu fljótt líf hennar fjaraði út. Hún hélt þó ávallt reisn sinni, missti aldrei trúna og lífsvonina og fram á síðasta dag notaði hún krafta sína í lestur og handavinnu. Lífslöngunin var sterk og kristall- aðist í peysunum tveimur sem hún prjónaði undir það síðasta handa litla Árna Bergi okkar. Lilja reyndist mér alla tíð ákaf- lega góð tengdamóðir. Líklegast var hún aðallega fegin því að Magn- ea skyldi hafa fundið sér íslenskan mann á námsárunum sínum í Bost- on. Þá var það ekki verra að ég gat rakið ættir mínar í heimahaga hennar vestur í Arnarfjörðinn og það virtist ekki koma að sök að fað- ir minn hefði á árum áður sem strákur verið iðinn við að stela róf- um úr garði foreldra hennar. Já, hún var mikill Vestfirðingur í sér og maður fékk oft að heyra það hjá henni að þar væri allt fallegast og best. Það var líka auðfundið í þeim mörgu ferðum sem við fjölskyldan fórum með þeim Árna Bergi vestur, að á Bíldudal leið henni best, í faðmi fjölskyldu sinnar. Lilja var ákaflega hreinskiptin og lá ekki á skoðunum sínum ef því var að skipta. Hún var umhyggju- söm móðir, ávallt hjálpsöm og úr- ræðagóð og milli hennar og Magn- eu var sérlega djúp og kærleiksrík vinátta. Henni var mjög umhugað um heilsu barna okkar og var á stundum ósátt við kæruleysi tengdasonarins eða úrræðaleysi lækna. Hún vissi líka oftast sínu viti og ósjaldan þakkaði maður fyrir forsjárhyggju hennar. Síðustu ár voru Lilju erfið, ekki síst vegna veikinda og fráfalls Árna Bergs. Við áttum þó margar dýr- mætar stundir saman og nálægðin við ömmu í næstu götu var börn- unum okkar ómetanleg. Mér er það minnisstætt að á stjörnubjörtu kvöldi síðla hausts benti hún litla Lilja okkar til himins og sagði: „Þarna er stjarnan hans afa.“ Nú mun hún eflaust leita eftir stjörnum tveim. Guð blessi minningu einstakrar tengdamóður, móður og ömmu. Hákon Guðbjartsson. Ég sakna ömmu minnar og vildi að ég gæti farið aftur með henni til Bíldudals eins og síðasta sumar þegar við keyrðum saman vestur til að fara í jarðarförina hennar lang- ömmu Unu. Það var svo gott að vera einn í bílnum með henni og tala lengi saman. Svo söng hún „Er sumarið kom yfir sæinn“ þegar við sáum Bíldudal af heiðinni. Hún sagði að Arnarfjörður væri falleg- astur og það finnst okkur mömmu líka. Það var svo gaman að veiða með henni á bryggjunni. Einu sinni fórum við að heimsækja langafa og langömmu í Glaumbæ og það var vetur og snjór á bryggjunni. Amma fór samt að veiða með okkur af því að mig og Árna bróður langaði það svo mikið. Hún sagði að sér þætti vænst um ljótu fiskana af því að það vildi þá enginn. Eitt sumarið veiddi ég þorsk og hún sauð hann hjá langömmu en það var bara ég og kötturinn sem borðuðum hann. Þá sagði hún að ég væri sannur Vest- firðingur. Ég bjó til hálsmen í smíði handa henni í vetur sem stendur á „Jón“. Það er gott að hún hefur það hjá sér. Guð geymi ömmu mína. Jón Gunnar Zoëga. Er sumarið kom yfir sæinn og sólskinið ljómaði um bæinn … Þessar ljóðlínur Tómasar Guð- mundssonar koma sterkt upp í hug- ann þegar litið er til baka nú þegar að systir mín Lilja hefur kvatt okk- ur að sinni. Það var ávallt sól í hennar hjarta þegar hún kom vestur á Bíldudal með fjölskyldu sinni á sumrin og þegar hún sá niður í fjörðinn sinn Lilja Garðarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.