Morgunblaðið - 02.02.2007, Side 38

Morgunblaðið - 02.02.2007, Side 38
38 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Theódóra Arn-dís Berndsen fæddist á Blönduósi 22. desember 1923. Hún lést á Heilbrigðisstofnun- inni á Blönduósi að morgni fimmtudags- ins 25. janúar síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Arndís Á. Baldurs og Jón S. Baldurs, kaupfélagsstjóri á Blönduósi. Bróðir Theódóru er Jóhann F. Baldurs, fyrrum verkstjóri, bú- settur í Kópavogi kvæntur Ásu Þ. Baldurs og eiga þau þrjá syni. Theódóra giftist, 17. júní 1951, Knúti V. Berndsen húsasmíða- meistara og verkstjóra á Blöndu- ósi. Synir þeirra eru: 1) Jón Örn, f. 1951, maki, Elín H. Sæmundsdóttir, börn Tjörvi og Arn- dís. 2) Gunnbjörn Valur, f. 1952, maki, Lísa Berndsen, börn Knútur og Guðrún. Áður átti Gunnbjörn eina dóttur, Að- alheiði. 3) Stefán Þröstur, f. 1956, maki, Ásta Ingv- arsdóttir, þau eru skilin, börn Steindór Hrannar, Theódóra Arndís og Signý. Áð- ur átti Stefán eina dóttur Maríu Ásdísi. Sambýliskona Stefáns er Sólveig Róarsdóttir. 4) Haukur, f. 1961, maki Chona Millan. Útför Theódóru verður gerð frá Blönduóskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Þegar ég minnist Dódó ömmu þá hverfur hugur minn á Árbraut 13, þangað sem amma og afi bjuggu. Fyrir mér var Árbrautin hinn eigin- legi Blönduós. Það var alltaf mikið líf og fjör í þessu stóra húsi og alltaf gott að koma til þeirra. Húsið sem þau bjuggu í var voða- lega stórt í huga lítillar manneskju, og er minningin þaðan alltaf ljúf, hús- ið hafði marga kvisti, geymslur, skot og fullt, fullt af herbergjum. Sérstak- lega var skemmtilegt að skoða og gramsa í öllum dótinu sem þar var. Ég og Dódó frænka mín áttum okkar herbergi til að leika okkur í og þar var mikið brallað, alls konar leikir og ýmis uppátæki sem við fundum upp á að gera. Amma átti alltaf til nóg af bakkelsi, og var það allt geymt í búrinu. Stalst maður oft og iðulega í kökurnar sem amma bakaði þegar hún sá ekki til. Ég man hvað Tjörva bróður mínum fannst kökurnar hennar ömmu góð- ar, og það voru ófá skiptin sem komið var að honum með bók í hönd maul- andi smákökur. Amma var aldrei iðjulaus og sat hún oft og iðulega í gula stólnum í horninu í stofunni á Árbrautinni og prjónaði lopapeysur. Ég man hvað ég sat stolt og horfði á ömmu vinna, og stoltið varð enn meira þegar ég fékk mína eigin lopapeysu sem amma hafði prjónað. Amma vann í versluninni Fróða, sem seinna hlaut nafnið Ósbær, versl- un sem verslaði með nýlenduvörur, hannyrðir og húsgögn og þetta var flottasta búðin á landinu. Mér og Dódó frænku fannst ekkert leiðinlegt að koma þangað og leika okkur í al- vöru búðarleik. Við fengum nú stund- um að hjálpa ömmu að afgreiða og í laun fengum við litla gjöf frá ömmu sem var stundum góðgæti eða ein- hvers konar hannyrðadót. En þó að við börnin hefðum mikið frelsi til að athafna okkur var alltaf alveg skýrt hvar mörkin voru, og þurfti ekki að orðlengja það frekar. Niður að Blöndu máttum við t.d. ekki fara, okkur var strax kennt að bera virðingu fyrir henni. Það var alveg skýrt að hún var ekki leikvöllur. Það hefur oft verið líf og fjör á Ár- brautinni þó sérstaklega þegar pabbi og bræður hans voru litlir, en sagan segir að þeir hafi verið athafnasamir og fjörugir og til eru margar sögur af uppátækjum þeirra. Bóndakona úr sveitinni sagði mér sögu sem lýsir vel erlinum sem gat fylgt því að ala upp fjóra kraftmikla stráka. Þannig var að þessi ágæta kona þurfti einhverra hluta vegna að leita læknis á Héraðshælinu. Þegar hún kemur á biðstofuna er amma að koma þar út með einn strákinn sinn, allan plástraðan og vafðan. Þegar svo þessi kona var skömmu síðar að koma af biðstofunni mætti hún ömmu á tröppunum með annan strák sem líka var alblóðugur og hafði fengið vænt gat á hausinn. Sagan segir svo að þegar amma fór frá lækninum í seinna skiptið hafi hann spurt hvort hún ætti fleiri stráka heima. Árið 1991 lenti amma í bílslysi og í minningunni var hún aldrei söm eftir það. Fleiri áföllum mætti hún síðar og virtist hún bara taka hlutunum eins og þeir komu fyrir, aldrei heyrðist hún kvarta, aldrei neitt að hjá henni. Vildi bara vita hvernig fjölskyldan hefði það og hvað við værum að gera. Síðustu þrjú árin dvaldi hún á Heil- brigðisstofnuninni á Blönduósi, þá var gott að vita af afa í Hnitbjörgum, þar sem hann gat fylgst með ömmu. Hann heimsótti hana daglega, þau fóru oft í bíltúra, gjarnan út á Skaga- strönd þar sem þau byrjuðu sinn bú- skap eða fóru bara heim í Hnitbjörg. Þegar ég var yngri skoðaði ég oft skartgripaskrínið hennar ömmu. Þar sá ég fallegan hring sem mig langaði í og spurði ömmu hvort ég mætti eiga hann. Hún sagði að ég ætti að fá hann að gjöf þegar ég gifti mig og þegar ég gifti mig var mér færður þessi hring- ur. Þetta var fyrsti hringurinn sem afi gaf ömmu og þótt amma hafi ekki komist í brúðkaupið mitt vegna veik- inda þá var hún með mér í anda á þeirri stundu. Mun þessi hringur, sem ég ber á hægri hendi, alltaf minna mig á Dódó ömmu. Elsku amma, takk fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt saman, Minningu þína mun ég geyma í hjarta mér. Hvíl þú í friði, þín sonardóttir Arndís Berndsen. Í dag kveð ég tengdamóður mína Theódóru Arndísi Berndsen. Hún var óska-tengdamóðir í öllum skilningi þess orðs. Alltaf tilbúin til að leiðbeina og kenna ef svo bar undir. Syni mínum tók hún eins og eigin barnabarni þegar ég kom með hann ársgamlan í fjölskylduna og voru þau mjög náin frá fyrstu tíð og sóttist Steindór eftir að fara til ömmu og afa. Eins gerðu dætur mínar það, Dódó litla eins og hún var kölluð þá og Signý. Það var mikið sport að fara til þeirra og fá að gista eða fara og borða hjá ömmu. Elsku Dódó, ég þakka þér fyrir allt á þessum 32 árum sem við vorum samferða. Knúti, Jóni, Gunnbirni, Stefáni, Hauk og þeirra fjölskyldum votta ég samúð mína. Ásta Ingvarsdóttir. Húnabyggð þinn hróður gjalli heill í skaut þér jafnan falli búi sæld um bændalönd. Blanda meðan sjávar leitar Eygló sendi öldur heitar, yfir dali fjörð og strönd. Yrki máttug húnvetnsk hönd haga fríðrar ættar sveitar. Sé ég hátt af sefans tindi sólu roðið Húnastrindi lyfta fjöllin höfði hátt, hlúa blítt að frjóvgum dölum, liðast ár á blómgum bölum, blikar haf í norðurátt, spegla vatnadjúpin dátt dýra mynd af loftsins sölum. (Páll V.G. Kolka.) Þetta ljóð kom mér í hug þegar mér barst andlátsfregn Dódó, eins og hún var ávallt kölluð, ein af mætustu konum sem Húnabyggð hefur alið. Margs er að minnast á kveðjustund eftir fjörutíu ára samleið, ofar öllu sú mikla hlýja, kærleikur og umhyggja til fjölmörgu sem áttu stað á heimili þeirra Dódó og Knúts um lengri eða skemmri tíma. Halldór, eiginmaður minn, bjó á Árbrautinni hjá þeim um tíma. Þar urðu til traust og góð kynni, ómetanlegt ungu fólki sem er að leggja upp í lífsgönguna. Heimili þeirra var okkur alla tíð opið, þar var veitt af rausn, bæði veitingar og holl ráð. Heimilið var einstakt, allir vel- komnir, oft fleiri við matarborðið en reiknað var með. Knútur tók oftsinnis einhvern heim í mat og kaffi, vissi sem var að Dódó hans átti nóg að veita, þau hjón, ávallt samhent að gleðja og styðja. Eitt sinn þegar við komum norður vaknaði heimilisfólk við að tjald var í garðinum og von á gestum. Knútur hafði hitt útlendinga á ferð sem vantaði tjaldstæði og að sjálfsögðu bauð hann þeim heim, ann- að kom ekki til greina, góð kynning fyrirland og þjóð. Dódó hugsaði vel um strákana sína, svo komu tengda- dætur og mikil var gleðin þegar Tjörvi fyrsta barnabarnið fæddist og þegar þau urðu fleiri er eftirminni- legt hve þau áttu mikið rúm í huga og hjarta ömmu og afa á Árbrautinni. Þegar kom að brúðkaupi okkar voru Dódó og Knútur sjálfsögð við hlið okkar, hann svaramaður Halldórs og hún bakhjarl eins og ætíð á öllum stundum. Það eru forréttindi að hafa átt sam- leið öll árin. Tíminn líður, aldur knýr á og heilsan dvín. Þá breyttust hagir, húsið á Árbrautinni selt og þau hjón fluttu í Hnitbjörg, íbúðir aldraðra á Blönduósi, eins og ætíð opinn faðmur og hlýr hugur, sagðar fréttir úr Húnabyggð á bökkum Blöndu. Þeim var umhugað um að allt færi þar á besta veg. Önnur tenging var við þau hjón, Stefán sonur þeirra varð sum- arvikadrengur í sveitinni hjá tengda- foreldrum mínum og varð sem einn af strákunum í fjölskyldunni. Þegar hugsað og horft er yfir farinn veg hafa Dódó og Knútur alla tíð verið okkur nálæg í gleði og sorg og öllu sem við höfum tekið okkur fyrir hendur, leiðarljós í orði og verki. Við eigum Dódó mikið að þakka, engin orð ná yfir það sem við geymum með okkur sem þekktum hana, áttum samleið og lærðum af henni. Blessuð sé minning hennar. Einlægar samúð- arkveðjur til Knúts, fjölskyldu og allra ástvina frá okkur Halldóri. Ó, hve sælt á æfi sinnar vegi eiga vinarhjarta gott og traust þar sem hælis og synjað er þér eigi er annað bregzt og harmur sár og tregi bugar þig, sem hreggið blóm og haust. (Hannes Blöndal.) Guðrún Jónsdóttir. Theódóra Arndís Berndsen síðustu hekluðu rósinni sinni í værð-arvoð. Næsta dag fékk hún friðsælt and- lát í faðmi barna sinna. Við biðjum góðan Guð að styrkja þau Hörpu, Magneu og Garðar. Þau hafa þurft að ganga mikla þrauta- göngu, söknuður þeirra og hryggð er djúp og sár. En þau eiga ein- stakan stuðning maka sinna, kær- leika þeirra og óeigingirni og bless- uð mannvænlegu börnin þeirra eru mikil smyrsl á sárin. Drottinn mun leiða þau gegnum hinn dimma dal mót ljósi Krists. Við þökkum elsku Lilju af hjarta fyrir samfylgdina á lífsleiðinni og trúum því heilshugar að hún sé nú í kærleiksríkum faðmi Guðs föður. „Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið.“ (Opinberun Jóhannesar 21. kafli.) Rannveig Sigurbjörnsdóttir, Bernharður Guðmundsson. Með örfáum orðum langar mig að minnast Lilju frænku. Lilja var ein- stök kona, ég féll undir hennar verndarvæng þegar ég fluttist til Reykjavíkur til að klára grunnskól- ann. Fyrstu mánuði þess vetrar bjó ég hjá Árna og Lilju. Síðan þá hef ég alltaf átt minn stað í Sporða- grunni og alltaf tók Lilja vel á móti mér, oftast með orðunum: „Ó, ertu nú loksins komin.“ Ég var alltaf svo hjartanlega velkomin, leið alla tíð eins og heima þegar ég var hjá þeim. Margar stundir höfum við set- ið við eldhúsborðið í Sporðagrunn og rætt um heima og geima. Lilja var þannig að hún gaf sér alltaf tíma til að hlusta og spjalla, á unglingsár- unum var gott að geta talað við Lilju og enn betra varð það eftir því sem ég eltist. Við töluðum um sorgina, ástina og allt þar á milli. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Lilju eins og ég gerði, sem frænku, en fyrst og fremst sem góðri vinkonu. Í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið, og svo varð nótt. Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt, þeim svefni enginn rænir þig. En samt var nafn þitt nálægt mér og nóttin full af söngvaklið svo oft, og þetta auða svið bar ætíð svip af þér. Og þungur gnýr sem hrynji höf mitt hjarta lýstur enn eitt sinn: Mín hljóða sorg og hlátur þinn, sem hlutu sömu gröf. (Steinn Steinarr) Elsku Harpa, Magga og Garðar. Ég vil biðja Guð að styrkja ykkur og fjölskyldur ykkar á þessum erfiðu tímum. Alda Hlín. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (M. Joch.) Þessi fallega bæn hljómaði úr geislaspilaranum mínum þegar mér var tilkynnt andlát hennar Lilju. Ég hafði beðið tíðindanna um hríð, en samt var ég alveg óviðbúin fregn- inni. Veikindastríð hennar var stutt og erfitt var að ímynda sér hve al- varlega veik hún var. Styrkur Lilju var aðdáunarverður. Það kom vel í ljós í langvinnum veikindum Árna Bergs, þar sem hún gekk hvert ein- asta skref með honum í þrauta- göngu hans. Missir hennar var mik- ill þegar hann dó þann 17. september fyrir rúmu ári. Og við héldum áfram að dást að henni í sorgarferlinu. Fjórum mánuðum eftir andlát Árna Bergs, eða þann 24. janúar árið 2006, á afmælisdegi hans, bauð hún til veislu eins og hann hefði viljað hafa hana. Hún safnaði föngum út um allan bæ og þetta var veglegasta þorraveisla sem ég hef komið í. Engan gat órað fyrir því það kvöld, að við ættum eftir að kveðja hana réttu ári síðar. Það er óskiljanlegt. Þau Árni og Lilja mörkuðu spor í lífi mínu sem ég er óumræðilega þakklát fyrir. Tómarúmið er nánast áþreifan- legt. Ég bið Guð að blessa ykkur, elsku Harpa, Magga, Gæi og allt ykkar yndislega fólk í sorg ykkar og söknuði. Ferðin virðist óralöng, ég bið Guð að bera ykkur á örmum sín- um. Guð geymi hana Lilju og ykkur öll. Rannveig Eva Karlsdóttir. Lilja Garðarsdóttir  Fleiri minningargreinar um Lilju Garðarsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Hafþór og Lilja; G. Sigríður Ágústsdóttir; Birgir Arnar – Kveðja frá Ássöfnuði. ✝ Eiginkona mín, móðir okkar, amma og langamma, HILDUR HALLDÓRSDÓTTIR, Hlíðarvegi 65, Kópavogi, verður jarðsungin frá Digraneskirkju mánudaginn 5. febrúar kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afbeðnir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabba- meinsfélag Íslands. Runólfur Þórðarson, Sigrún Halla Runólfsdóttir, Þórunn Inga Runólfsdóttir, Alfreð Ómar Ísaksson, Ásdís Hildur Runólfsdóttir, Þórður Runólfsson, Anna Sigrúnardóttir, Hildur Elsa Rósantsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Elsku amma okkar, GUÐLAUG MARKÚSDÓTTIR, Klapparstíg 9, Reykjavík, lést á Vífilsstaðaspítala að kvöldi miðvikudagsins 31. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Birna Sigþórsdóttir, Bylgja B. Sigþórsdóttir, Sigurður M. Sigþórsson. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, RANNVEIG KRISTJANA JÓNSDÓTTIR, Roðasölum 1, lést á Landspítala í Fossvogi að morgni þriðju- dagsins 30. janúar. Útför hennar verður gerð frá Digraneskirkju föstudaginn 9. febrúar kl. 13:00. Bára Sólmundsdóttir, Helgi Ingvarsson, Anna Sólmundsdóttir, Geir Geirsson, Einar Sólmundsson, Svanhvít Einarsdóttir, Jóna Sólmundsdóttir, Einar Baldvin Sveinsson, Halldór Jónsson, Kristjana Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.