Morgunblaðið - 02.02.2007, Síða 41

Morgunblaðið - 02.02.2007, Síða 41
ir því sjálf en mér er sagt að þegar ég var sex ára hafi ég neitað að leyfa Helgu að keyra mig í skólann, enda með eindæmum þrjósk. En hún Helga var þrjóskari en ég og ekki á þeim buxunum að láta þetta eftir mér, enda veðrið mjög slæmt og mín mamma í vinnunni, inn í bílinn hjá henni skyldi ég fara og í skólann. Það þurfti ekki meira fyrir Helgu til að komast í gegnum þrjóskuna í mér og eftir þetta varð hún mikil vinkona mín. Síðastliðin sjö ár hef ég búið er- lendis og einn af föstu liðunum þegar ég kom heim í frí var að heimsækja Helgu. Hún vissi líka hvað mér þóttu vestfirsku hveitikökurnar góðar og átti það oft til að mæta með sendingu handa mér þegar ég var á Íslandi. Mikið þykir mér vænt um að ég skyldi hafa farið til hennar tvisvar í jólafríinu mínu og geta kvatt hana þremur dögum fyrir andlátið. Þó hún hafi verið orðin þetta mikið veik átti ég ekki von á símtali svona fljótt til að tilkynna mér að hún væri búin að fá hvíldina. Hugur minn er hjá Arnóri, Guð- rúnu, Þorsteini og Guðbjörgu sem nú þurfa að takast á við sorgina og það sem framundan er. Guð geymi þig, elsku Helga mín, og takk fyrir allt. Þín verður sárt saknað. Kristveig. Í mörg ár var ég svekkt út í Helgu. Ég velti því fyrir mér af hverju hún hefði ekki átt þriðja barnið á mínum aldri. Guðrún og Þorsteinn eru jafnaldrar systkina minna og vinir frá leikskólaaldri. Á þessum yngri árum voru þau systk- ini heimalningar á mínu heimili og við á þeirra. Dag nokkurn ræddi ég við Helgu um þetta óréttlæti gagn- vart mér, hvers átti ég að gjalda, ör- verpið í Dúfnahólum 6. Helga var ávallt með svörin á hreinu og svar- aði: „Ásta mín, ég skal vera vinkona þín.“ Upp frá því mætti ég í „kaffi“ til Helgu vinkonu eftir leikskóla og síðar grunnskóla. Við sátum í eld- húsinu og spjölluðum og spiluðum tímunum saman. Hún var sennilega besta vinkona mín á þessum árum því mig vantaði jafnaldra til að leika við. Enn þann dag í dag hugsa ég til hennar þegar ég spila blindra spil, ólsen ólsen eða veiðimann. Vináttan milli Guðrúnar og Þorsteins og systkina minna hefur haldist öll þessi ár og ég hef fengið að njóta hennar líka. Foreldrar okkar voru einnig góðir vinir og þó að samgang- ur hafi minnkað þegar fjölskyldan Dúfnahólum 2 flutti úr hverfinu eru tengslin alltaf til staðar. Ég var mjög ung þegar Helga veiktist, ég vissi bara að hún þyrfti að vera heima- vinnandi húsmóðir sem mér fannst skemmtilegasta og mest heillandi starf í heimi, ekki hafði mamma mín tíma til að spila við mig á daginn, hún var útivinnandi, ekki eins spennandi. Með árunum fór ég að skilja veikindi hennar og þann baráttukarakter sem hún hafði að geyma. Mamma sagði mér stundum frá Helgu og hæfileikum hennar sem altmulig- konu, fyrir og eftir að veikindin komu til sögunnar. Ég veit að hún komst þetta langt á þrjóskunni, bar- áttuviljanum og ekki síst lunderni sínu, ég man ekki eftir henni öðru- vísi en brosandi og hlæjandi. Ég veit að nýliðið ár var mjög erfitt hjá ykk- ur og ég hugsaði mikið til ykkar á meðan ég var úti. Ég er mjög þakk- lát fyrir að hafa fengið að hitta Helgu aftur fyrir aðeins tveimur vik- um og kveð vinkonu mína með þess- um orðum. Ég veit að þú ert tilbúin ég veit að búkurinn er flúinn og fögur sálin lúin. Þú veist að hliðin eru opin í hálfa gátt þú veist hvenær þú hefur ei mátt til að þrauka lengur og ferð sátt. Hann veit að von er á þér. Hann veit hvar nýja samastað þinn má setja „og það er hér hjá Mér á himnum meðal hetja“. Ég vona að þið hjálpist að við að hugsa vel um hvort annað, kæru Arnór, Guðrún Ósk og Þorsteinn stóri brósi. Ykkar Ásta. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 41 ✝ Bjarney Hall-dóra Alexand- ersdóttir fæddist á Dynjanda í Leir- ufirði í Grunnavík- urhreppi hinn 18. mars 1921. Hún lést á elliheimilinu Grund hinn 21. jan- úar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjón á Dynj- anda, þau Alexand- er Einarsson, f. 5. ágúst 1891 d. 30. nóv. 1964 og Jóna Sigríður Bjarnadóttir, f. 10. apríl 1894, d. 15. mars 1975. Systkini Bjarneyjar eru Bjarni Þórarinn, f. 1914, d. 1998, Kristín Sigríður Daðína, f. 1917, d. 2003, Einar Jóhann, f. 1924, d. 1998; Jóhanna Engilráð, f. 1925; Einhildur, f. 1929; Benedikt Kristján, f. 1931; Guðjóna, f. 1933; og Dóra Páls, f. 1933, d. 1939. Alexander var maður fróður um orðnotkun um gamla búskaparhætti og hefðir og kom fram í nokkrum útvarps- þáttum þar sem fjallað var um búskaparhætti liðins tíma. Alex- ander og Jóna bjuggu lengst af í Grunnavík en fluttust síðar til Ísafjarðar. Bjarney giftist árið 1943 Sig- valda Hjálmarssyni rithöfundi og forseta Guðspeki- félagsins, f. 6. októ- ber 1921, d. 17. apríl 1985. For- eldrar hans voru Hjálmar Jónsson, f. 1876, d. 1943, og Ólöf Sigvaldadóttir, f. 1888, d. 1925, bú- sett á Skeggstöðum í Skagafirði. Dóttir Bjarneyjar og Sigvalda er Ólöf Elfa Sigvaldadóttir, gift Jóni Agli Unn- dórssyni verkfræð- ingi. Börn þeirra eru Unndór Egill, nemi í Listaháskóla Ís- lands, f. 1978, Sara Bjarney, læknanemi í Óðinsvéum, f. 1980 og Hjálmar Melstað, nemi í Iðn- skólanum í Reykjavík, f. 1986. Fyrir átti Ólöf þau: Þórdísi Nad- íru Jónsdóttur læknaritara, f. 1971, sambýlismaður Bjarki Unn- ar Kristjánsson, synir Máni, f. 2005 og Sigvaldi Hjálmar Al- bertsson, f. 1993 og Sigvalda Jón Kárason kvikmyndaframleið- anda, f. 1973, sambýliskona Mar- grét Ólafsdóttir, börn þeirra eru Tindur Tor, f. 2003 og Elísa, f. 2006. Útför Bjarneyjar verður gerð frá Langholtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Ég kom fyrst inn á heimili Bjarn- eyjar árið 1974 þegar ég kynntist einkadóttur hennar. Bjarney kom mér þá strax fyrir sjónir sem ákaf- lega smekkleg kona, hvort sem litið var til klæðaburðar hennar og fram- komu, matreiðslu eða heimilisins í heild, sem var hennar vinnustaður og hún réði ríkjum. Öllu var hagan- lega fyrirkomið á heimilinu og aldrei boðið upp á kaffi öðru vísi en fram væri boðið ríkulegt meðlæti og gjarnan margar sortir. Hún var einkar glaðvær og kurteis og milli hennar og eiginmanns hennar ríkti bæði virðing og kærleikur. Gesta- gangur var mikill á heimilinu, enda var þar m.a. rekinn hugræktarskóli og þau hjónin samstíga í að annast vel gesti sína. Þau hjón voru mjóg ólíkir einstak- lingar og áhugamálin mismunandi. Sigvaldi var þekktur fyrir sínar guðspekilegu esóterísku pælingar og hugleiðslu en Bjarney var með öllu veraldlegri áhugamál. Hún fékkst við hannyrðir, sérstaklega á sínum yngri árum og hafði m.a. gam- an af söng og dansi. Einnig hafði hún gaman af að skrifa stuttar sögur sem hún las upp fyrir valinn áheyrenda- hóp. Þrátt fyrir að þau hjón væru mjög ólík þá gátu þau vel umborið hvort annað og t.a.m. hélt hún sinni kristnu trú enda þótt Sigvaldi væri ekki kristinn. Það var áberandi að hún bar mikla virðingu fyrir áhuga- málum Sigvalda og tók þátt í mörgu sem voru fyrst og fremst hans áhugamál. Hún fór á fundi í Guð- spekifélaginu sem hann veitti for- stöðu til margra ára og hún ferðaðist með honum þrívegis alla leið til Ind- lands, en þangað þurfti hann að fara til að sækja fundi heimssamtaka guðspekifélaga í Adiar í Madras og jafnframt sækja fræðslu og þjálfun í jógafræðum en aðalleiðbeinandi hans var háandlegur indverskur maður sem m.a. gegndi stöðu vara- rektors Háskólans í Madras. Þrátt fyrir að hún væri mjög flughrædd og ferðamátinn væri þar af leiðandi að- allega siglingar og lestar þá fór hún með manni sínum og veitti honum félagsskap á löngum ferðalögum. Bjarney átti við veikindi að stríða síðustu tvo áratugi ævi sinnar. Eftir lát eiginmanns hennar bjó hún ein með Þórdísi dótturdóttur sinni í rúman áratug. Þegar veikindi henn- ar ágerðust flutist hún á heimili dóttur sinnar og tengdasonar en síð- ustu fjögur ár var hún vistmaður á elliheimilinu Grund. Hún þótt þar afar skapgóð og auðveld í umgengni og er hennar nú sárt saknað af þeim sem hana þekktu og áttu við hana samskipti. Guð blessi minningu Bjarneyjar Halldóru Alexand- ersdóttur. Jón Egill Unndórsson. Frænka mín og vinkona Bjarney H. Alexandersdóttir er látin. Hún fæddist í Neðribænum á Dynjanda í Jökulfjörðum og var þriðja í röð níu barna hjónanna Jónu S. Bjarnadótt- ur og Alexanders Einarssonar. Auk þeirra systkina voru frændsystkini hennar átta á sama bænum. Í Fremribænum var líka barnmargt, þar voru þau níu. Það var því engin lognmolla hjá Baddý minni í upp- vextinum. Allur þessi hópur hefur haldið saman eins og systkini og fagnaðarfundir þegar þau hittast. Hún var glæsileg stúlka með afar fallegt rautt hár, og mannkostakona. Hún fór ung að heiman, fór til Reykjavíkur í vistir og vann lengst af á saumastofum, var smekkvís og vandvirk. Þær eru ófáar flíkurnar sem hún saumaði á okkur frænkur. Hún kynntist ungum manni, Sig- valda Hjálmarssyni rithöfundi og blaðamanni frá Skeggsstöðum. Þau giftust 17. júlí 1943. Einkadóttir þeirra er Ólöf Elfa. Þau hófu búskap í Hveragerði þar sem Sigvaldi var kennari í eitt ár. Þau áttu lengst af heimili í Gnoðarvogi 84 í Reykjavík. Baddý og Sigvaldi voru afar sam- hent hjón, ferðuðust mikið og bjuggu um tíma á Indlandi. Það fannst Baddý ævintýri líkast að búa þar, allt með öðru sniði en annars staðar. Það urðu mikil umskipti hjá Baddý þegar maður hennar féll frá, langt um aldur fram. En hún naut Elfu dóttur sinnar og manns hennar Jóns Unndórssonar, og barnabörnin voru yndi hennar og ánægja. Við áttum saman góðar og glaðar stundir allt frá æskuárum til þessa dags. Ég þakka henni þær allar og bið henni Guðs blessunar. Baddý mín varð fyrir heilsutapi og hvarf frá okkur smátt og smátt. Hún bjó áfram í Gnoðarvoginum hjá dóttur sinni í nokkur ár, en að lokum á Grund. Þar leið henni eins vel og unnt var. Hún var alla tíð létt í lund og hélt því þótt á móti blési. Þakk- læti var efst í huga hennar til hinstu stundar til hjúkrunarfólksins sem annaðist hana. Hún bað Guð að blessa það allt. Kærar þakkir til þeirra sem önnuðust hana og léttu henni lífið. Ég kveð frænku mína með gamla versinu, sem Jóhanna Einarsdóttir frá Horni, langamma okkar beggja kenndi börnum sínum og barnabörn- um á Dynjanda og hefur gengið til niðja hennar: Jesú mér ljúfur lýsi leið þú mig Jesú kær Jesú mér veginn vísi vertu mér Jesú kær. Hafðu mig Jesú hýri handanna á milli þín Jesú mér stjórni og stýri stoð Jesú vertu mín. (Höf. ók.) Hjartanlegar samúðarkveðjur til Elfu og fjölskyldu. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Briem) Steinunn M. Guðmundsdóttir. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Mig langar að minnast á elskulegu ömmu mína með fáeinum orðum. Ég ólst upp að mestu hjá þér og afa. Ég var 13 ára þegar elsku afi dó og eftir það vorum við tvær þangað til Sig- valdi Hjálmar sonur minn fæddist. Þú varst mér alltaf kær og góð og honum Sigvalda mínum sem steig sín fyrstu spor hjá þér, amma mín. Þú kenndir mér margt og sagðir mér margar og skemmtilegar sögur frá því í gamla daga, sem ég bý enn að í dag. Við áttum svo ótrúlega margar og góðar stundir saman við spil og leiki. En nú eruð þið afi komin sam- an á ný. Láttu guðs hönd þig leiða hér, lífsreglu halt þá bestu: Blessuð hans orð sem boðast þér, í brjósti og hjarta festu. (Hallgrímur Pétursson) Elsku amma mín, hafðu hjartans þökk fyrir allt og allt. Hinsta kveðja, Nadira, Bjarki Unnar, Sigvaldi Hjálmar og Máni. Bjarney Halldóra Alexandersdóttir ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hjálp við andlát og útför okkar elskulega GUÐMUNDAR EIÐS GUÐMUNDSSONAR, Skólatúni 4, Álftanesi. Sérstakar þakkir til séra Friðriks Hjartar fyrir þann stuðning og vináttu sem hann hefur veitt okkur. Guð blessi ykkur. Ásta Angela Grímsdóttir, Guðmundur Viggó Sverrisson, Matthildur Ólöf Guðmundsdóttir, Andrés Skúli Pétursson, Fanney Elínrós Guðmundsdóttir, Gunnar Ellertsson, Pálmi Grímur Guðmundsson, Bjarney Katrín Gunnarsdóttir og frændsystkini hins látna. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elsku- legs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, SIGURÐAR JÓNSSONAR, Hólmagrund 2, Sauðárkróki. Innilegar þakkir til þeirra sem studdu hann og hjálpuðu í veikindum hans. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar I á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki fyrir góða umönnun og hlýju. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sigurlaug Rakel Rafnsdóttir. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar JÓHANNS PÁLMASONAR, Framnesvegi 26b, Reykjavík. Innilegar þakkir til allra þeirra sem veitt hafa okkur ómetanlegan stuðning. Guð blessi ykkur öll. Ragnheiður Gísladóttir og fjölskylda. ✝ Hjartkær frænka okkar, DÝRFINNA TÓMASDÓTTIR, áður Gautlandi 1, Reykjavík, verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn 5. febrúar nk. kl. 13:00. Blóm vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð augn- deildar Landspítalans í síma 543 1159. F.h. annarra aðstandenda, Ólafía S. Hansdóttir, Hreiðar Sigurbjarnason, Lára G. Hansdóttir, Guðmundur V. Sigurbjarnason, Dýrfinna P. Hansdóttir, Sigurður T. Sigurbjarnason, Hafsteinn Sigurbjarnason, Guðrún Erla Sigurbjarnadóttir, Sigríður Sigurjónsdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.