Morgunblaðið - 02.02.2007, Page 56
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 33. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
SA 10–15 m/s,
fer að rigna um
hádegi, fyrst SV
til. Mun hægari S-
átt og þurrt í öðrum lands-
hlutum fram eftir degi. » 8
Heitast Kaldast
7°C 0°C
HLJÓMSVEITIN Sigur Rós hefur
boðað til mótmælatónleika vegna
framkvæmda við tengibraut úr
Helgafellshverfi í Mosfellsbæ.
Sveitin á hljóðver á svæðinu og
Orri Páll Dýrason, trommuleikari
sveitarinnar, segir ljóst að ef af
framkvæmdum verður verði þeir
að flytja hljóðverið. „Við getum
ekki unnið þarna ef þessi vegur
kemur. Það er gert ráð fyrir 50
desibela hljóðmengun allan daginn.
Við fluttum þangað út af rónni, og
það yrði engin ró ef vegurinn
kæmi.“
Sigrún Pálsdóttir, gjaldkeri
Varmársamtakanna, segir að lögð
hafi verið inn kæra vegna fram-
kvæmdanna til úrskurðar- og
skipulagsnefndar.
Tónleikar Sigur Rósar fara fram
í Verinu hinn 18. febrúar. | 6, 18
Morgunblaðið/Golli
Sigur Rós
heldur
mótmæla-
tónleika
EINKUNNIR í samræmdum próf-
um í 4. og 7. bekk grunnskóla eru
svipaðar í ár og síðastliðin ár en
meðaltalseinkunnin er 6,7 hjá báð-
um bekkjum.
Þegar árangur kynja er skoð-
aður kemur í ljós að munur á
frammistöðu kynjanna er mjög
sambærilegur við síðastliðin ár,
stúlkum í vil. Í 4. bekk eru 28%
stúlkna með háa einkunn í íslensku
en einungis tæp 19% drengja, að því
er segir í vefriti menntamálaráðu-
neytisins. Meiri munur er á kynj-
unum í 7. bekk, eða við 13 ára ald-
ur. 28,6% stúlkna raða sér í flokk
nemenda með háa einkunn í ís-
lensku en 15,8% stráka.
Svipaðar
einkunnir
VINIR hins landskunna vélhjóla-
manns Heiðars Jóhannssonar frá
Akureyri hafa ákveðið að koma á
fót safni með vélhjólum til minn-
ingar um hann. Það verður hugs-
anlega á safnasvæðinu við Krókeyri
á Akureyri.
Heiðar, sem lést í umferðarslysi í
fyrrasumar, 52 ára að aldri, safnaði
vélhjólum og átti hátt í 30 slík þegar
hann lést – sum mikla dýrgripi, að
sögn bróður hans.
„Þetta er gamall draumur Heið-
ars. Hann vildi ólmur koma upp
svona safni og var farinn að leita að
húsnæði áður en hann dó,“ segir
bróðir hans, Jón Dan Jóhannsson, í
samtali við Morgunblaðið í dag. | 20
Safn í minn-
ingu Heiðars
á Akureyri
UMFANGSMIKLU eftirliti verður
komið á fót sem á að tryggja sem
kostur er að aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar til lækkunar á matvælaverði
1. mars skili sér í vasa neytenda.
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
kynnti í gær samkomulag við Al-
þýðusamband Íslands, Neytenda-
samtökin og Neytendastofu um eft-
irfylgni þessara aðila með
aðgerðunum á matvörumarkaði.
Jafnframt hvetja ráðuneytið og
samtökin almenning til að fylgjast
mjög vel með verðlagi á vörum og
þjónustu og að láta vita ef óeðlilegar
verðbreytingar eiga sér stað.
ASÍ vinnur að víðtækari verð-
mælingum en samtökin hafa nokkru
sinni áður ráðist í og taka verðkann-
anir ASÍ til yfir 90 matvöruversl-
ana. Neytendastofa hefur opnað
sérstaka vefgátt á heimasíðu þar
sem neytendur geta sent inn nafn-
lausar verðlagsábendingar og Neyt-
endasamtökin safna upplýsingum
og birta á vefsíðu sinni. Jóhannes
Gunnarsson, formaður samtakanna,
segist ekki hafa tölu yfir þann fjölda
erinda og ábendinga sem borist hafi
frá almenningi um verðbreytingar
eftir að samtökin birtu lista yfir
birgja matvöruverslana sem hafa
hækkað verð að undanförnu.
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
sagði í gær að verðlagseftirlit alls
almennings væri það verðlagseftirlit
sem langmestu máli skipti.
Saka Samkeppniseftirlitið um
að hvetja til njósnastarfsemi
Samkeppniseftirlitið hefur hvatt
fyrirtæki og einstaklinga sem starfa
við framleiðslu, dreifingu eða sölu á
matvörum að senda því ábendingar
um hugsanleg brot á samkeppnis-
lögum og heitir nafnleynd.
Félag íslenskra stórkaupmanna
(FÍS) og Samtök verslunar og þjón-
ustu (SVÞ) gagnrýna Samkeppnis-
eftirlitið harðlega vegna þessa.
„Með því að hvetja jafnvel starfs-
fólk fyrirtækja til að stunda njósna-
starfsemi innan fyrirtækjanna er
verið að innleiða rannsóknaraðferðir
svipaðar þeim sem tíðkast í lög-
regluríkjum,“ segir í yfirlýsingu
FÍS í gær. „Við viljum ekki að slíkar
aðferðir séu viðhafðar á Íslandi og
því mótmælir FÍS því að Sam-
keppniseftirlitið sé að hvetja fólk til
að stunda slíkt.“
SVÞ segjast í yfirlýsingu undrast
mjög málflutning forstjóra Sam-
keppniseftirlitsins varðandi mat-
vörumarkaðinn „og telja að með
honum sé hann að hvetja starfs-
menn í matvöruversluninni til að
bregðast trúnaðarskyldu við at-
vinnuveitendur sína. Eftirlit hins
opinbera sé með því komið út fyrir
þau mörk sem hægt sé að sam-
þykkja.“
Segir ennfremur að SVÞ og aðild-
arfyrirtæki þeirra hafi ætíð verið
samvinnufús við eftirlitsstofnanir
hins opinbera og fyrirtækin hafi
lagt í mikla vinnu og kostnað við að
láta þeim í té hver þau gögn sem
óskað hafi verið eftir. „Það vill
enginn Íslendingur að þjóðfélag
okkar þróist yfir í það gleðilausa
ógnarsamfélag sem finna má dæmi
um í Austur-Evrópu, Afríku og víð-
ar þar sem allir óttast að um þá sé
njósnað, jafnvel af sínum nánustu,
og ávirðingar, ímyndaðar eða raun-
verulegar, verði tilkynntar til yfir-
valda.“ | Miðopna
Hvatt til víðtæks eftirlits
á matvörumarkaðinum
Í HNOTSKURN
» ASÍ gerir verðkannanirbæði fyrir og eftir 1. mars
í yfir 90 fyrirtækjum sem ná
til 6–800 vörutegunda.
» Neytendastofa vill virkjaalmenning til eftirlits og
koma ábendingum á framfæri
á vefgáttinni, „Verðlags-
ábendingar – Láttu vita!“.
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
EINS og vegfarendur við Ána-
naust í Reykjavík hafa tekið eftir
hafa grjóthnullungar og möl bor-
ist upp á land þar sem að öllu
jöfnu er grasbali. Að sögn Hrólfs
Jónssonar, sviðsstjóra fram-
kvæmdasviðs Reykjavíkurborgar,
er um að ræða þann stað í borg-
arlandinu sem er hvað viðkvæm-
astur fyrir stórstraumsflóði í
ákveðinni vindátt.
„Svona flóð verða á um það bil
fimm ára fresti,“ segir Hrólfur.
„Grjótið sem nú er uppi á landi
hefur borist með flóðinu nýverið,
þegar sjórinn berst inn fyrir flóð-
vörnina. Við hjá Reykjavíkurborg
höfum unnið að því að brjóta öld-
una á þessum stað, sem yrði vænt-
anlega gert með því að hækka
sker sem eru þar fyrir utan. Þetta
er þó spurning um kostnað og
hingað til hefur ekki verið talið
nauðsynlegt að ráðast í slíkar
framkvæmdir.“Morgunblaðið/Ásdís
Grjót á
land við
Ánanaust
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
MARGAR nýlega skipulagðar sumarhúsalóðir
fóru undir vatn í flóðunum í Árnessýslu
skömmu fyrir jól og ljóst er að ekki verður
byggt á þeim öllum. Pétur Ingi Haraldsson,
skipulagsstjóri í uppsveitum Árnessýslu, segir
að einhverjar tilfærslur verði á lóðum en ekk-
ert liggi fyrir í því efni fyrr en Orkustofnun
hafi kortlagt útbreiðslu flóðsins.
Eftirsóttar lóðir í uppsveitum Árnessýslu
Mikil ásókn hefur verið í byggingalóðir í upp-
sveitum Árnessýslu. Hilmar Einarsson, bygg-
ingafulltrúi uppsveita Árnessýslu, segir að 774
teikningar hafi verið samþykktar í fyrra og það
sé met.
Í nóvember sem leið tók gildi skipulag 88
sumarhúsalóða á 100 hektara landi úr landi Kíl-
hrauns. Pétur Ingi Haraldsson segir að sumar
þeirra hafi farið undir vatn en einhverjar
þeirra verði samt sem áður í lagi. Búið hafi ver-
ið að selja nokkrar þessara lóða en bygginga-
framkvæmdir hafi ekki verið hafnar þegar
vatnavextirnir urðu. Stór hluti svæðisins hafi
alveg sloppið og nú liggi fyrir tillaga um að
breyta skipulaginu. Hugsanlega detti einhverj-
ar lóðir út, aðrar færist til og í öðrum tilvikum
sé rætt um að gólf bústaða megi ekki fara niður
fyrir ákveðna hæð. Ekkert hafi þó verið ákveð-
ið í þessu efni.
Rétt hjá þessu svæði var búið að skipuleggja
nýtt lögbýli og fór landið að hluta til í kaf.
Sömu sögu er að segja af landi Árhrauns á
Skeiðum, þar sem hugmyndir voru um skipulag
10 til 20 lóða. Þá var nýlega auglýst land fyrir
um 10 lóðir í Grímsnesi og fór það einnig undir
vatn.
Margar nýjar lóðir undir vatn
Morgunblaðið/RAX