Morgunblaðið - 07.02.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.02.2007, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag miðvikudagur 7. 2. 2007 íþróttir mbl.isíþróttir Kristján Örn Sigurðsson bíður eftir nýju tilboði frá Brann >> 2 GULLDROTTNING FIMMTI GULLIÐ HJÁ ÖNJU PÄRSON Á HEIMSMEISTARA- MÓTI Á SKÍÐUM ER HÚN VANN RISASVIG >> 2 Morgunblaðið/ÞÖK Ég skal! Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, leikmaður Gróttu er hörð í horn að taka á línunni og hér fer hún framhjá Ágústu Eddu Björnsdóttur. »3 Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is KEFLVÍKINGAR eiga von á tilboði frá norska úrvalsdeildarliðinu Sandefjord í Jónas Guðna Sævars- son. Jónas Guðni var til reynslu hjá Sandefjord í síðustu viku og lék með liðinu æfingaleik gegn Ham-Kam sem endaði 2:2. Í kjöl- farið settu for- ráðamenn norska liðsins sig í samband við Keflvíkinga þar sem þeir óskuðu eftir viðræðum um kaup á leikmanninum. ,,Mér skilst að tilboð sé á leiðinni og ef það verður spennandi og Kefl- víkingar leyfa mér að fara kemur vel til greina að fara til liðsins. Ég veit hvað þjálfarinn er að hugsa. Það er spennandi uppbygging í gangi hjá félaginu og nýr völlur í smíðum. Mér gekk mjög vel í æf- ingaleiknum sem ég spilaði með lið- inu. Ég lék í 70 mínútur í stöðu hægri bakvarðar og þegar ég kom út af sagði þjálfarinn að hann væri búinn að sjá nóg og væri ánægður,“ sagði Jónas Guðni við Morg- unblaðið í gær. Jónas, sem er 24 ára gamall, er samningsbundinn Keflavíkurliðinu út tímabilið 2008 en hann hefur ver- ið lykilmaður í Suðurnesjaliðinu undanfarin ár. Hann lék alla 18 leiki liðsins í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar og var í fyrsta skipti valinn í A-landsliðið en hann sat á bekknum í leik Íslendinga og Svía í undankeppni EM sem fram fór á Laugardalsvellinum í október. Tilboð frá Sandefjord í Jónas Guðna væntanlegt Jónas Guðni LÍKLEGT er talið að ítalskir knatt- spyrnumenn hefji leik á ný á sunnu- daginn, en eftir ólæti á knatt- spyrnuvelli á föstudaginn, þar sem lögregluþjónn lést, tók íþrótta- málaráðherra landsins þá ákvörðun að fresta öllum leikjum, meðal ann- ars æfingaleik landsliðsins sem fram átti að fara í dag. Luca Pancalli, formaður ítalska knattspyrnusambandsins, sagði í gær að líklega hæfist keppni á nýj- an leik um helgina, en sambandið hefur fundað stíft síðustu daga. Ítalir byrja á nýjan leik Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is ,,Ég ætla að reyna kortleggja Spán- verjana og sjá hvað þeir eru að gera og hvernig þeir leggja upp með sinn leik. Mér sýnist að þetta sé það lið sem við komum til með að mæta,“ sagði Eyjólfur við Morgunblaðið. Spánverjar mæta til leiks á Old Trafford með sína sterkustu sveit og er Fernando Torres, framherji Atle- tico Madrid, aftur kominn í hópinn en líkt og í síðustu leikjum er ekkert pláss fyrir gulldrenginn Raúl hjá Real Madrid. Hópur valinn í mars Eyjólfur reiknar með að velja landsliðshópinn fyrir Spánarleikinn upp úr miðjum mars en fram að því ætlar að hann skoða leikmenn hér heima eins og hann hefur gert í æf- ingaleikjum liðanna og Reykjavíkur- mótinu og í deildabikarkeppninni sem fer senn að stað og þá hyggst hann skoða hluta þeirra leikmanna sem spila erlendis. Landsliðið kemur saman á Spáni laugardaginn 25. mars en þann sama dag taka Spánverjar á móti Dönum í undankeppninni í Madríd og þar ætl- ar Eyjólfur að vera og kortleggja Spánverjanna enn frekar. Hefði kosið að fá æfingaleiki Eyjólfur segir það hefði verið heppilegra að fá undirbúningsleiki fyrir leikinn gegn Spánverjum en ekki tókst að útvega leik fyrir lands- liðið á alþjóðlegum leikdegi sem er til að mynda í kvöld. ,,Við hefðum þurft að fá nokkra leiki. Það er ýmislegt sem maður vill prófa því það er erfitt að þreifa sig áfram í alvöruleikjum en því miður er þetta svona og ekkert við því að gera,“ sagði Eyjólfur. Eyjólfur skoðar Spán- verjana á Old Trafford EYJÓLFUR Sverrisson, þjálfari karlandsliðsins í knattspyrnu, verður á meðal áhorfenda á leik Englendinga og Spánverja sem háður verður á Old Trafford í Manchester í kvöld en Spánverjar eru næstu mótherjar Íslend- inga í undankeppni Evrópumótsins. Þjóðirnar mætast á sólareyjunni Mal- lorca miðvikudaginn 28. mars og þar ætla Íslendingar að freista þess að fá stig en eftir góðan útisigur á N-Írum í fyrsta leik sínum í undankeppninni töpuðu Íslendingar fyrir Dönum, Lettum og Svíum og hafa 3 stig eins og Spánverjar sem hafa leikið einum leik færra. Liechtensteinbúar sitja hins vegar á botninum án stiga. Yf ir l i t                                 ! " # $ %           &         '() * +,,,                 Í dag Sigmund 8 Umræðan 24/25 Staksteinar 8 Bréf 25 Veður 8 Minningar 26/29 Viðskipti 12 Brids 30 Úr Verinu 13 Menning 32/35 Erlent 14/15 Leikhús 34 Menning 16 Myndasögur 36 Höfuðborgin 17 Dægradvöl 37 Akureyri 17 Bíó 38/41 Suðurnes 18 Staður og stund 38 Landið 18 Víkverji 40 Daglegt líf 19/21 Velvakandi 40 Forystugrein 22 Ljósvakamiðlar 42 * * * Innlent  Samkomulag um kaup Avion Aircraft Trading (ATT) á sex nýjum Airbus A330-200F-fraktvélum var undirritað í höfuðstöðvum Airbus í Toulouse í Frakklandi í gær og er það í fyrsta skipti sem íslenskt fyrirtæki kaupir nýjar vélar af Air- bus-verksmiðjunum. Listaverð vél- anna er samtals 6,7 milljarðar en forsvarsmenn ATT segja kaupverðið umtalsvert lægra. Kaupverðið er trúnaðarmál að sögn Hafþórs Hafsteinssonar, stjórnarformanns ATT. »11  Magnús Stefánsson félagsmála- ráðherra segir íslensk yfirvöld vera að reyna að átta sig á eðli og um- fangi þeirra atburða sem fjöldi manna hefur greint frá að hafi átt sér stað á upptökuheimilinu að Breiðavík, þ.e. kynferðismisnotkun og ofbeldi gegn skjólstæðingum heimilisins. Borgarstjóri hefur þá óskað eftir upplýsingum um börn sem voru send á vegum borgarinnar í Breiðavík 1953–1970. »10 og baksíða  Niðurstöður rannsókna sem gerðar hafa verið á síðari árum á tíðni mistaka á sjúkrastofnunum í nokkrum löndum gefa til kynna að sé tíðnin svipuð hérlendis verði um 225 manns fyrir langvinnum örkuml- um vegna mistaka og álíka fjöldi lát- ist af sömu orsökum á hverju ári á Landspítalanum. Um 30 þúsund manns leggjast inn á spítalann ár hvert, að því er kemur fram í gögn- um landlæknisembættisins. » For- síða Viðskipti  Moody’s hefur lækkað einkunn Glitnis fyrir fjárhagslegan styrk- leika úr C+ í C. Matsfyrirtækið seg- ir horfur bankans nú vera stöðugar, en í apríl 2006 breytti Moody’s horf- um um fjárhagslegan styrkleika Glitnis í neikvæðar. Langtíma- einkunn bankans er staðfest A1 og sömuleiðis skammtímaeinkunn sem er áfram P-1. Í tilkynningu Moody’s er staðfesting lánshæfismatsins sögð endurspegla þá skoðun félags- ins að íslenska ríkið muni hlaupa undir bagga með bankanum ef hann lendi í erfiðleikum. »12 Erlent  Forseti Palestínumanna, Mahmo- ud Abbas, hélt í gær til Sádi-Arabíu til fundar við æðsta yfirmann Ha- mas-samtakanna, Khaled Meshaal, til að leggja grunn að neyðarfundi í dag þar sem vonir standa til að lausn finnist á hörðum deilum. » 14 Eftir Andra Karl andri@mbl.is HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt Jesus Sainz, fyrrver- andi starfsmann Íslenskrar erfða- greiningar, í tveggja mánaða skil- orðsbundið fangelsi fyrir að hafa afritað gögn frá ÍE án samþykkis. Lögmaður mannsins segir málinu verða áfrýjað til Hæstaréttar. Í ágúst sl. kærði ÍE manninn sem hafði afritað um 45 þúsund skrár fyrirtækisins yfir á harðan disk ásamt álíka magni af persónulegum skrám. Ákært var fyrir afritun 28 skráa. Samkvæmt upplýsingum frá Erlu Svanhvíti Árnadóttur, lög- manni Jesus, mun hann hafa ætlað að vinna með gögnin heima fyrir. Kom fram að ekki hefði verið átt við gögnin og þau ekki kynnt öðrum né afhent. Erla Svanhvít segir ekki liggja fyrir að afritunin hafi verið heimildarlaus, m.a. þar sem honum hafi ekki verið kynnt að ekki mætti afrita gögn til að vinna með þau heima. „Af einhverjum ástæðum voru hins vegar tekin upp atriði úr vitnisburði starfsmanna deCode og þau notuð til þess að fullyrða að ákærði hefði haft ásetning um að miðla upplýsingum til þriðja aðila. Þetta eru í raun og veru getgátur,“ segir Erla Svanhvít en dómurinn fjallar hins vegar ekkert um vitn- isburði sem staðfestu frásögn ákærða um meðferð á gögnum hjá fyrirtækinu. Brot mannsins varðar við 50. grein höfundalaga, ákvæði sem verndar gagnagrunna með sértækri vernd. Vernd gagnagrunna er nú með tvennum hætti skv. lögunum. Annars vegar er skipulag gagna- grunnsins verndað og hins vegar innihald. Erla segir að dómurinn byggist á því að meint brot Jesus varði við fyrrnefnt ákvæði 50. gr. sem verndar innihald gagnagrunns, en dómurinn noti hins vegar sem rökstuðning sjónarmið sem miði að því að vernda skipulag gagna- grunnsins með höfundaréttarvernd sem lögfest er í 6. gr. laganna. Hið mikilvæga sé þó að 50. gr. miði ekki að því að vernda fjárfestingu í rann- sóknum heldur fjárfestingu í gagna- grunnskerfum og ekki sé um slíka fjárfestingu að ræða í þessu tilviki. Dæmdur fyrir afritun gagna Morgunblaðið/Sverrir Afritaði gögn Íslensk erfðagreining kærði Jesus Sainz, fyrrverandi starfs- mann ÍE, fyrir að afrita þúsundir skráa yfir á harðan disk. Tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot á höfundarréttarlögum Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is VERÐI nýr Kjalvegur lagður er hugsanlegt að áherslur í vegamálum breytist og „við fáum ekki sama stuðning við uppbyggingu á þjóð- vegi 1 og annars hefði orðið,“ segir Páll S. Brynjólfsson, sveitarstjóri í Borgarbyggð. Norðurvegur ehf. vill leggja nýjan veg yfir Kjöl í einka- framkvæmd og yrði hann tekinn í notkun árið 2010. Páll segir yfirvöld í Borgarbyggð telja mikilvægara að fara í endurbætur á þjóðvegi 1 en að byggja hálendisveg. Máli skipti að þéttbýlisstaðir séu tengdir við þjóð- vegakerfið. Nauðsynlegt sé að tvö- falda þjóðveg 1 eins og fyrirætlanir séu um, bæði frá Reykjavík til Borgarness og frá höfuðborginni austur á Selfoss. Hann bendir á að verði af bygg- ingu Kjalvegar muni að líkindum þurfa að fara í töluverða uppbygg- ingu á vegum við rætur hálend- isvegarins. Þá muni Kjalvegur liggja hátt yfir sjávarmáli, þar geti orðið erfitt að fara um á vetrum og töluverðrar þjónustu verði þörf. Betri en aðrir kostir Valgarður Hilmarsson, forseti bæjarstjórnar Blönduóss, segir bæj- aryfirvöld þar ekki hafa tekið form- lega afstöðu vegna hugmyndanna. Sín afstaða sé þó sú að heils- ársvegur um Kjöl sé betri kostur en aðrar hugmyndir sem verið hafi uppi um vegamál á svæðinu. Fyrir nokkrum árum hafi verið rætt um að leggja veg yfir Stórasand, sem sé í 800-900 metra hæð yfir sjávarmáli, en fallið hafi verið frá því. „Það er vegur yfir Kjöl sem er vondur og það er umferð yfir Kjöl og kemur til með að verða áfram. Það er vilji hjá fólki til að komast yf- ir hálendið um sumartímann,“ segir Valgarður. Kjalvegur muni hafa áhrif á þá umferð sem í dag fer í gegnum Blönduós um hringveginn. Þunga- flutningar á þjóðveginum muni minnka en ferðamenn muni áfram fara um hann. Valgarður kveðst ekki hafa áhyggjur af því að end- urnýjun hringvegarins verði látin mæta afgangi verði Kjalvegur lagð- ur. „En það verður kannski minni áhersla lögð á að breikka hann frek- ar sem væri þörf á miðað við þá um- ferð sem er á honum í dag.“ Margeir Ingólfsson, sveitarstjóri í Bláskógabyggð, segir hugmynd- irnar leggjast vel í fólk. „Þetta er í okkar huga framtíðartenging yfir hálendið og ég held að þetta muni koma sér vel fyrir samfélagið hér eins og annars staðar á þessari leið,“ segir Margeir. Uppbyggður vegur yfir Kjöl muni auka ferða- mennsku í Bláskógabyggð en hún sé einn stærsti atvinnuvegurinn í sveit- arfélaginu. „Við búum nú það vel að vera með marga af helstu náttúru- og sögustöðum landsins innan seil- ingar,“ segir Margeir. Hann bætir við að vegurinn muni jafnframt auð- velda aðgengi íbúa Bláskógabyggð- ar að Norðurlandi. Sveitarfélagið leggi höfuðáherslu á að leiðin frá Gullfossi og alla leið til Reykjavíkur verði hugsuð frá upphafi. „Það liggur fyrir að það er ekki hægt að skilja við þá umferð sem kemur að norðan uppi við Gull- foss. Hún á eftir að koma sér í bæ- inn. Vegakerfið í dag ber náttúrlega engan veginn þessa aukningu og þá sérstaklega aukningu í þungaflutn- ingum, þannig að þetta er nokkuð sem forsvarsmenn þessara fram- kvæmda þurfa að huga að nú þeg- ar.“ Óttast minni áherslu á bætur á þjóðvegi 1 Í HNOTSKURN » Norðurvegur vill að und-irbúningur að nýjum Kjal- vegi hefjist sem fyrst. »Með lagningu vegarinsmyndi leiðin milli Reykja- víkur og Akureyrar styttast um 47 kílómetra. »Skiptar skoðanir eru umágæti þess að leggja mal- bikaðan veg um hálendi Ís- lands. Morgunblaðið/ÞÖK Ósammála Skiptar skoðanir eru um það meðal bæjarstjóra hvort rétt sé að byggja upp Kjalveg sem m.a. liggur framhjá Hveravöllum. Sveitarstjórinn í Bláskógabyggð: Hugmyndin góð ALMENNIR lögreglumenn á vakt eru jafnmargir á Akureyri nú og fyrir 30 árum. Daníel Guð- jónsson yfirlögregluþjónn segir að nauðsynlegt sé að fjölga í lög- regluliði bæjarins frá því sem nú er. Daníel segir að sérstaklega vanti mann til þess að sjá um fíkniefnahund, en það sé töluverð vinna, og einn rannsóknarlög- reglumann til viðbótar til þess að vinna að fíkniefnamálum. Flest innbrot í bænum tengjast orðið fíkniefnanotkun. Daníel Guðjónsson segir lög- regluna á Akureyri ekki geta sinnt öllu sem hún vildi. „En auð- vitað má alltaf deila um það hvað er þörf á að gera. Kannski finnst þeim sem ráða yfir fjármagninu þetta bara vera í góðu lagi,“ segir hann. | 17 Of fáir lög- reglumenn á Akureyri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.