Morgunblaðið - 07.02.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.02.2007, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ SUÐURNES Eftir Gunnar Hallsson Bolungarvík | Bolvíkingar minntust þess á dögunum að 30 ár eru liðin frá því að sundlaug Bolungarvíkur var formlega vígð og tekin í notkun. Bol- víkingar fjölmenntu í sundlaugina sína á afmælisdeginum til að taka þátt í afmælisdagskrá af þessu tilefni. Ólafur Kristjánsson, fyrrverandi bæjarstjóri Bolungarvíkur, rakti að- dragandann að byggingu sundlaugar- innar og rifjaði upp byggingarsöguna. Nemendur Tónskóla Bolungarvíkur léku nokkur lög fyrir viðstadda og Grímur Atlason bæjarstjóri og Einar Pétursson, fyrrverandi bæjarstjóri, kepptu um titilinn besti bæjarstjóra- sundkappinn. Einar sigraði enda með það forskot á Grím að hafa notið sundþjálfunar í sundlaug Bolungar- víkur á sínum mótunarárum. Þá var sérstaklega þakkað þeim einstaklingum, fyrirtækjum og fé- lagasamtökum sem á undanförnum árum hafa stutt við starfsemi íþrótta- miðstöðvarinnar með myndarlegum peninga- og tækjagjöfum. Í tilefni af þessum tímamótum færðu fiskvinnslan Bakkavík í Bol- ungarvík og Sjálfsbjörg í Bolungarvík sundlauginni góðar peningagjafir til kaupa á þjálfunartækjum. Strax mikið notuð Ákvörðun um byggingu íþrótta- mannvirkis í Bolungarvík var upphaf- lega tekin í hreppsnefnd Hólshrepps í byrjun árs 1969. Sundlaug Bolungar- víkur var fullbúin og vígð 30. janúar 1977. Annar áfangi íþróttamannvirk- isins var íþróttahús sem tekið var í notkun 1984. Strax frá upphafi var sundlaugin mikið sótt og sundiðkun almennings mikil. Ungir sem aldnir hófu sund- nám af miklu kappi og dæmi voru um fólk á áttræðisaldri að læra sín fyrstu sundtök, fólk sem gerði sundiðkun upp frá því að lífsstíl. Sundæfingar barna og unglinga voru mjög vinsæl- ar og fljótlega hófst sundþjálfun á vegum Ungmennafélags Bolungar- víkur. Upp úr því fóru sundkappar á vegum sunddeildarinnar að láta æ meira að sér kveða á sundmótum bæði í héraði sem annars staðar. Aðeins tíu árum eftir að sundlaugin var tekin í notkun í Bolungarvík sigr- uðu bolvískir sundkappar á aldurs- flokkameistaramóti Íslands sem hald- ið var í Vestmannaeyjum 1987. Aðsókn að sundlaug Bolungarvíkur hefur allaf verið vel viðunandi þó að sannarlega sjáist breytingar í takt við breytt samfélagsmunstur og tísku- bylgjur. Sundið lífsstíll í 30 ár Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Þakkir Sundlaugin þakkaði stuðning, f.v. Matthildur Guðmundsdóttir for- maður kvennadeildar slysavarnafélagsins, Anna Torfadóttir formaður Sjálfsbjargar, Flosi Jakobsson, Jakob Flosason, Sólveig Sigurðardóttir for- maður Kvenfélagsins Brautarinnar og Ásgeir Sólbergsson sparisjóðsstjóri. Í HNOTSKURN »Það kostaði mikla baráttuað byggja sundlaug í Bol- ungarvík. »Bolvíkingar hófu sund-kennslu og sundiðkun af miklu kappi þegar sundlaugin var tekin í notkun. »Þegar ákvörðun var tekinum byggingu íþrótta- mannvirkis í Bolungarvík árið 1969 voru íbúarnir níu hundr- uð, líkt og í dag, en flestir urðu þeir árið 1982, tæplega þrettán hundruð. Árborg | Leikskólagjöld hækkuðu verulega í Sveitarfélaginu Árborg 1. febrúar, samkvæmt upplýsingum leikskólafulltrúa tólf sveitarfélaga. Leikskólagjöld í Árborg voru yfir meðaltali sveitarfélaga samkvæmt töflu um gjöldin í janúar sem birtist sl. laugardag. Samkvæmt meðfylgj- andi töflu, sem er fyrir febrúar, er Árborg komin í hóp þeirra sveitar- félaga sem innheimta allra hæstu gjöldin, sérstaklega þegar tvö eða fleiri systkini eru á leikskóla. Minni breytingar urðu hjá Ísafjarðarbæ. Gjöldin hækka í Árborg (#    9 - !    8: ##    9 - !    8: )##    9 - !    8: *     +$# & ' ! '7 $;7 '' &)7 '' &'; '' ;77 '& ("7 '$ )'7 '% $'* '* ;"7 '" ;7& '" "(7 &) 7%7 && *&; 9!<: 2 :   !< 436  9!<: ! = / ! = :3     -!: ! >  8  = !  !<:  :  = ) ' & $ ; % ( * " )7 )) )' '% *'7 &* (*$ &* "$7 &" '*7 &" ;'* &" %"' $% %%* $( )$7 $" **7 ;) %77 ;& $77 ;" &)' 9!<: 436  9!<: ! = / ! =  !< 2 :  :3     8  = !  !<: -!: ! >   :  = ) ' & $ ; % ( * " )7 )) )' && )"7 $; $;7 $* %*$ $" "%7 ;) %)& ;' )*% ;% (** ;( ")7 %7 7"$ %; *"; %* (77 () %"' 9!<: 9!<: ! = 436  / ! =  !< 2 :  :3     8  =  :  = -!: ! !  !<: >  ) ' & $ ; % ( * " )7 )) )' *   ! = # ! : Húsavík | Jón Helgi Björnsson hef- ur verið skipaður framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skipaði í stöðuna til fimm ára, frá 1. mars nk. Níu einstaklingar sóttu um starf framkvæmdastjóra. Sex þóttu upp- fylla hæfnisskilyrði um menntun, segir í fréttatilkynningu. Jón Helgi er fertugur, líffræðing- ur og rekstrarhagfræðingur, og býr á Laxamýri þar sem hann ólst upp. Hann var framkvæmdastjóri Hér- aðsnefndar Þingeyinga til síðustu áramóta en vann áður hjá Norð- lenska. „Ég hlakka til að vinna með góðu fólki,“ segir Jón Helgi um nýja starfið. Hann segir að verkefnin séu ekki ólík þeim sem hann fékkst við hjá héraðsnefndinni sem annað- ist félagsþjónustu og málefni fatl- aðra í Þingeyjarsýslum. Skipaður framkvæmda- stjóri Heilbrigðisstofnunar Jón Helgi Björnsson Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Reykjanesbær | „Mér finnst þetta mjög skemmtilegt verkefni og gaman að við skulum fá að taka þátt í því. Mér finnst mikilvægt að Rúnar hafi góðan aðgang að bókum,“ sagði Guðný Kristjánsdóttir, móðir leikskólanemand- ans Rúnars Júlíussonar á Heiðarseli, en þau ýttu úr vör verkefninu Koffort í leikskólum Reykjanesbæjar. Guðný er jafnframt fulltrúi í menningarráði bæjarins og eini fulltrúinn með barn í leikskóla. Koffortin eru farandbókasöfn í trékistlum og eru á vegum Bókasafns Reykjanesbæjar í sam- vinnu við leikskóla bæjarins. Koffortin eru full af bókum sem sniðnar eru fyrir leikskólaald- urinn og virka því eins og útibú frá bókasafninu. Eitt koffort fer í hvern leikskóla, sem síðan mun flakka á milli deilda svo allir njóti góðs af verkefninu. Koffortin eru að norrænni fyrirmynd og hef- ur Borgarbókasafn Reykjavíkur verið með samskonar verkefni í gangi um nokkurt skeið við mikinn fögnuð foreldra, að sögn Þorbjargar Karlsdóttur verkefnisstjóra. Lesi fyrir börnin sín Hulda Björk Þorkelsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Reykjanesbæjar, sagði markmiðið með verkefninu að auka aðgengi foreldra og barna að bókum og hvetja foreldra til að lesa fyrir börn sín. „Með verkefninu viljum við líka minna á bókasafnið og hversu mikilvægt það er að lesa fyrir börn frá unga aldri. Það getur skipt sköpum fyrir barnið um alla framtíð, bæði hvað varðar leik, nám og starf síðar meir,“ sagði Hulda Björk. Hvert barn getur fengið eina til tvær bækur að láni í einu í allt að viku. Foreldrar sjá sjálfir um að kvitta í þar til gerða stílabók en leikskól- arnir munu sjá um að halda koffortunum til haga og hvetja foreldra til að fá bækur að láni. Leikskólastjórarnir voru frá upphafi mjög já- kvæðir í garð verkefnisins sem skiptir sköpum þar sem nokkur vinna fellur í hendur leikskól- anna. Guðríður Helgadóttir, leikskólafulltrúi Reykjanesbæjar, fagnaði verkefninu þegar því var hleypt af stokkunum. Í sama streng tók Guðný Kristjánsdóttir, móðir og fulltrúi í menningarráði, sem hóf verk- efnið ásamt syni sínum, Rúnari Júlíussyni. Hún sagði skemmtilegt að fá að taka þátt í því, enda sagði hún þau foreldrana leggja mikla áherslu á að Rúnar hefði góðan aðgang að bókum. „Í her- bergi hans er bókahilla í hans hæð þannig að hann æfist í að umgangast bækur, fletta og skoða. Svo býr hann svo vel að eiga tvær eldri systur þannig að hann hefur notið góðs af bóka- eign þeirra.“ Biður um lestur Guðný sagði að hún og eiginmaður sinn, Júl- íus Guðmundsson, hefðu alla tíð verið dugleg að lesa fyrir börn sín og gert það að daglegri venju. „Lesturinn hefur svo sannarlega skilað sér, það sáum við strax þegar stelpurnar byrj- uðu í skóla.“ Guðný sagði Rúnar duglegan að biðja um sögustund á öllum tímum dags en kvöldlesturinn væri alltaf í föstum skorðum. „Tvær bækur og einn söngur og það eru ekki bara við foreldrarnir sem sjáum um lesturinn heldur skiptist fjölskyldan á. Stundum lesa systur hans fyrir hann.“ Guðný sagðist telja að þau ættu eftir að nota koffortið mikið. „Vonandi verður hann sér með- vitandi um það og hefur frumvæði að því að taka bækur að láni,“ sagði Guðný í samtali við blaðamann. „Mikilvægt er að hafa góðan aðgang að bókum“ Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Farandbókasafn Rúnar Júlíusson var ekki lengi að velja sér bækur. Móðir hans, Guðný Kristjánsdóttir, skrifar útlánin í stílabók. Í HNOTSKURN »Koffortin eru farandbókasöfn í tré-kistlum, á vegum Bókasafns Reykja- nesbæjar í samvinnu við leikskólana. »Þau eru látin ganga á milli deildaleikskólanna og geta börnin valið sér bækur til að fara með heim. »Markmiðið er að auka aðgengi for-eldra og barna að bókum og hvetja foreldra til að lesa fyrir börn sín. Reykjanesbær | Unnið er að endurskoðun fjölskyldustefnu Reykjanesbæjar. Fjöl- skylduþing sem fjölskyldu- og félagsþjón- usta Reykjanesbæjar stóð fyrir um helgina var liður í þeirri vinnu. Á þinginu kynnti Árni Sigfússon bæj- arstjóri fjölskyldutengd verkefni úr sam- þykktri framtíðarsýn Reykjanesbæjar, Hera Ósk Einarsdóttir verkefnisstjóri kynnti forvarnarverkefni á vegum bæjarins og Hjördís Árnadóttir félagsmálastjóri sagði frá fjölskyldustefnu Reykjanesbæjar. Síðan störfuðu vinnuhópar um endur- skoðun fjölskyldustefnunnar. Hjördís segist ánægð með þingið. Mikil orka hafi verið í hópnum sem tók þátt í því, þótt hann hafi ekki verið fjölmennur. Hún segir að ekki sé ástæða til að breyta miklu í fjölskyldustefnunni, hún standi fyrir sínu. Fram kom að kannski væri ástæða til að halda slík fjölskylduþing árlega, í tengslum við endurskoðun fjölskyldustefn- unnar, og gefa bæjarbúum þannig kost á að taka þátt í þeim. Fjölskyldu- og félagsþjónustan veitir ár- lega viðurkenningu til fjölskylduvænna fyr- irtækja og hefur það verið gert á Ljósanæt- urhátíðinni. Segir Hjördís að fram hafi komið hugmyndir um að veita þessar við- urkenningar framvegis á fjölskylduþingi. Fjölskyldustefna endurskoðuð Syfjuð Ása Böðvarsdóttir, dóttir Böðvars Jónssonar bæjarfulltrúa, var á þinginu. Ljósmynd/Dagný LANDIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.