Morgunblaðið - 07.02.2007, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.02.2007, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2007 13 ÚR VERINU Við erum leiðandi í framleiðslu stjórn- og gæslubúnaðar fyrir kæli- og frystikerfi Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf BÁTASMIÐJAN Trefjar í Hafn- arfirði afgreiddi nú á dögunum nýj- an Cleopatra-bát til Havøysund, nyrst í Finnmörku í Noregi. Kaupandi bátsins er Fiskenes Nord AS. Eigendur Fiskenes Nord AS eru Jørn-Oddvar Majala og Kjell Olav Larsen sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum. Báturinn hefur hlotið nafnið Fisk- enes. Báturinn mælist 15 brúttó- tonn. Fiskenes er af gerðinni Cleo- patra 38. Aðalvél bátsins er af gerðinni Volvo Penta D12 715 hestöfl tengd ZF V-gír. Báturinn er útbúinn full- komnum siglingatækjum af gerðinni Furuno frá Brimrúnu í Reykjavík. Báturinn er einnig útbúinn með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Bát- urinn er útbúinn til línu- og neta- veiða en mun auk þess stunda veiðar á kóngakrabba hluta úr ári. Búnaður til línuveiða kemur frá Beiti í Vogum og búnaður til neta- veiða frá Rapp-Hydema. Örygg- isbúnaður bátsins er frá Viking- björgunarbúnaði. Rými er fyrir ellefu 660 lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakka- geymsla og sturtuklefi. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með elda- vél, örbylgjuofn og ísskáp. Reiknað er með að báturinn hefji veiðar nú í lok janúar. Fyrst á netum fram til vors og skipti svo yfir á línu. Ný Cleopatra 38 til Finnmerkur LANDSSAMBAND smábátaeig- enda hefur unnið að gerð umhverf- ismerkis sem ætlað er að marka sér- stöðu smábáta innan fiskveiðistjórnunarkerfisins og aflans frá þeim. Þessi vinna var kynnt á aðalfundi Samtaka strand- veiðimanna við Norður-Atlantshaf (ACFNA) Fulltrúar hinna þjóðanna lýstu ánægju sinni með frumkvæði LS að þessum málum. Aðalfundurinn var haldinn í Barcelona sl. fimmtudag 1. febrúar. Fundinn sóttu fulltrúar allra þjóð- anna sem eiga aðild að samtökunum. Frá Íslandi komu frá LS Arthúr Bogason og Örn Pálsson, frá Meg- infjelagi útróðramanna í Færeyjum kom Auðunn Konráðsson, frá sam- tökum sjó- og verkamanna á Ný- fundnalandi, FFAW, komu til fund- arins Bill Broderick og David Decker, frá Noregi kom fulltrúi Nor- ges Kystfiskarlag, Håvard Jacobsen, og frá KNAPK, samtökum veiði- og fiskimanna á Grænlandi, sat fundinn John Biilmann. Meðal þeirra málefna sem rædd voru á aðalfundinum voru tilfærsla veiðiheimilda og sú staða sem upp kemur í smáum samfélögum þegar enginn innan þeirra á lengur rétt til að nýta aðlæg fiskimið öðru vísi en leigja veiðiheimildir af einkaaðilum. Tilhneigingar gætir til þessa á Ný- fundnalandi, Noregi og kunnugleg er staða mála hér á landi. Fiskveiði- stjórnunarkerfi Færeyinga byggist hins vegar á sóknardögum, en vegna takmarkana á flutningi daga milli út- gerðarflokka er tilfærsla daga þar nánast óþekkt. Sellafield Aðalfundurinn mótmælti harðlega ábyrgðarlausri ákvörðun Breta um „að hefja aftur losun á kjarnorku- úrgangi í hafið við Sellafield. Sjáv- arútvegsráðherra þeirra ætti fremur að snúa sér gegn þessari vá heldur en að eyða þeim tíma í sjö langreyð- ar“. Á aðalfundinum lýsti formaður samtakanna sl. 3 ár, Auðunn Kon- ráðsson, því yfir að hann gæfi ekki kost á sér til endurkjörs. Nýr for- maður var kosinn Bill Broderick frá Nýfundnalandi. Marka sér sérstöðu með umhverfismerki Skagaströnd – Mikil og stöðug aukn- ing hefur verið á lönduðum afla smábáta á Skagaströnd und- angengin ár. Þannig var árið 2006 enn eitt metár hvað þetta varðar því þá lönduðu þeir um 6.000 tonn- um af fiski í Skagastrandarhöfn. Löndunum í höfninni hefur líka fjölgað mjög á síðustu árum eða úr 1.299 árið 2004 upp í 1.720 á síð- asta ári. Fiskmarkaðurinn Örvi hefur selt megnið af fiskinum Bróðurparturinn af þessum afla var seldur gegnum fiskmarkað Örva ehf. á staðnum eða 5.160 tonn. Til samanburðar, sagði Lárus Ægir Guðmundsson, eigandi Örva, seldi markaðurinn 4.500 tonn árið 2005 og 3.000 tonn árið 2004 þann- ig að aukningin hefur verið mikil og stöðug undanfarin ár. Telur Lárus að ástæða þessa sé fyrst og fremst sú mikla aflaaukning sem orðið hefur úr Húnaflóa og af nær- liggjandi miðum. Nú má segja að góð línuveiði sé allt árið um kring frá Skagaströnd sem áður var bundin við vetrarmánuðina. Einnig er eftirtektarvert að hlutfall ýsu í seldum afla, gegnum fiskmark- aðinn, hefur á nokkrum árum farið úr 20% í 53% en ef tekið er mið af lönduðum afla er þetta hlutfall hins vegar 45%. Það eru bátar víðs vegar að af landinu sem landa þessum mikla afla á Skagaströnd auk heimabát- anna. Hefur þróunin verið sú að aðkomubátarnir koma gjarnan í apríl maí og stunda sjósókn frá Skagaströnd fram í nóvember þótt sumir þeirra rói héðan allt árið. 90% af fiskinum fer suður Fiskmarkaður Örva ehf. annast alla löndun og þjónustu í Skaga- strandarhöfn og sér einnig um af- greiðslu stærri báta, togara og flutningaskipa. Þá er markaðurinn líka með slægingarþjónustu en að sögn Lárusar Ægis er um helm- ingur aflans sem kemur á land slægður á staðnum. Það er þó á valdi kaupanda hvort það er gert eða ekki. Um 90% af aflanum sem seldur er gegnum markaðinn fer til kaupenda í Reykjavík og á Suð- urnesjum. Fiskmarkaðurinn tók á síðasta ári í gagnið nýtt og gott húsnæði við höfnina fyrir starfsemi sína. Batnaði aðstaðan til meðhöndlunar og geymslu á fiski til mikilla muna með tilkomu nýja húsnæðisins og má segja að aðstaðan sé nú komin í mjög gott horf. Mikil aflaaukning smá- báta frá Skagaströnd Fiskveiðar Fiskmarkaðurinn Örvi hefur selt megnið af þeim fiski, sem komið hefur á land á Skagaströnd. MIKILL meirihluti brottfluttra Ís- firðinga telur að aðrir þættir en kvótakerfið hafi átt mestan þátt í brottflutningi þeirra. Þeir nefna skort á atvinnutækifærum, skort á möguleikum í framhaldsmenntun, betri möguleika á tekjuöflun og um- hverfi og veðurfar. Þetta eru niðurstöður BA-ritgerð- ar Annasar Sigmundssonar í stjórn- málafræði við Háskóla Íslands. Rit- gerðin ber heitið Rannsókn á byggðaþróun á Ísafirði, þáttur kvótakerfisins í byggðaröskun. Rit- gerðin byggist á spurningalista, sem sendur var 1.000 brottfluttum Ísfirð- ingum á árunum 1990 til 2004. 80,8% aðspurðra nefndu aðrar ástæður fyr- ir brottflutningi, 41,4% nefndu skort á atvinnutækifærum og 26% skort á möguleikum í framhaldsnámi. Niðurstaða Annasar er að ekki sé hægt að kenna kvótakerfinu um vanda smærri byggðarlaga á síðustu árum. Hann bendir á að samstjórn Framsóknarflokks, Alþýðubanda- lags og Samtaka frjálslyndra sem stofnuð var árið 1971 hafi ætlað að stuðla að jafnvægi í byggðum lands- ins með eflingu atvinnufyrirtækja í dreifbýli. Þetta var gert með því að flest smærri byggðarlögin fengu skuttogara, þeim fjölgaði um 86 á ár- unum 1971 til 1979, og uppbygging á opinberri þjónustu var mikil. Annas segir að flest þessara byggðarlaga hafi ekki haft burði til að reka svo stórar útgerðir, þrátt fyrir að út- gerðarfélögin hafi fengið kvótann gjaldfrjálsan árið 1984. Vegna sam- einingar smærri sveitarfélaga við hin stærri, hafi þau síðarnefndu þurft að taka á sig miklar uppsafn- aðar skuldir hinna smærri, sem þau hafi safnað upp vegna slæmrar byggðastefnu frá árinu 1971. Í ritgerðinni kemur Annas með til- lögur til að sporna við fólksflótta frá Ísafirði og byggjast þær á uppbygg- ingu tækniklasa og tækniháskóla á svæðinu. Kvótinn ekki orsökin Morgunblaðið/Sverrir Fundir Annas Sigmundsson, lengst til hægri, kynnir niðurstöður sínar. Við borðið sitja þingmennirnir Sigurjón Þórðarson, Anna Kristín Gunnars- dóttir og sjávarútvegsráðherra Einar K. Guðfinnsson. Fundarstjóri var Örn Arnarson stjórnmálafræðingur. Í HNOTSKURN »80,8% aðspurðra nefnduaðrar ástæður en kvóta- kerfið fyrir brottflutningi. »Skuttogurum fjölgaði um86 á árunum 1971 til 1979 og togarar komu í flest smærri byggðarlögin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.