Morgunblaðið - 07.02.2007, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.02.2007, Blaðsíða 19
|miðvikudagur|7. 2. 2007| mbl.is daglegtlíf Það er algengt að fólk með syk- ursýki missi stjórn á blóðsykr- inum og þá fara afleiðingarnar að láta á sér kræla. »20 heilsa Nýleg bandarísk rannsókn gef- ur til kynna að ofdrykkja sé meira vandamál en áfengisfíkn er. »21 vín Það er hollt að gráta enda er grátur hluti af ósjálfráðum við- brögðum líkamans við missi eða vanlíðan. »20 tilfinningar Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is Þetta er draumastarf,“ segir Gunnarhúsvörður Eyjólfsson í Mennta-setrinu við Lækinn í Hafnarfirði. „Íþví dyttar maður bæði að húsum og fólki. Húsvörður þarf að vera handlaginn en auk þess góður í mannlegum samskiptum. Andleg og líkamleg heilsa þeirra sem eru í húsinu skipt- ir ekki minna máli en húsið sjálft,“ segir Gunnar og brosir en hann ætlar nú í febrúar að halda námskeið við Námsflokka Hafnarfjarðar, í hús- inu sem hann gætir, sem hann hefur nefnt Al- mennar viðgerðir á heimilinu. – Hvernig kviknaði hugmyndin? „Það hringdi í mig kona fyrr í vetur þegar kuldaboli fór að gera sig heimakominn og kvart- aði undan því að það væri svo kalt í íbúðinni hjá sér. Ég ráðlagði henni að finna iðnaðarmann og hún reyndi að finna einn slíkan en það var eng- inn á lausu. Þau hjónin brugðu þá á það ráð að fara í byggingarvöruverslun og kaupa sér raf- magnsofn og settu hann í eldhúskrókinn til þess að halda á sér hita í kuldakastinu. Því linnti hins vegar ekkert og aftur hringdi konan í mig og spurði hvort það væri nokkur möguleiki á að ég kíkt til þeirra og litið á ískalda ofnana sem ég og gerði. Það tók mig nákvæmlega fimmtán mín- útur að setja hita á íbúðina.“ – Hvað gerðirðu eiginlega? „Ég losaði stífluna í krönunum á ofnunum þannig að vatnið gat óhindrað runnið í gegnum þá. Það var fljótgert. Á sumrin skrúfar fólk nið- ur í ofnunum en á haustin hækkar það hitann aftur. Í millitíðinni myndast oft kísill í ofn- krananum sem stíflar hann og þessa stíflu þarf að losa á haustin. Það er ósköp einfalt þegar maður veit það og kann það.“ Ekki hræðast heimilið Þetta er eitt af því sem húsvörðurinn ætlar að kenna fólki á námskeiðinu sínu en á námskránni er líka að skipta um skrár og klær. ,,Fólk hefur komið með ýmsar fyrirspurnir og ég ætla að taka svolítið mið af hópnum. En fyrst og fremst vil ég að fólk öðlist meiri kunnáttu og sjálfs- traust til þess að gera minniháttar viðvik og framkvæmdir sjálft heima hjá sér. Fólk á ekki að vera hrætt við heimili sín. Það þarf ekki sér- fræðinga í alla hluti. Það er mun auðveldara að dytta að heimilinu en að gera til dæmis við bíla, sem í dag eru mjög tölvuvæddir. Það er líka svo skemmtilegt.“ Gunnar, sem hefur verið húsvörður í 12 ár, er sjálfmenntaður. „Ég tók allt í sundur þegar ég var lítill strákur en var svo lengi til sjós og við ýmis störf í landi. Húsvarðarstarfið er mjög skemmtilegt og gefandi. Umburðarlyndi er hverjum húsverði nauðsynlegt því fólk er oft til- ætlunarsamt. Það er eins og allir telji sig hafa veiðileyfi á húsvörðinn. Þau eru ófá skiptin sem húsverðir fá að heyra setninguna: „Hva, ertu ekki húsvörður hérna?““ Gunnar er alnafni hins kunna leikara Eyjólfs- sonar. „Jú, jú, okkur er oft ruglað saman. Mér hafa nokkrum sinnum verið boðin hlutverk og stundum send heillaóskaskeyti,“ segir Gunnar húsvörður og hlær. – Þú hefur ekki tekið að þér nein hlutverk? „Nei, en ég hef nú reyndar leikið í einni mynd, víkingamynd eftir Kára Schram. Ég lék nú reyndar bara almennan bardagamann og var drepinn fimm sinnum. En ég á heiðurssæti hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar þar sem ég er hús- vörður. Það er með aðstöðu hér í gamla Lækjar- skólanum.“ Og hinn fjölhæfi húsvörður ætlar nú að bregða sér í kennarahlutverkið og hjálpa fólki að hjálpa sér sjálft með það einfaldasta á heim- ilinu. Morgunblaðið/Ásdís Bjargvættur Gunnar húsvörður ætlar að kenna fólki að gera við og framkvæma ým- islegt sjálft á heimilum sínum. Morgunblaðið/Ásdís Gagnlegur Húsvörðurinn reyndist þegar til kastanna kom jafn gagnlegur og iðnaðarmaðurinn sem ekki reyndist hægt að ná í og fékk hita á ofnana á 15 mínútum. Húsvörður bjargar heimilum ÞEGAR sólin tekur að hækka á lofti á nýjan leik leiðir allur þorri almenn- ings hugann að komandi sumri, sum- arfríum, veðrinu og já jafnvel sum- arfatnaðinum. Fatahönnuðir eru hins vegar á þessum tíma þegar horfnir í huganum langt inn í næsta haust enda ekki seinna vænna að leggja straumana fyrir komandi vetur. Á tískuvikunni sem nú stendur yfir í New York kennir margra grasa, þótt heildaryfirbragð hönnunarinnar einkennist að venju af nokkurri íhaldssemi. Max Azria er einn þeirra sem sýna hönnun sína í New York og það er ekki laust við að andi þriðja áratugarins svífi yfir vötnum í fötum hans. Pils í hnésídd, lauslega að- sniðnar línur og penir hattar eru að minnsta kosti fljót að kalla þann tíð- aranda upp í hugann, þótt nýstárleg efnisnotkun og skemmtileg sam- tvinnun ólíkra efna veiti nútímalegra yfirbragð. Jarðlitir með fortíðarþrá Fortíð Hnésíður kjóll sem víkkar út að neðan í anda fyrri tíma. Logandi Eldrauður kjóll sem varla fer framhjá neinum. Reuters Glitrandi Glansandi pallíetturnar skapa gott mótvægi við ullina. Vetrarleg Rúmgóð og hlýleg peysa hentar vel fyrir veturinn. tíska EÐALSTEINAR og eðalmálmar njóta oft vissrar upphafningar í huga okkar og eru fyrir vikið ekki alltaf látnir taka á sig hvaða form sem er. Það er til að mynda óalgengt á Vestur- löndum að sjá fígúrur, sem mest minna á teiknimyndapersónur, mótaðar úr gulli í hæsta mögulega hreinleika. Slíkar fígúr- ur njóta hins vegar mikilla vinsælda víða í Asíu og skartgripasalar í Hong Kong sjá þannig ekkert að því að móta fígúrur á borð við þetta svín úr skíragulli. Svínið kemur enda til með að setja svip sinn á Hong Kong og Kína á næstunni enda ár svínsins að ganga í garð. Svín úr skíragulli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.