Morgunblaðið - 07.02.2007, Page 10

Morgunblaðið - 07.02.2007, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ ALÞINGI Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is STJÓRNVÖLD munu vinna hratt og örugglega að því að skoða hvernig staðið var að starfsemi á drengjaheimilinu Breiðuvík sem starfrækt var frá árinu 1952 og fram á áttunda áratug síðustu ald- ar. Þetta upplýsti Magnús Stef- ánsson félagsmálaráðherra í um- ræðum utan dagskrár á Alþingi í gær. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, tók málið upp og spurði ráðherra hvort ekki væri ástæða til þess að stjórnvöld ynnu að úttekt á þess- um málum, en fjallað hefur verið um illa meðferð drengja, sem þar bjuggu, í Kastljósi Ríkissjónvarps- ins. „Samfélagið á þessu fólki skuld að gjalda og það er skoðun mín að við verðum að takast á við þennan fortíðardraug sem þarna var vak- inn upp,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Magnús sagði að málið hefði verið rætt á fundi ríkisstjórn- arinnar í gærmorgun. Hefði þar verið samhljómur um að mikilvægt væri að rannsaka þau gögn og upplýsingar sem fyrir lægju um starfsemina í Breiðuvík. „Við verð- um að skoða þetta í samhengi við aðra starfsemi á þessum tíma og fara yfir það hvað við getum lært af því sem gerðist,“ sagði Magnús. Fara þyrfti ítarlega yfir málið áður en ákvarðanir yrðu teknar um næstu skref. Þegar skoðað í ráðuneytinu „Ég tel meðal annars rétt að líta til þess hvernig stjórnvöld í öðrum löndum hafa nálgast hliðstæð mál og í félagsmálaráðuneytinu er nú þegar farið yfir þau mál. Ég legg áherslu á að stjórnvöld axli fulla ábyrgð og rannsaki málið til hlítar og að því er nú þegar unnið innan stjórnarráðsins,“ sagði Magnús. Hann sagði að vitneskja um starfsemina í Breiðuvík hefði vissulega legið lengi fyrir og meðal annars komið fram í kjölfar rann- sóknar sem Gísli Á. Guðjónsson réttarsálfræðingur vann árið 1975. Í rannsókn hans hefðu komið fram alvarlegar upplýsingar. „En ég vil fullyrða að við mun- um vinna hratt og örugglega að því að þetta mál verði sett í vand- aðan farveg. Nauðsynlegt er að upplýsa málið vegna þeirra sem kunna að hafa sætt ómannúðlegri meðferð á stofnunum ríkisins og jafnframt vegna þeirra sem störf- uðu í þágu ríkisins en hafa ekkert til saka unnið,“ sagði ráðherra. Fleiri kvöddu sér hljóðs í um- ræðunni. Bætur í Noregi og Svíþjóð Guðrún Ögmundsdóttir, þing- maður Samfylkingar, sagði að mál- ið væri grafalvarlegt. Um 100 börn væri að ræða og nauðsynlegt væri að gera opinbera rannsókn. Í Nor- egi og Svíþjóð hefðu svipaðar rannsóknir verið gerðar. „Það er búið að dæma þar mjög stórum hópi fólks um fimmtugt bætur,“ sagði hún. Magnús Þór Hafsteinsson, vara- formaður Frjálslyndra, sagði að ekki þyrfti aðeins að skoða heim- ilið í Breiðuvík, heldur hugsanlega aðrar stofnanir og nefndi hann Heyrnleysingjaskólann sem dæmi. Auk þeirra tóku til máls þeir Valdimar Leó Friðriksson, Frjáls- lyndum, og Steingrímur J. Sigfús- son, Vinstri grænum. Fjallað um starfsemi drengjaheimilisins í Breiðuvík á ofanverðri síðustu öld í ríkisstjórn og á Alþingi Ill meðferð drengja rannsökuð Morgunblaðið/Ómar Ofbeldi Umræða um hrikalegan aðbúnað drengja í Breiðavík hefur vakið hörð viðbrögð, en menn sem þar dvöldu hafa nýverið komið fram. Þingfundur hefst kl. 12 á morgun og sjö ráðherrar sitja fyrir svörum þegar þingmenn bera upp 24 fyr- irspurnir. M.a. verður spurt um bú- setumál geðfatlaðra og alþjóðlegt bann við dauðarefsingum. Dagskrá þingsins ÞETTA HELST … ● Steingrímur J. Sigfússon hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um breytingu á lögum um tekjuskatt þar sem hann leggur til að fólk sem lifir einungis af fjármagnstekjum þurfi að telja fram tekjur eins og aðrir sem eru sjálfstætt starfandi. M.ö.o. að litið verði svo á að þessir ein- staklingar séu í vinnu fyrir sjálfa sig við að ávaxta eigið fé. Leggur Stein- grímur til að einstaklingar sem hafi sex milljónir eða meira í árlegar fjár- magnstekjur reikni sér endurgjald sem nemur hálfu starfi en heilu starfi hafi þeir meira en 24 milljónir á ári. Fjármagnstekjufólkið telji líka tekjur fram ● Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins ætlar Kristinn H. Gunn- arsson að ganga til liðs við Frjáls- lynda flokkinn. Líklegt er talið að Kristinn tilkynni þessa ákvörðun sína í dag en sem kunnugt er hefur hann ákveðið að taka ekki sæti á lista Framsóknarflokksins í Norð- vesturkjördæmi. Kristinn sóttist eftir 1. sæti í prófkjöri en hafnaði í því þriðja. Kristinn til frjálslyndra Kristinn H. Gunnarsson ● Þingmenn sem tóku til máls í rúm- lega tveggja tíma umræðum um frumvarp félagsmálaráðherra um skyldur erlendra fyrirtækja og kjör starfsmanna þeirra virtust nokkuð sammála um að frumvarpið væri gott og tímabært. Þingmenn Frjálslynda flokksins notuðu þó tækifærið til að hnykkja á andstöðu sinni við frjálsa för vinnuafls sem heimiluð var 1. maí sl. Sögðust þeir einir hafa mót- mælt því. Það var þó leiðrétt því bæði Samfylkingin og VG óskuðu eft- ir frestun á gildistöku laganna til ára- móta og þá að undangenginni stefnumótunarvinnu og ákveðnum lagabreytingum, á borð við umrætt frumvarp. Fleiri voru á móti Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is FRESTA þarf stækkun álversins í Straumsvík og fyrirhuguðu álveri í Helguvík en stækkunin í Straums- vík myndi ein og sér gera það að verkum að Ísland stefndi fram úr þeim takmörkum á mengun sem stjórnvöld hafa samþykkt með Kyoto-bókuninni. Þetta kom fram í máli Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur, þingmanns Samfylkingar- innar, þegar hún mælti fyrir þings- ályktunartillögu um rammaáætlun um náttúruvernd á Alþingi í gær. „Það eru engar efnahagslegar að- stæður sem réttlæta þessi áform,“ sagði Ingibjörg og lýsti yfir þeirri skoðun Samfylkingarinnar að nú væri nauðsynlegt að kæla hagkerf- ið. Tillögur sínar kallar Samfylking- in Fagra Ísland og þingsályktun- artillögunni er fylgt eftir með tveimur lagafrumvörpum. Annað leggur til að iðnaðarráðherra þurfi að bera það undir Alþingi þegar veitt eru rannsóknar- og nýting- arleyfi til virkjana og hitt leggur til að umhverfisráðherra þurfi að leita samþykkis Alþingis fyrir nýtingu íslenska stóriðjuákvæðisins svo- nefnda samkvæmt Kyoto-bókun- inni. Ingibjörg sagði stjórnleysi ríkja í umhverfismálum og sakaði stjórn- völd um algjört ábyrgðarleysi. „Eins og allir vita hefur hæstvirtur iðnaðarráðherra sagt að tímabili virkrar stóriðjustefnu sé lokið og nú sé málið í höndum kaupenda og seljenda á raforku,“ sagði Ingi- björg. „Þetta þýðir einfaldlega það að stjórnvöld hafa afsalað sér ábyrgð á málaflokknum,“ bætti hún við og gagnrýndi stjórnvöld fyrir að hafa falið ál- og orkufyrirtækjum stefnumótun í málaflokknum. „Venjulega er það þannig að stjórn- völd marka stefnuna. Síðan geta þau eftir atvikum falið einkaaðilum framkvæmd stefnu sem byggist á mjög skýrt afmörkuðum lögum og reglum. En nú er þessu alveg öfugt farið.“ Fresta þarf stækkun álversins í Straumsvík Morgunblaðið/ÞÖK Fresta stækkun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar, segir að fresta þurfi stækkun álversins í Straumsvík en eins og fram hefur komið er flokksbróðir hennar og bæjarstjóri í Hafnarfirði á öðru máli. BJÖRN Bjarnason, dóms- og kirkju- málaráðherra, er á batavegi en hann þurfti að leita til bráðamóttöku Land- spítala – háskólasjúkrahúss sl. mánu- dag eftir að hægra lunga hans féll saman. Segir hann sjálfur frá því á heimasíðu sinni að hann hafi verið heldur andstuttur í sundi að morgni og verið kominn á sjúkrahús eftir há- degi sama dag. „Þessi sjúkdómur nefnist loftbrjóst og nokkrar ástæður eru sagðar fyrir honum og er ástæð- an gjarnan sú, að litlar blöðrur hafa myndast á yfirborði lungans. Þær springa og gat kemur á lungað. Þá lekur loft úr lunganu inn í brjósthol og hluti lungans eða allt lungað fellur saman,“ skrifar Björn. Á skrifstofu dómsmálaráðuneyt- isins fengust í gær þær upplýsingar að Björn þyrfti líklega að dvelja á Landspítalanum í a.m.k. fjóra daga meðan gatið á lunganu væri að gróa. Björn á batavegi Sæunn Stefánsdóttir 6. febrúar Stúdentapólitíkin Æ færri virðast kjósa í stúdentaráðskosning- unum í háskólanum og sumir bera því við að það skipti ekki máli, [...]. En hvað sem mönnum finnst um há- skólapólitíkina þá er það þannig að í öllum þessum fylkingum sem berjast í stúdentaráði er fjöldi ungs frábærs fólks sem fórnar frítíma sínum og stundum námi til að berjast fyrir hagsmunum stúdenta. Meira: www.saeunn.is Sigurjón Þórðarson 5. febrúar Gini-stuðli hagrætt? Alþjóðlegur mælikvarði á ójöfnuð er Gini-stuðull sem liggur á bilinu 0 til 1. [...] Ég hef á þingi ítrekað leit- að eftir upplýsingum hjá fjármálaráðherra um þróun Gini- stuðulsins og sýndi svar hans á Alþingi að Gini-stuðullinn fyr- ir árið 2004 hefði verið 0,308 [...]. Nú virðist sem Hagstofa Íslands hafi að einhverju leyti hagrætt gögnum og fengið allt aðra niðurstöðu í nýrri skýrslu sem er að finna á vef Hag- stofu Íslands. Á blaðsíðu 11 í um- ræddri skýrslu er Gini-stuðullinn sagður vera 0,25 fyrir árið 2004. Meira: www.althingi.is/sigurjon/ GUÐMUNDUR Hallvarðsson mælti fyrir þingsályktunartillögu í gær um að íslenska fánanum yrði fundinn staður í þingsal Alþingis. Þetta er í þriðja sinn sem Guðmund- ur tekur málið upp á Alþingi en flutningsmenn koma úr öllum flokk- um og eru 31 talsins. Enginn fáni er í þingsal Alþingis og þykir flutn- ingsmönnum sem ásýnd salarsins yrði önnur ef íslenski fáninn væri sýnilegur við eða nærri forsetastóli. „En hvernig má það vera að innan veggja Alþingis, þar sem rætt er um eflingu, vegsemd og gildi þingsins í íslensku þjóðlífi, skuli þjóðfáni vor ekki hafinn til vegs og virðingar?“ er spurt í greinargerð með frum- varpinu og bent á að í flestum öðr- um löndum sé þjóðfánanum gert hærra undir höfði. Í ræðustóli fór Guðmundur m.a. með ljóð eftir Pétur Sigurgeirsson biskup en fyrsta versið hljómar svo: Sjá, friðarbogi í skýjum skín, svo skartar Íslands fáni. Þitt útlit geislar ásýnd þín, hér eins og sól og máni. Kær fagur bláinn helgist hann, sem hvítt og rautt krossmerkið. Næst jökulísnum eldhraun brann, er Ísland kraftaverkið. Vilja finna íslenska fánanum stað í þingsal Morgunblaðið/ÞÖK Tillaga Mun fáninn prýða þingsal? ÞINGMENN BLOGGA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.