Morgunblaðið - 07.02.2007, Side 14

Morgunblaðið - 07.02.2007, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Riyadh, Jeddah. AP, AFP. | Forseti Palestínumanna, Mahmoud Abbas, hélt í gær til Sádi-Arabíu til fund- ar við æðsta yfirmann Hamas- samtakanna, Khaled Meshaal, til að leggja grunn að neyðarfundi í dag þar sem vonast er til að fund- in verði lausn á hörðum deilum Hamas og Fatah, flokks Abbas. Fyrir undirbúningsfund sinn í borginni Jeddah, sem er við Rauðahaf, hittu leiðtogarnir að máli Abdullah, konung Sádi- Arabíu sem bauð þeim til hinnar helgu borgar íslams, Mekka, þar sem sjálfur friðarfundurinn verður haldinn. Með Meshaal var forsætisráð- herra Palestínu, Ismail Haniyeh. Hamas fer fyrir ríkisstjórn Palest- ínu en Abbas er hins vegar forseti landsins. Vill hann leysa deilurnar við Ísraela með friðsamlegum samningum og málamiðlunum en Hamas vill í engu slaka til. Vopn- aðir liðsmenn fylkinganna tveggja hafa átt í blóðugum bardögum á Gaza og Vesturbakkanum og hafa alls um 100 manns fallið síðan í desember. Hamas neitar að viðurkenna til- vistarrétt Ísraelsríkis og neitar einnig að fordæma hryðjuverk. Hefur þessi afstaða valdið því að vestræn ríki hunsa ríkisstjórn Ha- mas og neita að styðja hana með fé. Íranar hafa hlaupið undir bagga en margir arabar óttast aukin áhrif þeirra, ekki síst Sádi- Arabar. Neyðarfundur Palestínu- manna í Mekka Mahmoud Abbas Khaled Meshaal Bagdad. AFP. | Íraskir byssumenn rændu á sunnudag írönskum stjórnarerindreka, Jalal Sharafi, í Bagdad, höfuðborg Íraks. Yfirvöld í Teheran greindu frá þessu í gær. Sharafi var rænt úr bíl sínum í Karrada-hverfinu af vopnuðum mönnum, sem klæddir voru í íraska herbúninga. Stjórnvöld í Íran hafa fordæmt verkn- aðinn og vilja draga Bandaríkjamenn til ábyrgðar. Talsmaður Bandaríkjahers sagði hins vegar að hvorki bandarískir né íraskir hermenn hefðu haft nokkuð með mannránið að gera. Samskipti Bandaríkjamanna og Ír- ana hafa verið slæm, ekki síst eftir að Banda- ríkjamenn handtóku fimm Írana í síðasta mánuði í norðurhluta Íraks en fullyrt var að þeir hefðu stundað njósnir fyr- ir hönd íranskra stjórnvalda. Bandaríkjamenn hafa ráðamenn í Íran grunaða um að kynda undir ofbeldi í Írak. Deilur um kjarnorkuáætlun Ír- ana auka á spennuna sem er í samskiptum þessara tveggja ríkja en Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sakaði Írani jafnframt um það í gær að vilja valda „hámarksvandræðum“ í Mið-Austurlöndum. Írönskum stjórnarerindreka rænt í Bagdad í Írak Aukinn öryggisviðbúnaður er nú á götum Bagdad-borgar. Clayton í Missouri. AP. | Michael Devlin, 41 árs gamall Banda- ríkjamaður sem rændi níu ára gömlum dreng fyrir fimm árum og öðrum í síð- asta mánuði, er sakaður um að hafa beitt þá kynferðislegu ofbeldi. Devlin sætir tveimur ákærum um mannrán en 69 ákæruliðir víkja að kynferðislegu ofbeldi. Málið hefur vakið mikið umtal vestra, enda bjó Shawn Hornbeck, sem nú er fimm- tán ára, með Devlin í fimm ár og hafði mörg tækifæri til að flýja eða hafa samband við foreldra sína eða lögreglu. Í ákærum saksóknara kemur hins vegar fram að fyrsta mán- uðinn sem Hornbeck var í prísund- inni sleppti Devlin honum ekki út fyrir hússins dyr og er Devlin sak- aður um að hafa neytt hann ítrek- að til kynferðislegra athafna þann tíma og æ síðan. Þá er Devlin sak- aður um að hafa neytt Ben Ownby, sem hann rændi 8. janúar, til hins sama fjórum sinnum á dag, þá fjóra daga sem hann var í haldi Devlins. Sakaður um að hafa beitt drengina kynferðisofbeldi Michael Devlin Heilbrigðisyfirvöld í Svíþjóð hafa látið farga yfir 100.000 hænum og kjúklingum á alifuglabúum á Skáni vegna salmonellu-sýkingar. Litlar líkur eru á að smit berist til manna. Þetta er versta salmonellu-sýking sem hefur komið upp í Svíþjóð um árabil. Sænsk salmonella Heimspek- ingurinn Só- krates hafði meiri áhrif á gang sög- unnar með hugsun sinni en flestir aðrir menn. Hugmyndir hans eiga enn brýnt erindi við samtímann ef marka má nýja breska rannsókn, sem bendir til þess að með því að kenna 10-12 ára börnum „að hugsa eins og Sókrates“, með sókratísku aðferðinni í rökræðum, sé stuðlað að viðvarandi framförum í andlegu atgervi, sem nemur sjö punktum á greindarvísitöluskal- anum. Þykir þetta sýna að þjálfa megi upp gáfur, að sögn breska blaðsins The Daily Telegraph. Fyrrverandi ungfrú Brasilía, Taiza Thomsen, sem ekkert hafði spurst til í fimm mánuði, er búsett í Lond- on og hún hefur engan áhuga á að vera í sambandi við foreldra sína, en þeir höfðu lýst eftir henni. Bras- ilíska lögreglan greindi frá þessu. „Hvarf“ viljandi Aðeins dró úr þrýstingnum á Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, í gær vegna lánahneykslisins þegar saksóknari sagði „ófullnægjandi sönnunargögn“ fyrir hendi til að ákæra Des Smith, fyrrum ráðgjafa hans. Léttir fyrir Blair Peking. AFP, AP. | Kínversk stjórnvöld sögðust í gær ekki ráðgera róttækar breytingar á orkustefnu sinni til að draga úr notkun á kolum og öðrum mengandi orkugjöfum. Talsmaður kínverska utanríkis- ráðuneytisins, Jiang Yu, lagði áherslu á að loftslagsbreytingarnar í heiminum stöfuðu af „losun gróður- húsalofttegunda í iðnríkjunum í langan tíma“ og iðnveldunum bæri skylda til að draga úr menguninni í samræmi við Kyoto-bókunina. Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Ástralíu, sem vildu ekki staðfesta Kyoto-bókunina, hafa sagt að lönd á borð við Kína eigi ekki að vera und- anþegin samningum um takmarkan- ir á losun gróðurhúsalofttegunda. Um 70% af orkuþörfinni í Kína er mætt með kolum og landið er í öðru sæti á eftir Bandaríkjunum á lista yf- ir lönd þar sem losun gróðurhúsa- lofttegunda er mest. Gert er ráð fyr- ir því að Kína skjótist upp fyrir Bandaríkin á næstu árum. Miðað verði við höfðatöluna Kínverjar hafa lagt áherslu á að miða eigi við höfðatöluna í þessum efnum og benda á að losun gróður- húsalofttegunda á hvern íbúa er mun minni í Kína en í Bandaríkjunum og öðrum iðnveldum. Qin Dahe, forstöðumaður Veður- fræðistofnunar Kína, sagði í gær að kínverskir ráðamenn hefðu áhyggj- ur af hlýnun jarðar en réðu ekki yfir nægu fjármagni og tækni til að draga úr notkun kola svo um munaði. Segja Kína þurfa að reiða sig á kol áfram K K K K  K     "#$% &#%' "#(& ) $*    +,-./011 0121+. +   3   !   !   4 '(  5 36       )"*7 '77$ INDÓNESÍSKUR piltur veður vatn á götu í Jakarta, höfuðborg Indóne- síu. Að minnsta kosti 44 manns hafa látið lífið af völdum flóða í Jakarta og nágrenni og um 340.000 manns hafa þurft að flýja heimili sín. Flóðin færðust í aukana í gær vegna aftakarigningar og heil- brigðisyfirvöld vöruðu við vaxandi hættu á því að sjúkdómar breiddust út vegna mengaðs vatns á götum borgarinnar. AP Hundruð þúsunda flýja heimili sitt Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is FYRIR hálfu ári fór Lisa Nowak í sína fyrstu geimferð, var þá í sex manna áhöfn geimferjunnar Disco- very sem eyddi þrettán dögum úti í geimnum og heimsótti m.a. al- þjóðlegu geimstöðina. Nú gistir hún hins vegar fangaklefa í Flórída, að- alsöguhetjan í sápuóperulegu „geimdrama“ um ástir og af- brýðisemi. Nowak var handtekin á alþjóða- flugvellinum í Orlando eldsnemma á mánudag og síðar ákærð fyrir árás á konu, sem hún áleit keppinaut um ástir annars geimfara, Williams Oefe- lein, en hann fór einnig í sína fyrstu geimför með Discovery á síðasta ári, þó ekki þá sömu og Nowak. Nowak er einnig ákærð fyrir tilraun til mann- ráns og ýmsar aðrar sakir og á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi. Tólf tíma keyrsla í bleiu Nowak mun hafa ekið 1.500 km, frá heimili sínu í Houston í Texas til Or- lando, í því skyni að hitta á Colleen Shipman á alþjóðaflugvellinum, en hana grunaði að Shipman væri keppi- nautur hennar um ástir Oefeleins. Nowak ók vegalengdina í einni strik- lotu, alls tólf tíma, og hafði smeygt sér í bleiu sambærilega þeim, sem geim- farar eru í þegar þeir fara í gegnum lofthjúp jarðar, svo að hún þyrfti ekki að stoppa á leiðinni. Nowak íklæddist gervi – var með hárkollu og í yfirfrakka – og hafði í fórum sínum loftbyssu og piparúða þegar hún fann Shipman, þar sem hún var að fara upp í flugvallarrútu frá flugstöðinni að bíl sínum á bíla- stæði vallarins. Shipman hefur sagt lögreglu að hún hafi orðið þess vör að einhver væri að elta hana, og því flýtti hún sér að bílnum og læsti. Nowak barði þá á glugga, reyndi að opna bíldyrnar og kallaði svo á Ship- man að hana vantaði far. Shipman neitaði þeirri bón en þegar Nowak byrjaði að gráta opnaði Shipman rifu á bílgluggann. Nowak nýtti sér hins vegar rifuna til að úða piparúðanum í andlit hennar. Shipman tókst engu að síður að aka bíl sínum að útgönguhliði þar sem hringt var á lögregluna. Nowak náðist síðar en til hennar sást þar sem hún var að fleygja poka með hárkollunni og loftbyssunni í ruslafötu. Í bíl hennar, sem hafði ver- ið lagt við hótel á flugvallarsvæðinu, fundust síðan m.a. skothylki fyrir loftbyssu, gúmmíhanskar og afrit af tölvupóstum, sem gengið höfðu milli Nowak og Oefelein. Jafnframt fannst þar ástarbréf til Oefelein. Samkvæmt framburði Nowak mun hún aðeins hafa ætlað að hræða Ship- man til þess að tala um samband hennar og Oefeleins, ekki vinna Ship- man neitt mein. „Ef þú ætlaðir aðeins að tala við einhvern er ég ekki viss um að þú þyrftir hárkollu, yfirfrakka, loftbyssu og piparúða,“ sagði hins vegar Barbara Jones, talskona lög- reglunnar í Orlando. Nowak er 43 ára og gift, þriggja barna móðir. Hún er kafteinn í sjó- hernum með meistaragráðu í geim- flugsverkfræði. Lögreglan í Orlando segir Nowak hafa lýst sambandi sínu og Oefeleins, en hann er 41 árs, ógift- ur tveggja barna faðir, þannig að þau væru „meira en samstarfsfélagar en ættu þó ekki í ástarsambandi“. Sápuóperulegt drama um ástir og afbrýði geimfara Lisa NowakWilliam Oefelein Efinn Spurningar vekja forvitni. Sókrates hollur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.