Morgunblaðið - 07.02.2007, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2007 15
ERLENT
Aranjuez. AP. | Victor Manuel Lozano gerir það
sem flest önnur tveggja ára börn taka sér fyrir
hendur. Hann fer í leikskóla, teiknar og þeysist
um á þríhjóli. Líf hans er þó óvenjulegt að því
leyti að hann gerir þetta í fangelsi, býr þar með
mömmu sinni, sem hefur verið dæmd fyrir morð,
og pabba sínum, eiturlyfjasmyglara.
Spænskir embættismenn segja þetta eina fang-
elsið í heiminum með klefa sem ætlaðir eru fjöl-
skyldum. Þeir hafa verið kallaðir „fimm stjarna
klefarnir“, eru með barnarúm og skreyttir með
teiknimyndafígúrum. Fyrir utan er jafnvel leik-
völlur fyrir börnin.
Hugmyndin er að börnin tengist foreldrum sín-
um í fangelsinu – meðan þau eru enn svo ung að
þau gera sér ekki fulla grein fyrir fangelsuninni –
og að hjálpa föngunum að læra að ala upp börn.
Sálfræðingur fangelsisins og fangarnir við-
urkenna að fangelsi geti aldrei verið kjörinn stað-
ur til að ala upp börn en segja að aðskilnaður
myndi vera enn verri.
„Þau annast vel um okkur og ég er mjög glöð að
búa hérna hjá barninu mínu og manninum mín-
um,“ sagði Carmen Garcia, móðir Victors Manu-
els. „Þetta er þó ekki besti staðurinn til að ala upp
börn. Þau eru að nokkru leyti fangar líka.“
Garcia, sem er 28 ára, var dæmd í tíu ára fang-
elsi fyrir að myrða unnusta sinn. Hún kynntist
eiginmanni sínum, Victor Lozano, í fangelsi. Þau
gengu í hjónaband á bak við lás og slá áður en Vic-
tor Manuel fæddist.
Tekin í burtu þriggja ára
Fangelsið er eini staðurinn sem barnið þekkir.
Vörður vekur fjölskylduna á morgnana og Victor
Manuel er læstur inni í klefanum á kvöldin eftir að
hafa leikið sér við börn annarra fanga á leikvell-
inum. Stundum stendur hann fyrir utan klefann
og grætur vegna þess að hann vill ekki vera læst-
ur inni.
Fangelsið er um 40 km sunnan við Madríd og í
því eru 36 klefar. Börnin geta aðeins verið þar til
þriggja ára aldurs. Þegar þau hafa náð þeim aldri
eru þau flutt í burtu og látin í fóstur hjá ætt-
ingjum eða öðrum á vegum félagsmálayfirvalda.
Sálfræðingur fangelsisins, Maria Yela, við-
urkennir að þægindin í fjölskylduklefunum geti
orðið til þess að fangar freistist til að hafa svik í
frammi. Margar konur með börn, sem eru að
verða þriggja ára, hafi reynt að verða barnshaf-
andi aftur til að geta verið áfram í klefanum.
Nokkrir sérfræðingar hafa varað við því að það
geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir börn að alast
upp á bak við lás og slá fyrstu árin. „Fram hafa
komið fjölmargar vísbendingar um að þetta hafi
áhrif á þau til langs tíma,“ sagði Frances Crook,
forstöðumaður stofnunar í London sem beitir sér
fyrir umbótum í fangelsismálum. „Þau sjá ekki
dýr, þau sjá ekki tré, fá ekki þá örvun sem þau
þurfa til að þroskast sem heilbrigð börn.“
Spænsk yfirvöld segja að fangelsið hafi gefið
góða raun en viðurkenna að það geti verið mjög
sárt fyrir börnin að vera tekin frá foreldrum sín-
um þegar þau verða þriggja ára.
Yela hefur líka efasemdir um að það sé hollt
fyrir börn að alast upp í fangelsi fyrstu árin en
segir að mestu máli skipti að fjölskyldurnar séu
saman. „Það þarf að stuðla að tengslum milli
barns og foreldra þess,“ sagði hún.
Fjölskyldufangelsið var reist árið 1998. Til eru
mörg fangelsi víða um heim þar sem börn geta
verið hjá mæðrum sínum. Í Danmörku er fangelsi
þar sem hjón geta verið saman á daginn í sér-
stakri deild – með eða án barna – en eru síðan að-
skilin á kvöldin og barnið sefur hjá móður sinni.
Fimm stjarna fjölskylduklefar
Börn búa hjá foreldrum
sínum í spænsku fangelsi
AP
Fangelsissæla Barn í faðmi foreldra sinna í fjölskylduklefa í Aranjuez-fangelsinu á Spáni.
London. AP. | „Við
lendum í grjótinu
félagi,“ sagði
ónefndur banda-
rískur flugmaður
við kollega sinn í
annarri vél eftir
að honum varð
ljóst að þeir hefðu
skotið á skrið-
dreka banda-
manna sinna í Írak þann 28. mars
2003. Atvikið komst upp þegar
breska blaðið The Sun birti samtöl
úr myndbandi úr flugstjórnarklefan-
um í gær. Bandaríkjaher hafði neit-
að að láta myndbandið í hendur fjöl-
skyldu Matty Hull, hermannsins
sem lést í árásinni, þrátt fyrir beiðni
breska stjórnvalda.
Um borð í Scorpion-skriðdreka
Flugmennirnir, sem stýrðu tveim-
ur bandarískum A-10 orrustuþotum,
hófu skothríð á Scorpion-skriðdrek-
ann sem Hull var staddur í. Var
drekinn í hópi fimm farartækja sem
tóku þátt í bardögum utan við írösku
borgina Basra og höfðu staðnæmst
þegar hópur óbreyttra borgara nálg-
aðist þau með hvítan fána. Hófst þá
skothríð orrustuþotnanna.
Sean McCormack, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins,
sagði flugmennina strax hafa gert
sér grein fyrir því að um „hræðileg
mistök“ hefði verið að ræða. Marg-
aret Beckett, utanríkisráðherra
Bretlands, lofar rannsókn á málinu í
samvinnu við bandarísk stjórnvöld.
Felldu
bandamann
í skriðdreka
Myndbandinu lekið
eftir marga ára þögn
Matty Hull