Morgunblaðið - 07.02.2007, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2007 21
Sigmundur Benediktsson yrkirtil Jóns Ingvars Jónssonar
„hálfaldraðs“ á fimmtugsafmælinu:
Ei skal tefja heldur hefja háttaflæði,
saman stefja kynlegt kvæði,
kræft og skefjalausast æði.
Græskuhraust, við gátið laust það
getur orðast,
sannleiksflaustur síst það forðast,
sjafnarnaustið við það skorðast.
Heillum faldist hálfrar aldar
heiðursmaður.
Geymir aldur ekki staður,
orðaskvaldursræpuglaður.
Fer með hrannir ferðamanna fjöll og
dali,
með þeim kannar sólarsali,
seðja kann úr fræðamali.
Einn er Jón sem uppá trónir orðabrasi,
tár úr Sónar- teygar glasi,
tamur þjónar gleði masi.
Langar stundir ljóðaglundur leirar
saman.
Hann er undur frjór í framan,
fetar bundið háttagaman.
Út og suður efnisruður upp hann tínir,
ýmsar kruður í þeim sýnir
andans buðlungsviskurýnir.
Sínum ota oft vill tota enn á kvöldin.
Engu slota ellivöldin,
ákaft notast sáttagjöldin.
Sæll við stunur sáttur unir, síst er grip
þur,
mettar funa munarlipur
margföldunar smíðisgripur.
Saman kyndi ást og yndi ævidaginn
næmur, fyndinn, lipur, laginn
láttu myndast gleðibraginn.
VÍSNAHORNIÐ
Jón Ingvar fimmtugur
pebl@mbl.is
NÝ bandarísk rannsókn gefur til
kynna að ofdrykkja sé meira vanda-
mál en áfengisfíkn. Ofdrykkja er
skilgreind sem fimm drykkir eða
meira hverju sinni sem drukkið er.
Faraldsfræðingurinn Jim Roeber
sem starfar hjá heilbrigðisyf-
irvöldum í Nýju Mexíkó í Banda-
ríkjunum, þar sem rannsóknin var
gerð, segir að rannsóknir hingað til
hafi ofmetið þátt áfengisfíknar í
þeim heilsufarsvandamálum sem
fylgja drykkju og vanmetið of-
drykkju.
Alkóhólismi er skilgreindur sem
óstjórnleg fíkn en ofdrykkja er mis-
notkun áfengis meðal þeirra sem
ekki eru alkóhólistar.
Rannsóknin tók til rúmlega fjögur
þúsund áfengisneytenda. Af þeim
voru aðeins tæp 2% fíklar en rúm
16% drukku meira en landsmeðaltal.
Sagt er frá rannsókninni á norska
vísindavefnum forskning.no og jafn-
framt frá viðleitni þar í landi til að
auka hófdrykkju en draga úr fyll-
eríi. Að sögn talsmanns
áfengisvarnarráðs Noregs, SIRUS,
hafa drykkjuvenjur Norðmanna
breyst þannig á síðustu áratugum
að hófdrykkja hefur aukist en án
þess að draga úr fylleríi.
Ofdrykkja meira vanda-
mál en alkóhólismi
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Síðumúla 3, sími 553 7355
Undirfatnaður - kvenfatnaður
Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardaga frá kl. 11-15.
Opið frá kl. 11-21 í kvöld og morgun, fimmtudag.
Sprengivika 7.-14. febrúar
Útsala
30-60% afsl. af völdum vörum