Morgunblaðið - 07.02.2007, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2007 37
dægradvöl
Staðan kom upp á sterku alþjóðlegu
móti sem lauk fyrir skömmu í Gí-
braltar. Armenski stórmeistarinn Vla-
dimir Akopjan (2.700) hafði hvítt
gegn 16 ára kollega sínum Yuriy
Kuzubov (2.554) frá Úkraínu. 18.
Rxc6! Kxc6 19. Rd5! De8 svartur
hefði orðið mát eftir 19. … Bxd5 20.
exd5+ Kd7 21. Db5+. 20. Da6 Bf8
21. Dxa7 Bc5 22. b4 Dd7 23. Da6! og
svartur gafst upp enda fátt um fína
drætti í stöðu hans. Þetta var úr-
slitaskák mótsins þar sem eftir þenn-
an sigur í lokaumferðinni varð Akopj-
an einn efstur á mótinu með 7½
vinning af níu mögulegum. Íslensku
alþjóðlegu meistararnir Stefán Krist-
jánsson (2.485) og Jón Viktor Gunn-
arsson (2.419) fengu báðir fimm vinn-
inga á mótinu og lentu í 48.–72. sæti
af 176 keppendum.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik
Blankur kóngur.
Norður
♠K10
♥DG94
♦ÁDG
♣ÁK86
Vestur Austur
♠G9742 ♠ÁD85
♥K ♥65
♦1074 ♦K83
♣D532 ♣G1097
Suður
♠63
♥Á108732
♦9652
♣4
Suður spilar 4♥
Líkur á stökum kóng þegar þrjú spil
eru úti eru 26%, eða þriðjungur af 2–1-
legunni (78%). Þessi stærðfræði er
ágæt til síns brúks, en hún kemur þó
ekkert við sögu í þessu spili. Austur
gaf og passaði í upphafi og suður vakti
galvaskur á veikum tveimur í hjarta.
Stóð svo á bremsunni og tókst að fá
makker til að hætta í fjórum hjörtum.
Spaði út og austur tók á ÁD og skipti
yfir í laufgosa. Sagnhafi drap, spilaði
hjartadrottningu úr borði – lítið frá
austri og ÁS frá sagnhafa. „Þú spilar á
móti líkunum,“ sagði vestur þegar
hann afhenti kónginn. En suður vissi
sínu viti. Hættan í spilinu er sú að aust-
ur sé með tígulkóng, en þá getur hann
ekki átt hjartakónginn líka – hann
sagði PASS í byrjun.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 lengja, 8 sólar,
9 þegjandalegan, 10
málmur, 11 nabbinn, 13
hugsa um, 15 sárið á ós-
lægjunni, 18 brókarlalli,
21 fugl, 22 syllu, 23 skatt-
ur, 24 lyddan.
Lóðrétt | 2 rík, 3 yndi, 4
heitis, 5 snaginn, 6 kven-
fugl, 7 röska, 12 leðja, 14
reið, 15 sæti, 16 hæð-
irnar, 17 vondum, 18 lít-
inn, 19 kæri, 20 straum-
kastið.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 slagi, 4 senna, 7 orðan, 8 aldan, 9 agg, 11 torf,
13 ásar, 14 ráðin, 15 skrá,17 arfi, 20 enn, 22 ofnar, 23
ýldan, 24 maula, 25 alinn.
Lóðrétt: 1 skort, 2 arður, 3 iðna, 4 stag, 5 nadds, 6 angar,
10 góðan, 12 frá, 13 ána, 15 storm, 16 rennu, 18 ræddi,
19 innan, 20 erta, 21 nýta.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
1 Þrír litlir hvolpar hafa verið nefndireftir þremur handboltaköppum
íslenska landsliðsins. Hverir eru þeir?
2Hálendisvegir eru mjög í um-ræðunni og hefur Landvernd hef-
ur látið vinna drög að skýrslu um há-
lendisvegi með tilliti til
umhverfissjónarmiða. Hver er fram-
kvæmdastjóri Landverndar?
3Nýr forstjóri Umhverfisstofnunarhefur verið ráðinn. Hver er það?
4 Fyriráætlanir Iceland Express uminnanlandsflug eru í uppnámi
vegna aðstöðuleysis á Reykjavík-
urflugvelli. Hver er framkvæmdastjóri
Iceland Express?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Jarðeðlisfræðingur hefur lýst efasemd-
um um landfyllinguna í Örfirisey og reyndar
víðar vegna hækkandi sjávarstöðu í fram-
tíðinni. Hver er það? Svar: Magnús Tumi
Guðmundsson. 2. Hvað heitir eiginkona
Barack Obama, hugsanlegs forseta-
frambjóðanda demókrata? Svar: Michelle.
3. Sinfóníuhljómsveitin er að leggjast í
ferðalög seinna í mánuðinum. Hver er ferð-
inni heitið? Svar: Þýskalands, Króatíu og
Austurríkis. 4. Henrik Stenson sigraði á
Dubai-meistaramótinu í golfi. Hvaðan er
hann? Svar: Frá Svíþjóð.
Spurt er …
ritstjorn@mbl.is
HÁLEITASTI en jafnframt vina-
legasti klúbbur lýðveldisins, Kamm-
ermúsíkklúbburinn, fagnar fimm-
tugu nú í febrúar. Fimmtu tónleikar
afmælisstarfsársins hömpuðu tíma-
mótunum við hæfi með frumflutn-
ingi á nýju íslenzku verki af sama
tilefni, styrktu af Nýsköpunarsjóði
Musicae Novae, og eftir hlé öndveg-
isverki Beethovens fyrir strengja-
kvartett í cís-moll Op. 131.
Það er enginn öfundsverður af að
þurfa að „hita upp“ fyrir síðargetna
meistarasmíð sem margir hafa kall-
að strengjakvartett allra strengja-
kvartetta. Nýkláruð afmæliskveðja
Þorkels Sigurbjörnssonar til KMK,
Tilbrigði fyrir píanó og strengja-
kvartett, barst enda ekki mikið á
með þáttaheitunum tveim er varla
fyndust minna skuldbindandi – „Að-
dragandi“ [6’] og „Framhald“ [8’].
Fæst orð bera minnsta ábyrgð og
ekki nema gott um það að segja.
Hitt fannst mér verra sem fram
kom af verkinu sjálfu, einkum þó
seinni þættinum – að spana upp sí-
magnaða eftirvæntingu eftir fleygri
úrvinnslu og lausn sem einhvern
veginn aldrei kom. Mér brá því
óneitanlega í brún þegar Fram-
haldið var allt í einu búið og hvergi
hafði bólað á synþesu sem bragð var
að. Ekki þar með sagt að stykkið
hafi verið óáheyrilegt, enda tor-
fundið leiðinlegt verk eftir Þorkel
flutt af sama vandlæti og hér var að
heilsa. A-ES-B-B stefið (sótt að
klassískum hætti til kAmmErmúS-
íkklúBBsins) gerði líka sitt sam-
tengjandi gagn í I. þætti, og
smákadenzur víólunnar settu mik-
inn þokkasvip á II. Hins vegar var
stuttu viðlagsstefi þáttarins í mínum
eyrum það offlíkað að jaðraði við
hjakk – sérstaklega þegar breiðari
útfærsla lét á sér standa. Dálítið líkt
og þegar stálfjöður er spennt til hins
ýtrasta en aldrei leyst úr læðingi.
Sjöþættur Strengjakvartett
Beethovens frá 1826 er stórbrotið
listaverk; það víðfeðmt að tjáningu
að ég man úr æsku að plötuforleggj-
ara einum þótti viðeigandi að prenta
mynd á umslagi af stjörnuþoku í
milljóna ljósára fjarlægð. Það er og
til marks um flutningskröfurnar að
fyrst undir lok síðustu aldar lögðu
hérlendir hljómlistamenn til atlögu
við þennan kvartett. Tveir þeirra, á
1. fiðlu og selló, birtust hér reyndar
aftur eftir 8 ára hlé, og hefur upp-
söfnuð reynsla ugglaust skilað sér
með vöxtum, þó ekki geti ég borið
saman þá og nú sakir fjarveru í
fyrra skiptið.
Eins og ævinlega, meðan engir ís-
lenzkir spilendur starfa fast saman í
kvartett árið um kring, þarf í raun-
inni kraftaverk til að útkoman
standist samanburð við færustu at-
vinnuhópa í heimi. En með þeim fyr-
irvara lá samt furðuvíða við að
kraftaverkið gerðist. Það var helzt í
fyrstu hröðu þáttunum (II & III) að
vantaði stundum ögn upp á samtaka
hrynskerpu. Hæga upphafsfúgan
var hins vegar eðalborin, og eftir
þaulfágaða ástríðu IV og neistaflug
V gat leiðin aðeins legið upp á við.
Frábær hópleikur og undraþjál
túlkun – eftir atvikum blóðheit,
hvöss, dulúðug eða hjartahlý, allt í
hrífandi anda þessa tónrisa meðal
mannvina.
Tónrisinn
meðal mannvina
TÓNLIST
Bústaðakirkja
Þorkel Sigurbjörnsson: Tilbrigði fyrir pí-
anókvintett (frumfl.). Beethoven:
Strengjakvartett í cís Op. 131. Sigrún
Eðvaldsdóttir, Zbigniew Dubik fiðla; Þór-
unn Ósk Marínósdóttir víóla, Bryndís
Halla Gylfadóttir selló og Anna Guðný
Guðmundsdóttir píanó. Sunnudaginn 4.
febrúar kl. 20.
Kammertónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
Kammermúsíkklúbburinn „Háleitasti en jafnframt vinalegasti klúbbur
lýðveldisins,“ segir meðal annars í dómi Ríkharðs Ö. Pálssonar.