Morgunblaðið - 07.02.2007, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Byrgið – enn eitt
framsóknarhneykslið
Nú er það orðið alveg augljóst að
ábyrgðarmenn í Framsókn-
arflokknum, félagsmálaráðherrar
Framsóknarflokksins og ekki hvað
síst framsóknarmaðurinn Birkir Jón
Jónsson, formaður fjárlaganefndar,
eru þeir sem bera höfuðábyrgð á
tuga milljóna króna fjármálaóreiðu
Byrgisins. Páll Pétursson, fyrrum
félagsmálaráðherra, skellir mikilli
ábyrgð á eftirmann sinn, Árna
Magnússon, þegar hann segir að
Árni hefði átt að fylgjast með því að
samningurinn við Byrgið yrði und-
irritaður. Árni Magnússon gerði það
hins vegar greinilega ekki og er auk
þess horfinn úr stjórnmálum eftir
mjög stutta, umdeilda, en af-
drifaríka setu sem félagsmálaráð-
herra. Árni Magnússon gefur fjöl-
miðlum hvergi færi á sér til þess að
ræða þessi mál né önnur. Núverandi
félagsmálaráðherra, Magnús Stef-
ánsson, virðist líka vera mikið í mun
að sneiða hjá því að ræða ábyrgð fé-
lagsmálaráðuneytis Framsókn-
arflokksins á þessum hræðilegu og
dýrkeyptu mistökum. Ennþá meira
reynir þó framsóknarþingmaðurinn
Birkir Jón Jónsson að fela sig og
fría sig ábyrgð. Hann kom þó ræki-
lega við sögu í samningamálum við
Byrgið og ber sennilega meiri
ábyrgð á þeim málum en nokkur
annar. Því tek ég undir með Þórarni
Tyrfingssyni, yfirlækni á Vogi, þeg-
ar hann kennir Framsókn-
arflokknum mest um þetta hneyksli,
sem gengur undir nafninu „Byrg-
ismálið“. Til að koma í veg fyrir
svipað klúður í framtíðinni er því
helsta ráðið að útiloka Framsókn-
arflokkinn frá ríkisstjórnum í fram-
tíðinni.
Stefán Guðmundsson
Verðlag í Fríhöfninni
Á ferðalögum erlendis hef ég stund-
um með mér heilsutvennu frá Lýsi.
Nú á dögunum keypti ég slíkan
pakka á leið utan í fríhöfninni, þar
kostar hann 1.099 kr. Það þótti mér
mikið þar sem slíkur pakki kostar
615 kr. í stórmörkuðum á höf-
uðborgarsvæðinu.
Ég hafði orð á þessu við starfs-
mann og spurði hverju þetta sætti?
„Græðgi“ var svarið frá starfs-
manni fríhafnarverslunannar.
Það er líklega alveg rétt hjá hon-
um.
En verslun innan fríhafnarinnar
er undanþegin virðisaukaskatti og
ætti að geta boðið mun betri verð en
þetta.
Ferðamaður
Leikir með
takmarkaða notkun
Sá gríðarvinsæli tölvuleikur World
of Warcraft hefur oft verið nefndur
í fjölmiðlum í tengslum við umræðu
um þrásetur ungviðisins yfir slíkum
leikjum. Eitt hefur þó ekki komið
fram, það er innbyggður í þann leik
sá möguleiki að takmarka notkun
hans við tiltekinn tíma dagsins.
Þetta benti 15 ára sonur minn mér
á, en við höfum að undanförnu setið
á rökstólum um tölvunotkun hans
og hefur þar sitt sýnst hverjum. Það
má hiklaust benda foreldrum á að
skoða þennan möguleika. Börnin
vita örugglega hvernig á að virkja
þetta en leiðbeiningar er víða að
finna, m.a. á þessari síðu: http://
www.ehow.com/how_2003540_wow-
parental-control.html
Lesandi
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Víkverji dagsins erferðaglaður.
Hann varð því hinn
kátasti þegar hann sá
upplýsingar frá
Steppuferðum á Bret-
landi um ferðir til
Norður-Kóreu. Yf-
irvöld í Norður-Kóreu
hafa ekki beinlínis haft
allar klær úti til að
lokka ferðamenn til
landsins. Ferð Steppu-
ferða virtist því ákjós-
anlegt tækifæri til að
komast í veldi Kims
Jongs Ils. Draumurinn
um Norður-Kóreuferð
gufaði hins vegar upp
þegar kom að athugasemdum í
ferðabæklingnum. Þar segir: „Vin-
samlegast takið eftir að ALK (Al-
þýðulýðveldið Norður-Kórea) er
mjög viðkvæmt gagnvart blaða-
mönnum og fólki tengdu fjölmiðlum.
Vinsamlegast sækið EKKI um sæti í
ferðinni ef þið tengist þeim með ein-
hverjum hætti.“
Þannig fór um sjóferð þá, hugsaði
Víkverji með sér og sá að ljóst var að
hann kæmist ekki með í þessa ferð
nema með brögðum og undirferli.
x x x
Víkverji fór fyrir skömmu um frí-höfnina í Leifsstöð á leið vestur
um haf. Festi hann fé í áfengum
vökva, sem hann hafði
lofað að hafa með sér,
og spurði sérstaklega
hvort Bandaríkjamenn
tækju í mál að maður
hefði slíkan varning
með sér í handfarangri
í tengiflug. Pokinn var
rækilega innsiglaður og
tilkynnt að þetta dygði
til þess að Víkverji
kæmist allra sinna
ferða í Bandaríkjunum
með áfengið í handfar-
angri. Þegar á hólminn
var komið könnuðust
bandarískir öryggis-
verðir ekkert við að
hafa gefið fríhöfninni í
Leifsstöð nein fyrirheit um að
hleypa vökvum, sem þar hefðu verið
keyptir, í gegn með farþegum á leið í
tengiflug. Víkverji átti því tveggja
kosta völ, að setja staka flöskuna í
handfarangur eða skilja hana eftir.
Skemmst er að segja frá að hún
varð eftir, sem í sjálfu sér kom ekki
að sök, en Víkverji fór að velta fyrir
sér hvernig á því stæði að starfs-
menn verslunar, sem sérhæfir sig í
að birgja ferðalanga, geta ekki sagt
þeim rétt til um hvað þeir mega hafa
meðferðis til áfangastaða. Það er
ekki eins og Bandaríkin séu útkjálki,
heldur eru sennilega flestir þeir far-
þegar, sem leið eiga um Leifsstöð, að
fara þangað.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er miðvikudagur
7. febrúar, 38. dagur
ársins 2007
Orð dagsins: Annað er þetta: „Þú skalt elska
náunga þinn eins og sjálfan þig. Ekkert boðorð
annað er þessu meira.“ (Mark. 12, 31.)
Hollywood leik- og söngkonanBarbara McNair er látin, 72
ára að aldri. Hún lék m.a. á móti
Mary Tyler Moore og Elvis Presley.
McNair byrjaði að syngja á næt-
urklúbbum en færði sig svo yfir í
kvikmyndir og sjónvarp þegar sá
möguleiki opnaðist fyrir svartar kon-
ur á sjöunda áratugnum, og endaði
hún á að fá sinn eigin þátt.
Best þekkta hlutverk hennar í
kvikmynd var þegar hún lék eig-
inkonu Sidney Poitier í saka-
máladramanu They Call Me Mister
Tibbs! og í framhaldinu The Org-
anization árið 1971.
McNair lést á sunnudaginn eftir
langa baráttu við krabbamein. Eft-
irlifandi eiginmaður hennar er Char-
les Blecka en hann var sá fjórði sem
hún gekk upp að altarinu með.
McNair fæddist í Wisconsin árið
1934 og byrjaði snemma að syngja í
kirkjum og skólum. Eftir að hún náði
frægð í Hollywood sat hún m.a. fyrir í
Playboy. Árið 1968 lék hún í sinni
fyrstu kvikmynd, If He Hollers, Let
Him Go, og ári seinna lék hún á móti
Elvis Presley í Change Of Habit.
Frá 1969 var hún kynnir í sjón-
varpsþættinum The Barbara McNair
Show, á tíma sem fáar svartar konur
fengu slík tækifæri.
Hún kom fram opinberlega þangað
til á seinasta ári.
Yfir hundrað af þeim sem eru til-nefndir til Óskarsverðlauna
þetta árið mættu í árlegt hátíðlegt
hádegisverðaboð fyrir tilnefnda í vik-
unni.
Clint Eastwood, Martin Scorsese,
Leonardo DiCaprio, Helen Mirren
og Penelope Cruz voru meðal þeirra
gesta sem mættu í boðið sem var
haldið í Los Angeles
Öll tilnefnd stilltu sér upp saman
fyrir ljósmyndara, fengu skírteini
upp á að þau séu tilnefnd og upp-
tökutæki til að æfa þakkarræðuna ef
þau skyldu vinna Óskar.
Óskarsverðlaunaafhendingin fer
fram í Hollywood 25. febrúar næst-
komandi.
Einhleypaleik-
konan Drew
Barrymore
ætlar ekki að
vera ein á Val-
entínusardag-
inn eftir viku.
Hún ætlar að
skreppa í keilu
Fólk folk@mbl.is
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 8 LEYFÐ
BABEL kl. 8 B.i. 16
APOCALYPTO kl. 10 B.i. 16
/ KEFLAVÍK
BLOOD DIAMOND kl. 8 B.i. 16 ára
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
FORELDRAR kl. 8 LEYFÐ
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
/ AKUREYRI
DREAMGIRLS kl. 6 - 9 - 10:20 LEYFÐ
BLOOD DIAMOND kl. 6 - 9 B.i. 16 ára
FORELDRAR kl. 6 - 8 LEYFÐ
BABEL kl. 9 B.i. 16 ára
CHILDREN OF MEN kl. 6 B.i. 16 ára
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 6 B.i. 16 ára
ÓSKARSTILNEFNINGAR
m.a. fyrir aðalhlutverk karla/ Leonardo dicaprio5
FRÁ LEIKSTJÓRA “THE LAST SAMURAI”
eeee
L.I.B. - TOPP5.IS
eeee
S.V. MBL.
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
EDDIE
MURPHY
BEYONCÉ
KNOWLES
JAMIE
FOXX
eee
DÖJ, KVIKMYNDIR.COM
Golden Globe
VERÐLAUN
m.a. besta myndin3
FRÁ HANDRITSHÖFUNDI RAIN MAN
OG GOOD MORNING VIETNAM
GÆTI ÞESSI MAÐUR ORÐIÐ
NÆSTI FORSETI?
Sjáið grínistann Robin Williams fara á
kostum sem næsti forseti Bandaríkjanna
ÓSKARSTILNEFNINGAR8
eeee
L.I.B. TOPP5.IS
eeee
S.V. MBL.
ÓSKARSTILNEFNINGAR2SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND
eeee
H.J. MBL.
eeee
B.S. FRÉTTABLAÐIÐ
ÓSKA
m.a. fyri3