Morgunblaðið - 07.02.2007, Page 44

Morgunblaðið - 07.02.2007, Page 44
Í HNOTSKURN »Félagsmálaráðherra segir Breiðavík-urmálið mjög alvarlegt og því þurfi að athuga þau gögn sem finnast um málið og setja athugun þess í réttan farveg. »Ráðherra tjáir sig ekki um það hvorttil greina komi að greiða fórn- arlömbum ofbeldis í Breiðavík skaðabæt- ur og segjr jafnframt varhugavert að dæma alla sögu Breiðavíkur út frá fram- komnum vitnisburði. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is MAGNÚS Stefánsson félagsmálaráðherra seg- ir íslensk yfirvöld vera að reyna að átta sig á eðli og umfangi þeirra atburða sem fjöldi manna hefur greint opinberlega frá að hafi átt sér stað á upptökuheimilinu í Breiðavík, þ.e. kynferðis- ofbeldis og annars ofbeldis gegn skjólstæðing- um heimilisins. „Það er verið að afla upplýsinga og athuga hvaða gögn eru til,“ segir Magnús. „Síðan mun- um við reyna að átta okkur á framhaldi málsins, þ.e. í hvaða farveg það verður sett. Það liggur ekki nákvæmlega fyrir núna hvernig verður far- ið í það, en ríkisstjórnin mun fjalla um það. Mál- ið snertir fleiri ráðuneyti en félagsmálaráðu- neytið,“ segir hann. Magnús tjáir sig ekki um það hvort til greina komi að greiða þeim mönnum bætur sem í æsku sættu illri meðferð á upptökuheimilinu, líkt og gert hefur verið í Noregi í þeirri viðleitni að bæta fyrir skaða sem norsk börn fyrr á árum urðu fyrir á upptökuheimilum. Mjög alvarlegt mál Aðspurður segist Magnús ekki dæma um al- varleika málsins, þ.e. hvort hér sé um að ræða eitt alvarlegasta mál sinnar gerðar, en segir engu að síður að málið sé mjög alvarlegt. Hann tekur fram að óvarlegt sé þó að fullyrða að ástandið hafi verið slæmt allan þann tíma sem heimilið var starfrækt. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson borgarstjóri hef- ur óskað eftir öllum upplýsingum sem til eru um fjölda barna sem send voru til Breiðavíkur á vegum Reykjavíkurborgar á árunum 1953-1970 og jafnframt að rannsakað verði hver urðu af- drif þeirra að Breiðavíkurdvölinni lokinni. Reyna að átta sig á fortíð Breiðavíkur  Ill meðferð drengja | 10 ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 38. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Hæg austlæg eða breytileg átt og yfirleitt létt- skýjað. 8–13 m/s og dálítil él syðst á landinu. » 8 Heitast Kaldast -2°C -7°C Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is SAMKOMULAG um kaup Avion Aircraft Trading (ATT) á sex nýj- um Airbus A330-200F fraktvélum var undirritað í höfuðstöðvum Airbus í Toulouse í Frakklandi í gær og er það í fyrsta skipti sem íslenskt fyrirtæki kaupir nýjar vélar af Airbus-verksmiðjunum. Listaverð vélanna er samtals 6,7 milljarðar en forsvarsmenn ATT segja kaupverðið umtalsvert lægra og er auðheyrt að þeir telja sig hafa náð mjög góðum samn- ingi. Vélarnar verða afhentar á árunum 2010 og 2011. „Það er trúnaðarmál,“ sagði Hafþór Hafsteinsson, stjórn- arformaður ATT, þegar hann var spurður um kaupverðið í gær. Hann sagði að ákvörðun ATT um kaupin byggðist á því hagstæða verði sem um var samið og spám um mikinn vöxt í fraktflutningum með flugi á næstu 20 árum. Við samningagerðina hefði vegið þungt að hjá ATT hefðu menn reynslu af því að kaupa nýjar vél- ar og að ATT væri aðeins fjórða fyrirtækið til að semja við Airbus um kaup á A330-200F fraktvél- inni, en fyrsta vélin af þeirri teg- und verður afhent árið 2009. Fjármögnun hefur verið tryggð með samningum við erlenda fjár- festingasjóði. ATT kaupir flugvélar og leigir þær síðan áfram eða selur. Haf- þór sagði að viðræður væru hafn- ar við flugfélög í Evrópu en var ófáanlegur til að gefa upp hvar í Evrópu þessi félög væru staðsett og hann vildi alls ekkert segja um hvort í þeim hópi væru íslensk flugfélög. ATT er í 51% meirihlutaeigu Hafþórs Hafsteinssonar og Arn- gríms Jóhannssonar, stjórnenda og annarra fjárfesta og 49% eru í eigu Eimskipafélags Íslands. Fé- lagið hefur nú alls keypt 27 flug- vélar, þ. á m. átta nýjar Boeing 777 flugvélar sem verða afhentar árið 2009. | 11 Kaupa sex nýjar Airbus-fraktvélar Á flugi Tölvugerð mynd af Airbus vél í litum Avion. Fyrst íslenskra félaga til að kaupa nýjar Airbus-vélar SAKSÓKNARI efnahagsbrotadeildar ríkis- lögreglustjóra hafnar því að nokkuð hafi ver- ið óeðlilegt við að skattrannsóknarstjóri svaraði beiðni ríkislögreglustjóra og veitti embættinu umbeðnar upplýsingar um af- greiðslu á meintum skattsvikabrotum nokk- urra einstaklinga tengdra Baugi Group, seg- ir í fréttatilkynningu ríkislögreglustjóraembættisins í gær. Baugur segir m.a. í sinni fréttatilkynningu vegna málsins að allar starfstengdar greiðslur til æðstu yfirmanna Baugs hafi ver- ið samningsbundnar í starfssamningum. Í tilkynningu saksóknarans segir m.a. að tilefni beiðninnar um upplýsingar hafi eink- um verið að leiða í ljós hvort tilefni væri til að hefja rannsókn opinbers máls vegna per- sónulegra skattskila einstaklings sem hafði, skv. upplýsingum í skýrslu skattrannsókn- arstjóra, dregið undan u.þ.b. 94 milljónir króna af launatekjum sem greiddar voru honum árin 1998–2000, auk tekna að fjárhæð á þriðja tug milljóna sem greiddar voru einkahlutafélagi hans. Baugur vekur í fréttatilkynningu sinni at- hygli á því að reglur um skattlagningu vegna kauprétta á hlutafé hafi verið óljósar á þeim tíma sem um ræðir, samanber hæstaréttar- dóm í máli skattayfirvalda vegna starfs- manna Landsbanka Íslands. | 8 og 9 Segir ekkert óeðlilegt við beiðni rls. Greiðslur voru samnings- bundnar segir Baugur GEIR Haarde forsætisráðherra var heið-ursgestur á árlegri þorragleði eldri borgara í Grafarvogi í gær. Samkoman var haldin í safn- aðarsal Grafarvogskirkju og var þorramatur á borðum. Snar þáttur þorragleðinnar er að bjóða stjórnmálamanni að taka þátt og er jafn- an glatt á hjalla og mikið sungið. Sjálfur söng ráðherrann einsöng við góðar undirtektir og söng einnig tvísöng með Þorvaldi Halldórs- syni. Tóku þeir saman hið þekkta lag Á sjó. Í veisluávarpi sínu gat ráðherra þeirra miklu breytinga sem elsta kynslóðin hefði upplifað. Morgunblaðið/RAX Söngglaður ráðherra hjá eldri borgurum ♦♦♦ AÐ MATI formanns Félags grunnskóla- kennara hefur slitnað upp úr viðræðum grunnskólakennara og sveitarfélaga um samningsbundna endurskoðun á launum kennara. Eftir langt verkfall haustið 2004 sam- þykktu grunnskólakennarar naumlega kjarasamning til þriggja ára sem hafði að geyma ákvæði um að endurskoða skyldi samninginn vegna efnahags- og kjaraþró- unar til 2006. Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, segir að auk þeirra hækkana sem samið hafi verið um að tækju gildi nú um áramótin hafi sveitar- félögin boðið 0,75% hækkun. „Við teljum að það sé langur vegur í að það bæti þá efna- hags- og kjaraþróun sem orðið hefur á þessu tímabili. Við höfum líka bent á að við höfum dregist verulega aftur úr öðrum upp- eldis- og menntunarstéttum.“ Ólafur bendir á að grunnskólakennarar hafi í haust boðið 6–7% hækkanir sem væru hóflegar í samanburði við aðrar sambæri- legar stéttir. Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, formaður launanefndar sveitarfélaganna, segir aðila sammála um að leggja eigi sam- komulag SA og ASÍ vegna efnahagsþróun- ar til grundvallar en deilt sé um hvernig eigi að nota það til viðmiðunar. Hann segist ekki líta svo á að slitnað hafi upp úr viðræðunum og telur að enn sé von til að ná megi sáttum. Óttast hann að erfiðir tímar séu framundan í kjaraviðræðunum en mikilvægt sé að að- ilar nái sáttum, enda vilji enginn endurtaka það sem gerðist haustið 2004. Deilan er enn í hnút Gunnar Rafn Sigurbjörnsson Ólafur Loftsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.