Morgunblaðið - 23.04.2007, Page 1
STOFNAÐ 1913 109. TBL. 95. ÁRG. MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
TIL FRAMTÍÐAR
MEÐ MENNTASJÓÐ AÐ VOPNI RÆTAST
DRAUMAR BARNANNA >> DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐS-
SKEIFAN Í HÁLFA ÖLD
Á HVANNEYRI
TEMUR NEMENDUR >> 21
ORRA Vigfússyni for-
manni NASF, Vernd-
arsjóðs villtra laxa,
verða í kvöld veitt
Goldman-umhverfis-
verðlaunin í San Franc-
isco. Hlýtur hann verð-
launin fyrir baráttu
sína fyrir verndun lax-
ins í Norður-Atlants-
hafi. Goldman-
verðlaunin eru árlega veitt sex ein-
staklingum fyrir framúrskarandi
árangur við að vernda umhverfið og eru
talin helsta viðurkenning sem baráttufólk
í grasrótarhreyfingum umhverfissinna
getur hlotið. Hafa þau verið nefnd „Nób-
elsverðlaun fyrir umhverfisvernd.“ Orri
er fyrsti fulltrúi viðskiptalífsins sem hlýt-
ur verðlaunin, en verðlaunaféð er
125.000 dalir, hátt á níundu milljón
króna.
Í samtali við Morgunblaðið fagnaði
Orri verðlaununum og sagði þau vera
viðurkenningu á því að hugmyndafræði
sín í baráttunni fyrir verndun laxins væri
góð. Frá árinu 1989 hafa samtök Orra
safnað meira en tveimur milljörðum
króna og notað féð til að kaupa upp net
fiskimanna sem veitt hafa laxinn í hafinu.
Talið er að á þessum tíma hafi dregið úr
netaveiðunum um meira en 75%.
„Ég hef alltaf sagt að það verði að
standa þannig að þessu að allir græði –
netaveiðimennirnir eiga líka að græða.
Ef laxastofnarnir hverfa tapa allir,“
sagði Orri.
Hann sagði að framtíð Atlantshafslax-
ins yrði bjartari með hverjum mánuð-
inum sem liði. „Í mínum huga er enginn
efi um að við höfum svörin við vanda-
málum laxins. Við þurfum einungis að
hrinda þeim í framkvæmd.“ | 20
„Ef laxa-
stofnarnir
hverfa
tapa allir“
Orri Vigfússon hlýtur
Goldman-verðlaunin
Orri Vigfússon
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
VINNULAGI við kröfugerð ríkisins vegna
þjóðlendna verður breytt. Árni M. Mathiesen
fjármálaráðherra mun í dag eiga fund með
stjórn Landssamtaka landeigenda á Íslandi.
Þar mun hann að kynna niðurstöður fjármála-
ráðuneytisins, hvernig hugmyndin er að standa
að málum á næsta svæði sem óbyggðanefnd tek-
ur fyrir.
„Með því að rannsókn fari á undan kröfulýs-
ingu getur fjármálaráðuneytið notað rann-
sóknagögnin við kröfulýsingar sínar,“ sagði
Árni. Hann taldi að því gætu kröfur ríkisins orð-
ið í betra samræmi við endanlega niðurstöðu
óbyggðanefndar en ella hefði orðið. Þá taldi
Árni þetta auka líkur á að þjóðlendumál færu í
samkomulagsferli, eins og lögin gerðu ráð fyrir.
Næðist samkomulag þyrfti ekki að lýsa þjóð-
lendukröfum, en þeim er þinglýst á jarðirnar.
Nú er byrjað á að þinglýsa kröfum á jarðirnar,
en við það að bíða með það, telur Árni meiri
möguleika á að komast að sameiginlegri nið-
urstöðu landeigenda og ríkisins.
Þá sagði Árni að óbyggðanefnd hefði ákveðið
að láta vita með lengri fyrirvara en áður
hvaða landsvæði hún hygðist taka fyrir. Með
því gæfist lengri frestur til athugasemda
vegna kröfulýsinga. Breytt verklag mun ekki
hafa áhrif á andmælarétt landeigenda. Árni
sagði að þeir hefðu sama rétt og ríkið til að
skoða gögn mála og sömu möguleika og áður
að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Árni kvaðst telja að þessar breytingar
gætu stýrt þjóðlendumálunum úr farvegi
krafna og í þann farveg að aðilar reyndu að
leita sameiginlega réttrar niðurstöðu. „Með-
an rannsókn óbyggðanefndar fer fram geta
bæði ríkið og landeigendur komið með ábend-
ingar um hvað eigi að rannsaka,“ sagði Árni.
„Yfirbragðið á frekar að vera að menn séu að
leita réttrar niðurstöðu en að verið sé að
flytja mál fyrir dómi. Ef aðilar komast ekki að
sameiginlegri niðurstöðu verða málin flutt
fyrir óbyggðanefnd.“
Breytt ferli við gerð
þjóðlendukrafna
Í HNOTSKURN
»Ferlið mun nú hefjast með rannsóknóbyggðanefndar á landamerkjum og
málsskjölum. Liggi ekki fyrir sam-
komulag milli landeigenda og ríkisins að
henni lokinni mun fjármálaráðherra lýsa
þjóðlendukröfu af hálfu ríkisins.
»Hingað til hefur ferlið hafist á kröfu-lýsingu fjármálaráðherra sem síðan
er fylgt eftir með rannsókn óbyggða-
nefndar.
VALSMENN urðu í gær Íslands-
meistarar í handknattleik karla
þegar þeir sigruðu Hauka, 33:31,
í lokaumferð úrvalsdeildarinnar á
Ásvöllum í Hafnarfirði. Mikil
spenna var fram á síðustu mín-
útur því ef Valsmönnum hefði
mistekist að sigra gat HK tryggt
sér Íslandsmeistaratitilinn með
því að sigra lið Akureyringa fyrir
norðan. Þeim leik lauk með jafn-
tefli, 27:27, og HK hlaut því silf-
urverðlaunin.
„Allir leikmennirnir eru vel
upp aldir, bæði af foreldrum og
félaginu. Þeim gengur vel í lífinu
og ég lít á það sem forréttindi
fyrir mig að fá að vinna með
þessum hópi,“ sagði Óskar Bjarni
Óskarsson, þjálfari Vals, við
Morgunblaðið. | ÍþróttirMorgunblaðið/Árni Sæberg
Valur varð
meistari
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ágúst Ásgeirsson í París
agas@mbl.is
NICOLAS Sarkozy verður kjörinn
forseti Frakklands með 54% at-
kvæða gegn 46% atkvæða Ségo-
léne Royal í seinni umferð frönsku
forsetakosninganna 6. maí næst-
komandi, skv. könnun sem IPSOS-
stofnunin gerði í gærkvöldi eftir að
ljóst var, af niðurstöðum fyrri um-
ferðarinnar, að kosið yrði milli
hægrimannsins Sarkozy og sósíal-
istans Ségoléne Royal. Allt benti
til að Sarkozy fengi 30,4% atkvæða
en Royal 24,7%.
Betri kosningu
en Sarkozy fékk
hefur enginn
frambjóðandi
fengið í fyrri um-
ferð frönsku for-
setakosninganna
frá 1988. Hægri
hönd hans í inn-
anríkisráðuneyt-
inu, Brice Horte-
feux, sagði árangurinn langt
umfram væntingar UMP-flokksins
og niðurstaðan væri vítamín-
sprauta fyrir seinni umferðina. Í
þriðja og fjórða sæti urðu miðju-
maðurinn Francois Bayrou með
18,8% og öfgamaðurinn Jean-Marie
Le Pen með 11,5%, en hann hlaut
17% atkvæða í kosningunum 2002.
Að baki þeim stendur því tæpur
þriðjungur kjósenda og sögðu
stjórnmálaskýrendur að Sarkozy og
Royal myndu reyna að höfða sem
mest til þeirra.
Í því sambandi sagði þó Francois
Fillon, fyrrverandi ráðherra og
hægri hönd Sarkozy í kosningabar-
áttunni, að í þeirri lotu sem tæki
við fram að seinni umferðinni, yrði
ekki breytt um áherslur eða sett
fram ný stefnuskrá af hálfu
Sarkozy. Francois Hollande, sam-
býlismaður Royal og formaður
Sósíalistaflokksins, tók í sama
streng og sagði enga samninga um
forsetasáttmála Royal koma til
greina. Hollande sagði það sigur
fyrir vinstri öflin að Royal kæmist
í seinni umferðina og minnti á að
hún hefði fengið fjórðungi fleiri at-
kvæði en Francois Mitterrand
1981 en hann var kosinn forseti
hálfum mánuði seinna.
Eric Besson styður Sarkozy
Báðir sögðust Bayrou og Le Pen
í gærkvöldi ætla að bíða með að
tilkynna hvorn frambjóðandann
þeir styddu í seinni umferðinni.
Margir eru á því að kjósendur
hafi ekki viljað skjóta sig aftur í
fótinn eins og 2002 er Le Pen
komst í seinni umferðina. Úrslitin
í gærkvöldi og atkvæðasmæð ann-
arra en þriggja efstu frambjóð-
enda beri að skoða í því ljósi.
Stjórnmálaskýrendur voru á því
að Sarkozy stæði miklu mun betur
að vígi en Royal fyrir seinni um-
ferðina með því að hljóta 20%
meira fylgi en hún í gær. Hún
varð fyrir því áfalli í gærkvöldi, að
fyrrverandi leiðtogi Sósíalista-
flokksins, þingmaðurinn Eric Bes-
son, sagði stefnu hennar óljósa og
ómarkvissa og lýsti yfir stuðningi
við Sarkozy. | 14
Valið stendur á milli Sarkozy og Royal
Nicolas Sarkozy