Morgunblaðið - 23.04.2007, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Helgarferð til
Barcelona
27. apríl
frá kr. 29.990
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Vegna forfalla bjóðum við frábært tilboð á örfáum sætum um næstu helgi
til Barcelona. Frábær helgarferð, föstudagur til mánudags og frídagur
daginn eftir heimkomu (1. maí). Barcelona er einstök perla sem Íslendingar
hafa tekið ástfóstri við. Borgin býður frábært mannlíf og óendanlega
fjölbreytni í menningu og afþreyingu að ógleymdu öllu því úrvali fjölbreyttra
verslana sem eru í borginni. Gríptu þetta frábæra tækifæri strax!
Verð kr.29.990
Netverð á mann. Flug báðar leiðir með sköttum,
út 27. og til baka 30. apríl.
Örfá sæti - vegna forfalla
ÚTBLÁSTUR frá strætisvögnum
hefur minnkað um 13% en losun frá
fólksbílum hefur aukist um 30% á
þessari öld að því er fram kemur í
skýrslu Hjalta J. Guðmundssonar,
framkvæmdastjóra Stefnumörkunar
og þróunar á umhverfissviði Reykja-
víkurborgar. Hann hefur nú lokið við
fjórðu skýrsluna um umhverfisvísa
borgarinnar og þar kemur m.a. fram
að góður árangur hefur náðst á öll-
um sviðum nema tveimur. Þau atriði
snúa bæði að notkun samgöngu-
tækja sem brenna jarðefnaeldsneyti.
„Þetta staðfestir það sem við höfum
vitað í nokkuð langan tíma. Þeir
mælikvarðar sem lúta að samgöngu-
málum okkar Reykvíkinga þarfnast
úrbóta,“ segir Hjalti. Hann segir það
þó jákvætt að útblástur frá stræt-
isvögnum hafi minnkað. „Það er
vegna þess að dísilvélarnar í vögn-
unum eru betri,“ segir hann og það
sé m.a. vegna þess að framfylgt hafi
verið kröfum frá Evrópusamband-
inu.
Svifryksmengun hefur verið í jafn-
vægi undanfarin ár og frá árinu 2000
hafa svifryksgildi aldrei farið yfir
heilsuverndarmörk. „Það helgast að-
allega af veðurfari, úrkoma hefur
aukist. Um leið og úrkoma fellur
binst nefnilega svifrykið eins og
skot,“ segir Hjalti og bendir á að
Reykjavíkurborg hafi jafnframt gert
ráðstafanir í vetur til að minnka svif-
ryksmengun og það hafi líka skilað
sér í mælingum. „Nagladekkjanotk-
un hefur líka minnkað og allt telur
þetta.“
Hjalti er að öðru leyti ánægður
með niðurstöður skýrslunnar og
bendir sérstaklega á að vatnsgæði í
Reykjavík séu mjög mikil og ástand
strandsjávar hafi farið mjög batn-
andi vegna hreinsunar skólps.
13% minni útblástur
frá strætisvögnum
Svifryksmengun
hefur verið í
jafnvægi sl. ár
Í HNOTSKURN
»Umhverfisvísar Reykja-víkurborgar felast í mæl-
ingum á gróðurhúsaáhrifum,
auðlindanotkun, vatnsgæðum,
samgöngum, líffræðilegum
fjölbreytileika og gæðum ytra
umhverfis.
»Árið 2006 voru árs-heilsuverndarmörk vegna
svifryks 28 míkrógrömm á
rúmmetra en verða árið 2010
lækkuð í 20.
TILLAGA Varmársamtakanna að
nýrri leið milli Helgafellshverfis
og Vesturlandsvegar hefur ekki
verið kynnt bæjaryfirvöldum í
Mosfellsbæ formlega, að sögn
Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, bæj-
arstjóra Mosfellsbæjar. Hug-
myndin var kynnt á íbúaþingi
Varmársamtakanna á laugardag-
inn var í Mosfellsbæ.
Ragnheiður kvaðst ekki vita
hvaða forsendur Varmársamtökin
gæfu sér, sérstaklega varðandi til-
lögu um leið inn í hverfið að norð-
anverðu. Þar sé mjög bratt og eins
er fyrirhugað hringtorg við Þing-
vallaafleggjara í samvinnu við
Vegagerðina. Þá nefndi Ragnheið-
ur einnig hugmynd samtakanna
um vegtengingu hverfisins að aust-
anverðu með því að setja brú yfir
Varmá. „Mér finnst einhvern veg-
inn eins og að þessar leiðir sem
þau leggja til hafi enn frekari um-
hverfisáhrif í för
með sér en
nokkru sinni
leiðin inn í
Helgafell eins og
hún er fyrir-
huguð á deili-
skipulagi sveit-
arfélagsins,“
sagði Ragnheið-
ur.
Mosfellsbær er
að láta vinna umhverfisskýrslu um
tengiveg inn í Helgafellshverfi.
Ragnheiður sagði að bæjarstjórnin
hafi ákveðið að láta gera skýrsluna
og auglýsa hana síðan og deili-
skipulag með tengiveginum. „Þá
geta allir gert sínar athugasemdir,
Varmársamtökin og aðrir. Þau
geta þá komið með þessar tillögur
sínar sem athugasemdir við það
sem sveitarfélagið setur fram,“
sagði Ragnheiður.
Ný leið ekki kynnt
bæjaryfirvöldum
Ragnheiður
Ríkharðsdóttir
Umhverfisskýrsla um Helgafellsleið
TÆPLEGA 400 fleiri kjósendur eru í Reykjavíkurkjör-
dæmi norður en Reykjavíkurkjördæmi suður, sam-
kvæmt ákvörðun landskjörstjórnar um mörk kjördæm-
anna sem miðast við þjóðskrá fimm vikum fyrir kjördag.
Í Reykjavíkurkjördæmi suður eru 43.398 kjósendur sem
er 49,78% kjósenda á kjörskrá í Reykjavík og í Reykja-
víkurkjördæmi norður eru 43.775 kjósendur sem eru
50,22% af kjósendum í borginni.
Landskjörstjórn ber að skipta Reykjavík í tvö kjör-
dæmi þannig að kjósendur að baki hverju þingsæti séu
nokkurn veginn jafnmargir og að kjördæmin séu sem
samfelldust heild.
Eins og fram kemur á meðfylgjandi korti ákvað nefnd-
in að hafa mörk Reykjavíkurkjördæmanna á línu sem
dregin er um miðlínu Hringbrautar, Miklubrautar, Ár-
túnsbrekku og Vesturlandsvegar. Línan um Vestur-
landsveg sveigir þó í austur frá veginum til móts við Sól-
torg og skiptir Grafarholtshverfi í tvennt um
Kristnibraut, Gvendargeisla og Biskupsgötu. Er þetta
breyting frá síðustu kosningum þegar Grafarholtshverfi
taldist allt til Reykjavíkurkjördæmis norður. Kjalarnes
tilheyrir Reykjavíkurkjördæmi norður.
Samkvæmt lögum um kosningar gilda sérákvæði um
íslenska ríkisborgara sem búsettir hafa verið lengi er-
lendis en sótt hafa um að vera á kjörskrá í Reykjavík og
einstaklinga sem skráðir eru óstaðsettir í hús í borginni.
Þeim er skipt á milli kjördæma eftir því hvenær í mán-
uðum þeir eru fæddir. Þeir sem fæddir eru 1. til 15. dag
mánaðar eru á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi suður en
í Reykjavíkurkjördæmi norður koma þeir sem fæddir
eru 16. dag hvers mánaðar eða síðar.
Fleiri búa í Reykja-
víkurkjördæmi norður
!"#$
"
%$&'(
!)
*+,-, $
..
FJÓRIR fengu styrk frá Barnavinafélaginu
Sumargjöf en styrkirnir fara til verkefna í
þágu barna. Alls bárust 22 umsóknir. Stjórn
félagsins komst að þeirri niðurstöðu að veita
fjóra styrki að þessu sinni, samtals að upp-
hæð 2,3 milljónir króna. Styrkirnir voru af-
hentir í Grænuborg í gær.
Guðrún Bjarnadóttir aðjúnkt við KHÍ og
Hrönn Pálmadóttir lektor við KHÍ fengu 500
þúsund króna styrk til rannsókna á gæðum í
aðbúnaði og námsumhverfi yngstu barnanna
á leikskólum hér á landi.
Eyrún Ísfold Gísladóttir og Þóra Másdóttir
talmeinafræðingar fengu 600 þúsund króna
styrk til að gefa út Lubba og hljóðaskjóðuna,
sem samanstendur af bók, hljóðdiski, brúðu
fyrir börn auk verkefnabókar með ítarefni
fyrir kennara. Um er að ræða gagnvirkt efni
sem annars vegar er hugsað sem leið til mál-
örvunar og hljóðanáms fyrir börn á aldr-
inum 2-7 ára og hins vegar sem þjálfunar-
efni fyrir börn með erfiðleika í framburði.
Mannréttindaskrifstofa Íslands og Rauði
kross Íslands fengu 600 þúsund króna styrk
vegna vefleiksins „Against all Odds“ sem er
fjölmenningarfræðsluefni, samstarfsverkefni
á sviði mannréttinda- og fjölmenningar-
kennslu fyrir unglinga. Leikurinn er ætlaður
tólf til sextán ára ungmennum og hefur það
að markmiði að kynna ungu fólki reynslu-
heim flóttamannsins og hvað í því felst að
vera á flótta.
Skólakór Kársnesskóla og Sigþrúður
Gunnarsdóttir útgáfustjóri fengu 600 þúsund
króna styrk til útgáfu geisladisks með
barnalögum í flutningi Skólakórs Kárs-
nesskóla undir forystu Þórunnar Björns-
dóttur. Geisladiskurinn mun fylgja barna-
söngbók sem Ragnheiður Gestsdóttir mun
taka saman og myndskreyta. Bókin hefur
vinnuheitið Ef væri ég söngvari. Barnavina-
félagið Sumargjöf var stofnað á sumardag-
inn fyrsta vorið 1924 og er því liðlega 80
ára. Lengst af annaðist Sumargjöf rekstur
dagheimila og leikskóla Reykjavíkurborgar
eða allt fram til ársins 1978 þegar Reykja-
víkurborg yfirtók reksturinn. Á undan-
förnum árum hefur Sumargjöf haslað sér
völl sem styrktaraðili ýmissa málefna sem
varða heill barna.
Fjórir fengu styrk frá Sumargjöf
Morgunblaðið/Árni SæbergStyrkir Styrkþegarnir glöddust með forsvarsmönnum Barnavinafélagsins Sumargjafar í gær.