Morgunblaðið - 23.04.2007, Page 13

Morgunblaðið - 23.04.2007, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF FJARNÁM Í TÖLVUNARFRÆÐI OG IÐNFRÆÐI OFANLEITI 2 • HÖFÐABAKKA 9 • KRINGLAN 1 SÍMI: 599 6200 www.hr.is F A B R IK A N 2 0 0 6 Nánari upplýsingar má finna á www.hr.is eða hjá Birni Þór Jónssyni bjorn@ru.is Tölvunarfræðisvið Háskólans í Reykjavík býður upp á tveggja ára (60 eininga) alþjóðlegt framhaldsnám til MSc-gráðu. Reynsla hefur sýnt að tölvunarfræðinám er góður almennur grunnur fyrir starfsferil á mörgum sviðum og að undanförnu hefur atvinnumarkaðurinn kallað á sífellt fleiri einstaklinga með framhaldsnám í tölvunarfræði. Hægt er að stunda námið samhliða vinnu. Almennur kynningarfundur verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík, Kringlunni 1, miðvikudaginn 25. apríl kl. 17:00. Umsóknarfrestur um meistaranám í tölvunarfræði er til 31. mai. Miðvikudaginn 25. apríl kl. 17:00 KYNNINGARFUNDUR UM MEISTARANÁM Í TÖLVU A FRÆÐI F A B R IK A N 2 0 0 7         M O R G U N V E R Ð A R F U N D U R S A M TA K A AT V I N N U L Í F S I N S Á G R A N D H Ó T E L G Ó Ð I R Í S L E N D I N G A R - erlent starfsfólk á íslenskum vinnumarkaði Miðvikudaginn 25.apríl 2007 kl. 8:00-10:00 Framsögur: Rannveig Sigurðardóttir forstöðumaður greiningardeildar Seðlabanka Íslands Ragnar Árnason forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA Sólveig Jónasdóttir verkefnastjóri, Alþjóðahúsi Umræður Fundarstjóri: Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA Þátttökugjald kr. 1.500 með morgunverði Skráning á www.sa.is ÞETTA HELST ... ● UMRÆÐA um samruna banka er ofarlega á baugi, ekki síst vegna mögulegs samruna Barclays og ABN Amro. Þá komu fyrir helgi upp vanga- veltur þess efnis að franski bankinn Societe Generale og ítalski bankinn UniCredit væru að renna saman. Var þeim sögusögnum staðfastlega neit- að en meiri athygli vakti fréttin á vef Bloomberg um að Citigroup, heims- ins stærsti banki, og Deutsche Bank væru í samrunahugleiðingum. Við þennan orðróm ruku bréfin í Deutsche Bank upp um 5,3%, sem er mesta hækkun á bréfum bankans í þrjú ár. Forsvarsmenn bankanna hafa ekkert gefið út á þessar vanga- veltur. Bankasamrunar ● ATVINNULEYSI mældist 2% á fyrsta ársfjórð- ungi, samanborið við 2,5% á sama tímabili árið 2006. Frá þessu er greint í Hálf- fimmfréttum Kaupþings og vitnað í vinnu- markaðs- rannsókn Hagstofunnar. Greining Kaupþings segir þessar tölur benda til mikillar þenslu á vinnumark- aðnum. Er sérstaklega bent á aldurs- hópinn 16 til 24 ára, sem stöðu sinnar vegna sé líklegri til að missa vinnuna eða setjast á skólabekk þegar kreppir að á markaðnum. Í langan tíma hafi ekki jafn margir í þessum hópi verið starfandi, fjölg- unin milli ára sé 11,3%. Ljóst sé að mikill hiti sé enn til staðar á íslensk- um vinnumarkaði og það ýtir undir frekara launaskrið. Mikil atvinnuþátttaka hjá unga fólkinu Þensla Atvinnu- leysi er nú lítið. Verslunin í Hillerød er að sögn Kristjáns sú stærsta sinnar teg- undar í Danmörku. Helsti markhóp- urinn eru auðugir Danir en meðal fjölmargra sem litið hafa inn til pottakóngsins er knattspyrnukapp- inn fornfrægi, Michael Laudrup. Kristján telur mikil tækifæri vera í sölu heitra potta í Danmörku, að- allega sé um rafmagnspotta að ræða sem hiti upp kalt vatn. Þar hafi álíka margir pottar verið seldir og á Ís- landi þótt danski markaðurinn sé margfalt stærri. Íslendingar eigi að sjálfsögðu heimsmet í pottaeign miðað við höfðatölu! Fiskikóngurinn kominn í heitu pottana Spakongen opnar þrjár verslanir í Danmörku og á Íslandi Morgunblaðið/Ómar Pottar Áki Pétursson, verslunarstjóri Spakongen í Hafnarfirði, og Krist- ján Berg, eigandi Spakongen, í nuddpotti er var til sýnis í Fífunni. Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is KRISTJÁN Berg, sem til margra ára rak fiskbúðina Vör og gekk gjarnan undir viðurnefninu fiski- kóngurinn, hefur haslað sér völl á nýjum vettvangi með sölu á heitum pottum og fleiri afþreyingarvörum. Það er því ekki lengur fiskikóngur- inn á ferð heldur pottakóngurinn. Á dögunum opnaði Kristján versl- unina Spakongen Danmark í bænum Hillerød, sem er 30 km norður af Kaupmannahöfn, og í dag verður verslun undir þeim merkjum opnuð að Lækjargötu 34 í Hafnarfirði. Sambærileg verslun verður svo opnuð í Árósum í sumar. Var Krist- ján mættur á sumarsýninguna í Fíf- unni um helgina ásamt Áka Péturs- syni, verslunarstjóra Spakongen í Hafnarfirði. Áki er meðeigandi að 20% hlut í versluninni hér á landi og sama eignarhald er á versluninni í Hillerød þar sem Guðmundur Þor- kelsson er verslunarstjóri og með- eigandi. Verslunarstjóri í Árósum verður Kristinn Gunnarsson. Fimm verslanir á tveimur árum Þrjú ár eru liðin síðan Kristján hætti sem fisksali og flutti til Dan- merkur ásamt fjölskyldu sinni. Hann hafði þá rekið fiskbúðina Vör í tvo áratugi, allt frá 16 ára aldri. Fljótlega fengu Kristján og kona hans, Sólveig Lilja Guðmundsdóttir, hugmynd um að fara að selja Dönum heita potta. Þau náðu sér í umboð frá kanadíska pottaframleiðandanum Arctic Spa fyrir sölu á þeirra vörum í Danmörku og á Íslandi. Þau setja markið hátt, ætla að opna fimm verslanir á næstu tveimur árum. Kristján segir undirbúning að opnun verslunarinnar í Danmörku hafa gengið mjög vel, svo vel að áður en þau voru búin að opna hafði Arc- tic Spa veitt þeim þrenn verðlaun. Vilja eigendur keðjunnar fá Kristján í hluthafahópinn en hann vill koma sínum verslunum fyrst af stað. Vöxt- ur Arctic Spa hefur verið mikill og veltan aukist um 700% á fimm árum. BRITISH Airways var nýverið kos- ið besta flugfélag ársins af þátttak- endum í könnun sem tímaritið Off- icial Airline Guide (OAG) lét gera meðal farþega flugfélaga í Evrópu, Asíu og Ástalíu. Er þetta í fimmta sinn sem British Airways fær þessa útnefningu hjá OAG. Verðlaunin voru kynnt í London í liðinni viku og var félagið við sama tækifæri verðlaunað fyrir besta við- skiptafarrýmið og besta fyrsta far- rýmið. British Air- ways flug- félag ársins Best Fulltrúar British Airways taka við verðlaunum í síðustu viku. ● AMR, móðurfélag bandaríska flug- félagsins American Airlines, sem FL Group á vænan hlut í, hagnaðist um 81 milljón dollara á fyrstu þremur mánuðum þessa árs (um 0,3 dollara á hlut), eða 5,3 milljarða króna. Þetta er öllu betri afkoma en eftir sama tímabil í fyrra þegar tap varð af rekstrinum. Batinn er m.a. rakinn til betri sætanýtingar og minni elds- neytiskostnaðar. Eftir að tilkynnt var um uppgjörið í síðustu viku hækkuðu bréf AMR en hafa síðan lækkað, komin niður fyrir 30 dollara á hlut. Hagnaður hjá AMR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.