Morgunblaðið - 23.04.2007, Síða 14

Morgunblaðið - 23.04.2007, Síða 14
14 MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Gildi - lífeyrissjóður Sætúni 1 105 Reykjavík Sími 515 4700 www.gildi.is gildi@gildi.is Á R S F U N D U R Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn á Grand Hótel, Reykjavík miðvikudaginn 25. apríl 2007 kl. 17.00. Dagskrá fundarins: 1. Venjuleg ársfundarstörf. 2. Tillaga til breytinga á samþykktum sjóðsins. 3. Tillaga um hækkun réttinda. 4. Önnur mál, löglega upp borin. Tillögurnar liggja frammi á skrifstofu sjóðsins og er einnig að finna á heimasíðunni, www.gildi.is Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð, að jöfnu skipað fulltrúum stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda sem að sjóðnum standa, fer með atkvæði á ársfundinum. Reykjavík 10. apríl 2007, lífeyrissjóður Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs. 2 0 0 7 NURI al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, sagði í gærkvöldi að hann hefði látið stöðva fram- kvæmdir við um fjögurra metra háan og umdeild- an múr sem Bandaríkjamenn eru að reisa til að aðskilja Adhamiya-hverfi súnníta frá sjítahverfum í norðurhluta Bagdad. Unnið hefur verið á nóttunni við að reisa múrinn til að koma í veg fyrir árásir á hverfið en súnnítar hafa gagnrýnt framkvæmdina. Framkvæmdir stöðvaðar Skil Múrinn átti að vera 5 km langur. FÍDEL Castró, forseti Kúbu, átti fund með kínverskri sendinefnd á Kúbu fyrir helgi og er talið að þetta séu fyrstu opinberu störf hans síð- an hann var skorinn upp í fyrra- sumar en vegna veikinda fékk Castró bróður sínum völdin. Castró á ferðinni FIMM börn létust í eldsvoða á mun- aðarleysingjaheimili í Sarajevo í Bosníu í gærmorgun. Hjúkrunar- kona og að minnsta kosti sautján börn voru flutt slösuð á sjúkrahús og tvö þeirra voru sögð þungt hald- in. Fimm börn létust Eftir Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is NICOLAS Sarkozy, frambjóðandi hægriflokksins UMP, stendur með pálmann í höndunum eftir fyrri um- ferð frönsku forsetakosninganna. Samkvæmt fyrstu atkvæðatölum sem birtar voru um klukkustund eft- ir að kjörstöðum í Frakklandi var lokað, fær hann um 30,4% atkvæða, en keppinautur hans í seinni umferð- inni, Ségolène Royal, frambjóðandi Sósíalistaflokksins, fær 25,0%. Franskir áhrifamenn í stjórnmálum sögðu í gærkvöldi að úrslit kosning- anna og gríðarleg kjörsókn sýndi, að þjóðin vildi uppstokkun samfélags- ins, og að í seinni umferðinni stæðu kjósendur frammi fyrir tveimur afar ólíkum hugmyndum og tillögum að framtíð Frakklands. Tvenns konar sýn Fljótlega eftir að útgönguspár voru birtar, en samkvæmt þeim fengi Sarkozy 29,6% atkvæða og Royal 25,1%, sagðist Sarkozy vilja fylkja landsmönnum um nýjan draum um framtíð er byggist á „bræðralagi“ þjóðarinnar allrar. Það eitt stæði hjarta hans næst. „Með því að setja mig í fyrsta sæti og frú Roy- al í annað settu kjósendur skýrlega fram þá ósk að fá hreinar umræður um tvenns konar sýn fyrir þjóðina, tvær áætlanir um samfélagið, tvenns konar gildiskerfi,“ sagði Sarkozy. Hann höfðaði einnig til þeirra sem telja að sér stafi viss ógn af honum og stefnumálum hans með því að segja að draumur hans væri að Frakkland yrði lýðveldi bræðralags þar sem enginn hefði neitt að óttast. „Við alla Frakka sem bera ugg í brjósti, vil ég segja, að ég ætla að vernda þá gegn ofbeldi, gegn ólög- hlýðni, gegn óréttlátri samkeppni í viðskiptum, “ sagði hann. Val um ólíkar leiðir Ségolène Royal beið í tæpar tvær stundir eftir að kjörstöðum lauk að ávarpa kjósendur sína. Hún tók í svipaðan streng og Sarkozy og sagði kjósendur þyrftu í seinni umferðinni, 6. maí, að velja um tvær „afar ólíkar“ leiðir. „Við höfum tvo skýra kosti fyrir framan okkur, afar ólíkar áætl- anir fyrir samfélagið. Ég býð mig fram í þágu allra þeirra sem telja það ekki aðeins mögulegt, heldur lífs- nauðsynlegt að brjótast út úr kerfi sem gagnast engum lengur,“ sagði Royal. Og hún bætti við: „Ný barátta er að hefjast, eftir tvær vikur kjósa Frakkar um örlög sín og yfirbragð. Ég skora á alla sem telja unnt að betrumbæta Frakkland án þess að leika það hart, sem vilja manngildi ofar gildum kauphallarinnar, sem vilja binda enda á vaxandi óöryggi að standa saman,“ sagði Royal. Sarkozy beindi orðum sínum til hennar í sínu ávarpi og bað um að í seinni lotu kosningabaráttunnar rökræddu þau fyrst og síðast um stefnur sínar og hugmyndir um framtíð Frakklands. Í takt við skoðanakannanir Allt benti til að úrslit fyrri umferð- ar kosninganna yrðu í samræmi við niðurstöður skoðanakannana. Í þriðja sæti varð miðjumaðurinn Francois Bayrou með um 18,8% at- kvæða og í fjórða sæti öfgamaðurinn Jean-Marie Le Pen með um 11,5% Fylgi hans er þó minna en kannanir höfðu mælt og munurinn á þeim Bayrou meiri en samkvæmt könnun- um. Sögðu stuðningsmenn Le Pen að úrslitin hafi verið eins og köld sturta fyrir þá. Um tíma virtist Bayrou ógna Royal og meðal annars sakir þess ríkti mikil spenna síðustu daga um úrslitin, en fylgi hans dalaði þó á síðustu vikum. Aðrir frambjóðendur fengu mun minna fylgi. Í fimmta sæti varð póstmaðurinn og trotskí- istinn Olivier Besancenot með um 4,3% og sjötti þjóðernissinninn Phil- ippe de Villiers með 2,7%. Hinir sex frambjóðendurnir fengu frá 0,3% upp í 1,8% atkvæða. Mikil kjörsókn Kjörsókn var meiri í fyrri umferð- inni nú en nokkru sinni frá 1965 er hún mældist 84,75%, en þá var Charles de Gaulle kosinn forseti. Endanlegar tölur um kjörsókn lágu ekki fyrir í kvöld en jafnvel var talið að metið félli. Næstmest kjörsókn var 84,2% árið 1974 er Valery Gisc- ard d’Estaing var kosinn forseti. Kjörsóknin er rúmlega 10 prósentu- stigum meiri en í síðustu kosningum, 2002, og sögðu stjórnmálaskýrendur það til marks um að þjóðin vilji fá að ráða meiru um framtíð sína. Le Pen sagði í gærkvöldi að lík- lega hafi þetta verið í síðasta sinn sem hann býður sig fram í forseta- kosningum. Hann sagðist hafa vænst betri niðurstöðu en „mér hefur skjátlast, metið stöðuna rangt,“ sagði hann um að hafna í fjórða sæti og fá mun færri atkvæði en 2002, en þá hlaut hann tæp 17% atkvæða og varð í öðru sæti. „Ég hélt að Frakkar væru óánægðir, en þeir eru afar sæl- ir, sönnun þess er að þeir hafa kosið, og það mjög afgerandi, flokkana tvo sem hafa verið við völd og bera ábyrgð á stöðu Frakklands,“ bætti hann við. Bayrou sagði að úrslitin sýndu að í brjóstum rúmlega sjö milljóna kjós- enda hefði vaknað von um nýja fram- tíð Frakklands. Hét hann því að bregðast ekki þeim þrám stuðnings- manna sinna og sagðist myndu áfram berjast ótrauður fyrir breyttu samfélagi samkvæmt gildum miðju- manna. Eins og Le Pen sagði hann stóru flokkana tvo sem unnið hefðu í kvöld bera ábyrgð á vandamálum þjóðarinnar og sagði að þeim væri ekki rótt vegna góðrar kosningar hans. „Frönsk stjórnmál hafa breyst frá og með kvöldinu í kvöld og verða aldrei aftur eins og áður,“ sagði Bayrou, en nú er eftir að móta af- stöðu UDF-flokksins til seinni um- ferðarinnar. Frakkar kusu breytingar Nicolas Sarkozy sigraði í fyrri umferð frönsku forsetakosninganna Sigurvegari Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægriflokksins UMP, fagnar með stuðningsmönnum sínum í París eftir að fyrstu tölur voru birtar. Reuters Í öðru sæti Ségolène Royal, fram- bjóðandi Sósíalistaflokksins. ELDUR kom upp í færeyska frystitogaranum Hercules þar sem hann var í Kyrrahafinu vest- ur af Chile á laugardag með þeim afleiðingum að kínverskur skip- verji lést. Níu landar hans voru í gær taldir af sem og einn Rússi en 105 manns af ýmsu þjóðerni var bjargað. Ellefu taldir af SVISSNESKI matvælaframleiðand- inn Nestle hefur sent út tvær millj- ónir súkkulaðistykkja til heimila í Sviss til að reyna að koma fólkinu aftur á bragðið, en salan datt niður þegar skipt var um umbúðir og bragðinu breytt örlítið. Frítt súkkulaði Mogadishu. AFP. | Að minnsta kosti 51 maður týndi lífi, þar af 42 óbreyttir borgarar, og meira en 60 særðust í átökum eþíópskra her- manna og uppreisnarmanna íslam- ista í Mogadishu, höfuðborg Sómal- íu, í gær. Þar með hafa um 220 manns fall- ið í borginni síðustu fimm sólar- hringa og jafnvel mun fleiri, því sjónarvottar segja að látnir og særðir séu úti um allt en ekki sé hægt að komast að þeim vegna hættunnar. Ástandið í Mogadishu hefur verið slæmt að undanförnu og versnar með hverjum deginum. Lík rotna á götum, byggingar eru eyðilagðar í skotbardögum og fólk flýr borgina sem aldrei fyrr. Fjögurra daga linnulausir bar- dagar í Mogadishu fyrr í mánuð- inum kostuðu að minnsta kosti 1.000 manns lífið og var þá sagt að bardagarnir væru þeir mestu í 15 ár. Sameinuðu þjóðirnar segja að um 321.000 manns í það minnsta hafi flúið borgina síðan í febrúar. Margir hafist við í skjóli trjáa rétt utan við borgina, án matar og lyfja, og greint hafi verið frá útbreiðslu sjúkdóma á þessum svæðum. Reuters Flóttamenn Margir íbúar Mogadishu í Sómalíu hafa flúið heimili sín og kúldrast matarlitlir og án lyfja undir trjám í nágrenni borgarinnar. Enn mikið mannfall

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.