Morgunblaðið - 23.04.2007, Side 18

Morgunblaðið - 23.04.2007, Side 18
fjármál fjölskyldunnar 18 MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Keppnismenn eru eitt og stuðningsmenn þeirra eru annað og saman geta þessir hóp- ar myndað ótrúlega heild. KR-ingar urðu fyrst Íslandsmeistarar í körfubolta í gamla Há- logalandsbragganum 1965 og eftir sigurinn á ÍR-ingum var sem þak- ið ætlaði að rifna af bragganum. Stuðnings- menn KR-inga lögðu þá sitt af mörkum en stuðningur þeirra var samt ekkert í líkingu við stuðninginn, sem KR-liðið fékk í nýaf- staðinni úrslitakeppni og náði há- marki í leiknum á mánudag. Fram- ganga áhangendanna minnir einna helst á stuðningsmenn Liverpool á Anfield og stemninguna á KR- vellinum síðsumars 1999. Í vesturbænum hefur verið sagt að þegar titill er í höfn sé það hefð og þar með orðinn rótgróinn siður. Einnig hefur verið bent á að þegar körfuboltalið KR hefur orðið Ís- landsmeistari sé það vísbending á Ís- landsmeistaratitil félagsins í fótbolta. Í því samhengi hefur verið vísað til áranna 1965, 1968 og 2000. Sumir eru þegar farnir að tala um árið 2007 í þessu sambandi. Keppnisíþrótta-menn, sem taka íþróttina alvarlega, eiga sér einn og aðeins einn draum, að sigra og verða meistarar. Til- finningin að upplifa það að vera bestur er ein- stök, ólýsanleg. Þessa tilfinningu þekkja margir og gera má því skóna að flestir þeirra, ef ekki allir, vilja ekki skipta á henni og ein- hverju öðru, eins og til dæmis öðru sæti. Samt sem áður verður að halda því til haga að sannur sigurvegari, sem reynir alltaf að gera sitt besta, kann líka að tapa og getur því borið höfuðið hátt, þó hann nái ekki alltaf takmarkinu. Í því sambandi er nær- tækt að benda á körfuboltalið Njarð- víkinga, sem hefur verið í fremstu röð í meira en aldarfjórðung, en sá á eftir Íslandsmeistaratitlinum til KR fyrir viku. Auðvitað voru Njarðvík- ingar sárir en þeir tóku tapinu sem sannir íþróttamenn og sögðu að gam- an hefði verið að leika við aðstæður eins og voru í DHL-höll KR-inga. Að sama skapi voru KR-ingar í skýj- unum og þökkuðu leikmönnum, þjálfara og ekki síst áhorfendum ár- angurinn.     víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Íslensk alþýða og nú millistétt-arfólk hefur á síðustu áratug-um stundum fengið örlitla inn-sýn í fjármál bandarískra fjölskyldna í gegnum kvikmyndir og vinsæla sjónvarpsþætti. Þar hefur eitt og annað vægast sagt komið spánskt fyrir sjónir á Fróni, eins og þessar sífelldu áhyggjur bandarískra foreldra af menntun barna sinna, þ.e. fjármögnun hennar. Hér á landi var lengi vel aðeins einn skóli sem bauð upp á nám háskólastigi, Háskóli Ís- lands, sem rekinn var og er enn af ís- lenska ríkinu. Skólagjöld voru þar engin og innritunargjöld lengi vel nokkrar þúsund krónur en hafa reyndar hækkað síðustu ár upp í nokkra tugi þúsunda. Frá því skömmu eftir seinna stríð hefur sú sátt ríkt í íslensku samfélagi að jafn- rétti skuli ríkja til náms, án tillits til efnahags. Lánasjóður íslenskra námsmanna var stofnaður árið 1961 en hlutverk hans í dag er að veita öll- um tækifæri til náms án tillits til efnahags, bæði til skólagjalda og framfærslu Fjármögnun náms og skólagjalda Á síðustu 15 árum hafa orðið gíf- urlegar breytingar á íslensku sam- félagi og þær breytingar hafa einnig átt sér stað í menntakerfinu. Árið 1998 var fyrsti háskólinn sem rekinn var af einkaaðilum stofnaður, Há- skólinn í Reykjavík. Hann fær sama styrk til reksturs síns frá ríkinu og aðrir háskólar en jafnframt greiða nemendur árlega skólagjöld sem er nýlunda hér á landi. Háskólar á Ís- landi eru nú átta talsins og hefur fjölgað um sjö frá árinu 1987 er Há- skólinn á Akureyri var settur á lagg- irnar. Af þeim eru þrír háskólar sem innheimta skólagjöld, allir reknir af einkaaðilum, áðurnefndur Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Bifröst og Listaháskóli Íslands. Hinir ríkis- reknu nefna gjald sitt innritunar- gjald og nemur það oftast 45.000 kr. fyrir skólaárið. Nú er það sennilega jafnmisjafnt og Íslendingar eru margir hvernig þeir hafa fjármagnað nám sitt. Lang- flestir sem nú eru á miðjum aldri og yngri hafa sennilega tekið lán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna, hvort sem er vegna náms hérlendis eða erlendis og unnið líka með námi. Einstaka hefur ef til vill verið styrkt- ur af foreldrum sínum eða fjár- sterkum ættingjum. Ungt fólk er oft að koma úr námi á sama tíma og það er að stofna fjöl- skyldu og kaupa jafnvel sína fyrstu íbúð. Nám er misarðbært. Skulda- byrði margra fyrsta áratuginn eftir að námi lýkur og jafnvel lengur er oft mikil. Námslánin eru ekki, þótt margir álíti það, ókeypis, þótt vissu- lega séu þau hagstæðari en mörg önnur langtímalán. Þau þarf að greiða til baka eins og önnur lán og það sama gildir um lán sem tekin eru fyrir skólagjöldum. Ólík uppbygging menntakerfa Þá erum við aftur komin að banda- rískum kvikmyndum og sjónvarps- þáttum. Þar virðist sem foreldrarnir beri ábyrgðina á því að barnið komist í góða skóla en ekki ríkið. Þetta er svo ríkt í bandarískri menningu að það ratar inn í afþreyinguna sem eitt af lífsins vandamálum sem þarf að leysa. Uppbygging háskólakerfisins í Bandaríkjunum gerir ráð fyrir að foreldrar greiði nám barna sinna en ekki nemendurnir sjálfir. Foreldrar sem safna fyrir námi barna sinna fá sérstakar skattaívilnanir sem svipar til þeirra sem þekkjast í lífeyris- sparnaði hérlendis. Bandarískir stúdentar þurfa því, þegar þeir sækja um lán eða styrki til náms, ekki aðeins að gefa upp fjárhags- stöðu sína heldur einnig foreldra sinna. Undanfarið hefur sú spurning orð- ið háværari hvort við Íslendingar séum á svipaðri leið með okkar menntakerfi, einkum á háskólastigi, og Bandaríkjamenn. Svarið virðist vera já en það gerist hægt og rólega. Íslenskir háskólanemar munu þó í nánustu framtíð sennilega ekki treysta jafnmikið á stuðning foreldra sinna og þeir bandarísku, einkum þar sem þeir hefja háskólanámið tveimur árum síðar eða 20 ára á með- an hinir bandarísku eru 18 ára. Þar þekkist heldur varla að stúdentar stofni fjölskyldu, þ.e. eignist börn, meðan á grunnháskólanámi stendur. Öflugt að spara fyrir menntun En Íslendingum er að verða ljóst, hvort sem háskólar innheimta skóla- gjöld eða ekki, að menntun er ekki ókeypis. Og ef til vill er íslenskt sam- félag að breytast og komið að þeim tíma að íslenskir foreldrar kjósi ekki lengur að henda börnunum sínum út í skuldasúpu lífsins strax í upphafi háskólagöngu þeirra. Nú hafa verið í gangi miklar auglýsingaherferðir bankanna um margvíslegan sparnað. Það gæti verið skynsamlegt fyrir ís- lenska foreldra, sem nú eignast færri börn en áður, að stofna menntasjóð fyrir börnin sín og leggja smátt og smátt fyrir í hann. Höfuðstóll slíks sjóðs, jafnvel þótt ekki væru lagðar fyrir nema 5.000 kr. á mánuði frá fyrstu andartökum barnsins, væri orðinn að 1,2 milljónum króna þegar barnið næði tvítugu og setti upp stúdentshúfuna. Væru 10.000 kr. lagðar fyrir yrði höfuðstóllinn orðinn að 2,4 milljónum króna, allar tölur fyrir utan ávöxtun. Það er óhætt að segja að með slík- um sjóði væri í orðsins fyllstu merk- ingu verið að fjárfesta í framtíð barnsins, auka valmöguleika þess og aðstoða það við að láta drauma þess rætast án þess að það festist í skuldasúpu til framtíðar. Sé þetta mögulegt fyrir íslenska foreldra, ættu þeir ekki að láta kylfu ráða kasti heldur hefja skipulegan sparn- að – til að hjálpa barninu að ganga menntaveginn. Hefurðu hugleitt að safna í menntasjóð fyrir barnið þitt? Morgunblaðið/Kristinn Nýstúdentar Það kostar óneitanlega alltaf sitt að ganga menntaveginn að loknu stúdentsprófi, jafnvel þó nem- endur þurfi ekki að greiða skólagjöld í ríkisreknum háskólum hér á landi. Mennt er máttur og í þekkingarþjóðfélagi verð- ur góð menntun alltaf mikilvægari. En menntun er ekki ókeypis. Unnur H. Jóhannsdóttir veltir fyrir sér hvort foreldrar þurfi að huga að því að leggja í sérstakan menntasjóð fyr- ir börnin sín. Morgunblaðið/Eyþór ! " #$  $ !% & #% ' %  ( ) %"$ ) ) "$ ' "$* $   + #! ," $ $ ( %, ! ' - !% % (   %! $ . '"!"% ( #%  , ! ( "( !%" #% !%( . '"!"    "- , /!%  $, , , 01 $%   " $* $  %% $ $( * #% .2 '" $ $ ( .  , , /! 3  $%" ", /!  .)* #! $ . ,  !% % ( , ' % (- 42, $   $!, ) ."$  ( ,  $ +",- $/, $0 - ,1* %*& " ",*,#( 2/,1*#( ..3 .. 5'   6! 7! '   ( 5'  ) 3 ) 5'   ( 5'   8"3 5'   5' "$   '   ( 7 (+/ , '   ( '  5! % ( 992, % ( 7%(:  ( %  $ ,   %"                           -  4 .. 4... .4... 4... 4... 4... 4... 4...                                              -  4 . 4 .. 4 4 .. 4 .. 4 .. 4 .. 4 .. Ungt fólk er oft að koma úr námi á sama tíma og það er að stofna fjöl- skyldu og kaupa jafnvel sína fyrstu íbúð. Mennt er máttur Nám er misarðbært og skuldabyrði margra fyrsta ára- tuginn eftir að námi lýkur og jafnvel lengur er oft mikil. uhj@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.