Morgunblaðið - 23.04.2007, Page 30
30 MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG ÞURRKAÐI SOKKANA
MÍNA Í ÖRBYLGJUOFNINUM...
NÚNA LYKTA ÞEIR EINS OG
ÖRBYLGJUPÍTSAN FRÁ ÞVÍ Í GÆR
FLOTT
MMMMM
SVONA ER
AÐ VERA
PIPARSVEINN
LÍSA SAGÐI
AÐ HJARTAÐ
VÆRI FULLT AF
BÆÐI HATRI OG
ÁST...
OG HÚN SAGÐI AÐ HATRIÐ
OG ÁSTIN VÆRU ALLTAF AÐ
TAKAST Á INNRA MEÐ
OKKUR... ALLTAF AÐ RÍFAST
HÆTTIÐ
ÞESSU!
ÞAÐ ER KANNSKI EKKI MIKIÐ
AÐ GERA HÉRNA, EN ÞAÐ
MARS ER BETRI EN JÖRÐIN
ÞAÐ HEFUR ENGINN KOMIÐ
HINGAÐ ÁÐUR. ENGINN ER
BÚINN AÐ SKEMMA MARS.
HÉR ER ENGIN MENGUN...
BARA ÓSNERT
NÁTTÚRAN HVERT SEM
AUGA ER LITIÐ
ER ÞETTA EKKI
BRÉFIÐ UTAN AF
SÚKKULAÐINU
ÞÍNU?
ÉG
ÆTLAÐI
EKKI AÐ
SKILJA
ÞAÐ
EFTIR
!!
HVERT FER ÉG TIL ÞESS AÐ
KVARTA YFIR ÞVÍ HVERNIG FARIÐ ER
MEÐ SKATTPENINGANA MÍNA?!
HÉRNA INNAR Á
GANGINUM...
ÞÚ GETUR EKKI
MISST AF ÞVÍ
ÞAÐ ER INNFLUTTA EIKARHURÐIN
SEM ER SKREYTT MEÐ GYLLINGUM,
RÚBÍNUM OG DEMÖNTUM
ER JÓLA-
SVEINNINN
BÚINN AÐ
SENDA SVAR VIÐ
BRÉFINU MÍNU?
NEI
ÞÚ SENDIR
BRÉFIÐ Í GÆR,
ÞAÐ ER EKKI
EINU SINNI KOMIÐ
TIL HANS
LABBAÐU
ÞÁ AÐEINS
HRAÐAR!
ÉG ÞOLI
EKKI AÐ FARA
MEÐ PÓSTINN
HINGAÐ
VIÐ FÓRUM OG TÖLUÐUM VIÐ
RABBÍNANN VARÐANDI ÞAÐ AÐ ÞIG LANGAÐI
EKKI AÐ FARA Í TRÚARBRAGASKÓLANN
OKKUR FANNST ÓSANNGJARNT AÐ
SENDA ÞIG ÞANGAÐ ÞEGAR PABBI
ÞINN HAFÐI ALDREI FARIÐ SJÁLFUR
ÞANNIG AÐ
ÉG ÞARF EKKI
AÐ FARA?
NEI, PABBI
ÞINN ÆTLAR
LÍKA AÐ MÆTA
Í TÍMA
SJÁUMST
Á SUNNU-
DAGINN
OOO!
NÚNA, FYRST ÉG ER BÚINN
AÐ KOMAST AÐ ÞVÍ AÐ BLÓÐIÐ MITT
GETUR LÆKNAÐ FÓLK...
ÆTLAR ÞÚ
AÐ GEFA
BLÓÐ?
AF HVERJU EKKI?
...ÆTLA ÉG AÐ LEYFA FÓLKI AÐ RANNSAKA Í MÉR
BLÓÐIÐ ÁN ÞESS AÐ FÁ AÐ VITA AÐ
KÓNGULÓARMAÐURINN SÉ PETER PARKER
dagbók|velvakandi
Herkúles
SAMGÖNGUR við Vestmannaeyjar
hafa verið í brennidepli nú um nokk-
urt skeið. Talað er um að gera ferju-
höfn við Bakka í Landeyjum án þess
að fullnægjandi rannsóknir á botn-
skriði í Markarfljóti liggi fyrir. Mark-
mið ferjusiglinga virðist vera að koma
bílum og fólki upp á meginlandið á
sem skemmstum tíma. Bíla og fólk er
hægt að flytja með flugvélum. Ein
slík er Lockheed Hercules sem er bú-
in fjórum 5000 hestafla mótorum og
getur borið 18 tonn. Farflughraði er
580 km/kl.st. Stysta vegalengd milli
lands og Eyja er 10 km, sennileg flug-
lengd gæti því verið u.þ.b. 15 km sem
segir að heildarflugtími yrði 4 mín-
útur. Samkvæmt upplýsingum af
heimasíðu F.Í. er leiga fyrir Fokker
F 50 250.000 krónur á klukkustund.
Miðað við það gæti leiguverð fyrir
Herkúles flugvél verið 500.000 kr á
klukkustund eða 35.000 krónur ferðin
aðra leiðina. Farmrými svona flug-
vélar er 17 metra langt (lengri gerð),
þriggja metra breitt og tveir og hálf-
ur á hæðina. Getur þá rúmað þrjá til
fjóra bíla ásamt farþegum. Við vöru-
flutninga komast fyrir tveir 20 feta
gámar og einn styttri. Nú fyrir
nokkru skarst maður illa um borð í
kolmunnaskipi sem var að veiðum
800 kílómetra suðaustur af landinu.
Flugdrægi okkar þyrlna er 500 km.
og dróst því u.þ.b. hálfan sólarhring
að hægt væri að sækja manninn.
Meðan þyrlusveit varnarliðsins var
hér var alltaf send Herkúles-flugvél,
búin eldsneytisáfyllingarbúnaði, með
þyrlunum ef þurfti að fara langt út á
sjó í björgun. Nú er það hernaðar-
leyndarmál hver ganghraði varðskip-
anna er, en ráðgert er að setja í þau
áfyllingarbúnað fyrir þyrlurnar
þannig að þær geti „tankað“ á flugi
yfir skipunum. Miðað við lengd og
vélarstærð er sennilegt að varðskipin
geti siglt um 40 km á klukkustund.
Ef óhapp verður á fjarlægum mið-
um verður varðskipið með eldsneytið
að leggja af stað fjórum til sex
klukkutímum á undan þyrlunni. Ekki
mikið gagn að því.
Gestur Gunnarsson.
Aukið íbúalýðræði
SKOÐANAKANNANIR hafa sýnt
að fólk vill aukið íbúalýðræði. Því er
kjörið tækifæri þann 12. maí að gefa
kjósendum tækifæri til þess að kjósa
jafnframt um nokkur grundvallar-
atriði varðandi skipan mála lýðveld-
isins og kom mér þá í hug að leyfa
kjósendum að tjá sig um það í þessum
kosningum með samþykki eða synjun
á eftirfarandi:
1. Aðskilnað ríkis og kirkju.
2. Að land verði eitt kjördæmi og þar
með endanlega jafnað vægi at-
kvæða og kjördæmapot úr sög-
unni.
3. Aðskilnað löggjafar- og fram-
kvæmdavalds þannig að ráðherrar
geti ekki verið í lagasmíðum og set-
ið sem ráðherrar á sama tíma.
4. Að auðlindir til lands og lagar verði
þjóðareign og tekjur renni til þjóð-
arinnar.
5. Að lausagangur búpenings sé af-
lagður og grasbítar settir í beitar-
hólf.
Eflaust má setja fram mörg önnur
brýn mál, en gott væri að fá fram vilja
þjóðarinnar í t.d. þessum málum, sem
myndi veita kjörnum fulltrúum að-
hald og vísbendingu. Ég vonast til
þess að þetta hljóti undirtektir og
brautargengi því skv. skoðanakönn-
unum vilja um 75% kjósenda fá tæki-
færi til að hafa bein áhrif á lög og
stefnu ríkisins.
Sigurður Haraldsson.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir!
Fæst á ESSO, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
JÓNAS Gunnarsson spjallar við Leó Óskarsson (til hægri) á bryggjunni.
Morgunblaðið/Ásdís
Bryggjuspjall
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn