Morgunblaðið - 23.04.2007, Page 34
34 MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Of góður?
Of heiðarlegur?
Of mikill nörd?
Shooter kl. 8 og 10:15 B.i. 16 ára
Perfect Stranger kl. 8 og 10:10 B.i. 16 ára
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 6
TMNT kl. 6 B.i. 7 ára
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann
Vinkona hennar er myrt
og ekki er allt sem sýnist
Bardagafimu skjaldbökurnar
eru mættar aftur í flottustu
ævintýrastórmynd ársins
Í GÆR VAR ÞAÐ
HEIÐURINN
Í DAG ER ÞAÐ
RÉTTLÆTIÐ
MÖGNUÐ SPENNUMYND MEÐ
MARK WAHLBERG FRÁ LEIK-
STJÓRA "TRAINING DAY"
Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
Aðei
ns ön
nur
bíóm
yndi
n frá
upp
hafi
sem
er bö
nnuð
inna
n
18 á
ra!
Þeir heppnu
deyja hratt
The Hills Have Eyes 2 kl. 5.50, 8, og 10.10 B.i. 18 ára
The Hills Have Eyes 2 LÚXUS kl. 5.50, 8, og 10.10
Perfect Stranger kl. 5.30, 8, og 10.30 B.i. 16 ára
Mr. Bean’s Holiday kl. 5, 7 og 9
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 3.45
Sunshine kl. 8 og 10.10 B.i. 16 ára
TMNT kl. 4 og 6 B.i. 7 ára
School for Scoundrels kl. 3.40
M A R K W A H L B E R G
Magnaður spennutryllir með súper-
stjörnunum Halle Berry og Bruce Willis
ásamt Giovanni Ribisi
Hve langt
myndir þú
ganga?
Stranglega bönnuð innan 18 ára!
Ein Svakalegasta
hrollvekja til þessa.
Enn meira brútal
en fyrri myndin.
Alls ekki fyrir
viðkvæma.
eeee
“Magnþrunginn spen-
nutryllir og sjónarspil sem
gefur ekkert eftir”
- V.J.V. Topp5.is
eee
“Sólskin er vel þess
virði að sjá.”
H.J. MVL
“Besta sci-fi mynd
síðustu tíu ára.”
D.Ö.J. Kvikmyndir.com
eee
Ó.H.T. Rás2
eeee
- Empire
SÓLIN ER AÐ DEYJA. ER HÆGT
AÐ BJARGA HENNI?
- Kauptu bíómiðann á netinu
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Playstation 2
God of War 2 SCEA
EFTIR að hafa sigrað allt og alla í fyrsta God of
War leiknum hefur hetjan okkar Kratos pirrað Guð-
ina á Ólympus-fjalli enn á ný og aftur hefur honum
verið refsað illilega fyrir vikið. Nú þarf hann að
ferðast til hofs örlagasystranna til að hafa áhrif á sín
eigin örlög og koma þar með í veg fyrir að hann verði
tekinn af lífi af Seifi sjálfum. Þetta er eins og gera
má ráð fyrir, ekki auðvelt verkefni og Kratos mun
áður en yfir líkur hafa vaðið blóð og iður sem aldrei
fyrr.
Framleiðendum God of War 2 hefur tekist að toppa
fyrri leikinn í stærð, fegurð og hrottaskap. Fátt hef-
ur breyst í sambandi við stjórnun sem getur verið
helst einfeldningsleg til lengdar en þeir bæta það upp
með stórkostlega fallega hönnuðum borðum og
skemmtilegum gátum sem spilarinn þarf að leysa.
Allt er miklu stærra en áður, grafíkin miklu betri og
sýnir hversu öflug Playstation 2 getur verið ef metn-
aðurinn er settur í botn. Hljóðmyndin er stórkostleg
og hentar vel í heimabíó-græjur ef maður býr svo vel
að eiga eitt stykki.
Sem sagt frábær leikur og ákaflega vanabindandi
þrátt fyrir að innihaldið hafi ekki mikið breyst frá
þeim fyrri.
Ómar Örn Hauksson
Guðunum blæðir
Stríðsguð God of War er „frábær leikur
og ákaflega vanabindandi.“
Resistance: Fall of Man Playstation 3 –
Insomniac Games
EF Resistance: Fall of Man er
dæmi um hvernig leikir verða á Pla-
ystation 3 í framtíðinni þá erum við
leikjaáhugamenn í góðum málum.
Framleiðendur leiksins hafa moðað
saman það besta úr nýlegum fyrstu
persónu skotleikjum og sett á
markað frábæran leik. Maður sér
glitta í hluti úr leikjum eins og Half
Life 2, Halo og Medal of Honor og
útkoman er virkilega skemmtileg.
Leikurinn gerist í ímynduðum
heimi þar sem skelfileg ógn úr
austri hefur lagt allan heiminn nán-
ast í rúst. Maður spilar sem banda-
rískur hermaður sem er sendur til
Bretlands til þess að berjast við Kí-
mera-veiruna sem breytir þeim sem
smitast í ófreskjur. Borðin eru mjög
vel hönnuð, stór og full af krókum
og kimum sem hægt er að skoða
betur ef tækifæri gefst. Óvinurinn
er nógu greindur til þess að leita
sér skjóls og lokka þig út úr greni
þínu með ýmsum aðferðum. Nokkr-
um sinnum er fyrstu persónu form-
ið brotið upp með því að leyfa
manni að keyra um á skriðdreka
eða jeppa, sem lyktar mjög af fyrr-
nefndum Halo og er það hressandi
tilbreytni.
Leikurinn rennur ljúflega í gegn
og er nógu erfiður til þess að halda
manni við efnið og hvetur mann til
þess að reyna aftur. Eini gallinn er
að borðin eru stundum of stutt og
eru stundum hönnuð á þann veg að
maður veit nákvæmlega hvað gerist
næst. Hljóðvinnsla er til fyr-
irmyndar. Stjórnun er auðveld og
góð og ekkert til að flækja fyrir
leikmanninum.
Resistance: Fall of Man er frá-
bær byrjun fyrir frábæra leikja-
tölvu.
Ómar Örn Hauksson
Rauða
hættan
Góður „Resistance: Fall of Man
er frábær byrjun fyrir frábæra
leikjatölvu.“
Eftir Ómar Örn Hauksson
mori@itn.is
AÐDÁENDUR Resident Evil-leikjabálks-
ins hafa nú loksins ærna ástæðu til að
punga út fyrir einni Nintendo Wii. Ástæðan
er sú að leikjafyrirtækið Capcom hyggst á
næstunni gefa út tvo Resident Evil-leiki,
sérhannaða fyrir Wii-vélina; Resident Evil
4 og Resident Evil: Umbrella Chronicles.
Sá síðarnefndi moðar saman sögubrotum úr
fyrri leikjum og notfærir sér hreyfitækni
stýripinnans til þess að miða skotvopnum á
óvininn, hrista hann af sér, komi hann of
nálægt og þá er einnig hægt að nota hann
til þess að framkvæma ýmsar bardaga-
hreyfingar.
Resident Evil: Umbrella Chronicles
fjallar um sögu fyrirtækisins sem hratt at-
burðarásinni af stað. Farið er í gegnum
söguna með því að nota brot úr fyrri leikj-
um og hafa framleiðendur endurbyggt um-
hverfi sem aðdáendur ættu að þekkja vel,
eins og óðalssetrið úr fyrsta leiknum og
bæjarhluta Racoon-borgar úr öðrum og
þriðja leiknum. Leikurinn verður byssu-
leikur þar sem leikmaðurinn velur sér leið í
gegnum borðin og skýtur allt sem hreyfist
en hefur annars ekki mikla stjórn hreyf-
ingum persónunnar. Capcom hefur reyndar
ekki tekist sérstaklega vel að framleiða
slíka leiki en þeir sem undirritaður hefur
prófað hafa verið arfaslakir. Það er bara að
vona að þeir læri af mistökum sínum og
galdri fram sæmilegan leik sem nýtir þá
tækni sem Wii býður upp á til hins ýtrasta.
Resident Evil 4 er væntanlegur í búðir í
sumar en ekki er enn vitað hvenær Um-
brella Chronicles kemur, það er þó búist við
að hann komi út seinni partinn á þessu ári.
Capcom beinir sjónum sínum að Wii
Á leiðinni Resident Evil 4 er væntanlegur í búðir í sumar.
HIN yfirgefna herstöð í Keflavík
var um helgina notuð til þess að
taka upp myndband fyrir leiksýn-
inguna Partíland sem er loka-
viðburður Listahátíðar í Reykjavík.
Sýningin, sem er í formi alþýðu-
skemmtunar, er brotin upp með
leiknum atriðum á myndbandi og
nú um helgina var fyrsta atriðið
tekið upp í herstöðinni. Þetta er,
eftir
því sem við best er vitað, í fyrsta
skipti sem íslenskur leikhópur at-
hafnar sig innan girðingar á her-
stöðinni eftir að henni var lokað.
Upptökurnar fóru fram víðs veg-
ar á herstöðvarsvæðinu, meðal
annars í gamla liðsforingjaklúbbn-
um.
Að sögn Jóns Atla Jónassonar,
höfundar verksins, gengu tökurnar
vel þótt bílferðir pólskra verka-
manna um svæðið hafi verið tíðar,
en margir erlendir verkamenn búa
nú í herstöðinni.
Verkið verður frumsýnt 26. maí,
en það er unnið í samvinnu við
Þjóðleikhúsið, Gilligogg og
Mindgroup. Leikstjóri er Jón Páll
Eyjólfsson.
Partí Friðgeir Einarsson og Jón
Páll Eyjólfsson við tökur.
Partíland á
herstöðinni
TÖLVULEIKIR »