Morgunblaðið - 23.04.2007, Page 40
MÁNUDAGUR 23. APRÍL 113. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Sarkozy og Royal takast
á um forsetaembættið
Metþátttaka hefur verið í frönsku
forsetakosningunum, en fyrri um-
ferð þeirra fór fram í gær. Til-
tölulega jafnt hefur verið með þeim
Nicolas Sarkozy frambjóðanda
hægrimanna, sem stendur ívið betur
að vígi, og Ségolène Royal frambjóð-
anda sósíalista. »Forsíða
Nýtt í þjóðlendukröfum
Óbyggðanefnd mun rannsaka
landamerki og málsskjöl við upphaf
kröfugerða um þjóðlendur. Áður
hófst kröfuferlið á lýsingu fjár-
málaráðherra. Þetta er nýtt vinnu-
lag, sem Árni Mathiesen fjár-
málaráðherra gerir frekari grein
fyrir í viðtali í dag. »Forsíða
Annað líf Wilson Muuga
Wilson Muuga stefnir í kjölfar
verslunarflota hinna fornu Fönikíu-
manna, en skipið, sem strandaði við
Hvalsnes 19. desember, verður selt
til Líbanons, þar sem gert verður við
það og því siglt að nýju. Guðmundur
Ásgeirsson stjórnarformaður
Nesskipa segir þetta bestu lausnina
úr því sem komið var og fagnar því
að skipið skuli eiga annað líf í
vændum. »2
Meðgöngumóðir óskast
Reynir Tómas Geirsson prófessor
telur að til greina komi að leyfa stað-
göngumæðrun hér á landi, en í gær
auglýsti par eftir konu til að bera og
fæða barn. Íslensk lög banna slíkt
nú og því þarf fólkið að fara í slíka
aðgerð erlendis. »6
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Spennandi mánudagar
Staksteinar: Öreigar okkar tíma?
Forystugreinar: Vandi stjórnar-
andstöðunnar | Reisum múr
UMRÆÐAN»
Skapandi heyrn Guðjóns Ólafs
Auðlindir og arður
Eldri borgarar og atvinnulífið
Svívirðan mesta
Breytt lánaumhverfi
Íslandsmót iðnnema
Samið við verktaka
Smíða ný hús eftir pöntun
FASTEIGNIR»
Heitast 10 °C | Kaldast 5 °C
Vaxandi A-átt, 10–
18 m/s, með rigningu,
fyrst sunnan til. Þurrt
NA-lands til kvölds.
»10
Arnar Eggert Thor-
oddsen fjallar um
tónlistarhátíðina
AME sem fram fór í
Færeyjum um síð-
ustu helgi. »36
TÓNLIST»
Fjör í
Þórshöfn
KVIKMYNDIR»
Stórmyndin Stardust var
að hluta tekin hér. »36
Í samtali við Jóhann
Bjarna Kolbeinsson
sagði Egill Sæ-
björnsson frá sýn-
ingu í New York og
nýrri plötu. »15
MYNDLIST»
Egill í
New York
FÓLK»
Britney Spears er ekki
sátt við pabba sinn. »33
FÓLK»
Ný prinsessa er fædd í
Danmörku. »33
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Yfirlýsing frá Háskólanum í Rvk.
2. Spears segir karlmenn…
3. Sjálfstæðisflokkur bætir við sig
4. Danska prinsessan fer heim…
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÞETTA er ekki eiginlegt uppboð, en fólk má
bjóða í myndina,“ segir Guðmundur Jónsson í
Listamönnum – Innrömmun, en þar er olíu-
málverk eftir Þórarin B. Þorláksson til sölu.
Myndin sýnir Saurbæ, Rauðasand og Snæfells-
jökul. „Það fylgdi ekki sögunni að myndin bæri
nafn. En svona mynd fer örugglega á tólf millj-
ónir, og ekkert meira um það að segja.“ Heim-
ildir Morgunblaðsins herma að 15 milljónir hafi
þegar verið boðnar í verkið, en Guðmundur
kveðst ekki geta staðfest það, þótt hann viti að
nokkrir aðilar séu enn að hugsa sig um. „Hún
gæti farið þangað, og það kæmi mér ekki á
óvart. Ég get ekki staðfest neitt nema með
leyfi frá þeim sem bjóða,“ segir hann. Spurður
hvort 15 milljónir séu ekki hátt verð fyrir verk
íslensks málara telur Guðmundur svo ekki
vera. „Miðað við stærð myndar held ég að Ás-
grímur hafi farið á hærra verði í vatnslitamynd
en þetta. Þetta er olíumálverk.“
Spurður um þessa aðferð við sölu verksins,
og hvernig áhugasamir geti verið vissir um að
um raunveruleg tilboð sé að ræða, en ekki að-
ferð við að trekkja upp verð segir Guðmundur
viðskipti af þessu tagi byggjast á trausti.
„Traustið verður að liggja á okkur.“
Þess má geta að málverk Kjarvals, Hvíta-
sunnudagur, seldist á 15,2 milljónir á uppboði
hjá Bruun Rasmussen í Danmörku í febrúarlok,
en talið er að það sé hæsta verð sem fengist
hafi fyrir íslenskt málverk. Því gæti það met
verið í hættu ef verk Þórarins fer yfir 15 millj-
ónir.
Vel boðið í Þórarin
Hugsanlegt að olíumálverk frá Rauðasandi eftir Þórarin B. Þorláksson seljist
fyrir metupphæð Staðfest boð í myndina upp á 12 milljónir hefur borist
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landslag „Fer örugglega á tólf milljónir.“
Í HNOTSKURN
»Þórarinn B. Þorláksson fæddist árið1867 og er í fremstu röð listamanna
þjóðarinnar.
»Verð á listaverkum hefur verið aðhækka og í vetur var málverk Kjar-
vals, Hvítasunnudagur, selt á 15,2 millj-
ónir á uppboði hjá Bruun Rasmussen í
Danmörku.
PLATA Garðars Thórs Cortes, sem
nefnist einfaldlega Cortes, er mest
selda klassíska platan í Bretlandi
um þessar mund-
ir. Platan kom út
þar í landi á
mánudaginn fyr-
ir viku og að
sögn Einars
Bárðarsonar
fékk hún mjög
góða dreifingu
um landið
Á heildar-
sölulista yfir
mest seldu plötur
Bretlands, „TOP40“, fer Cortes
beint í 27. sæti sem er einn besti ár-
angur Íslendings á þeim lista. Ár-
angurinn er framar björtustu von-
um útgefanda Garðars í Bretlandi,
Believer Music.
Töluverða athygli vakti þegar
Garðar söng fyrir leik West Ham og
Chelsea í síðustu viku, en í þessari
viku mun hann meðal annars koma
fram á galakvöldi hjá Mont Blanc
skartgripaframleiðandanum. Á
fimmtudag verður Garðar svo gest-
ur í þættinum This Morning á ITV,
en að jafnaði horfa milljónir manna
á þáttinn.
Númer
eitt í
Bretlandi
Plata Garðars Thórs
Cortes selst vel
Garðar Thór
Cortes
LITLA-JÖRP með lipran fót kann
vel að meta atlot Ísabellu Maríu í
vorinu í Mosfellsdalnum. Hvort
brauðmoli fylgdi með úr lófa telp-
unnar er óvíst. Alltént styttist í að
ilmandi, fagurgrænt vorgresið verði
efst á matseðli íslenskra hrossa,
þegar vetrarmatseðillinn verður
lagður til hliðar í bili. Svo kemur
sumarið og heyannir og risavaxnir,
mjallhvítir sykurpúðar birtast á tún-
um um allt land. Þótt Ísabellu litist
sennilega betur á alvöru sykurpúða
vill Litla-Jörp áreiðanlega miklu
frekar plasthúðaða töðuna.
Morgunblaðið/ÞÖK
Vorkoma
ÍSABELLA MARÍA Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP