Morgunblaðið - 21.06.2007, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 11
FRÉTTIR
Eftir Arndísi Þórarinsdóttur
arndis@mbl.is
„ÞETTA er best í heimi,“ segir
Tómas Pálsson, nýstúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík,
dreyminn á svip þegar hann ræðir
um verkefni sumarsins – að fram-
kvæma tilraunir, hlusta á fyrirlestra
og leysa dæmi frá morgni til kvölds í
tómlegri skólabyggingu á lóð Há-
skóla Íslands. Tómas og fjórir fé-
lagar hans úr MR verða fulltrúar Ís-
lands í alþjóðlegu ólympíukeppninni
í eðlisfræði sem fer fram í Íran í júlí.
Fram að brottför eru þeir í stífum
þjálfunarbúðum.
Komnir með hausverk kl. þrjú
MR-ingar höfnuðu raunar í efstu
átta sætunum í forkeppni sem skar
úr um það hverjir yrðu í liðinu.
Strákarnir eru sammála um að
skýra megi árangur skólans á þessu
sviði með því að þar ríki einstakt,
hvetjandi andrúmsloft hvað varðar
raungreinar. Yfirstjórn skólans sé
hlynnt eflingu þeirra, kennararnir
séu engum líkir og í skólann flykkist
nemendur sem hafi áhuga á námi af
þessum toga. Arnar Þór Hallsson og
Einar Bjarki Gunnarsson, dúx
Menntaskólans nú í vor, segja að
iðkun raungreina sé eðlilegur hluti
skólalífsins í MR og því fjarri lagi að
þeir sem leggi stund á þær séu litnir
hornauga af skólafélögum sínum.
Þegar við þetta bætist sex vikna
þjálfun skyldi maður halda að pilt-
arnir væru vel í stakk búnir til þess
að takast á við þær þrautir sem bíða
þeirra í Íran.
keppnir sem þessar en strákar, jafn-
vel meira. „Það er sagt að stelpur
séu samviskusamar og skipulagðar.
Auðvitað eru það nákvæmlega þeir
eiginleikar sem nýtast í svona þjálf-
un,“ segir Gunnar Atli. Strákarnir
segja að af einhverjum ástæðum
virðist stúlkur skorta sjálfstraust.
Klárar stelpur taki jafnvel ekki þátt
í forkeppninni, því þær telji það
ranglega augljóst að þær muni eng-
um árangri ná. „Samt er fullt af
stelpum sem hefur fengið hærra en
ég á prófum,“ segir Gunnar. „Svo
getur líka verið að þær séu hræddari
en strákar við nörda-stimpilinn,“
bætir hann við og hinir kíma.
lega ekki eins vel að vígi og sumar
aðrar þjóðir,“ segir Tómas.
Piltarnir eru sérstaklega þakk-
látir Björgólfi Thor Björgólfssyni og
Orkuveitunni fyrir veittan stuðning,
því þjálfunin gerir þeim það ómögu-
legt að sinna annarri vinnu. Þeir
þurfa því að treysta á styrki sér til
framfærslu. Þegar hafa nokkrir bak-
hjarlar fundist en fjáröflun stendur
enn yfir. „Þú getur kannski nefnt
það í greininni hvað við erum sult-
arlegir að sjá?“ læðir einn þeirra út
úr sér og enn skella allir uppúr.
Talið berst að hlut kvenna. Strák-
arnir eru fljótir að taka það fram að
stelpur eigi ekki síður erindi í
Þeir Gunnar Atli Thoroddsen og
Hafsteinn Einarsson stynja þungan
þegar minnst er á námsefnið. Þeir
eru ári yngri en hinir og segjast iðu-
lega vera komnir með höfuðverk
uppúr klukkan þrjú. Þeir fóru yfir
allt námsefni næsta vetrar á hálfri
fjórðu viku og hafa síðan fært sig yf-
ir í flóknari útreikninga. Hinir hafa
beint athygli sinni að verkefnum
fyrri keppna.
Háðir styrkjum
„En Indónesinn sem vann þetta í
fyrra var 16 ára og hafði eytt tveim-
ur árum eingöngu í að æfa fyrir
þessa keppni, svo við stöndum vissu-
Vísindin óháð menningu og tungu
Morgunblaðið/G.Rúnar
Eðlisfræðiséní Tómas Pálsson, Hafsteinn Einarsson, Einar Bjarki Gunnarsson, Arnar Þór Hallsson og Gunnar
Atli Thoroddsen eru spenntir að fara til Íran, þar sem þeir munu kynnast öðrum ungum vísindamönnum.
Í HNOTSKURN
» Leikarnir í Íran eru þeir38. í röðinni.
»Yfir 80 lönd munu sendakeppnislið.
»NóbelsverðlaunahafinnStephen Hawking verður
heiðursgestur leikanna í ár.
» Ísland tekur einnig þátt íólympíukeppnunum í efna-
fræði og stærðfræði.
Fimm afburðaungmenni halda til Írans á alþjóða-ólympíukeppnina í eðlisfræði
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862