Morgunblaðið - 21.06.2007, Blaðsíða 43
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 43
Upp á palli, inn í tjaldi, út í fljóti,
vonandi skemmtið’ ykkur
illa drukkin, inn í skógi, hvar er
tjaldið?
Vonandi skemmtið’ ykkur vel.
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
TÓNLISTARHÁTÍÐIN á Glast-
onbury í Englandi fer fram um
helgina og Hróarskelduhátíðin í
Danmörku er á næsta leiti.
Fjöldinn allur af Íslendingum
leggur leið sína á þessar hátíðir,
sem og aðrar svipaðar, ár hvert en
að mörgu er að huga áður en lagst
er í tjaldútilegu á erlendri grund.
Eindregið er mælt með að í
ferðatöskunni sé útbúnaður sem
geri bæði ráð fyrir brakandi sól
sem og úrhellisrigningu því eins og
ferðalangar vita getur verið allra
veðra von á hátíðum sem þessum.
Veðurspá bendir reyndar til að
votviðrasamt geti verið á Glast-
onbury í ár og því eins gott að vera
við öllu búinn því rigningin getur
leikið fólk og farangur ansi grátt.
Fyrir tveimur árum gerði slíka úr-
hellisrigningu að eðlilegur mán-
aðarskammtur af rigningu féll á
svæðið á tveimur klukkustundum.
Til að koma í veg fyrir að það
ástand endurtaki sig hafa ráða-
menn hátíðarinnar komið á fót sér-
stöku kerfi sem á að sjá til þess að
regnvatn renni eftir þartilgerðum
rennum til sjávar. Það er spurning
hvort búnaðurinn komi til með að
virka en það er vissara að vera með
allan nauðsynlegan útbúnað í far-
teskinu.
Hlutir sem við mælum með að
þú takir með:
Hreinir sokkar – Þegar búið að
er að vaða drullusvaðið í hné heilan
dag er fátt huggulegra en að
bregða sér í mjúka og hreina sokka
inní tjaldi... það er ef tjaldið er ekki
farið á flot og farangurinn með!
Svartir ruslapokar – Til margra
hluta nytsamlegir. Hægt er að nota
þá sem lak ef tjaldbotninn blotnar.
Einnig er hægt að klippa á þá göt
og nota sem regnstakka. Þá nýtast
þeir sem ferðatöskur, svefnpokar,
höfuðföt, kamar (!) og að sjálfsögðu
ruslapokar í lok ferðar. Til gamans
má svo renna sér um í drullusv-
aðinu á pokunum góðu. Einnig er
sniðugt að hafa plastpoka undur
myndavélar, snyrtidót, þurru sokk-
ana...já og bara allt sem þú vilt ekki
að verði gegnsósa í vatni.
Regnföt – Hlífðarföt sem halda
vatni og vindum, það þarfnast ekki
útskýringar.
Sólarvörn – Sólarleysið hér á
Fróni er þess oft valdandi að Ís-
lendingar leggjast grimmt í sólböð
þegar á erlenda grund kemur. Best
er þó að fara varlega enda fátt
verra en sólbruni.
Góða skapið – Þetta er auðvitað
elsta klisjan í bókinni en þegar
ferðalangar lenda í því að vaða
drulluna uppí handarkrika til að
reyna að finna restina af farangri
sínum á floti skemmir örlítið jafn-
aðargeð ekki fyrir.
Vítamín – Holl og næringarrík
fæða vill oftar en ekki sitja á hak-
anum í slarkinu. Best er því að
byrja daginn á að skola niður vít-
amíni til að gera sig kláran fyrir
átök dagsins. Ekki er endilega
mælt með að skolað sé niður með
bjór. Í því samhengi má einnig
mæla með því að bjór sé ekki tek-
inn með á áfangastað. Ekki vegna
þess að bjór sé ónauðsynlegur á
útihátíðum erlendis. Staðreyndin er
einfaldlega sú að mjöðurinn er nær
undantekningalaust ódýrari á er-
lendri grund og því óþarfi að
burðast með hann í ferðatöskunni.
Tjald – Með góðum botni. Mælt
er með að tjalda ekki á lægsta
punkti svæðisins. Það á kannski
ekki við í Flatlendinu í Danmörku
en Glastonbury er í dal þar sem
vænlegra er að tjalda ekki þar sem
allt vatn rennur að ósi. Þess má
geta að gestum gefst kostur á að
skilja tjöldin sín eftir og gefa úti-
legubúnað sinn til verkefnis sem
nefnist Give Me Shelter (Veittu
mér skjól). Útbúnaðurinn er sendur
til þurfandi fólks í Botswana og Sri
Lanka.
Tónleikadagskrá – Þrátt fyrir
gleði og glaum er tónlistin þunga-
miðja hátíða af þessu tagi. Gott er
að hafa yfirsýn yfir þá tónleika sem
í boði eru, hvar þeir eru og klukkan
hvað. Hófleg bjartsýni er best í
áætlanagerð. Ekki er mælt með að
ætla sér of mikið á stuttum tíma.
Leiðarvísir bakpokaferðalangsins
Glastonbury-tónlistarhátíðin sett á morgun Spáð er úrhellisrigningu á svæðinu
Morgunblaðið/Árni Torfason
Hróarskelda 2004 Þessir gleymdu líklega svörtu ruslapokunum heima.
Allra veðra von Fyrirsætan Kate
Moss var léttklædd í blíðunni á
Glastonbury árið 2004…
…en Keira Knightley pakkaði
blessunarlega stígvélunum sínum á
sömu hátíð ári síðar.
Reuters
Allt á floti! Úrhellisrigning einkenndi Glastonbury-hátíðina 2005.
ÞÓR HF | REYKJAVÍK : Ármúla 11 | Sími 568-1500 | AKUREYRI: Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor. is
Nú er rétti tíminn til að kaupa SENTINEL garðtraktor
Á BETRA VERÐI!
12,5 ha Briggs & Stratton mótor
76 cm sláttubreidd, afturkast
5 hraða skipting, grassafnari.
199.000,-
18 ha Briggs & Stratton mótor
107 cm sláttubreidd, hliðarfrákast
5 hraða skipting, grassafnari.
279.000,-
12,5 ha Briggs & Stratton mótor
102 cm sláttubreidd, hliðarfrákast
5 hraða skipting.
169.000,-
15,5 ha Briggs & Stratton mótor
102 cm sláttubreidd, hliðarfrákast
vökvaskipting.
209.000,-
17 ha Briggs & Stratton mótor
107 cm sláttubreidd, hliðarfrákast
vökvaskipting.
239.000,-
18 ha garðtraktorinn
er með stýri á öllum
hjólum.
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Montreal 28. júní.
Þetta er einstakt tækifæri til að njóta lífsins í þessari stórkostlega
spennandi borg. Það er frábært að skoða sig um, versla og njóta lífsins
í Montreal; fallegar byggingar, endalaust úrval verslana og veitingastaða
og hagstætt verðlag. Gríptu tækifærið og smelltu þér til Montreal og
njóttu þess sem þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða.
2 fyrir 1 til
Montreal
Kanada
frá aðeins kr. 19.990
Allra síðustu sætin
Verð kr. 19.990
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með
sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 28. júní.
Munið Mastercard
ferðaávísunina