Morgunblaðið - 30.08.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 235. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
14 ÁRA HAMHLEYPA
STEFANÍA VINNUR BESTU FRJÁLS-
ÍÞRÓTTAKONUR LANDSINS >> ÍÞRÓTTIR
LENGRA SUMAR Í
GRASAGARÐINUM
HAUSTSÚPA
MARENTZA POULSEN >> 18
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
SAMKVÆMT lögum um útsenda starfs-
menn erlendra fyrirtækja og starfsmanna-
leigur er fyrirtæki eða starfsmannaleigu,
sem hyggst veita þjónustu hér á landi, skylt
að veita Vinnumálastofnun margvíslegar
upplýsingar. Meðal þeirra upplýsinga er
staðfesting þess að starfsmenn hér á landi
njóti slysatrygginga. Erlendur starfsmað-
ur, sem hér starfar í tvær vikur eða lengur,
skal vera vátryggður við störf sín vegna
andláts, varanlegs líkamstjóns og tíma-
bundins missis starfsorku. Vátryggingin
nær hins vegar aðeins til slyss í starfi eða á
eðlilegri leið milli vinnustaðar og dvalar-
staðar. Gildir sjúkratrygging því jafnan um
slys utan vinnutíma.
Útlendingar sem hingað koma og taka
upp búsetu öðlast sjúkratryggingu eftir sex
mánaða dvöl hér á landi. Hið sama á við um
erlenda starfsmenn sem ráðnir eru beint til
fyrirtækis hér á landi, til dæmis fyrir milli-
göngu vinnumiðlunar. Þeir ganga inn í ís-
lenska almannatryggingakerfið, en hvenær
það verður fer eftir réttindum þeirra í
heimalandinu er Tryggingastofnun ber að
taka tillit til.
Fátíð undantekningartilvik
Ríkisborgarar EES-ríkja, sem hingað
koma til þess að leysa sérhæfð og tíma-
bundin verkefni eða í gegnum starfsmanna-
leigur, ganga að öllu jöfnu ekki inn í ís-
lenska almannatryggingakerfið, heldur er
sjúkrakostnaður sá er hlýst af dvöl þeirra á
sjúkrahúsum og öðrum stofnunum hér á
landi greiddur af sjúkratryggingastofnun í
heimalandi viðkomandi. Sjúkratrygging er-
lends starfsmanns í heimalandi og staðfest
vottorð um útsendingu hans frá heimalandi
er þó skilyrði fyrir þessu.
Ef einstaklingur hefur yfirhöfuð ekki not-
ið sjúkratryggingar í heimalandi sínu, til
dæmis sökum atvinnuleysis eða vanskila á
iðgjöldum, verður hann ekki sjúkratryggð-
ur hér á landi fyrr en eftir sex mánaða bú-
setu eða vinnu.
Hildur Sverrisdóttir, forstöðumaður al-
þjóðamála hjá Tryggingastofnun, telur að
það sé í algjörum undantekningartilvikum
sem erlendir verkamenn njóti engra al-
mannatrygginga, þótt engar tölulegar upp-
lýsingar séu til um það. Í slíkum undantekn-
ingartilvikum segir Hildur það ljóst að í
neyð sé engum neitað um þjónustu á heil-
brigðisstofnunum.
Langflestir
sjúkra-
tryggðir
Engum neitað um heil-
brigðisþjónustu í neyð
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Réttindi Útlendingar öðlast sjúkratrygg-
ingu eftir sex mánaða dvöl hér á landi.
INGA María Guðmundsdóttir, bóka-
vörður á Ísafirði, komst í fréttirnar á
dögunum sem þriðji tekjuhæsti ein-
staklingurinn á Vestfjörðum. Starfið
á bókasafninu veitir henni ekki svo
miklar tekjur heldur er það dúkku-
lísuvefur á Netinu, eða nokkurs kon-
ar tenglasafn slíkra leikja, sem með
auglýsingum er farinn að gefa svo vel
í aðra hönd. Þegar best lætur fær
Inga María upp undir sjö milljónir
heimsókna á vefinn á mánuði og um
40 milljón flettingar. Níu ár eru liðin
síðan hún setti vefinn upp, www.dressupgames.com, og síðan þá hefur
hann smátt og smátt verið að vinda upp á sig. Nú er svo komið að Inga
María er að skoða möguleika á stofnun sérstaks fyrirtækis kringum rekst-
urinn. Hún segist aldrei hafa auglýst vefinn sérstaklega heldur hafi hann
einfaldlega spurst út meðal fólks. Það sé besta auglýsingin. | Viðskipti
Vinsælar dúkkulísur
Leikir Vinsælt er orðið að klæða
dúkkulísur upp á vefnum.
NÆSTU daga eiga gestir miðbæjarins eftir að verða varir við
dansandi fólk í bænum en Nútímadanshátíð í Reykjavík 2007 hefst
í dag og lýkur á sunnudaginn. Hátíðin breiðir úr sér um miðborg-
ina að degi til en á kvöldin finnur hún sér samastað í Verinu við
Nýlendugötu þar sem aðalsýningarnar eru. Dansararnir tóku for-
skot á sæluna í gær og fengu sér snúning á Austurvelli. | 15
Morgunblaðið/Golli
Danshátíð hefst
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
„ÞAÐ gæti orðið mikil eft-
irsjá í huga fólks þegar það
vaknar upp eftir nokkur ár
og stór og mikilvægur hluti
nítjándu aldar byggðarinnar
í Reykjavík verður horfinn,“
segir Margrét Hallgríms-
dóttir þjóðminjavörður
vegna ítrekaðra fregna af
niðurrifi gamalla húsa. Þau
séu örfá eftir. Vísar hún með-
al annars til niðurrifshug-
mynda við Laugaveg og telur sjónarmið hús-
verndar ekki fá að njóta sín þegar útliti gamalla
bæjarkjarna er breytt.
Gætu orðið alvarleg mistök
„Það eru alvarlegir hlutir að gerast og ákveðin
afturför hefur orðið í húsvernd á undanförnum
árum, bæði í Reykjavík og sums staðar á lands-
byggðinni. Á Laugavegi gætu að mínu mati orðið
mjög alvarleg mistök með frekara niðurrifi gam-
alla húsa, því það skiptir miklu máli að halda í
heildarmynd götunnar. Niðurrif í elstu hlutum
borgarinnar á auðvitað ekki að eiga sér stað. Það
þarf því að fara meira yfir þessi mál heildstætt
og ræða þau meira,“ segir Margrét. Hún vonar
að Reykvíkingar haldi í þau gömlu hús sem enn
eru varðveitt í borginni enda séu þau í raun örfá.
dæmi um það, þar sem miklum hluta af gamla
bænum var breytt fyrir allmörgum árum. Menn
sjá enn eftir þessum borgarhluta, en á hinn bóg-
inn kunna þeir að meta gamla bæinn sem varð
eftir. Þar er heilmikið mannlíf.“
Stórslys í minjavörslu?
Fyrirhugað niðurrif húss í Hafnarstræti 98 á
Akureyri, oftnefnds Hótels Akureyrar, hefur
verið í fréttum undanfarið, en til stendur að
rýma fyrir nýbyggingu á lóðinni. Margrét skoð-
aði húsið ásamt fulltrúum húsafriðunarnefndar í
gær. „Það sem er að gerast á Akureyri núna get-
ur orðið stórslys í minjavörslu. Umrætt hús er
hluti af mjög sterkri heild. Ég vonast til þess að
beitt verði aðgerðum til að verja húsið. Annars
verður þar höggvið skarð í sögulega götumynd.“
„Ég er þó bjartsýn á að hugmyndasamkeppnin
um reitinn við Austurstræti eigi eftir að skila
hugmyndum um verndun gömlu húsanna og
uppbyggingu í tengslum við þau,“ segir Mar-
grét.
Hvarvetna í nágrenni Laugavegar og Austur-
strætis er umhverfið að breytast. Lóðaverð er
hátt og peningasjónarmið virðast ráða miklu um
útlit svæðisins. Margrét segir hins vegar að í
helstu borgum Evrópu hafi myndast sátt um að
vernda gamla kjarnann og aðlaga endurbætur
og uppbyggingu á honum. Þar hafi tekist mjög
vel að vernda gamla miðbæjarkjarna sem gefa
menningargildi og blæbrigði. Í hinum mikla
hraða sem ríki á Íslandi geti verið að menn séu
að gleyma sér. „Sums staðar hafa þó verið gerð
mistök sem menn sjá eftir. Stokkhólmur er gott
Örfá hús frá 19. öld eftir
Þjóðminjavörður segir afturför hafa orðið í húsafriðun á undanförnum árum
Margrét
Hallgrímsdóttir
Morgunblaðið/Sverrir
Friðun? Margrét segir Hótel Akureyri
mikilvægan hluta af götumyndinni.
ÞORSTEINN Gunnarsson,
formaður húsafrið-
unarnefndar, segist vilja
láta friða húsið á Lauga-
vegi 2 og láta friðun þess
húss smita út frá sér svo að
götumyndin haldist
óbreytt.
Þorsteinn segist í samtali
við Morgunblaðið þó vera smeykur um að
skilaboð nefndarinnar þessa efnis komist ekki
nógu vel til skila.
Vill friða Laugaveg 2
©
In
te
rI
KE
A
Sy
ste
m
sB
.V
.2
00
7
NÝR VÖRULISTI
heillandi
HUGMYNDIR
www.IKEA.is